Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 25
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
H
rafnhildur Agnarsdóttir er 21 árs og er úr
Vesturbænum í Reykjavík. Líkt og margir
Vesturbæingar stundaði hún nám í
Menntaskólanum í Reykjavík og útskrif-
aðist þaðan af málabraut árið 2012 og stundar núna
BS námi í líffræði við Long Island University í New
York. Eftir líffræðinámið ætlar Hrafnhildur að leggja
fyrir sig læknisfræðina og á því strangt og langt
læknanám framundan en sjálfsaginn og keppn-
isskapið á eflaust eftir að hjálpa henni í læknanám-
inu.
Hrafnhildur hefur æft og spilað með Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá 5 ára aldri og
hóf að æfa mark 15 ára gömul. Þá var hún
kjörin markmaður kvenna í KR árið 2011 og
2013. Í dag spilar hún með LIU Post Pio-
neers í bandaríska háskólaboltanum á
haustin og með KR á sumrin.
Gælunafn: Hreffie
Íþróttagrein: Knattspyrna
Hversu oft æfir þú á viku? Fer algjörlega
eftir annríki. Fótboltinn er yfirleitt 5-6
sinnum í viku og svo lyfti ég yfirleitt 2-3
sinnum í viku ásamt einhverjum blessuðum
hlaupum.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Það
er mjög mikilvægt að setja sér há-
leit en raunhæf markmið
ásamt því að hafa góð-
an sjálfsaga.
Hvernig er best
að koma sér af
stað? Finna sér
einhverja
skemmtilega
hreyfingu. Það er
fátt leiðinlegra en
að peppa sig upp í
leiðinlegar æfing-
ar.
Hvað ráðleggurðu
fólki sem vill hreyfa
sig meira? Hætta að
fresta hlutunum og
gera hreyfingu að
ómissandi hluta af dag-
legu rútínunni.
Hvernig heldurðu þér í
formi þegar þú ferð í frí?
Ég fer í rauninni aldrei
frí, frá maí fram í ágúst er
fótboltinn á fullu hérna
heima og svo tekur við
annað tímabil úti í lok ágúst. Þegar það klárast byrj-
ar svo langt undirbúningstímabil fyrir mótið í maí.
Ertu almennt meðvituð/ur um mataræðið? Ég var
það í raun ekki fyrr en ég flutti til Bandaríkjanna
enda McDonalds og Burger King innan kílómetra
radíuss frá húsinu mínu. Ég bý einnig með 5 karl-
mönnum sem borða mjög hollt og það smitar mikið
frá sér og er ég í kjölfarið farin að borða mjög hollt.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Hafra-
grautur er nauðsynlegur til að hefja daginn, og ég
borða einnig mikið af grænmeti yfir
daginn og forðast brauð eins og
heitan eld.
Hvaða óhollusta freistar þín?
Snakk er eitthvað sem ég hef
átt mjög erfitt með að stand-
ast í gegnum tíðina.
Hvað ráðleggurðu fólki
sem vill bæta mataræðið?
Það er algjört undir-
stöðuatriði að finna eitthvað
sem manni finnst í raun og
veru bragðgott. Það er ekk-
ert meira niðurdrepandi en
að borða vondan mat.
Hvaða gildi hefur hreyf-
ing fyrir þig? Hreyfing
hefur gríðarleg áhrif á
líf mitt, bætir skap og
líðan. Ég er orkubolti
sem er alltaf á
hreyfingu og verð
virkilega eirð-
arlaus ef ég næ
ekki að hreyfa
mig nóg.
Hver eru algeng
mistök hjá fólki
við æfingar? Að
búast við árangri
strax. Ég gerist oft
sek um þessi mistök,
kíki t.d. í spegil eftir
kviðæfingar til að gá
hvort að ég sé komin með
sixpack, en árangur tekur
tíma, aga og þolinmæði.
Hverjar eru fyrirmyndir þín-
ar? Ég á nú engar fyrirmyndir
en ætli að ég líti ekki helst upp
til hennar móður minnar og
systur minnar, enda báðar
kjarnakonur með fallega sál.
KEMPA VIKUNNAR HRAFNHILDUR AGNARSDÓTTIR
Æfir og keppir fyrir
tvö knattspyrnulið
Hálftíma göngutúrar nokkrum sinnum í viku eru góð leið til að
koma sér af stað. Þeir sem fara of geyst af stað og ætla sér of mikið í
upphafi eiga frekar á hættu að gefast upp. Hófleg og góð hreyfing er
húsráð sem allir ættu að temja sér.
