Morgunblaðið - 18.07.2014, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
✝ SigurðurHelgi Hall-
varðsson fæddist á
Siglufirði 2. jan-
úar 1963. Hann
lést á Líknardeild-
inni í Kópavogi
10. júlí 2014.
Foreldrar hans
eru Hallvarður
Sævar Óskarson,
f. 24.11. 1944 og
Ágústa Lúthers-
dóttir, f. 2.8. 1945. Sigurður
átti eina systur, Írisi f. 23.11.
1966. Sigurður giftist Ingu
Maríu Friðriksdóttur, f. 20.8.
196, þann 20. ágúst 2004. For-
eldrar Ingu Maríu eru Friðrik
Lindberg, d. 2004 og Stein-
þóra Ingimarsdóttir. Sigurður
og Inga eiga 9 börn samtals
en einnig tvo fóstursyni sem
eru barnabörn þeirra. Börn
Sigurðar og Ingu Maríu eru
dag. Sigurður var ekki lengi
að þefa uppi fótboltavöll í ná-
grenninu og varð Þróttari frá
fyrsta degi. Mörg sumrin fór
hann þó til Siglufjarðar og
spilaði þá með vinum sínum
þar. Sigurður spilaði alla sína
tíð með Þrótti en sumarið
1993 þjálfaði hann og spilaði
með Hugin á Seyðisfirði, 1999-
2000 spilaði hann með Hauk-
um en einnig var hann eitt ár
með Fjölni. Þróttarahjartað
var samt aldrei langt undan
og nú síðustu árin var það
fastur punktur í tilverunni að
hitta félagana í hádeginu.
Hann lauk sveinsprófi í mál-
araiðn 1987, meistararéttindi
fékk hann 1989 og löggildingu
sem málarameistari árið 2000.
Vann hann lengi vel með föð-
ur sínum og stofnuðu þeir fyr-
irtækið Gæðamálun saman.
Sigurður og Inga María hafa
búið öll sin ár saman í Graf-
arvogi, fyrst í Dalhúsum en
síðustu árin í Hvannarima.
Útför Sigurðar fer fram í
Hallgrímskirkju í dag, 18. júlí
2014, og hefst athöfnin kl.
13.15.
Sigurður Ingi, f.
og d. 1997 og
Hallvarður Óskar,
f. 1999. Breki
Steinn, f. 2003 og
Sölvi Páll, f. 2005
eru fóstursynirnir.
Sigurður átti áður
Ágústu Marsibil, f.
1989 sem er gift
Mikkel Sørensen
og eiga þau synina
Óskar Sigurð, f.
2010 og Aron Sigurð, f. 2013
en þau eru búsett í Danmörku,
Snorra, f. 1991 og Aron, f.
1993. Inga María á Rakel, f.
1980, Írisi, f. 1983 og Viktor
og Katrínu, f. 1987
Sigurður bjó á Siglufirði til
fimm ára aldurs en flutti þá
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur, á Langholtsveg
102, og ólst þar upp en for-
eldrar hans búa á Selfossi í
Í dag er Siggi stjúpi minn bor-
inn til grafar. Hann verður jarð-
aður með syni sínum Sigurði
Inga, sem fæddist andvana árið
1997. Siggi talaði oft um að hann
hlakkaði til að hitta hann og verð-
ur gott að vita af þeim saman.
Siggi var yndislegur maður sem
hugsaði alltaf um aðra á undan
sjálfum sér. Hans mesta gleði var
að gleðja aðra. Þessir eiginleikar
komu sérstaklega vel fram á síð-
ustu mánuðum og héldu honum
bókstaflega gangandi. Í haust af-
rekaði hann að ganga með bræðr-
um mínum alla leið frá Hvera-
gerði til Reykjavíkur til þess að
afla fjár sem rann óskipt til
Ljóssins, en þar átti hann öruggt
athvarf. Þetta gerði hann, haltur
og hálflamaður, með bros á vör.
Hann tók meira að segja nokkur
dansspor efst á heiðinni. Ef Siggi
ákvað að gera eitthvað til að
hjálpa öðrum þá einfaldlega gekk
hann í það verk og lét ekkert
stoppa sig. Við gætum öll tekið
hann okkur til fyrirmyndar.
