Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 40
Tíska Eldri konur í auglýsingaherferðum *Hedi Slimane, yfirhönnuður tískuhússins Saint Laurent, hefur fengiðsöngkonuna og tískugyðjuna Marianne Faithful, til þess að vera and-lit nýjustu auglýsingaherferðar tískuhússins. Hin 67 ára fyrrverandikærasta rokkarans Mick Jagger tekur sig vel út í herferðinni, meðsinn sérkennandi hártopp og svartan augnblýant. Fleiri eldri konurhafa á síðasta ári verið fengnar sem andlit hátískumerkja og má þarnefna Jessicu Lange leikkonu sem í fyrra, þá 64 ára, var ráðin andlit förðunarlínu Marc Jacobs og Catherine Deneuve, 70 ára, sem var fengin til þess að vera andlit tískuhússins Louis Vuitton. Ásgrímur Már fatahönnuður teiknar fallegar myndir sem hann mun selja í Gall- eria Reykjavik. Morgunblaðið/Árni Sæberg Snillingurinn Nicolas Ghesquiere. ÆTLAR AÐ KLÆÐAST LITUM OG MYNSTRUM Í SUMAR Efripartar auðveldastir í kaupum ÁSGRÍMUR MÁR FRIÐRIKSSON, FATAHÖNNUÐUR OG TEIKNARI, HEFUR EINSTAKT TÍSKUVIT ENDA VERIÐ VIÐLOÐ- ANDI TÍSKUBRANSANN Í YFIR 10 ÁR. ÁSGRÍMUR SEGIST ALLTAF HAFA FARIÐ SÍNAR EIGIN LEIÐIR Í FATAVALI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is H vað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Hugvit, fagurfræði og gæði. Áttu þér einhvern uppáhalds- fatahönnuð? Tel að ég eigi ekki neinn einn, heldur fari það algjörlega eftir tímabilum. Persónulega finnst mér Nicolas Ghesquiere vera algjör snillingur. Einnig mun ég ávallt dá meistara eins og Yves Saint Laurent, Thierry Mugler og Alexander McQueen. Hver var fyrsta hönnunarflíkin sem þú keypt- ir þér? Fyrsta „stóra“ merkið sem ég eignaðist var grafískur, blár og hvítur kjólfatajakki frá Comme des Garçons Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Kata Kára fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ er algjör eðaltöffari. Maður verður að bera virðingu fyrir einstakling sem tekur sig jafn vel út í gönguskóm og Givenchy-hælum. Hverju er mest af í fataskápnum? Svo virðist vera að efripartar séu mér auðveldastir í kaup- um. Ég á að minnsta kosti mikið af skyrtum, peysum, jökkum o.s.frv. Áttu það dýrmæta flík að þú tímir ekki að nota hana? Nei, til hvers að eiga eitthvað ef þú ætlar ekki að nota það? Áttu þér uppáhaldsflík? Það er ekki ein flík sem er í uppáhaldi, heldur fæ ég alltaf æði fyrir nýju flíkunum mín- um og vil eiginlega helst bara vera í þeim, þar til sú næsta kemur í hús. Hvert er uppáhalds-„trendið“ þitt fyrir sumarið? Trend og ekki trend. Eina planið er bara að vera lífsglaður og sumarlegur með því að klæðast nógu af litum og mynstrum í sumar. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Á mínum yngri árum varð ég ávallt að fara mínar eigin leiðir og reyndar lít ég ekki á þau sem einhver tískuslys heldur hafi þetta verið visst rannsókn- arferli. Ásgrímur á mikið af skyrtum, peys- um og jökkum. Katrín Kára- dóttir tekur sig jafn vel út í gönguskóm sem og Gi- venchy-hælum Nicolas Ghesquiere eftirlætirhönn- uður Ásgríms er listrænn stjórnandi tískuhússins Louis Vuitton. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.