Morgunblaðið - 18.07.2014, Side 22

Morgunblaðið - 18.07.2014, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014 ✝ SigurðurHelgi Hall- varðsson fæddist á Siglufirði 2. jan- úar 1963. Hann lést á Líknardeild- inni í Kópavogi 10. júlí 2014. Foreldrar hans eru Hallvarður Sævar Óskarson, f. 24.11. 1944 og Ágústa Lúthers- dóttir, f. 2.8. 1945. Sigurður átti eina systur, Írisi f. 23.11. 1966. Sigurður giftist Ingu Maríu Friðriksdóttur, f. 20.8. 196, þann 20. ágúst 2004. For- eldrar Ingu Maríu eru Friðrik Lindberg, d. 2004 og Stein- þóra Ingimarsdóttir. Sigurður og Inga eiga 9 börn samtals en einnig tvo fóstursyni sem eru barnabörn þeirra. Börn Sigurðar og Ingu Maríu eru dag. Sigurður var ekki lengi að þefa uppi fótboltavöll í ná- grenninu og varð Þróttari frá fyrsta degi. Mörg sumrin fór hann þó til Siglufjarðar og spilaði þá með vinum sínum þar. Sigurður spilaði alla sína tíð með Þrótti en sumarið 1993 þjálfaði hann og spilaði með Hugin á Seyðisfirði, 1999- 2000 spilaði hann með Hauk- um en einnig var hann eitt ár með Fjölni. Þróttarahjartað var samt aldrei langt undan og nú síðustu árin var það fastur punktur í tilverunni að hitta félagana í hádeginu. Hann lauk sveinsprófi í mál- araiðn 1987, meistararéttindi fékk hann 1989 og löggildingu sem málarameistari árið 2000. Vann hann lengi vel með föð- ur sínum og stofnuðu þeir fyr- irtækið Gæðamálun saman. Sigurður og Inga María hafa búið öll sin ár saman í Graf- arvogi, fyrst í Dalhúsum en síðustu árin í Hvannarima. Útför Sigurðar fer fram í Hallgrímskirkju í dag, 18. júlí 2014, og hefst athöfnin kl. 13.15. Sigurður Ingi, f. og d. 1997 og Hallvarður Óskar, f. 1999. Breki Steinn, f. 2003 og Sölvi Páll, f. 2005 eru fóstursynirnir. Sigurður átti áður Ágústu Marsibil, f. 1989 sem er gift Mikkel Sørensen og eiga þau synina Óskar Sigurð, f. 2010 og Aron Sigurð, f. 2013 en þau eru búsett í Danmörku, Snorra, f. 1991 og Aron, f. 1993. Inga María á Rakel, f. 1980, Írisi, f. 1983 og Viktor og Katrínu, f. 1987 Sigurður bjó á Siglufirði til fimm ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Reykjavíkur, á Langholtsveg 102, og ólst þar upp en for- eldrar hans búa á Selfossi í Í dag er Siggi stjúpi minn bor- inn til grafar. Hann verður jarð- aður með syni sínum Sigurði Inga, sem fæddist andvana árið 1997. Siggi talaði oft um að hann hlakkaði til að hitta hann og verð- ur gott að vita af þeim saman. Siggi var yndislegur maður sem hugsaði alltaf um aðra á undan sjálfum sér. Hans mesta gleði var að gleðja aðra. Þessir eiginleikar komu sérstaklega vel fram á síð- ustu mánuðum og héldu honum bókstaflega gangandi. Í haust af- rekaði hann að ganga með bræðr- um mínum alla leið frá Hvera- gerði til Reykjavíkur til þess að afla fjár sem rann óskipt til Ljóssins, en þar átti hann öruggt athvarf. Þetta gerði hann, haltur og hálflamaður, með bros á vör. Hann tók meira að segja nokkur dansspor efst á heiðinni. Ef Siggi ákvað að gera eitthvað til að hjálpa öðrum þá einfaldlega gekk hann í það verk og lét ekkert stoppa sig. Við gætum öll tekið hann okkur til fyrirmyndar. Ég get því miður ekki verið með fjölskyldu minni og vinum í dag en á vormánuðum tók ég þá ákvörðun að fara til Argentínu og hefja störf fyrir mannréttinda- samtök