Ég get því miður ekki verið
með fjölskyldu minni og vinum í
dag en á vormánuðum tók ég þá
ákvörðun að fara til Argentínu og
hefja störf fyrir mannréttinda-
samtök þar í landi. Það var mjög
erfið ákvörðun. Þá hafði ég verið
heima frá því í september í fyrra
til þess að vera með Sigga og fjö-
skyldunni og hjálpa til á þessum
mjög svo erfiða tíma. Ég settist
reglulega hjá honum með kaffi-
bolla og spurði hann þá nánast
alltaf hvort ég ætlaði ekki að fara
eitthvað fljótlega og vildi fá að
vita hvert yrði næsta ævintýrið
mitt. Hann virtist lítið skilja hvað
ég væri að gera hér að „vesenast
yfir honum“ eins og hann orðaði
það. Þegar ég sagði honum að ég
hefði loks sótt um starf í Argent-
ínu brosti hann og sagði að hon-
um þætti það frábært. Ég er inni-
lega þakklát fyrir þennan tíma
sem ég fékk með honum og hugur
minn er hjá honum, mömmu og
systkinum í dag sem og aðra
daga.
Fram í hugann kemur falleg
minning um Sigga: Við systkinin
komum heim úr skólanum og inni
glymur hávær tónlist. Siggi dans-
ar um, spilar á þverflautuna sína
og syngur þess á milli. Hann er
kominn í jakkafötin og ætlar
greinilega að bjóða mömmu eitt-
hvað út. Hann var glaður og það
gladdi okkur.
Ég er viss um að þetta verður
fjölmenn jarðarför. Siggi var
mjög vinamargur, enda eru ótelj-
andi ástæður til þess að þykja
vænt um hann og fjölskyldan er
stór. Hann sagði stundum í gríni
að draumur hans væri að eiga sitt
eigið fótboltalið og það átti hann:
Börnin hans, stjúpbörn og afa-
börn voru fótboltaliðið hans.
Siggi er kominn í jakkafötin,
tilbúinn að stíga dansinn og þver-
flautan ómar. Hans verður sárt
saknað. Hann var hjartagóður
maður sem vildi allt fyrir aðra
gera.
Katrín.
Mikið eigum við eftir að sakna
þín, elsku Siggi minn. Þú komst
eins og ferskur gustur inn í fjöl-
skylduna með skemmtilegar at-
hugasemdir, glettni og oft svolítið
stríðinn. Þú varst alltaf hreinn og
beinn og sagðir þína meiningu og
maður gat aldeilis verið viss um
að heyra hljóð úr horni ef þú varst
ekki sammála einhverju. Þetta
kunni ég alltaf vel að meta og því
náðum við ágætlega saman. Nú
ertu kominn á hinn staðinn og ég
hlakka til að hitta þig aftur þegar
að því kemur. Þá verða fagnaðar-
fundir.
Þinn vinur og mágur,
Ingimar Þór Friðriksson.
Afi-pabbi okkar er glaður
núna. Hann var oft búinn að segja
okkur hvað hann hlakkaði til að
spila fótbolta með stráknum sín-
um sem er á sama góða staðnum
og afi er núna á. Við erum búnir
að eiga afa að lengi og höfum ver-
ið heppnir að fá að búa með hon-
um og upplifðum oft að enginn
annar átti afa eins og við. Allir
vissu hver Siggi Hallvarðs var og
við erum alltaf að heyra meira og
meira um hann. Hann var besti
fótboltamaður á Íslandi fyrir okk-
ur. Hann sagði bestu sögur í
heiminum og hélt spennunni allt-
af þangað til næsta kvöld og æv-
intýrin voru oft hluti af því sem
hann gerði á Siglufirði þegar
hann var á okkar aldri.
Fengum oft að fara með honum
í bíltúra niður í Þróttaraheimili og
í Ljósið þar sem allar konur vildu
kyssa hann og þegar við kjöftuð-
um því í ömmu þá sagði hún alltaf
brosandi: því fleiri sem þykir
vænt um afa, því betur líður afa
ykkar. Afa Sigga þótti ótrúlega
vænt um okkur og var montinn
þegar hann sagði okkur vera
yngstu strákana sína og við erum
montnir af honum.
Breki Steinn og Sölvi Páll.
