Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 51
bridge í Englandi en leist illa á að- stæður þar.“ Síðustu orð Steina Gísla Meðan Pape var í Belgíu hringdi í hann Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis sem lýsti miklum áhuga á að fá hann til liðs við félagið sem lék í næstefstu deild. Fyrst ekkert varð úr Belgíuævintýrinu ákvað Pape að gefa Leikni tækifæri. Kannaðist við nokkra leikmenn í liðinu og leist vel á Sigurstein sem þjálfara. Sumarið varð mikil rússib- anareið. „Í byrjun sumars tilkynnti Steini okkur að hann hefði greinst með krabbamein og þyrfti að taka sér frí frá störfum. Hann kom ekki aft- ur, var sagt upp seinna um sum- arið. Veikindi Steina slógu okkur leikmennina út af laginu og við vor- um í miklu basli allt tímabilið. Björguðum okkur naumlega frá falli í lokaleiknum, þar sem ég náði að skora fjögur mörk gegn sjálfum deildarmeisturunum, Skagamönn- um. Það rættist því úr sumrinu.“ Pape ber mikið lof á Sigurstein. „Steini er einn sterkasti maður sem ég hef kynnst. Hann dæmdi mig ekki út frá því sem hann hafði lesið í fjölmiðlum heldur gaf mér tæki- færi. Hann var alltaf til staðar og hjálpaði mér mikið, líka eftir að hann hætti að þjálfa liðið. Steini hringdi síðast í mig viku áður en hann dó og við áttum gott samtal. Hann sagði við mig að ég hefði allt sem þyrfti til að ná langt, ég yrði bara að hafa hugarfarið í lagi. Það voru ómetanleg orð, þau síðustu sem Steini Gísla sagði við mig. Mér brá mjög þegar ég frétti af andláti hans, vissi ekki að hann væri svona langt leiddur. Steini mætti veik- indum sínum af miklu æðruleysi og lét þau ekki hafa nein áhrif á sig.“ Í samningi Pape við Leikni var klásúla þess efnis að kæmist liðið ekki upp í efstu deild mætti hann fara annað. Þegar Grindavík gerði honum tilboð ákvað hann því að slá til og spreyta sig aftur meðal hinna bestu. Þar beið hans annar sterkur karakter – Guðjón Þórðarson, sem þá var nýtekinn við liðinu. „Gaui er mjög hreinskilinn maður og strax á okkar fyrsta fundi sagði hann við mig: „Pape, það eru margir búnir að vara mig við að semja við þig. Nú skalt þú sýna þessu fólki að það hafi rangt fyrir sér!“ Ég mun aldrei gleyma þessu sam- tali, það hafði mjög hvetjandi áhrif á mig.“ Pape lét ekki segja sér það tvisvar, æfði eins og berserk- ur um veturinn og var kom- inn í „sumarform“ í febrúar. Raðaði svo inn mörkum á undirbúningstímabilinu. Horfur voru feikilega góðar. Þá dundi ógæfan yfir, Pape meiddist á mjöðm rétt fyrir mót. „Það gerðist ekkert sérstakt, á einni æfingunni fór ég bara að finna fyrir verk í mjöðminni sem versnaði svo og versnaði. Mér gekk illa að fá mig góðan og niðurstaðan var sú að ég þyrfti að fara í stóra aðgerð sem myndi þýða átta mánaða fjarveru. Aðgerðinni var frestað fram á haust og ég látinn spila án þess að æfa. Ég bjó að því að vera í frábæru formi en Þess má geta að móðir hans var skilin á þessum tíma. Pape segir brottreksturinn sér- staklega sáran í ljósi þess að vet- urinn 2008-09 hafði hann hugsað sér að fara til Frakklands í nám en hætti við að beiðni stjórnar Fylkis sem þá var farin að líta á hann sem burðarás í liðinu. „Eftir það fannst mér ég kannski eiga eitthvað smá- vegis inni hjá þeim en það var greinilega misskilningur.“ Pape var að vonum vonsvikinn eftir brottreksturinn og átti erfitt uppdráttar andlega. Læsti sig inni fyrstu dagana á eftir. „Ég reyndi að vera sterkur en sannleikurinn er sá að ég brotnaði alveg niður. Mik- ið var gert úr málinu í fjölmiðlum og um það talað úti á lífinu. Til að deyfa sársaukann djammaði ég mikið. Hélt að það myndi hjálpa. Svo var ekki. Þegar hér er komið sögu var ég sjálfur farinn að upp- lifa mig sem einhvern vandræða- gemling. Fólk var búið að sannfæra mig um það.“ Gamall vinur Pape úr Fylki, Kjartan Andri Baldvinsson, lék með Leikni og hringdi til að bjóða hon- um á æfingar í Breiðholtinu. „Kjartan var einn af þeim fáu sem hringdu til að athuga hvernig ég hefði það. Góður vinur og ég lét til leiðast og fór með honum á æfingu hjá Leikni. Samt var ég búinn að taka ákvörðun. Ég gat ekki meir og tilkynnti umboðsmanninum mínum að ég vildi komast frá Íslandi.“ Það varð til þess að Pape komst á reynslu hjá 2. deildar félaginu FC Turnhout í Belgíu. „Það byrjaði vel og ég var orðinn vongóður um að verða boðinn samningur. Þá var þjálfarinn rekinn, nýr tók við og þetta rann út í sandinn. Ég fór líka til æfinga hjá Dagenham & Red- og skyndilega leið mér eins og ég hefði lagt heiminn að fótum mér. Ég var byrjaður að drekka áfengi og skemmti mér töluvert á þessum tíma. Var satt best að segja hálf- gerður spaði. Eftir á að hyggja var ég bara á rangri braut í lífinu án þess að átta mig á því sjálfur.