þar í landi. Það var mjög erfið ákvörðun. Þá hafði ég verið heima frá því í september í fyrra til þess að vera með Sigga og fjö- skyldunni og hjálpa til á þessum mjög svo erfiða tíma. Ég settist reglulega hjá honum með kaffi- bolla og spurði hann þá nánast alltaf hvort ég ætlaði ekki að fara eitthvað fljótlega og vildi fá að vita hvert yrði næsta ævintýrið mitt. Hann virtist lítið skilja hvað ég væri að gera hér að „vesenast yfir honum“ eins og hann orðaði það. Þegar ég sagði honum að ég hefði loks sótt um starf í Argent- ínu brosti hann og sagði að hon- um þætti það frábært. Ég er inni- lega þakklát fyrir þennan tíma sem ég fékk með honum og hugur minn er hjá honum, mömmu og systkinum í dag sem og aðra daga. Fram í hugann kemur falleg minning um Sigga: Við systkinin komum heim úr skólanum og inni glymur hávær tónlist. Siggi dans- ar um, spilar á þverflautuna sína og syngur þess á milli. Hann er kominn í jakkafötin og ætlar greinilega að bjóða mömmu eitt- hvað út. Hann var glaður og það gladdi okkur. Ég er viss um að þetta verður fjölmenn jarðarför. Siggi var mjög vinamargur, enda eru ótelj- andi ástæður til þess að þykja vænt um hann og fjölskyldan er stór. Hann sagði stundum í gríni að draumur hans væri að eiga sitt eigið fótboltalið og það átti hann: Börnin hans, stjúpbörn og afa- börn voru fótboltaliðið hans. Siggi er kominn í jakkafötin, tilbúinn að stíga dansinn og þver- flautan ómar. Hans verður sárt saknað. Hann var hjartagóður maður sem vildi allt fyrir aðra gera. Katrín. Mikið eigum við eftir að sakna þín, elsku Siggi minn. Þú komst eins og ferskur gustur inn í fjöl- skylduna með skemmtilegar at- hugasemdir, glettni og oft svolítið stríðinn. Þú varst alltaf hreinn og beinn og sagðir þína meiningu og maður gat aldeilis verið viss um að heyra hljóð úr horni ef þú varst ekki sammála einhverju. Þetta kunni ég alltaf vel að meta og því náðum við ágætlega saman. Nú ertu kominn á hinn staðinn og ég hlakka til að hitta þig aftur þegar að því kemur. Þá verða fagnaðar- fundir. Þinn vinur og mágur, Ingimar Þór Friðriksson. Afi-pabbi okkar er glaður núna. Hann var oft búinn að segja okkur hvað hann hlakkaði til að spila fótbolta með stráknum sín- um sem er á sama góða staðnum og afi er núna á. Við erum búnir að eiga afa að lengi og höfum ver- ið heppnir að fá að búa með hon- um og upplifðum oft að enginn annar átti afa eins og við. Allir vissu hver Siggi Hallvarðs var og við erum alltaf að heyra meira og meira um hann. Hann var besti fótboltamaður á Íslandi fyrir okk- ur. Hann sagði bestu sögur í heiminum og hélt spennunni allt- af þangað til næsta kvöld og æv- intýrin voru oft hluti af því sem hann gerði á Siglufirði þegar hann var á okkar aldri. Fengum oft að fara með honum í bíltúra niður í Þróttaraheimili og í Ljósið þar sem allar konur vildu kyssa hann og þegar við kjöftuð- um því í ömmu þá sagði hún alltaf brosandi: því fleiri sem þykir vænt um afa, því betur líður afa ykkar. Afa Sigga þótti ótrúlega vænt um okkur og var montinn þegar hann sagði okkur vera yngstu strákana sína og við erum montnir af honum. Breki Steinn og Sölvi Páll. Siggi frændi hefur fengið hvíldina eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Minningarn- ar streyma