Morgunblaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. VEGAHANDBÓKIN ehf. • www.vegahandbokin.is Sundaborg 9 • 104 Reykjavík • Sími 562 2600 TÍMAMÓTAVERK Vegahandbókin í snjalltækin • Yfir 3.000 staðir • Þúsundir þjónustuaðila • Kort sem sýnir staðsetningu • Sía, notandi ræður hvaða þjónustumerki birtast • Leit, hægt að leita eftir stöðum og þjónustu • Bókamerki, hægt að geyma og safna stöðum • Tungumál, íslenska, enska og þýska 1. SÆTIÁ LISTAEYMUNDSSON VERÐ KR. 5.490,- Hægt að skipta gamalli bók upp í nýja og fá 1.000,- kr. afslátt af þeirri nýju (aðeins í bókabúðum) Snjallsímaútgáfan fylgir bókinni Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur mikilvægt að ráðist verði í að- gerðir til að draga úr hraðakstri á Suðurlandsvegi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs. Hún leggur til aukið eftirlit og að skoðað verði hvort hraðamyndavélar séu heppi- legur kostur á þessum stað. Þá legg- ur nefndin til að Vegagerðin skoði hvort bæta megi úr merkingum á veginum. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu nefndarinnar um banaslys sem varð á Suðurlandsvegi við Með- allandsveg 4. ágúst 2013. Tvær stúlkur, 15 og 16 ára, létust í slysinu. Fólk í tveimur bílum var í samfloti frá Reykjavík austur að Jökulsárlóni. Veður var ágætt og akstursaðstæður góðar. Bílarnir óku á 100-120 km/klst. hraða. Leyfilegur hámarkshraði þarna er 90 km/klst. Vitni í hinum bílnum sögðu að skömmu fyrir slysið hefði bíllinn far- ið fram úr þeim á 130-140 km/klst. hraða og lent í lausamöl hægra meg- in í beinu framhaldi af framúrakstr- inum. Ökumaðurinn reyndi að beina bílnum aftur upp á veginn en fór yfir veginn og lenti út af vinstra megin þar sem hann valt. Stúlkurnar sem fórust voru far- þegar í aftursæti bílsins og köst- uðust út úr honum. Hvorug þeirra var í bílbelti. Þær létust báðar á slysstað. Ökumaður og farþegi í framsæti voru bæði í bílbelti en hlutu mikil meiðsl við slysið. Samkvæmt orsakagreiningu í skýrslunni ók ökumaður „of hratt og missti stjórn á bifreiðinni í lausamöl eftir framúrakstur. Stúlkurnar sem létust notuðu ekki bílbelti og köst- uðust út úr bifreiðinni. Þar sem slys- ið varð er Suðurlandsvegur mjór og engar vegaxlir á honum. Slitlagið er brotið í köntum og gróft hraun í nán- asta umhverfi vegarins. Ökumaður var réttindalaus.“ gudni@mbl.is Ekið of hratt og stúlkurn- ar voru ekki í bílbeltum  Skýrsla birt um banaslys þar sem tvær stúlkur fórust Baldur Arnarson baldura@mbl.is Undirbúningi Íslandshótela að stækkun Grand Hótels í Sigtúni í Reykjavík miðar vel en á fyrirhug- aðri byggingarlóð stendur líka til að reisa fjölbýlishús með um 100 íbúð- um. Um milljarða framkvæmd er að ræða en endanleg kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir. Blómaval var lengi með stórverslun á umræddri lóð. Ólafur Torfason, eigandi Íslands- hótela, segir stefnt að því að fram- kvæmdirnar verði kynntar íbúum í hverfinu með haustinu. Skipulagsvinnu vegna fram- kvæmdanna er ekki lokið og er því ekki hægt að birta drög að fyrirhug- uðum byggingum að sinni. Bíða fundar með yfirvöldum Ólafur segir styttast í að fram- kvæmdir hefjist. „Við bíðum eftir fyrsta fundi með nýju skipulagsráði borgarinnar. Þannig að það er ekkert fast í hendi á meðan. Ætlunin er að hefja fram- kvæmdir á næsta ári. Gera þarf breytingar á gamla húsinu. Það væri æskilegt að geta hafið þær fram- kvæmdir um áramótin. Í kjölfarið gætu framkvæmdir við íbúðahlutann farið af stað um mitt næsta ár,“ segir Ólafur og vísar til fjölbýlishúsa sem reist verða á austari hluta lóðarinnar sem sýnd er á mynd hér fyrir ofan. Gætu þær íbúðir komið á markað haustið 2016. Á vestari hluta lóðar- innar, nær hótelinu, verður reist ný aðstaða fyrir hótelið og ný her- bergjaálma þar sem verða um 100 herbergi. „Við munum líklega rífa ráðstefnusalinn Gullteig og byggja nýja ráðstefnuaðstöðu,“ segir hann. Átti að stækka meira Upphaflega stóð til að bæta 100- 160 herbergjum við hótelið en nú hefur þeim verið fækkað í 100. Nú eru 311 herbergi á hótelinu sem verður með um 411 herbergjum eftir stækkunina. Grand Hótel mun því tímabundið missa titilinn sem stærsta hótel landsins yfir til væntanlegs 342 her- bergja hótels Íslandshótela við Höfðatorg, en svo endurheimta hann eftir stækkunina. Fram kom í Morgunblaðinu í september 