Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 Inspiral.ly MURE Authenteq ViralTrade Boon Music Startup Reykjavík verkefnið er í fullum gangi. Tíu sprotafyrirtæki þróa hug- myndir sínar með aðstoð frá Arion banka og Klak-Innovit. Fylgstu með á www.startupreykjavik.com og á Facebook.com/StartupReykjavik. SPENNANDI HUGMYNDIR VERÐA AÐ VERULEIKA alveg við tölvuleikina, á þetta alveg rétt á sér. Þetta gefur sömuleiðis fleirum en ella tækifæri til þátttöku,“ segir Ómar Bragi sem fékk Sauð- krækinginn Sverri Bergmann, söngvara og leikjaspilara, til þess að sjá um leikjaspil á laugardeginum. Alls 29 héraðssambönd og félög í öllum landshlutum eiga aðild að UMFÍ. Setningarathöfn mótsins á föstudagskvöldinu fer þannig fram að keppendur ganga inn á keppn- isvöllinn undir fána félaga sinna, á athöfn sem hefur mjög hátíðlegan svip. Og svo rúllar dagskráin, þar sem leikur og gleði blandast skemmtilega saman svo til mikillar fyrirmyndar er. Tækifæri til samveru Fyrstu árin voru unglingalands- mótin haldið um miðjan júlí. Árið 2002 var ákveðið að færa þau yfir á verslunarmannahelgina, en um það voru næsta skiptar skoðanir. Þetta reyndist þó giftudrjúgt. „Þau sjón- armið heyrðust að þetta gengi að mótunum dauðum. Raunin var þó sú að landsmótin efldust og nú gefa þau fjölskyldunum frábært tækifæri til samveru, sem er stór sigur,“ segir Ómar. Tölvuleikir, glíma og frjálsar  Búist við fjölmenni á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki  Mjög góð aðstaða og frítt inn  Þátttakan er sigur  Skráningu lýkur annað kvöld  Fjölskylduhátíð sem festi sig fljótt í sessi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Setning Ungmennalandsmót er sett á föstudagskvöldi. Hátíðleiki er ráðandi og áberandi eru hvítbláinn, fáni UMFÍ og svo flögg héraðssambanda og félaga. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sauðárkrókur Ómar Bragi Stefánsson og Pálína Hraundal standa í ströngu við undirbúning ungmennalandsmótsins sem hefst á föstudag í næstu viku. Ókeypis aðgangur er að Unglingalandsmóti UMFÍ, utan hvað skráning- argjald fyrir hvern keppanda er 6.000 kr. Ekki er innheimt gjald á tjald- svæði mótsins, utan hvað fólk sem er í farhýsum greiðir fyrir rafmagns- tengingu og slíkt. „Afþreyingin á unglingalandsmóti þarf að hafa boðskap. Vinátta er þema mótsins að þessu sinni; við leggjum mikið upp úr því að krakkar úr ólíkum áttum kynnist, séu saman og fylgi hvert öðru eftir í leik og gleði. Tengist vinaböndum,“ segir Pálína Ósk Hraundal verkefnisstjóri á mótinu. Meðal afþreyingarþátta á unglingalandsmótinu eru t.d. útibíó, margs- konar smiðjur, hæfileikakeppni, sápukúlublástur, handverk, eggjaköku- gerð, myndlistarkynning, boðið verður upp á andlitsmálun og farið verður í fjallgöngu, Íþróttaálfurinn úr Latabæ leikur listir sínar og svo mætti áfram telja. Þá verða kvöldvökur þar sem fram koma tónlistarmenn eins og Magni Ásgeirsson, Friðrik Dór og Jón Jónsson, Sverrir Bergmann, Þór- unn Antonía, hljómsveitin Von og hljómsveit kvöldsins, Dj Jo Jo, Basic House Effect og svo mun Auðunn Blöndal stíga á stokk. Afþreyingin hafi boðskap VINÁTTA ER ÞEMA LANDSMÓTSINS AÐ ÞESSU SINNI SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gert er ráð fyrir góðum fjölda kepp- enda á Unglingalandsmóti Ung- mennafélags Íslands sem haldið verður á Sauðárkróki um versl- unarmannahelgina. Undirbúningur mótsins er nú á lokastigi og nk. sunnudagskvöld lýkur skráningu. Vænta má að strax upp úr miðri næstu viku fari fólk að sækja á Krók- inn, en unglingalandsmótið er nú orðið fast í sessi sem ein fjölsóttasta hátíðin um þessa mestu ferðahelgi ársins. Landsmót hefða og sögu „Við gerum ráð fyrir allt að 10 þúsund gestum á svæðinu; fjöl- skyldufólki sem kemur þá hingað til þess að fylgja krökkunum sínum eft- ir á samkomu þar sem saman fara íþróttir og afþreying,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmda- stjóri mótsins. Landsmót UMFÍ byggja á langri hefð og sögu, sem spannar rúmlega öld. Þar blandast saman íþróttir og ýmis þjóðleg gildi sem einkenna starf ungmennafélagshreyfingar- innar. Þátttaka í leiknum – en ekki endilega sigur – er hluti þessa og sú verður einmitt raunin á unglinga- landsmótinu. „Umgjörð mótanna er orðin föst í sessi og við fylgjum henni frá ári til árs. En til þess að fylgja straumi tím- ans bætum við líka inn nýjum keppn- isgreinum auk þess sem afþreying- arþátturinn verður sífellt stærri,“ segir Ómar Bragi, sem hefur haldið utan um landsmótshald UMFÍ síð- ustu ár. Hann segir fjölda gesta á unglingalandsmótum rokka frá 7 til 14 þúsund. Mótið á Selfossi árið 2012 hafi verið það fjölsóttasta en aðsókn- in ráðist alltaf mikið af veðri og fjar- lægð frá helstu þéttbýlissvæðum. Aðstöðuna á Sauðárkróki segir hann góða, en þar voru unglingalands- mótin haldin árið 2004 og 2009. Fleiri fái tækifæri til þátttöku Frjálsar íþróttir, glíma, körfubolti, sund, knattspyrna og keppni í staf- setningu eru keppnisgreinar sem margir tengja við landsmótin og vissulega verða þær áberandi nú. En svo koma inn nýjar greinar; að þessu sinni siglingar á seglbátum, bogfimi og tölvuleikir. „Já, sjálfsagt þykir einhverjum orka tvímælis að tölvu- leikir séu keppnisgrein á móti þar sem íþróttir og hreyfing eru í aðal- hlutverki. En sé rétt að þessu staðið, þannig að krakkarnir bindi sig ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.