Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. ágúst Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám í haust. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um skóla og námskeið föstudaginn 15. ágúst. Söfn • Setur • Sýningar Opið í Nesstofu alla daga frá 13-17. Húsasafnið opið víða um land, nánar á heimasíðu Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal Natríum sól á Veggnum, Innblástur á Torgi Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni Skemmtilegir ratleikir Safnbúð og kaffihús Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið frá 10-17 alla daga. Listasafn Reykjanesbæjar DÆMISÖGUR ÚR DRAUMALANDINU Karolína Lárusdóttir 29. maí – 17. ágúst Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Hönnunarklasinn Maris Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Ummerki sköpunar Úrval nýrra verka úr safneign Hafnarborgar Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is LISTASAFN ÍSLANDS Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014 Sunnudagsleiðsögn kl. 14 - Birgitta Spur sýningarstjóri Í LJÓSASKIPTUNUM 5.7.-26.10. 2014 >>EKTA LOSTÆTI Úrval brasilískra myndbanda á kaffistofu safnsins SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906 SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 29.11. 2014 Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17. Nýjungar í tæknigeiranum nýtast einnig í listsköpun og sýningarmenningu og nú má nálgast margt það sem hugurinn girnist á verald- arvefnum. Emma Heið- arsdóttir og Lola Bezemer eru ungar myndlistarkonur sem báðar útskrifuðust árið 2013 með BA-gráðu í mynd- list. Í sumar hafa þær unnið að listaverkum sínum í Amsterdam. Borgin er þeim uppspretta hugmynda og efniviðar auk þess að vera kjörið vinnurými. Verkin mynda nú eina heild í nýrri sýningu, „Meeting Points“, á vefsíðunni Artclick Daily. Opnun verður sunnudaginn 27. júlí klukkan 12 að staðartíma. Sýninguna er hægt að nálgast með tveimur músarsmellum á artclickdaily.info en Artclick Daily er vettvangur sýningarhalds myndlistar í einföldu html vefrými. Opna myndlistarsýningu á veraldarvefnum Myndlistarsýning Sýningin verður opnuð á verald- arvefnum klukkan 12 á sunnudag. Tónlistarhátíðinni All Tomorrow’s Parties, sem haldin er á Ásbrú, lauk fyrir skemmstu og þótti hún ganga með eindæmum vel. Nú hefur fyrsta stóra nafnið fyrir hátíðina á næsta ári verið staðfest og er það engin önnur en skoska indípopp- sveitin Belle and Sebastian. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er um eina stærstu sveit bresku tón- listarsenunnar síðasta áratuginn að ræða. Sveitin gerði garðinn meðal annars frægan með plötum á borð við Tigermilk, If You’re Feeling Sinister og The Boy with the Arab Strap. Hátíðin verður haldin 2. til 4. júlí að ári liðnu og miðasalan er þegar hafin. Tónlistarhátíð Sveitin Belle and Sebastian kemur fram á ATP 2015. Belle and Sebast- ian á Ásbrú að ári Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Það eru 800 ár liðin á þessu ári, að sögn 29. júlí, frá fæðingu Sturlu Þórðarsonar, sagnaritarans mikla. Við höldum upp á það sunnudaginn 27. júlí. Þá verður mikil dagskrá í Tjarnarlundi í Saurbæ í Dalasýslu en Tjarnarlundur er í landi Staðarhóls þar sem Sturla Þórðarson bjó lengi. Dagskráin byrjar klukkan hálf tvö og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, verður heiðursgestur samkomunnar. Síðan mun Guðrún Nordal, forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar, flytja erindi sem hún kallar „Arfleifð Sturlu Þórð- arsonar“ auk þess sem rithöfund- urinn Einar Kárason, sem hefur ein- mitt skrifað mikið um Sturlungatímann, verður með sér- stakt erindi um Sturlu sem ber nafn- ið „Hann vissi ég alvitrastan og hóf- samastan“. Forseti Alþingis og forseti norska stórþingsins