Morgunblaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
Slegið verður upp í allsherjar
sveitaballi í Hreðavatnsskála á
morgun en þá munu Björgvin
Halldórsson og Stefán Hilmarsson
stíga á svið og skemmta gestum
fram á nótt. Rokkabillýbandið
ásamt söngkonunni Jóhönnu Guð-
rúnu Jónsdóttur mun auk þess
koma fram en yfirheiti viðburð-
arins er Bo&Co.
„Þetta verður ekta sveitaball
eins þau gerast best,“ segir Björg-
vin meðal annars um viðburðinn.
Söngvarinn góðkunni hefur marga
fjöruna sopið frá því hans fyrsta
breiðskífa, Þó líði ár og öld, kom
út árið 1969. Hann hefur meðal
annars sungið fyrir sveitirnar
Bendix, Flowers, Ævintýri,
Brimkló auk þess að vera einn af
forsprökkum HLH-flokksins. Nú
síðast vann hann náið með Jóni
Jónssyni og gáfu þeir kumpánar
út plötuna Duet 3 síðasta sumar.
Stefán Hilmarsson þarf vart að
kynna en hann er eflaust hvað
þekktastur fyrir sveit sína, Sálina
hans Jóns míns. Sveitin er einhver
lífseigasta sveit Íslands en 26 ár
eru frá stofnun hennar. Meðal
platna hennar má nefna Hvar er
draumurinn? sem kom út árið
1989 og Þessi þungu högg sem
kom út árið 1992. Jóhanna Guðrún
hefur frá unga aldri sungið sér og
öðrum til skemmtunar og vann
það sér helst til frægðar að taka
þátt í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva árið 2009 sem
haldin var í Moskvu. Þrímenning-
Ball í boði
Bo&Co
Sveitaball í Hreðavatnsskála á morgun
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Farsæll Stefán Hilmarsson er marg-
reyndur söngvari og lagahöfundur.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Verkið fjallar um ungan dreng sem
ræður sig um borð á línubát í von
um að geta fyllt vasa sína af pen-
ingum en lendir í hrömmunum á
áhöfn sem rænir hann því sem engir
peningar geta keypt, því hann er
rændur sakleysi sínu,“ segir Arnar
Dan Kristjánsson, leikari, höfundur
og leikstjóri einleiksins Landsliðið á
línu sem frumsýndur verður í Tjarn-
arbíói laugardaginn 19. júlí kl. 20.
Landsliðið á línu er frumraun
Arnars Dans sem leikskáld, en verk-
ið kviknaði á námskeiði í leik-
aranámi hans við Listaháskóla Ís-
lands. „Á lokaári mínu í skólanum
sótti ég námskeið undir leiðsögn
Stefáns Halls Stefánssonar og Ólaf-
ar Ingólfsdóttur þar sem fókúserað
var á einstaklingsverkefni. Ég ákvað
að skrifa einleik sem byggir að ein-
hverju leyti á því sem ég hef upp-
lifað, þó þetta sé að grunni til skáld-
skapur,“ segir Arnar Dan, sem
sjálfur stundaði sjóinn þrjú sumur í
röð þegar hann var yngri og þekkir
því vel lífið um borð þó hann hafi
ekki lent í hremmingum sambæri-
legum þeim sem lýst er í verkinu.