Siggi frændi hefur fengið
hvíldina eftir hetjulega baráttu
við illvígan sjúkdóm. Minningarn-
ar streyma fram í hugann. Marg-
ar voru stundirnar í æsku þar sem
við lékum okkur saman sem
áhyggjulaus börn og alltaf var
hægt að finna eitthvað skemmti-
legt að gera. Okkur systkinum
eru í fersku minni skiptin sem
Siggi kom til okkar niður á
Kleppsveg á laugardagsmorgn-
um að horfa á teiknimyndir í
„kanasjónvarpinu“, sumrin þegar
leikið var úti klukkustundum
saman, prakkarastrik og glens og
grín. Fjölskylduveislur, afmæli og
matarboð þar sem Siggi lék
venjulega á als oddi og skemmti
sér og frændsystkinum. Siggi átti
afmæli 2. janúar og snemma á þrí-
tugsaldrinum var því oft fagnað
með miklu partíi og flugeldasýn-
ingu á Langholtsveginum.
Ógleymanlegar samverustundir
sem geymast í minningabankan-
um. Þannig var Siggi, gleðigjafi
og alltaf stutt í brosið og húmor-
inn. Okkur grunaði ekki að þetta
lundarfar ætti eftir að hjálpa hon-
um að takast á við erfið veikindi
seinna meir, en það varð raunin.
Siggi tókst á við sjúkdóminn af
einstöku æðruleysi og hugrekki
og nýtti sér húmorinn í að gera
grín að sjálfum sér. Hver finnur
sína leið til að takast á við slík áföll
og Siggi valdi þá leið sem hjálpaði
honum.
Elsku Inga og fjölskylda, Halli,
Gústa, Íris, Ágústa, Snorri, Aron
og Hallvarður Óskar, megi Guð
og góðar vættir styrkja ykkur í
sorginni. Minningin um góðan
dreng lifir um ókomna tíð.
Árni og Kristín (Linda).
Kveðja frá skólafélögum
Elsku Siggi okkar er farinn,
gamall skólafélagi úr Langholts-
skóla. Við krakkarnir úr 1963-ár-
ganginum höfum verið að hittast
undanfarin ár að frumkvæði
Sigga og höfum við hist með fjög-
urra mánaða millibili en þegar
leið á fannst okkur þetta allt of lít-
ið og fórum að hittast mánaðar-
lega og þá oftast á Kaffi Flóru
sem er í okkar uppeldishverfi. Við
í árganginum höfum hist reglu-
lega frá því við útskrifuðumst úr
Langholtsskóla, á ca. fimm ára
fresti, en árið 2009 var 30 ára
„reunion“ og eftir það hafði Siggi
alveg verið driffjöðrin í hópnum.
Siggi var mikill baráttumaður,
uppalinn Þróttari og mjög sterk-
ur karakter. Hann var algjörlega
með munninn fyrir neðan nefið,
við héldum stundum þegar við
hittumst á kaffihúsum að okkur
yrði hent út, þvílík voru lætin þeg-
ar best lét.
Hann hafði ótrúlegan húmor
fyrir sjálfum sér og öðrum sem ef-
laust hefur bjargað honum við að
takast á við þessi erfiðu veikindi
sem vörðu í tíu ár, en á þeim tíma
afrekaði hann margar hetjudáðir
sem við hin dáðumst að og feng-
um að taka þátt í með honum, eins
og t.d. gangan sem hann fór frá
Hveragerði til Reykjavíkur og
var stór hluti af okkur sem labb-
aði með honum síðasta spölinn
fyrir utan smá spjall á heiðinni
með einum skólafélaga. Það var
mikill heiður að fá að taka þátt í
þessu. En það var ekki nóg, hann
vildi gera meira og var sífellt að
hugsa leiðir til að hjálpa öðrum.
Eftir eina hvíldarinnlögnina á
líknardeildinni fannst honum
skammarlegur aðbúnaður fyrir
börnin og fór hann að safna fyrir
nýjum sjónvörpum og tölvum fyr-
ir börnin í Rjóðrinu og tók ekki
nema nokkra daga fyrir hann að
láta hlutina gerast. Næsta verk-
efni var hann með á prjónunum
sem hann náði ekki að klára en er
örugglega byrjaður að láta gott af
sér leiða í Draumalandinu. Eitt af
því sem hann lagði stund á var
eins og hann kallaði það „að trufla
vinnandi fólk“ og nutu margir
heimsókna hans á meðan heilsan
leyfði.