Förum ekki of geyst af stað*Velgengni er þar sem undirbúningur og tækifæri mætast.
Robert William „Bobby“ Unser
einstakt
eitthvað alveg
STOFNAÐ1987
| S k i p h o l t 5 0 S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
VA
XTALAUS
M
ál
ve
rk
:
A
u
ð
u
r
Ó
la
fs
d
ó
tt
ir
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n
Margir eiga erfitt með að byrja dag-
inn án þess að fá sér kaffibolla enda
inniheldur einn bolli af kaffi nærri
því 100 mg af koffíni. Efni sem örvar
líkamann og veldur útvíkkun æða,
eykur hjartsláttinn og blóðflæði
eykst til líffæra. Koffínið hefur einnig
áhrif á öndun, eykur þvagmyndun
og örvar meltinguna. Þannig getur
koffín dregið úr þreytu og skerpt á
einbeitingunni. Þrátt fyrir það vara
lýðheilsustofnanir við of mikilli
neyslu koffíns sem er að finna í
mörgu öðru en bara kaffinu. Í 100
grömmum af dökku súkkulaði er
t.d. 65 mg af koffíni og 15 mg í
mjólkursúkkulaði. Orkudrykkir hafa
gjarnan að geyma töluvert magn af
koffíni en í einni u.þ.b. 250 mbl. dós
getur verið allt frá 40 og upp í 100
mg af koffíni.
Samkvæmt ráðum Matvælastofn-
unar á neysla koffíns ekki að fara yfir
400 mg á dag hjá heilbrigðum ein-
stakling. Neysla umfram það getur
auk hættuna ýmsum kvillum. Sam-
kvæmt upplýsingum matvælastofn-
unar Nýja Sjálands getur neysla um-
fram 400 mg af koffíni á dag, sem
nemur um 4 bollum af kaffi á dag,
aukið líkur á kvíða, vöðvakippum,
magaverkjum, hjartsláttartruflunum,
höfuðverkjum, of háum blóðþrýst-
ing o.fl. óskemmtilegu. Góður svefn
er því miklu betri lausn á þreytu en
nokkrir kaffibollar yfir daginn.
GÓÐUR SVEFN BETRI EN KOFFÍN GEGN ÞREYTU
Hámarks koffínneysla í
fjórum kaffibollum
Flestir þekkja kaffiþörfina á morgn-
anna og yfir daginn. Of mikil kaffi-
drykkja er engum holl til lengdar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heilsubót hugleiðslu hefur lengi ver-
ið þekkt í hinum austræna heimi en
nýlega hafa vestrænir læknar og vís-
indamenn sýnt fram á gildi hennar
eða allavega vísbendingu um gildi
hennar með rannsóknum. Dr. Her-
bert Benson, læknir hjá Harvard
Medical School hefur stundað rann-
sóknir á gildi hugleiðslu og slökunar
í fjölda ára og telur víst að hugleiðsla
hafi jákvæð áhrif á heilsu fólks. Í fyr-
irspurn sem lögð var fyrir starfs-
félaga hans hjá Harvard læknaskól-
anum, dr. Anthony Komaroff, um
gildi hugleiðslu segir Komaroff að
fjöldi rannsókna hafi sýnt fram á gildi
hugleiðslu sem áhrifavalds á streitu,
stress, kvíða og jafnvel þunglyndi og
sársauka. Þá bendir margt til þess að
hans mati að hugleiðsla og slökun
hafi jákvæð áhrif á fleiri kvilla eins og
of háan blóðþrýsting.
Íslendingar eru nýjungagjarnir og
margir stunda og kenna hugleiðslu
hér á landi. Þeir sem þjást af streitu,
kvíða eða öðrum kvillum ættu að
prófa hugleiðslu og sjá það á sjálfum
sér hvort hún virkar.
ER HUGURINN LYKILLINN AÐ LÆKNINGUM?
Regluleg hugleiðsla gegn
stressi og streitu
Þegar hraðinn í samfélaginu er farinn
að segja til sín er tilvalið að setjast
niður og hugleiða um stund.
Morgunblaðið/Ómar