Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 36
Græjur
og tækni
Kælir vínið á leiðinni í glasið
*Ravi-vínkælirinn er sniðug lausn fyrir þásem vilja kæla vínið hratt. Honum er ein-faldlega smellt framan á vínflösku og víniðkælist um leið og það rennur í gegnumkælinn, sem er eins konar stútur. Vínkæl-irinn kostar 40 dollara á Amazon.com eðarúmlega 4.500 krónur. Kælirinn er geymd-
ur í frysti þegar hann er ekki í notkun.
Flestir telja eflaust að símamarkaðurinn sé kominn í nokk-uð fastar skorður; Android og iOs verði ráðandi stýri-kerfi og aðrir eigi enga möguleika. Undanfarið hefur þó
farsímakerfi Microsoft, Windwos Phone, sótt í sig veðrið og
ný útgáfa, 8.1, sýnir að Microsoft ætlar að sækja fram af full-
um krafti.
Þó uppfærslan virðist ekki mikil á pappírnum, úr 8.0 í 8.1,
kemur fljótlega í ljós að hún er umtalsverð, svo mikil reyndar
að réttara hefði verið að nota útgáfunúmerið 8.5 eða jafnvel
9.0 – það segir sitt að á yfirliti yfir Windows Phone-stýrikerfið
fara níu blaðsíður í að telja upp það sem er nýtt í 8.1.
Ein helsta skrautfjöður Windows-síma hefur verið það sem
Microsoft kallar lifandi flísar, en það eru reitir á upphafsskjá
sem endurnýja sig eftir því sem
upplýsingar berast. Þannig sýnir
Facebook-flísin nýjustu upp-
færslur, hægt er að hafa reit sem
streymir nýjum fréttum, annan
fyrir tölvupóst eða dagbók og svo
má telja. Það er því nóg að líta að-
eins á skjáinn til að fá yfirlit yfir
það helsta sem maður vill fylgjast
með á annað borð. Til eru við-
bætur fyrir Android-síma sem
gera þetta kleift að nokkru leyti,
en ég hef ekki séð það eins vel gert og í Windows-farsímum. Í
8.1 uppfærslunni bætist það við að hægt er að setja á skjáinn
reit fyrir vefsíður sem uppfærast þá eftir því sem þær eru
uppfærðar.
Upplýsingaflísar með vefsíðum eru knúnar af vafra, Int-
ernet Explorer, en símaútgáfa hans er nú komin í útgáfu 11.0.
Viðbætur í honum eru meðal annars svonefndur einkagluggi,
sérstök stilling til að draga úr gagnamagni sem sótt er (færri
myndir sóttar, auglýsingum sleppt og aðeins sóttur sá hluti
síðunnar sem skoðaður er), samstilling mili tækja (vafrasaga
og kökur fylgja frá borðtölvu í síma eða spjaldtölvu og öfugt),
sérstakur leshamur fyrir vefsíður sem henta illa í farsíma og
raddstýring með Cortana (meira um það hér fyrir neðan).
Með Windows 8.1 fylgir betaútgáfa af þjónustu sem Micro-
soft kallar Cortana (eftir samnefndri persónu í Halo-
leikjunum). Ef kveikt er á Cortana (sem er ekki til fyrir ís-
lensku sem stendur) þá kemur hún í stað Bing sem leitarvél
og safnar að auki upplýsingum um notandann eftir því sem
hann notar símann. Eftir því sem hún lærir meira nýtist hún
betur, velur til að mynda fréttir og ábendingar sem
falla að smekk og áhugamálum, en það er líka hægt
að láta hana gera sitthvað eins og að minna mann á
eitthvað tiltekið þegar maður er í tiltekinni verslun,
eða á tilteknum stað.
Líka má láta Cortana hætta að taka við símtölum á
tilteknum tíma, en það má líka búa svo um hnútana að
hringi einhver tvívegis innan þriggja mínútna þá nái
símtalið í gegn og svo má líka stilla Cortana svo að sá
sem hringir fær SMS með lykilorði sem hann getur sent
til að ná sambandi ef erindið er áríðandi.
Cortana svipar til Google Now að því leyti að hún
sankar að sér upplýsingum eftir notkun sem þjónustan
telur mikilvægar eða markverðar. Þær birtast svo í minn-
isblokk Cortana og hægt að sýsla með þær þar, ef vill,
og gera forritið fullkomnara fyrir vikið. Fín viðbót, en
kostar smá tilfæringar að koma henni í gang hér.
Önnur gagnleg nýjung er það sem kallast Wi-Fi
Sense, en þá tengist síminn sjálfkrafa ef hann finnur
opið þráðlaust net og gefur upp nafn, netfang eða
símanúmer ef þess er krafist. Skemmtilegur snún-
ingur á þessu er að hægt er að deila aðganginum, þ.e.