fram í hugann. Marg- ar voru stundirnar í æsku þar sem við lékum okkur saman sem áhyggjulaus börn og alltaf var hægt að finna eitthvað skemmti- legt að gera. Okkur systkinum eru í fersku minni skiptin sem Siggi kom til okkar niður á Kleppsveg á laugardagsmorgn- um að horfa á teiknimyndir í „kanasjónvarpinu“, sumrin þegar leikið var úti klukkustundum saman, prakkarastrik og glens og grín. Fjölskylduveislur, afmæli og matarboð þar sem Siggi lék venjulega á als oddi og skemmti sér og frændsystkinum. Siggi átti afmæli 2. janúar og snemma á þrí- tugsaldrinum var því oft fagnað með miklu partíi og flugeldasýn- ingu á Langholtsveginum. Ógleymanlegar samverustundir sem geymast í minningabankan- um. Þannig var Siggi, gleðigjafi og alltaf stutt í brosið og húmor- inn. Okkur grunaði ekki að þetta lundarfar ætti eftir að hjálpa hon- um að takast á við erfið veikindi seinna meir, en það varð raunin. Siggi tókst á við sjúkdóminn af einstöku æðruleysi og hugrekki og nýtti sér húmorinn í að gera grín að sjálfum sér. Hver finnur sína leið til að takast á við slík áföll og Siggi valdi þá leið sem hjálpaði honum. Elsku Inga og fjölskylda, Halli, Gústa, Íris, Ágústa, Snorri, Aron og Hallvarður Óskar, megi Guð og góðar vættir styrkja ykkur í sorginni. Minningin um góðan dreng lifir um ókomna tíð. Árni og Kristín (Linda). Kveðja frá skólafélögum Elsku Siggi okkar er farinn, gamall skólafélagi úr Langholts- skóla. Við krakkarnir úr 1963-ár- ganginum höfum verið að hittast undanfarin ár að frumkvæði Sigga og höfum við hist með fjög- urra mánaða millibili en þegar leið á fannst okkur þetta allt of lít- ið og fórum að hittast mánaðar- lega og þá oftast á Kaffi Flóru sem er í okkar uppeldishverfi. Við í árganginum höfum hist reglu- lega frá því við útskrifuðumst úr Langholtsskóla, á ca. fimm ára fresti, en árið 2009 var 30 ára „reunion“ og eftir það hafði Siggi alveg verið driffjöðrin í hópnum. Siggi var mikill baráttumaður, uppalinn Þróttari og mjög sterk- ur karakter. Hann var algjörlega með munninn fyrir neðan nefið, við héldum stundum þegar við hittumst á kaffihúsum að okkur yrði hent út, þvílík voru lætin þeg- ar best lét. Hann hafði ótrúlegan húmor fyrir sjálfum sér og öðrum sem ef- laust hefur bjargað honum við að takast á við þessi erfiðu veikindi sem vörðu í tíu ár, en á þeim tíma afrekaði hann margar hetjudáðir sem við hin dáðumst að og feng- um að taka þátt í með honum, eins og t.d. gangan sem hann fór frá Hveragerði til Reykjavíkur og var stór hluti af okkur sem labb- aði með honum síðasta spölinn fyrir utan smá spjall á heiðinni með einum skólafélaga. Það var mikill heiður að fá að taka þátt í þessu. En það var ekki nóg, hann vildi gera meira og var sífellt að hugsa leiðir til að hjálpa öðrum. Eftir eina hvíldarinnlögnina á líknardeildinni fannst honum skammarlegur aðbúnaður fyrir börnin og fór hann að safna fyrir nýjum sjónvörpum og tölvum fyr- ir börnin í Rjóðrinu og tók ekki nema nokkra daga fyrir hann að láta hlutina gerast. Næsta verk- efni var hann með á prjónunum sem hann náði ekki að klára en er örugglega byrjaður að láta gott af sér leiða í Draumalandinu. Eitt af því sem hann lagði stund á var eins og hann kallaði það „að trufla vinnandi fólk“ og nutu margir