Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 4
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Almannavarnir vilja hafa varann á og munu því takmarka áfram um- ferð um Öskjusvæðið, líkt og gert hefur verið undanfarna daga, í kjöl- far berghlaupsins mikla á mánu- dagskvöld. Varað er við umferð um skriðusárið og næsta nágrenni enda er gert ráð fyrir að þar verði hætta á skriðuföllum í að minnsta kosti eitt ár. Ekki hætta á annarri bylgju Vísindaráð almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra kom saman í gær til að fara yfir öll tiltæk gögn um berghlaupið og meta ástandið. Gögnin eru frá vísindamönnum sem kannað hafa vettvanginn á síðustu dögum og mæligögn frá ýmsum stofnunum, innlendum og erlendum. Björn Oddsson, jarðeðlisfræðing- ur og verkefnastjóri hjá almanna- varnadeildinni, segir um niðurstöð- una að engin merki séu um frekari skriðuföll eða hengjur sem gætu fallið og framkallað viðlíka flóð- bylgju og varð þegar efni úr skrið- unni féll í Öskjuvatn seint að kvöldi sl. mánudag. Mælingar sýna að flóð- bylgjurnar hafa risið í rúmlega 30 metra hæð og gengið inn á land. Það hefði valdið stórkostlegri hættu fyrir ferðafólk. Bráðabirgðaniðurstöður staðfesta að skriðan hefur verið um 50 millj- ónir rúmmetra að stærð. Er það svipað magn og vísindamenn sem fyrstir komu á staðinn höfðu áætlað. Þótt mesta hættan sé liðin hjá vilja almannavarnir hafa varann á og takmarka umferð innan öskjunn- ar líkt og hefur verið undanfarna daga. Reiknað er með að því ástandi verði aflétt eftir viku, staðan verður allavega endurmetin þá að sögn Björns. Áfram verður fylgst með svæðinu í samvinnu landvarða og vísindamanna. Hætta í skriðusárinu Eftir sem áður kemst fólk að Víti og getur séð þaðan yfir Öskjuvatn. Áfram er talin hætta á skriðuföll- um í berghlaupinu sjálfu og næsta nágrenni þess. Björn segir að efst í fjallinu séu klettar sem eigi vænt- anlega eftir að falla niður. Svæðið sé því mjög ótryggt. Telja almanna- varnir rétt að vara við öllum mannaferðum á því svæði næsta ár- ið að minnsta kosti. Hættusvæðið er töluvert frá helstu ferðamannaleið- um. Umferð takmörkuð í viku Esjan Skriðusárið í Dyngjufjöllum er um 450 metra hátt. Það svarar til hálfrar hlíðarinnar frá sjó og upp á hæsta tind Esju. Myndin er sett saman í tölvu.  Staðfest að berghlaupið í Öskju var 50 milljón rúmmetrar  Vísindamenn fara yfir gögnin sem safnað hefur verið undanfarna daga  Áfram hætta í skriðunni 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 Kaupum alla bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Vegfarendur í Reykjahlíð í Mý- vatnssveit ráku margir hverjir upp stór augu þegar forláta bifreið af gerðinni Plymouth renndi upp að bensínstöð þar í sveit. Um stund gleymdu margir fegurð náttúrunn- ar og létu þess í stað mynda sig við bifreiðina sem er árgerð 1928. Ökumaðurinn og félagi hans segjast vera staddir hér á landi í tengslum við heimsreisu. Þrátt fyrir háan aldur virðist Plymout- hinn standa sig með stakri prýði og er ekki vitað til þess að þeir hafi lent í vandræðum á för sinni um landið. Þegar ferðalangarnir sóttu Mý- vatnssveit heim var þar sól og sunnanvindur. Hefur hiti mælst þar um og yfir 20 gráður en síð- astliðinn fimmtudag gekk á með síðdegisskúrum, þrumum og eld- ingum. Öldungur á þjóðvegum landsins Ljósmynd/Birkir Fanndal Ekkert hefur spurst til manns sem stal ísbjarn- arskinni úr versl- un við Laugaveg um síðustu helgi. Guðmundur Sig- urðsson, versl- unarstjóri The Viking, verðlagði skinnið á 1,2 milljónir króna. Þjófnum lýsti hann sem „mjög myndarlegum“ manni af asísku bergi brotnum en sá mun hafa talað lýtalausa ensku og hrafl í íslensku. Talið er að skinnið gæti selst á fimm milljónir króna erlendis. Myndarlegur þjófur á ferð í miðbænum Skinnið er ófundið. Útför Vilhjálms Hjálmarssonar, bónda og fyrrverandi þingmanns og ráðherra, var gerð frá Mjóafjarðar- kirkju í gær en hann andaðist á heimili sínu Brekku í Mjóafirði 14. júlí sl. Líkmenn voru barnabörn Vil- hjálms þau Sigurður Hjálmarsson, Vilhjálmur Stef- ánsson, Svanbjörg Pálsdóttir, Lárus Sigfússon, Vil- hjálmur Pálsson, Vilhjálmur Hjálmarsson yngri, Margrét Sigfúsdóttir og Þorsteinn Garðarsson. Séra Sigurður Rúnar Ragnarsson, sóknarprestur í Nes- kaupstað, jarðsöng. Útför Vilhjálms Hjálmarssonar Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Þyrla Landhelgisgæslu Íslands og björgunarsveitir frá Hellu, Hvols- velli og Landeyjum voru í gærmorg- un kallaðar út vegna rútubíls sem sat fastur með 15 farþega innan- borðs í Steinsholtsá á Þórsmerk- urleið. Björgunaraðgerðir tóku skamman tíma og komust allir heilir frá óhappinu. Fyrstur á staðinn var skálavörður í Langadal en skömmu síðar mættu björgunarsveitir einnig á vettvang. Helgi Rúnar Halldórsson skálavörð- ur lagði dráttarvél fyrir aftan rút- una og komust farþegarnir þannig á þurrt land. „Ef rútan hefði verið lengi úti í ánni hefði farið að grafa undan henni, en hún var ekkert að fara að velta. Það var samt kominn hellingur af vatni inn í bílinn og sumir voru smá smeykir,“ sagði Helgi Rúnar í samtali við mbl.is í gærdag. Allmikið vatn er nú í ám og lækj- um á þessum slóðum og vill Slysa- varnafélagið Landsbjörg því brýna fyrir ferðafólki að gæta ýtrustu var- úðar þegar þvera þarf straumvatn. Skálavörður bjargaði 15 farþegum rútubíls Sárið eftir berghlaupið í Öskju er um 750 metra breitt. Þykktin á skrið- unni er um 200 metrar og efnið hefur færst til um rúma 200 metra. Sárið er þó hærra því 450 metrar eru frá vatnsyfirborði og upp á efstu brúnir. Er það um helmingur af hæð Esjunni en hæsti tindur hennar er rúmir 900 metrar. Athuganir vísindamenna benda jafnframt til þess að flóðaldan sem skriðan kom af stað hafi risið rúma 30 metra sem er tæplega helmingur af hæð Hallgrímskirkjuturns. Upp í hálfar Esjuhlíðar BERGHLAUPIÐ ER 750 METRA BREITT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.