Það er stórt skarð höggvið í
okkar hóp á þessu ári, þar sem
tveir félagar hafa fallið frá með
aðeins tveggja mánaða millibili
Við lofuðum Sigga að hafa allt-
af lausan stól við borðið og stóran
bjór og hans loforð var að láta vita
af sér og jafnvel fella glasið, þann-
ig fyndum við að hann væri með
okkur.
Um leið og við kveðjum ynd-
islegan dreng viljum við senda
Ingu og fjölskyldu Sigga innileg-
ar samúðarkveðjur.
Þín verður sárt saknað, elsku
kallinn okkar.
Kveðja frá skólafélögum, árg.
1963 í Langholtsskóla.
Rósa, Vigdís, Elín
og Örn (Gulli).
Þá er hann farinn, hetjan okkar
hann Siggi. Í 10 ár barðist hann
við heilaæxli. Fór í fjóra upp-
skurði. Var borinn ofurliði að lok-
um.
Við kynntumst í Ljósinu. Vor-
um ljósberar. Hann vildi félaginu
vel og ákvað að ganga frá Hvera-
gerði til Reykjavíkur með Will-
um, vini sínum, og örfáum fé-
lögum til styrktar Ljósinu.
Ótrúlegt þrek, haltur og skakkur.
Viljinn hélt honum uppi. Hafi
hann þökk fyrir. Bjargaði fjárhag
Ljóssins í heilt ár, en starfsemin
gengur út á velvilja fólks.
Siggi mætti í Ljósið á morgn-
ana þegar hann hafði þrek til.
Sveiflaði sér inn og sagði: Hvar er
Mafíuósan? en það var Erna
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Ljóssins. Honum fannst hún frá-
bær en stundum svolítið ákveðin.
Brandararnir dundu á okkur.
Alltaf hress. Við skyldum aldrei,
aldrei vorkenna honum. Hún
Inga, kona hans, er stórkostleg og
frábær. Studdi hann að eilífu. Og
börnin þeirra gerðu allt til að gera
honum lífið bærilegt. Ótrúlegt
þrek hjá öllum. Frá okkur fór
hann í mat í félagsheimili Þróttar,
þar sem hann náði sér einnig í
andlega næringu. Hann hafði allt-
af brandara á reiðum höndum.
Inga er heill kafli út af fyrir sig.
Hvað er hægt að leggja á eina
konu? Með allan barnafjöldann
auk tveggja barnabarna sem þau
tóku að sér.
Við ljósberar þökkum Sigga
innilega fyrir árin sem við nutum
hans. Ingu og allri fjölskyldunni
þökkum við alla samveruna. Von-
um að hún hafi þrek til að hitta
okkur. Sigga þökkum við yndis-
legar samverustundir. Fyrir hönd
ljósbera segi ég: hvíldu í friði,
elsku Siggi minn.
Kveðjustundin komin er
kæri Siggi ofurhressi,
Guð um eilífð fylgi þér
og Ingu þína blessi.
(SA)
Sigurbjörg Axelsdóttir.
Í júlímánuði fyrir ári hringdi
síminn snemma að morgni. Á lín-
unni var Siggi. Hann spurði hvort
ég væri í vinnunni. Ég játti því. Þá
spurði hann hvort hann mætti
koma við í morgunkaffi. Ég sagði
það sjálfsagt, en velti fyrir mér
erindinu. Nokkuð var síðan við
Siggi höfðum hist og hann hljóm-
aði eins og erindið væri áríðandi.
Hann kom á slaginu tíu, brosandi
út að eyrum með útbreiddan
faðminn. Hann sagðist vera kom-
inn til að kveðja mig. Mig setti
hljóða. Ég var ekki undir þetta
búin þrátt fyrir að ég hefði vitað
innst inni hve alvarlega veikur
hann var.
Þetta reyndist þó ekki vera
okkar síðasta samverustund. Við
áttum saman fleiri notalegar og
einlægar stundir yfir kaffibolla
áður en yfir lauk.