þegar síminn hefur tengst tilteknu þráðlausu neti er
hægt að deila þeim aðgangi með félögum sem eru með
síma sem keyrir á Windows 8.1.
Fjölmargt fleira má telja sem gerir Windows-síma
þægilegri í notkun, en eftir að hafa notað ýmsar útgáfur
af Windows fyrir síma finnst mér þessi útgáfa vera sú
þægilegasta til þessa og sú sem auðveldast er að ná tök-
um á; það mætti lýsa því svo að Microsoft þvingi ekki
lengur notendur til að laga sig að stýrikerfinu, heldur lagar
stýrikerfið sig að notandanum.
NÝ ÚTGÁFA AF WINDOWS FYRIR FARSÍMA
MICROSOFT KYNNTI Á DÖGUNUM NÝJA ÚT-
GÁFU AF WINDOWS FYRIR FARSÍMA, SEM HEFUR
FENGIÐ GÓÐAR VIÐTÖKUR. ENN Á FYRIRTÆKIÐ
ÞÓ LANGT Í LAND AÐ SKÁKA ANDROID EÐA
IOS EN NÝJA ÚTGÁFAN, WINDOWS PHONE 8.1,
ER ÞÓ EINKAR VEL HEPPNUÐ UPPFÆRSLA.
* Eitt af því sem gert hefurMicrosoft/Nokia erfitt fyrir á
símamarkaði er að ýmis vinsæl
forrit hafa ekki verið til fyrir stýri-
kerfið. Þar hefur þó mikið áunnist
og er reyndar svo komið að fólk
kvartar helst yfir því að tiltekna
leiki vanti, sem eru þó sumir mik-
ilvægir (Candy Crush Saga) en líka
sakna margir Snapchat.
* Frábært kortaforrit fylgir,Nokia HERE Maps, og hefur það
framyfir Google Maps að öll kort
eru vistuð á símanum og því þarf
ekki að sækja kortaupplýsingar
þegar maður er til að mynda
staddur erlendis eða á stað þar
sem símasamband er stopult.
Líka er hægt að láta símann segja
manni til vegar (Nokia HERE
Drive).
* Enskumælandi njóta þess aðhafa Cortana, en þeir njóta þess
líka að geta notað lyklaborðsstill-
ingu sem kallast Word Flow og
minnir um margt á Swype-
lyklaborðsforritið. Með Word
Flow er hægt að margfalda skrif-
hraða, enda lyftir maður ekki
fingrinum af lyklaborðinu heldur
rennir honum á næsta staf og
svo koll af kolli.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Cortana var
gervigreind-
arpersóna í
Halo-
leikjunum.
Ég kynnti mér kosti Windows 8.1 á nýjum
Nokia-síma, Lumia 630, sem er merkilegur
fyrir margt og þá ekki síst verðið, því hann
kostar ekki nema 32.990 kr. á vefsetri Opinna
kerfa sem flytja símann inn.
Hann er enginn lúxussími, eins og verðið
gefur til kynna, en þrælsnöggur og skemmti-
legur. Bakið á honum er plastskel sem skjár-
inn (og vélbúnaður) fellur ofan í og hægt að fá
í áberandi skærum litum ef vill.
Örgjörvi í símanum er 1,2 GHz Quad-core
Snapdragon 400 og vinnsluminnið 512 MB.
Það er ekki mikið gagnaminni í símanum, 8
GB, en rauf fyrir microSD / microSDHC
minniskort sem mega vera allt að 128 GB. 7
GB pláss í OneDrive gagnaskýrri Microsoft
fylgir.
Lumia 630 er fyrirtaks snjallsími og reyndar
mjög góð kaup þegar litið er til þess hvað
hann kostar. Hann fer vel í hendi, er 129,5 x
78,5 x 9,2 mm að stærð og 134 g að þyngd.
Skjárinn er 4,5" IPS LCD ClearBlack með
upplausnina 480 x 854 dílar, 218 ppi. Glerið
er Gorilla Glass 3. Það er á honum 3,5 mm
tengi fyrir hljóð inn / út og microUSB-tengi
fyrir gagnaflutning og straum.
Síminn styður Bluetooth 4.0 og b/g/n þráð-
laust net. Það er líka innbyggt útvarp. Það
kemur varla á óvart að svo ódýr sími sé ekki
með 4G stuðning, en væntanleg er dýrari
týpa, 635, sem er með 4G og líka skilst mér
útgáfa fyrir tvö SIM-kort sem hefur augljósa
kosti.
Rafhlaða í símanum er 1.830 milliamper, tal-
tími getur verið allt að 20 klst. og bið allt að
600 klst.
NOKIA LUMIA 630
Snar og skemmtilegur