Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 20
Þ
au blasa við þegar litið er í
norður og vestur þar sem
draumahæðirnar synda í
himninum innan um perlu-
hvít og grá skýin. Þau fanga fyrstu
geisla morgunsólarinnar og halda á
síðustu litum sólsetursins. Þau eru
tvö fjöll, sem lyfta tindum sínum yf-
ir fegurstu borg í Kanada og eru
þekkt í öllu Breska heimsveldinu
sem Ljónin í Vancouver.“
Þannig hefst endursögn kana-
dísku skáldkonunnar E. Pauline
Johnson á frumbyggjaþjóðsögunni
af Ljónunum, tveimur oddmjóum
fjallatindum, sem eru eitt helsta
einkenni Vancouver í Bresku Kól-
umbíu í Kanada. Í sögunni voru
tindarnir upphaflega tvær systur
sem komu á friði og bræðralagi
milli ættbálka og að launum lyfti
andinn mikli þeim á stall þar sem
þær standa um aldur og ævi vörð
um friðinn á Kyrrahafsströnd og
kyrrðina í Capilano-gili.
Margt í Vancouver vísar til Ljón-
anna. Þannig heitir ruðningsfélag
borgarinnar BC Lions, gömul og
virðuleg hengibrú, sem tengir sam-
an borgarhluta, nefnist Lions Gate-
brúin og kvikmyndafélagið Lions-
gate, sem hefur framleitt fjölda
Hollywood-mynda, er einnig nefnt í
höfuðið á Ljónunum enda stofnað í
Vancouver.
Ég átti þess kost að skreppa
þangað nú í maí í tengslum við að
Icelandair hóf beint flug héðan til
borgarinnar. Það er óhætt að segja
að Vancouver bjóði af sér góðan
þokka við fyrstu kynni. Borgin er
frekar ung; þéttbýli fór ekki að
myndast þarna fyrr en á ofanverðri
19. öld, hún er nútímaleg með há-
hýsum, breiðum götum og aðgengi-
legu skipulagi og þar er nánast
ómögulegt að villast því fjöllin í
norðri blasa við milli skýjakljúf-
anna. Nóg er af veitingastöðum af
öllu tagi og maturinn þar er ekki
dýr, í miðborginni eru versl-
unargötur og verslunarmiðstöðvar
og í einni þeirra, Pacific Centre, er
að finna H&M-verslun – góðar
fréttir fyrir Íslendinga. Loftið er
tært og vatnið gott. Í göngufæri frá
miðborginni er stórt útivistarsvæði,
Stanley Park, þar sem hægt er að
ganga eða hjóla meðfram ströndinni
og virða fyrir sér borgina, höfnina
og flutningaskipin sem bíða í hóp-
um eftir að affermingu en Vancou-
ver er stærsta hafnarborg Kanada.
Það þykir gott að búa í Vancou-
ver og heimamenn segja manni
stoltir að sjónvarpskonan Oprah
Winfrey og Hollywood-stjarnan
Goldie Hawn hafi báðar keypt sér
hús í borginni. Það má líka skil-
greina Vancouver sem vest-
uríslenskt svæði, en þar er eitt öfl-
ugasta Íslendingafélagið í
Vesturheimi.
Ég hafði heyrt að það rigndi
mikið í Vancouver, líkt og í banda-
rísku borginni Seattle, sem er ekki
langt handan landamæranna. Það
styður þetta að skógarnir í hæð-
unum fyrir ofan borgina eru skil-
greindir sem regnskógar. Heima-
menn fullyrða hins vegar að þar sé
alltaf sól á sumrin og dagana þrjá,
sem ég dvaldi í borginni var logn
og glaðasólskin, borgin og umhverfi
hennar var komið í sumarskrúða og
borgarbúar fjölmenntu á þrjár bað-
strendur sem eru nánast í miðborg-
inni.
Borgaryfirvöld leggja nú mikla
áherslu á sjálfbærni og vistvænan
lífsstíl. Þannig var ný ráðstefnu-
miðstöð við höfnina byggð eftir
grænum stöðlum og víða er verið
að leggja grænar hjólaakreinar.
Það er auðvelt að hjóla um borgina
og ódýrt að leigja hjól.
En sjón er sögu ríkari. Fyrir þá
sem hafa hug á að heimsækja Van-
couver á næstunni eru hér nokkrar
vefslóðir:
tourismvancouver.com
granvilleisland.com
ediblecanada.com
flyovercanada.com
vanartgallery.com
capbridge.com
forbiddenvancouver.com
BORGARFERÐ TIL VANCOUVER
Þessar styttur vekja jafnan athygli í Vancouver. Þær eru eftir kínverska lista-
manninn Yue Minjun og eru sjálfsmyndir hans, brosandi út að eyrum.
Mörgum þykir miðborg Vancou-
ver minna á Manhattan í New
York með háhýsum sínum.
Hæsta hús borgarinnar, Shangri-
la byggingin sem er 201 metra há,
sést hægra megin á myndinni.
Í borg ljónanna
Sjóflugvél lendir í Vancouver-höfn. Í baksýn fyrir miðri mynd blasa við Ljónin,
snæviþöktu fjallstindarnir tveir sem eru eitt helsta tákn borgarinnar.
Þrjár baðstrendur eru í Vancouver og hér er ein þeirra. Undan ströndinni bíða
flutningaskipin átekta eftir að komast inn í höfnina til affermingar.
* Þau eru tvöfjöll, sem lyftatindum sínum yfir
fegurstu borg í
Kanada
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Ferðalög og flakk
BEINT FLUG ER HAFIÐ MILLI KEFLAVÍKURFLUGVALLAR OG VANCOUVER Á VESTUR-
STRÖND KANADA. Í VANCOUVER OG NÁGRENNI ER MARGT AÐ SKOÐA OG NJÓTA.
Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is