heimsókna hans á meðan heilsan leyfði. Það er stórt skarð höggvið í okkar hóp á þessu ári, þar sem tveir félagar hafa fallið frá með aðeins tveggja mánaða millibili Við lofuðum Sigga að hafa allt- af lausan stól við borðið og stóran bjór og hans loforð var að láta vita af sér og jafnvel fella glasið, þann- ig fyndum við að hann væri með okkur. Um leið og við kveðjum ynd- islegan dreng viljum við senda Ingu og fjölskyldu Sigga innileg- ar samúðarkveðjur. Þín verður sárt saknað, elsku kallinn okkar. Kveðja frá skólafélögum, árg. 1963 í Langholtsskóla. Rósa, Vigdís, Elín og Örn (Gulli). Þá er hann farinn, hetjan okkar hann Siggi. Í 10 ár barðist hann við heilaæxli. Fór í fjóra upp- skurði. Var borinn ofurliði að lok- um. Við kynntumst í Ljósinu. Vor- um ljósberar. Hann vildi félaginu vel og ákvað að ganga frá Hvera- gerði til Reykjavíkur með Will- um, vini sínum, og örfáum fé- lögum til styrktar Ljósinu. Ótrúlegt þrek, haltur og skakkur. Viljinn hélt honum uppi. Hafi hann þökk fyrir. Bjargaði fjárhag Ljóssins í heilt ár, en starfsemin gengur út á velvilja fólks. Siggi mætti í Ljósið á morgn- ana þegar hann hafði þrek til. Sveiflaði sér inn og sagði: Hvar er Mafíuósan? en það var Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ljóssins. Honum fannst hún frá- bær en stundum svolítið ákveðin. Brandararnir dundu á okkur. Alltaf hress. Við skyldum aldrei, aldrei vorkenna honum. Hún Inga, kona hans, er stórkostleg og frábær. Studdi hann að eilífu. Og börnin þeirra gerðu allt til að gera honum lífið bærilegt. Ótrúlegt þrek hjá öllum. Frá okkur fór hann í mat í félagsheimili Þróttar, þar sem hann náði sér einnig í andlega næringu. Hann hafði allt- af brandara á reiðum höndum. Inga er heill kafli út af fyrir sig. Hvað er hægt að leggja á eina konu? Með allan barnafjöldann auk tveggja barnabarna sem þau tóku að sér. Við ljósberar þökkum Sigga innilega fyrir árin sem við nutum hans. Ingu og allri fjölskyldunni þökkum við alla samveruna. Von- um að hún hafi þrek til að hitta okkur. Sigga þökkum við yndis- legar samverustundir. Fyrir hönd ljósbera segi ég: hvíldu í friði, elsku Siggi minn. Kveðjustundin komin er kæri Siggi ofurhressi, Guð um eilífð fylgi þér og Ingu þína blessi. (SA) Sigurbjörg Axelsdóttir. Í júlímánuði fyrir ári hringdi síminn snemma að morgni. Á lín- unni var Siggi. Hann spurði hvort ég væri í vinnunni. Ég játti því. Þá spurði hann hvort hann mætti koma við í morgunkaffi. Ég sagði það sjálfsagt, en velti fyrir mér erindinu. Nokkuð var síðan við Siggi höfðum hist og hann hljóm- aði eins og erindið væri áríðandi. Hann kom á slaginu tíu, brosandi út að eyrum með útbreiddan faðminn. Hann sagðist vera kom- inn til að kveðja mig. Mig setti hljóða. Ég var ekki undir þetta búin þrátt fyrir að ég hefði vitað innst inni hve alvarlega veikur hann var. Þetta reyndist þó ekki vera okkar síðasta samverustund. Við áttum saman fleiri notalegar og einlægar stundir yfir kaffibolla áður en yfir lauk. „Meðan ég get glatt einhverja með einhverju, geri ég það,“ sagði Siggi í sjónvarpsviðtali í apríl- mánuði og hann lifði svo sannar- lega samkvæmt því til hinstu stundar. Síðasta ár ævi sinnar vann hann stórvirki. Eldmóður hans og lífskraftur gerði honum kleift að styrkja