“ Fótboltasumrinu lauk óvænt hjá Pape í byrjun september þetta ár þegar Fylkir rifti samningi við hann. Uppgefin skýring á þeim gjörningi var trúnaðarbrestur. „Þetta var agabrot. Mér urðu á mistök. Gerði hlut sem ég átti ekki að gera. Ég sá strax eftir því en ef til vill var ég ekki nógu auðmjúkur í minni iðrun á þessum tíma. Ég myndi aldrei gera svona lagað í dag. Eigi að síður fannst mér þá og finnst enn að Fylkir hefði getað leyst málið með öðrum hætti en að reka mig úr félaginu. Auðvitað áttu þeir að refsa mér en hefðu getað gert það með því að setja mig í bann eða lána mig til annars félags. Það var fullgróft að reka mig. Ég var bara krakki, nítján ára, og Fylkir var mín önnur fjölskylda. Móðir mín hefur alltaf verið stoð mín og stytta en á þessum tíma- punkti í mínu lífi kom það sér illa að faðir minn skyldi vera í útlönd- um. Mig vantaði tilfinnanlega föð- urímynd hér á Íslandi. Einhvern til að setjast niður með mér og gefa mér holl ráð. Það hefði stjórn Fylk- is getað gert. Menn ákváðu hins vegar að fara þessa leið og við því er ekkert að segja. Það breytir ekki því að mér þykir ennþá mjög vænt um Fylki. Ég mun alltaf geyma fé- lagið í hjarta mér.“ smám saman hvarf það. Eftir leiki svaf ég varla fyrir verkjum. Á heildina litið átti ég þó þokkalegt tímabil.“ Grindavík féll um haustið og Pape fann að ekki var mikill áhugi fyrir því að senda hann í aðgerð, eins og um hafði verið talað. Hann ákvað því að róa á ný mið. Víkingur varð fyrir valinu en það fornfræga félag lék í næstefstu deild sumarið 2013. Þar hitti Pape fyrir sinn gamla þjálfara úr Fylki, Ólaf Þórðarson. „Það var fínt að koma aftur til Óla. Hann þekkir mig vel og veit hvað ég get. Óli hef- ur sýnt mér mikla þolinmæði og reynst mér vel í alla staði.“ Úr því aðgerðinni var frestað gerði læknir Pape Víkingum grein fyrir því að hann myndi í mesta lagi ná tíu leikjum yfir sumarið. Þeir urðu tuttugu „á þrjóskunni“, eins og Pape orðar það sjálfur og undir lokin átti hann drjúgan þátt í að koma liðinu upp í efstu deild. Það var mikil hvatning að komast upp og strax eftir síðasta leik var Pape sendur í aðgerð, til að freista þess að hann yrði góður fyrir sum- arið í ár. Það tókst. Spurður um væntingar og þrár til lengri tíma viðurkennir Pape að það hafi alltaf verið draumur að komast í atvinnumennsku. „Ég er svo sem ekki mikið að hugsa um það í augnablikinu, núna er aðal- atriðið að koma sér í gott form. Ég spilaði hins vegar með og á móti mönnum eins og Alfreð Finn- bogasyni, Kolbeini Sigþórssyni, Guðlaugi Victori Pálssyni og Jó- hanni Berg Guðmundssyni í yngri flokkunum og var ekkert síðri enn þeir. Það er mér hvatning til að ná þeim hæðum aftur.“ Markmiðið er líka að spila fyrir Ísland. „Ég hef leikið með yngri landsliðunum og það yrði mikill heiður að leika fyrir a-landsliðið í framtíðinni. Ég er líka gjaldgengur í landslið Senegal en það verður ekki. Ég er búinn að velja Ísland.“ Bróðirinn með hanakamb Pape líður vel á Íslandi og enda þótt hann færi síðar meir í atvinnu- mennsku gerir hann fastlega ráð fyrir að koma hingað aftur að henni lokinni. Móðir hans býr hér enn og það gera líka fjórir bræður hennar og fjölskyldur þeirra. „Þetta fólk er mjög stolt af mér og árangri mínum í boltanum. Það er mér mikil hvatning. Sömu sögu má segja af frændfólki mínu í Senegal og föður mínum og systkinum í Bretlandi. Bróðir minn vill vera alveg eins og ég. Hann er meira að segja kominn með hana- kamb.“ Hann hlær. „Annars virðist ég almennt njóta hylli meðal barna. Krakkarnir í yngri flokkunum eru alla vega mjög duglegir að koma og tala við mig, hvort sem það er hjá Víkingi, Fylki eða annars staðar. Ég hef mjög gaman af því að vera fyrirmynd. En því fylgir auðvitað mikil ábyrgð.“ Spurður um persónulega hagi brosir Pape í kampinn og upplýsir að hann sé á lausu. „Ég var með stelpu í um átta mánuði en við er- um nýhætt saman. Það var erfitt. Ég er tiltölulega rólegur í kvenna- málunum enda fer ég lítið á djammið í seinni tíð. Fótboltinn á hug minn allan um þessar mundir. Gerist eitthvað í kvennamálunum þá bara gerist það.“ Eða eins og skáldið sagði: Que sera, sera ... Morgunblaðið/Kristinn Enda þótt við- skilnaðurinn hafi verið leiðinlegur er Pape af- skaplega hlýtt til Fylkis. Félagið var hans önnur fjölskylda. Morgunblaðið/Eggert Víkingurinn Pape Ma- madou Faye á sér þann draum að kom- ast í atvinnumennsku og leika fyrir íslenska landsliðið. Pape í leik með Víkingi gegn uppeldisfélagi sínu Fylki á dögunum. Morgunblaðið/Golli 25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.