2007, þegar Grand Hótel var vígt, að kostnaður við bygginguna væri um 2,5 millj- arðar, eða 3,9 ma. á núvirði. Þær framkvæmdir hófust síðla árs 2005. Íslandshótel reka 10 Fosshótel úti á landi og Grand Hótel, Hótel Reykjavík Centrum og Best Western Hótel Reykjavík. Morgunblaðið/Þórður Byggingarlóð við Grand Hótel Blómaval var lengi með verslun á lóðinni en flutti þaðan í Skútuvog í október 2005. Undirbúa milljarða framkvæmd í Sigtúni  Grand Hótel stækkar  100 íbúðir verða byggðar á lóðinni Að sögn Ólafs stendur til að hafa bílakjallara undir fyrirhug- uðum fjölbýlishúsum í Sigtúni. Með því að gestir hótelsins hafi aðgang að bílakjallaranum á daginn, þegar íbúar fjölbýlis- húsanna eru ekki heima, verði nýtingin með því sem best þekkist á Íslandi. Íslandshótel reka nú 13 hót- el og segir Ólafur áætlað að veltan verði rúmlega 5 millj- arðar króna í ár. Þau verða 14 með hótelinu á Höfða- torgi og gætu þau orðið 20 innan nokkurra ára, að sögn Ólafs. Hann byrjaði með um 30 hót- elherbergi árið 1992 og var árs- veltan þá um 30 milljónir króna á verðlagi þess árs. Bílastæði verði vel nýtt BÍLAKJALLARI Ólafur Torfason Morgunblaðið/Eggert Tónlist Skálmöld kveikti áhuga Búa. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is 96% þeirra sem svöruðu könnun þjóðfræðingsins Búa Stefánssonar eru jákvæðir fyrir því að útfarir séu í meira mæli miðaðar við persónu þess látna og að veraldleg tónlist, t.d. dægurlög, popp og þungarokk, hljómi á kostnað hefðbundinnar út- farartónlistar. Þá kemur einnig fram að 66% viðmælenda Búa hafi ákveðið lag í huga fyrir sína eigin útför og segir Búi 75% þeirra laga vera dæg- urlög, rokklög eða popplög. Spurningalisti var lagður fyrir 220 einstaklinga og svaraði tæpur helmingur þeirra könnuninni sem var hluti lokarit- gerðar Búa til BA-gráðu í þjóð- fræðatengslum. „Þetta efni hafði lítið sem ekkert verið skoðað innan þjóðfræðinnar, m.a. vegna þess að það er ekki fyrr en á allra síðustu ár- um sem athyglin hefur beinst að samtímamenningunni á hennar eigin forsendum, athöfnum, hefðum og siðum sem einstaklingar þ.e. hópar hafa tileinkað sér í daglegu lífi í nú- tímasamfélagi,“ segir Búi sem er mikill áhugamaður um tónlist og ekki síst þá tónlist sem veki upp til- finningar hjá fólki. „Ég á mér nokkur lög sem ég heyrði á sínum tíma og hugsaði með mér að ég vildi láta flytja þegar ég kveddi þennan heim,“ segir Búi. Hann segir áhuga sinn á útfarar- tónlist hafa aukist enn frekar eftir að hann heyrði af því að lög með þungarokkssveitinni Skálmöld hefðu verið spiluð í útför kunningja síns. Viðkomandi hafði verið veikur lengi og vildi hann að lög Skálmaldar yrðu spiluð í útförinni sinni, sem að öðru leyti var hefðbundin kirkjuleg útför. Útför fyrir aðstandendur? Í ritgerðinni varpar Búi fram spurningunni fyrir hvern útförin sé. „Er hún fyrir þann látna eða syrgjandi aðstandendur? Er mikil- vægara að tónlistin sem hljómar í út- förinni endurspegli persónu hins látna eða að hún fari vel ofan í þá sem syrgja,“ spyr Búi og segir hann suma viðmælendur sína hafa talað um að í sorgarferlinu væri betra að heyra tónlist sem tengdist hinum látna og hans persónu á meðan aðrir hafi aftur á móti talað um að það gæti reynst aðstandendum óbæri- legt að hlusta á uppáhaldslög við- komandi í athöfninni og sorgin yrði bara meiri fyrir vikið. Búi segir fullt tilefni til að skoða þetta frekar og segir hann það koma vel til greina að hann haldi sinni vinnu áfram. „Það verður for- vitnilegt að fylgjast með hvernig hefðin muni mæta auknum kröfum fólks um persónumiðaðar útfarir.“ Jákvætt viðhorf til veraldlegrar tón- listar í útförum  96% vilja persónumiðaðar útfarir Guðjón Halldór Óskarsson org- anisti segir að á þeim tæpu 25 árum sem hann hafi spilað í út- förum hafi hann orðið var við aukningu rólegra og fallegra dægurlaga en segir að ekki sé um byltingu að ræða í þeim efn- um og að klassísku sálmarnir haldi sér alltaf. Hann segir tón- listarval vera hefðbundnara úti á landi en í borginni. Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju, tekur í sama streng og segir sína reynslu vera að meira sé um óvenjulegar beiðnir á höf- uðborgarsvæðinu en á lands- byggðinni. Hefðbundn- ara í sveitinni FRJÁLSLYNDARI Á HÖFUÐ- BORGARSVÆÐINU Búi Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.