„Meðan ég get glatt einhverja
með einhverju, geri ég það,“ sagði
Siggi í sjónvarpsviðtali í apríl-
mánuði og hann lifði svo sannar-
lega samkvæmt því til hinstu
stundar. Síðasta ár ævi sinnar
vann hann stórvirki. Eldmóður
hans og lífskraftur gerði honum
kleift að styrkja málefni sem
komu mörgum að ómetanlegu
gagni. Siggi, sem hafði í áratug
tilheyrt hópi sjúkra og kynnst að-
búnaði þeirra og aðstæðum af eig-
in raun, lét hendur standa fram úr
ermum og safnaði hárri fjárhæð
fyrir Ljósið, endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð fyrir þá sem
hafa greinst með krabbamein og
aðstandendur þeirra. Þá komst
hann að því eftir eina innlögnina á
líknardeild hve litla afþreyingu
langveik og fötluð börn bjuggu við
í Rjóðrinu og dreif í að safna fyrir
sjónvarpi og leikjatölvu á hvert
herbergi.
Siggi átti samhenta fjölskyldu
og trausta vini, sem umvöfðu
hann kærleika og lögðu sitt af
mörkum til að draumar hans
mættu rætast.
Við Siggi kynntumst er ég
flutti á Langholtsveginn árið
1974. Þá var ég 10 ára en hann ell-
efu. Við urðum nágrannar, bekkj-
arsystkin og vinir. Siggi var
glæsilegur fótboltastrákur sem
bræddi margt stúlkuhjartað.
Hann var grallari og skemmtileg-
ur en umfram allt góður drengur
sem vildi öllum vel.
Ég sendi eiginkonu hans, börn-
um og öllum aðstandendum mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um heilsteyptan og
góðhjartaðan dreng lifir – hann
var hetja sem sýndi okkur að allt
er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Svala Ísfeld Ólafsdóttir.
Siggi Halla var eins og farfugl-
arnir fyrir okkur strákana á Sigló,
hann kom á vorin og flaug burt á
haustin. Við vorum svo heppnir að
fá þennan fótboltakappa til liðs
við okkur í yngri flokkum KS,
enda var Siggi fæddur á Siglu-
firði. Þegar við vorum að taka af
okkur skíðaskóna og malarvöllur-
inn að koma undan snjó þá birtist
þessi markahrókur að sunnan á
takkaskónum.
Siggi fékk að kynnast hinum
stóra leikvelli sem Sigló var eftir
að síldin hvarf, brakkar og
bryggjur, sjoppur og kaupmenn,
bíóið, fjallið og eilíft lognið. Um-
hverfið bauð upp á endalausa leiki
og grallaraskap fyrir unga
drengi. Við fórum í fótboltaferða-
lög um Norðurland – unnum góða
sigra en stundum var tapið sárt.
Sú minning sem lifir lengst er
þegar við í 3. flokki KS fórum í
eftirminnilega keppnisferð til
Danmerkur 1978. Flestir vorum
við að fara til útlanda í fyrsta sinn
og það var ekki sjálfgefið á þeim
árum að unglingar norðan af
heimskautsbaug færu í slíka för.
Ferðin var eitt endalaust ævintýr
og síðustu árin höfum við hist
reglulega og rifjað upp sögurnar.
Sveitastrákarnir frá Sigló voru
ekki eingöngu að komast í snert-
ingu við grasvelli, öl og rauðar
pylsur í fyrsta sinn, heldur líka
danskar stelpur. Kvöld eitt höfðu
nokkrir í hópnum komist í kynni
við framandi fljóð. Voru þær
dregnar út á grasvöllinn í Asnæs
og þegar hvolpavitið gerði vart
við sig, þá stóðu Siggi og félagar
hjá og kveiktu á flóðljósunum á
vellinum og komu í veg fyrir að
bráðþroska drengir eignuðust
erfingja á danskri grundu. Í 50
ára afmæli Sigga ákváðum við að
hittast á Sigló þá um sumarið. Það
gerðum við og áttum saman góðar
stundir ásamt Sigurjóni, gamla
þjálfaranum okkar. Ári síðar er
þessi snjalli knattspyrnukappi all-
ur.
Í allri sinni baráttu stóð Siggi
ekki einn. Stór fjölskylda, foreldr-
ar, vinir, Þróttarar, KS-ingar og
fleiri stóðu að baki honum. En
kletturinn í baráttunni var þó án
efa Inga – konan í lífi Sigga, hún
hefur sýnt ótrúlegan styrk.
