Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 49
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Eftir að hafa eytt vetrinum á Írlandi ákveður hrossagaukurinn að gleðja okkur Íslendinga og fljúga yfir hafið. Látið hann ekki gera ykkur bilt við. Hann stundar það að bíða alveg kjur þangað til þið komið upp að honum. Þá flýgur hann í einum rykk í burtu og skrækir á ykkur. Svona þekkirðu hrossagauk: Ef þú sérð fugl sem flýgur hálfskrykkjótt en ákaflega fallega gæti þar verið hrossagaukur á ferð. Sérstaklega ef hann hálfhneggjar svo á fluginu. Hann er svo auðþekktur þegar hann er á jörðu niðri. Dökkbrúnn er hann að ofan með ljósum röndum og ljósari að neð- an. Goggur er grár og fætur gulir. Svona þekkirðu hreiðrið: Ef þú ert á ferð í mýrlendi gætir þú vel rekist á hrossagaukshreiður. Það er milli þúfna og klætt sinustrám. Hjónin eru pottþétt saman hjá ungunum um þessar mundir sem ættu að vera að klekjast út úr eggjunum. Þau sjá um þetta í sameiningu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti GERIR ÞÉR BILT VIÐ: HROSSAGAUKURINN Óðinshani er algengur fugl en vinur hans þórshan- inn er mun sjaldgæfari. Margir rugla þeim saman. Svona þekkirðu þá: Óðinshaninn er með ör- mjótt, beint nef, svarta fætur og ótrúlega kvikar hreyfingar. Ef þú sérð fugl á tjörn, snúast hratt í hringi, hálfskoppandi er þetta líklega óðinshani. Þórshaninn er svo nauðalíkur honum en best er að einbeita sér að því að leggja muninn á haus þeirra og goggi á minnið til að þekkja þá í sundur. Þórshan- inn er með gulan gogg og stór hluti höfuðs er svart- ur og hvítur meðan höfuð óðinshanans er brúnna. Svona þekkirðu hreiðrið: Í raun er mjög ólíklegt að fjölskyldan rekist á óðinshanahreiður í sumar því það er afskaplega vel falið. Ef þið finnið fyrir algera tilviljun dæld í þúfu, mosa eða sinu gæti þetta verið hreiður fuglsins. Þórshaninn gæti valið sér gamlan þara eða sjávargróður til að búa til hreiður í en einnig graslendi. Honum er ekki eins umhugað og óðinshananum um að hylja hreiðrið sitt. En sund- hanarnir báðir eru, eins og aðrir sundfuglar, með það fyrirkomulag að karlinn sér um að liggja á eggj- unum og konan stingur bara af. Morgunblaðið/Golli EKKI ALLIR SEM ÞEKKJA Í SUNDUR: ÞÓRSHANI OG ÓÐINSHANI Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar Aðaldúlla sumarsins er glókollurinn. Svo er hann af svo fínni ætt; söngv- araætt. Glókollurinn er einn af nýjustu varpfuglunum og er minnsti fugl Evrópu, aldrei stærri en 10 sentimetrar. Það er metár hjá glókollinum í ár, aldrei áður hafa fleiri glókollar verið á Vesturlandi. Svona þekkirðu glókoll: Ef þér finnst þú aldrei hafa séð sætari og minni fugl er þetta líklega glókollur. Hann er hnöttóttur, ólífugrænn að ofan og ljós að neðan. Kollurinn á honum er með gulum bletti sem er rammaður inn í svart. En það er þá reyndar kvenfuglinn. Karlinn er með appelsínugul- ari tón. Þótt það sé enginn litur á kolli gæti þetta samt verið glókollur því ungir fuglar fá ekki litinn sinn strax. Svona þekkirðu hreiðrið: Glókollurinn gæti jafnvel tekið upp á því að verpa tvisvar og hægt er að sjá nýtt hreiður núna en einnig í júní. Hreiðrið áttu líklega eftir að rekast á í skógarlundi, glókollurinn vill vera í barr- skógum. GLÓKOLLUR: MINNSTA DÚLLAN Í sveitaferðinni í sumar, sérstaklega ef þú skreppur í fjörur, gætirðu rekist á háværan hóp tjalda því þeir vilja gjarnan vera sem mest saman. En þá gæti líka verið að finna á grænum túnum þar sem þeir eru að kenna ungviðinu að veiða. Því miður hafa fuglatalningar bent til þess að eitthvað gæti tjaldinum verið að fækka en þróunin er reyndar sú sama hjá mörgum öðrum vaðfuglum. Svona þekkirðu tjaldinn: Ef þú sérð fugl með rauð augu, afar glæsilegan, stóran og áberandi rauðgulan gogg og svo bleika fætur er afar líklegt að þetta sé tjaldur. Ef hann er þar að auki svartur að ofan og um hausinn en hvítur frá bringu og aftur má bóka það. Hann er mjög líklega með smá læti, hann er að minnsta kosti nokkuð hávær. Svona þekkirðu hreiðrið: Hreiðrið er afar fábrotið, oftast bara lítil dæld í möl eða sandi og eggin sjálf ljósbrún eða grá með svörtum rákum. Varptíminn er nú þegar hafinn og ættu ungarnir að vera að líta dagsins ljós um þessar mundir. Þeir verða fleygir eftir um það bil mánuð. Morgunblaðið/Ómar MEÐ SMÁ LÆTI: TJALDURINN Meira metan Núna í Álfheimum Vinur við veginn Olís hefur opnað nýja metanafgreiðslu á þjónustustöð Olís í Álfheimum. Áður höfðum við opnað metanafgreiðslu á þjónustustöð Olís í Mjódd. Metanið er vistvænt íslenskt eldsneyti, unnið úr hauggasi frá lífrænum úrgangi. Þriðja metanafgreiðslustöðin er svo væntanleg á Akureyri innan skamms. Taktu grænu skrefin með Olís
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.