„Mig langaði lengi til að fá Arn-
mund Ernst [Backman Björnsson],
mjög góðan vin minn og bekkjar-
bróður í leiklistarnáminu, til að leika
einleikinn minn, en þegar til kast-
anna kom þá tímdi ég því hins vegar
ekki. Í einleik er maður að mála
myndir í huga áhorfenda. Ég sé
þessar myndir ljóslifandi fyrir mér
og ég held því að ég sé betri til að
miðla þessum myndum þar sem ég
fékk þetta beint í æð.“
Einlægni er lykilatriði
Einleikurinn er um 70 mínútur í
flutningi og leikinn án hlés. „Þetta
er hreinræktuð sögustund, en þetta
er hlý og falleg sýning. Þetta er
skemmtilegt verk með allnokkrum
húmor, þó svo að þetta sé alls ekkert
gamanverk. Mér finnst að leikhús
eigi að miðla góðum sögum og ég vil
alls ekki klippa á góða sögu í miðju
kafi,“ segir Arnar Dan. Spurður
hvort vandasamt sé að leika einleik
segir Arnar Dan að vissulega verði
breyting að hafa engan mótleikara
til að leika á. „En í staðinn mun ég
leika á áhorfendur og hlusta eftir
svörun þeirra. Lykilatriðið er að
vera einlægur og aðgengilegur leik-
ari. Góðir leikarar eru aðgengilegar
og góðar manneskjur.“
Arnar Dan verður þó ekki alveg
einn á sviðinu, því Bára Gísladóttir
leikur frumsamda tónlist sína á
kontrabassa. „Hljóðfærið hefur
miklar skírskotanir. Kontrabassinn
er flotinn, grunnurinn, ómurinn,
þetta er flautan, niðurinn og botninn
í verkinu. Bassatónlistin kallast
skýrt á við leiktextann og hjálpar til
við framvinduna. Tónlist radd-
arinnar og leikarinn er þó alltaf í
forgrunni í verkinu.“
Með nýja sýningu í bígerð
Arnar Dan útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands vorið 2013 og
starfaði í Borgarleikhúsinu sl. vetur
þar sem hann lék í Refnum, Jeppa á
Fjalli og Furðulegu háttalagi hunds
um nótt. „Ég kunni mjög vel við mig
í Borgarleikhúsinu, enda draum-
urinn að fá að starfa sem atvinnu-
leikari. Hins vegar hefur líka lengi
blundað með mér þörfin fyrir að
segja mínar eigin sögur,“ segir Arn-
ar Dan sem næsta vetur mun vera
sjálfstætt starfandi og hyggst vinna
að eigin verkefnum.
Spurður hvort hann hyggist
skrifa meira fyrir leiksviðið svarar
Arnar Dan því játandi. „Ég er að
skrifa annað verk sem frumsýnt
verður um miðjan ágúst í Tjarn-
arbíói. Um er að ræða söng-
skemmtun sem ber vinnutitilinn
Samsuða stórveldanna. Hugmyndin
er að blanda saman þremur árum í
lífi Shakespeare, þ.e. tímann þegar
hann skrifaði 154 sonnettur, og
tengja það við Bítlalög í madrígala-
stíl. Ég verð sögumaður og leik-
stjóri, en hef fengið til liðs við mig
frábæra stráka sem eru búnir að
syngja saman í 12 ár auk þess sem
Sigríður Soffía Hafliðadóttir, kær-
astan mín, tekur þátt. Það er stuttur
tími til stefnu, en ramminn er skýr
og það skapar meira rými fyrir
sköpun.“
Þess má að lokum geta að næstu
sýningar á Landsliðinu á línu verða
laugardaginn 26. júlí og sunnudag-
inn 27. júlí kl. 20 bæði kvöld.
„Mála myndir í huga áhorfenda“
Nýr íslenskur einleikur, Landsliðið á
línu, verður frumsýndur í Tjarnarbíói
Höfundurinn er þeirrar skoðunar að
leikhúsið eigi að miðla góðum sögum
Morgunblaðið/Ómar
Sköpunarþörf Arnar Dan Kristjánsson er höfundur, leikstjóri og leikari nýs einleiks sem frumsýndur verður í
Tjarnarbíói. Leikmynd verksins byggist á 90 vörubrettum sem HB Grandi lagði til.
» Lykilatriðið er aðvera einlægur og að-
gengilegur leikari. Góð-
ir leikarar eru aðgengi-
legar og góðar
manneskjur.
Umboðsmenn um land allt. Kaupfélag Borgfirðinga, Veiðiflugan á Reyðarfirði, SR Byggingavörur á Siglufirði.
RÉTTU TÓLINN Í LAXVEIÐINA