Óþrjótandi kraftur Sigga, já-
kvæðni og baráttuþrek vakti at-
hygli þjóðarinnar. Í veikindum
sínum var Siggi alltaf að spá í
hvað hann gæti gert fyrir sitt um-
hverfi, hvort sem það var Ljósið,
líknardeildin eða annað. Hann
taldi það ekki eftir sér að fara
gangandi ásamt sonum sínum og
vini frá Hveragerði til Reykjavík-
ur til styrktar Ljósinu. Þegar
Siggi gat glatt aðra þá leið honum
best. Hann hafði ekki dvalið lengi
á líknardeildinni þegar sú hug-
mynd kviknaði að safna fyrir
tækjum fyrir langveik börn sem
þar dvöldust. Síminn tekinn upp,
vinir og velunnarar heimsóttir og
ný tæki voru komin innan nokk-
urra daga. Svona var Siggi – alltaf
að gleðja.
Nú er baráttu vinar okkar,
Sigga Halla, lokið. Hafðu, vinur,
þökk fyrir áratuga vináttu sem
við mátum mikils. Ljúfar og góðar
minningar um frábæran vin mun-
um við ætíð geyma með okkur.
Komið er að kveðjustund
hetju er létti marga lund.
Þróttmikill á drottins vegi
orðstír góður deyr aldregi.
(Sig. Tómas)
Ingu, börnum þeirra, barna-
börnum, foreldrum, systur og
öðrum vottum við dýpstu samúð.
Birgir Gunnarsson,
Hermann Einarsson,
Jónas Skúlason og
Sigurður Tómas
Björgvinsson.
Snaggaralegur, fjótur og alltaf
líklegur til að skora. Þannig man
ég fyrst eftir Sigga Hallvarðs í
yngri flokkum Þróttar í fótbolta.
Framherjinn í Þrótti sem við KR-
ingar réðum oftast illa við að
hemja. Löngu seinna, vorið 1996,
urðum við síðan samherjar í
Þrótti. Eitthvað fannst mér hann
ósáttur við þennan liðsauka því
hann vart yrti á mig fyrstu vik-
urnar, helst þá að hann hreytti í
mig fúkyrðum og skrítnum glós-
um. Eitt sinn í lok æfingar tókum
við spjall saman og það augnablik
er mér mjög minnisstætt því upp
frá þeirri stundu, eftir að Siggi
hafði á sinn hreinskilna hátt
hreinsað andrúmsloftið, þá small
eitthvað ósnertanlegt og sterkt og
með okkur tókst órjúfanleg vin-
átta.
Kæri vinur, minningarnar
hrannast upp og orð á prenti
verða heldur fátækleg þegar
kemur að verðmæti vináttunnar
og þeirri fallegu manneskju sem
þú hafðir að geyma. Þú komst til
dyranna eins og þú varst klædd-
ur, hreinn og beinn. Þegar kom til
kastanna hafðir þú afdráttarlaus-
ar skoðanir þannig að þegar sá
gállinn var á þér áttir þú til að
stuða fólk, sérstaklega þá sem
ekki þekktu þig en um leið svo
réttsýnn, ærlegur og glettinn að
allir hrifust með á endanum.
Þau eru ófá augnablikin sem
við upplifðum saman, oftast
skemmtilega sigra en stundum
ósigra en það skipti litlu hvernig
byrinn stóð, alltaf mátti treysta á
þig innan sem utan vallar og auð-
vitað mátti stóla á mörkin frá þér.
Þér fannst einfaldlega gaman að
skora og varst marksækinn í eðli
þínu. Þú varst stoltur maður með
stórt hjarta og náðir í samvinnu
við þína heittelskuðu Ingu að gefa
af þér og áorka alveg ótrúlega
miklu. Þú varst stoltur Þróttari.
Þú varst stoltur af fjölskyldunni
þinni og strákunum þínum, í bolt-
anum fylgdir þú af öllu hjarta. Þú
varst stoltur fagmaður og stoltur
af fyrirtækinu ykkar pabba þíns.
Það kom alltaf blik í augun þegar
þú talaðir um æskuárin og bolt-
ann, mömmu og pabba og systur
þína og vinina á Sigló. Inga og
börnin voru svo alltaf miðpunkt-
urinn, jafnvægið í þínu lífi. Á
sama tíma og þú hafðir fyrir stórri
fjölskyldu að sjá og vannst
myrkranna á milli gafstu þér tíma
fyrir félagið þitt og vini þína. Ég
Sigurður Helgi
Hallvarðsson