málefni sem komu mörgum að ómetanlegu gagni. Siggi, sem hafði í áratug tilheyrt hópi sjúkra og kynnst að- búnaði þeirra og aðstæðum af eig- in raun, lét hendur standa fram úr ermum og safnaði hárri fjárhæð fyrir Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þá komst hann að því eftir eina innlögnina á líknardeild hve litla afþreyingu langveik og fötluð börn bjuggu við í Rjóðrinu og dreif í að safna fyrir sjónvarpi og leikjatölvu á hvert herbergi. Siggi átti samhenta fjölskyldu og trausta vini, sem umvöfðu hann kærleika og lögðu sitt af mörkum til að draumar hans mættu rætast. Við Siggi kynntumst er ég flutti á Langholtsveginn árið 1974. Þá var ég 10 ára en hann ell- efu. Við urðum nágrannar, bekkj- arsystkin og vinir. Siggi var glæsilegur fótboltastrákur sem bræddi margt stúlkuhjartað. Hann var grallari og skemmtileg- ur en umfram allt góður drengur sem vildi öllum vel. Ég sendi eiginkonu hans, börn- um og öllum aðstandendum mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um heilsteyptan og góðhjartaðan dreng lifir – hann var hetja sem sýndi okkur að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Svala Ísfeld Ólafsdóttir. Siggi Halla var eins og farfugl- arnir fyrir okkur strákana á Sigló, hann kom á vorin og flaug burt á haustin. Við vorum svo heppnir að fá þennan fótboltakappa til liðs við okkur í yngri flokkum KS, enda var Siggi fæddur á Siglu- firði. Þegar við vorum að taka af okkur skíðaskóna og malarvöllur- inn að koma undan snjó þá birtist þessi markahrókur að sunnan á takkaskónum. Siggi fékk að kynnast hinum stóra leikvelli sem Sigló var eftir að síldin hvarf, brakkar og bryggjur, sjoppur og kaupmenn, bíóið, fjallið og eilíft lognið. Um- hverfið bauð upp á endalausa leiki og grallaraskap fyrir unga drengi. Við fórum í fótboltaferða- lög um Norðurland – unnum góða sigra en stundum var tapið sárt. Sú minning sem lifir lengst er þegar við í 3. flokki KS fórum í eftirminnilega keppnisferð til Danmerkur 1978. Flestir vorum við að fara til útlanda í fyrsta sinn og það var ekki sjálfgefið á þeim árum að unglingar norðan af heimskautsbaug færu í slíka för. Ferðin var eitt endalaust ævintýr og síðustu árin höfum við hist reglulega og rifjað upp sögurnar. Sveitastrákarnir frá Sigló voru ekki eingöngu að komast í snert- ingu við grasvelli, öl og rauðar pylsur í fyrsta sinn, heldur líka danskar stelpur. Kvöld eitt höfðu nokkrir í hópnum komist í kynni við framandi fljóð. Voru þær dregnar út á grasvöllinn í Asnæs og þegar hvolpavitið gerði vart við sig, þá stóðu Siggi og félagar hjá og kveiktu á flóðljósunum á vellinum og komu í veg fyrir að bráðþroska drengir eignuðust erfingja á danskri grundu. Í 50 ára afmæli Sigga ákváðum við að hittast á Sigló þá um sumarið. Það gerðum við og áttum saman góðar stundir ásamt Sigurjóni, gamla þjálfaranum okkar. Ári síðar er þessi snjalli knattspyrnukappi all- ur. Í allri sinni baráttu stóð Siggi ekki einn. Stór fjölskylda, foreldr- ar, vinir, Þróttarar, KS-ingar og fleiri stóðu að baki honum. En kletturinn í baráttunni var þó án efa Inga – konan í lífi Sigga, hún hefur sýnt ótrúlegan styrk. Óþrjótandi kraftur Sigga, já- kvæðni og baráttuþrek vakti at- hygli þjóðarinnar. Í veikindum sínum var Siggi alltaf