munu einnig ávarpa samkomuna en Sturla skrifaði einmitt sögu Hákonar gamla Hákonarsonar og reyndar Magnúss sögu lagabætis líka sem er víst týnd að mestu leyti,“ segir Svavar Gests- son, einn af skipuleggjendum Stur- luhátíðar sem haldin verður í Dala- byggð um helgina. Unnið að Sturlusetri „Það verður einnig unnið að Sturluþingi barna en það er Elísabet Haraldsdóttir, menningarráðunaut- ur á Vesturlandi, sem stendur að því. Verkefnið gengur út á að farið verður með umræður eða kynningu á Sturlu Þórðarsyni inn í alla grunnskóla á Vesturlandi næsta vetur. Þegar líða tekur á veturinn verður haldið Sturluþing barna á Vesturlandi,“ segir Svavar en kveður Sturlu mikið hól. „Hann gengur náttúrlega tvímæla- laust næst Snorra föðurbróður sínum Sturlusyni. Þórður og Snorri voru bræður frá Hvammi í Dölum, synir Sturlu Þórðarsonar, Hvamms-Sturlu eins og hann var nú yfirleitt kallaður. Helstu verkin sem eru eignuð Sturlu eru eins og áður segir Hákonarsaga og Magnúss saga lagabætis. Svo er einnig Íslendingasaga sem er í Sturl- ungu og Landámabók. Síðan er ein- hver skáldskapur, til að mynda fjórar lausar vísur og vísur sem tengjast Hákonarsögu og Magnúss sögu,“ segir Svavar en hann telur bók- menntaverk Sturlu góðan vitnisburð um það sem á gekk í þá tíðina. „Sturlunga er ekki bara skýrsla um það sem einhver höfundur fréttir af að hafi gerst tvö hundruð árum áð- ur en það er skrifað, þetta er sam- tímalýsing. Örlygsstaðabardagi og Flugumýrarbrenna gerðust til að mynda í hans tíð, hann var þar ná- lægur í báðum tilvikum. Á nútíma- vísu er hann svolítið eins og ritstjóri dagblaðs. Hann er á vaktinni þegar hlutirnir eiga sér stað. Hann er því risi í íslenskum bókmenntum fyrr og síðar. Svo var hann einnig snjall póli- tíkus, honum tókst nú að halda lífi í þessum djöfulgangi sem Sturl- ungaöldin var og komst þar mjög til mannvirðinga,“ kveður hann. Svavar á von á nokkrum fjölda gesta en seg- ist þó renna blint í sjóinn með það. „Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta. Ég á von á þónokkrum hópi fólks að sunnan, annars fer þetta líka bara eftir tíðarfari og öðru eins og gengur. Hugmyndin er sú að þetta verði fyrstu sporin að því að stofna Sturlusetur í Dalasýslu en sveitarstjórn Dalabyggðar hefur gert samþykkt þess efnis að stefnt verði að stofnun þess seturs. Til- gangurinn með þessari hátíð á sunnudaginn er að reyna að skapa hreyfingu sem verður til þess að það verði stofnað,“ segir Svavar bjart- sýnn. Mikil menningararfleifð „Satt að segja hefur áhuginn á þessu Sturluframtaki verið mjög mikill og hann kemur fram víða. Það var til að mynda verið að gefa út frí- merki sem Sturla prýðir og kemur það út í september. Sturla er nátt- úrlega ekki bara eign okkar Dala- manna heldur er hann þjóðareign. Hugmyndin er því sú að reyna að vekja athygli á honum og fá sem flesta til að taka eftir því sem hann lét eftir sig. Fyrirmynd okkar að þessari hreyfingu allri er Snorrasetr- ið mikla í Reykholti. Við gerum okk- ur auðvitað grein fyrir því að það er í raun og veru langt í það að við náum því marki að verða sú stærð sem Reykholt er í dag. Við eigum þó stað hér í Dölum sem er einskonar kjör- staður, þrátt fyrir að það sé yfirleitt notað í annarri merkingu, fyrir þetta og það eru Laugar í Sælingsdal. Þar eru byggingar, jarðhiti og fleira. Þar er einnig hótel auk þess sem hjarta Laxdælu slær þar. Það má því segja að það sé saga hér í hverri þúfu í Dalasýslunni,“ segir Svavar kíminn. Hann segir jafnframt hafa fækkað talsvert í sveitinni og að landið í heild verði að taka þátt í verkefninu. „Við verðum eiginlega að gera þetta með Sturlu að þjóðarátaki.  800 ár frá fæðingu Sturlu Þórð- arsonar  Mikil hátíð í Dalabyggð „Eins og ritstjóri dagblaðs“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.