að spá í hvað hann gæti gert fyrir sitt um- hverfi, hvort sem það var Ljósið, líknardeildin eða annað. Hann taldi það ekki eftir sér að fara gangandi ásamt sonum sínum og vini frá Hveragerði til Reykjavík- ur til styrktar Ljósinu. Þegar Siggi gat glatt aðra þá leið honum best. Hann hafði ekki dvalið lengi á líknardeildinni þegar sú hug- mynd kviknaði að safna fyrir tækjum fyrir langveik börn sem þar dvöldust. Síminn tekinn upp, vinir og velunnarar heimsóttir og ný tæki voru komin innan nokk- urra daga. Svona var Siggi – alltaf að gleðja. Nú er baráttu vinar okkar, Sigga Halla, lokið. Hafðu, vinur, þökk fyrir áratuga vináttu sem við mátum mikils. Ljúfar og góðar minningar um frábæran vin mun- um við ætíð geyma með okkur. Komið er að kveðjustund hetju er létti marga lund. Þróttmikill á drottins vegi orðstír góður deyr aldregi. (Sig. Tómas) Ingu, börnum þeirra, barna- börnum, foreldrum, systur og öðrum vottum við dýpstu samúð. Birgir Gunnarsson, Hermann Einarsson, Jónas Skúlason og Sigurður Tómas Björgvinsson. Snaggaralegur, fjótur og alltaf líklegur til að skora. Þannig man ég fyrst eftir Sigga Hallvarðs í yngri flokkum Þróttar í fótbolta. Framherjinn í Þrótti sem við KR- ingar réðum oftast illa við að hemja. Löngu seinna, vorið 1996, urðum við síðan samherjar í Þrótti. Eitthvað fannst mér hann ósáttur við þennan liðsauka því hann vart yrti á mig fyrstu vik- urnar, helst þá að hann hreytti í mig fúkyrðum og skrítnum glós- um. Eitt sinn í lok æfingar tókum við spjall saman og það augnablik er mér mjög minnisstætt því upp frá þeirri stundu, eftir að Siggi hafði á sinn hreinskilna hátt hreinsað andrúmsloftið, þá small eitthvað ósnertanlegt og sterkt og með okkur tókst órjúfanleg vin- átta. Kæri vinur, minningarnar hrannast upp og orð á prenti verða heldur fátækleg þegar kemur að verðmæti vináttunnar og þeirri fallegu manneskju sem þú hafðir að geyma. Þú komst til dyranna eins og þú varst klædd- ur, hreinn og beinn. Þegar kom til kastanna hafðir þú afdráttarlaus- ar skoðanir þannig að þegar sá gállinn var á þér áttir þú til að stuða fólk, sérstaklega þá sem ekki þekktu þig en um leið svo réttsýnn, ærlegur og glettinn að allir hrifust með á endanum. Þau eru ófá augnablikin sem við upplifðum saman, oftast skemmtilega sigra en stundum ósigra en það skipti litlu hvernig byrinn stóð, alltaf mátti treysta á þig innan sem utan vallar og auð- vitað mátti stóla á mörkin frá þér. Þér fannst einfaldlega gaman að skora og varst marksækinn í eðli þínu. Þú varst stoltur maður með stórt hjarta og náðir í samvinnu við þína heittelskuðu Ingu að gefa af þér og áorka alveg ótrúlega miklu. Þú varst stoltur Þróttari. Þú varst stoltur af fjölskyldunni þinni og strákunum þínum, í bolt- anum fylgdir þú af öllu hjarta. Þú varst stoltur fagmaður og stoltur af fyrirtækinu ykkar pabba þíns. Það kom alltaf blik í augun þegar þú talaðir um æskuárin og bolt- ann, mömmu og pabba og systur þína og vinina á Sigló. Inga og börnin voru svo alltaf miðpunkt- urinn, jafnvægið í þínu lífi. Á sama tíma og þú hafðir fyrir stórri fjölskyldu að sjá og vannst myrkranna á milli gafstu þér tíma fyrir félagið þitt og vini þína. Ég Sigurður Helgi Hallvarðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.