Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
✝ Guðrún Ragn-heiður Gísla-
dóttir Thorlacius
fæddist 17. október
1924 í Saurbæ á
Rauðasandi. Hún
lést á Landspít-
alanum Fossvogi
26. júní 2014.
Foreldrar Guð-
rúnar voru Gísli Ó.
Thorlacius, bóndi
og hreppstjóri í
Saurbæ, og Hólmfríður Theo-
dóra Pétursdóttir frá Stökkum
á Rauðasandi og var Guðrún
einkabarn þeirra. Guðrún gift-
ist Ingibergi Grímssyni verk-
stjóra, f. 18. nóvember 1924 í
Reykjavík, d. 31. maí 2001. For-
eldrar hans voru Sumarlína
Pétursdóttir frá Miðdal í Kjós
og Grímur Jónsson, frá Stokks-
Dóra, maki Jónas Már Fjeld-
sted, barn Rúnar Már og d)
Gísli Björn, maki Sóley Guð-
mundsdóttir, barn Helena Sif,
d. 15. október 2013. 5) Gísli, f.
26. mars 1957, d. 3. ágúst 1972.
Guðrún ólst upp í Saurbæ og
fluttist til Reykjavíkur þegar
foreldrar hennar brugðu búi og
var hún þá um 20 ára aldur.
Hún starfaði m.a. á Hvítaband-
inu, fór í kaupavinnu og vann
síðan hjá Síríusi, súkkulaðigerð
þar sem hún kynntist Ingibergi.
Eftir fæðingu elsta barns hefur
starfsvettvangur hennar verið
heimilið, við barnauppeldi,
umönnun veikra ættingja og
foreldra. Helstu áhugamál
hennar voru handavinna, garð-
yrkja og ferðalög.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Fossvogskirkju 8. júlí 2014.
eyri. Guðrún og
Ingibergur eign-
uðust 5 börn. Þau
eru: 1) Hólmfríður
Margét, f. 4. des-
ember 1948. 2) Pét-
ur, f. 20. ágúst
1950, maki Guð-
finna Hafsteins-
dóttir, börn þeirra:
a) Hólmfríður Júl-
íana, maki Guðjón
Óttarsson, börn
þeirra Valgerður Alda og Arn-
ar Logi, og b) Bergur Ingi. 3)
Sólveig f. 29. maí 1952. 4)
Hrefna Sumarlína, f. 25. sept-
ember 1953, maki Rúnar Jón-
asson, börn þeirra: a) Ragnheið-
ur Elva, maki Jónas Gústafsson,
b) Sólrún Björk, maki Andri
Hlynur Birgisson, börn Hekla
Dís og Eydís Ósk, c) Helga
Elsku amma, í dag fylgjum við
þér til hinstu hvílu.
Alltaf var jafnspennandi fyrir
litlu sveitastelpuna að koma í
heimsókn til afa og ömmu í
Reykjavík, skreppa með afa í eft-
irlitsferð í Nóa Síríus og á Rúnu-
róló með ömmu og hvað þá að
geta labbað út í sjoppu og keypt
bland í poka. Já, mikil var til-
hlökkunin þegar Reykjavíkur-
ferð stóð fyrir dyrum. Þið afi
komuð ykkur fyrir á Valþúfu,
fyrst í hjólhýsi sem fékk nafnið
Vatnskot og seinna sumarbú-
staðnum sem hélt fyrrnefndu
nafni. Ekki var minna gaman að
koma þangað og sníkja smá
súkkulaðibita og mjólk sem
smakkaðist, jú, mun betur í
Vatnskoti en heima þótt væri sú
sama.
Amma var með afburðum
handlagin og nutum við systkinin
góðs af því, þótt ekki hafi verið
hægt að kaupa nýjustu tísku
reddaði amma því iðulega og
saumaði eftir óskum flest spari-
föt okkar systra fram eftir aldri.
Fermingarkjólinn minn fékk ég
sérsaumaðan og vakti hann
mikla lukku, akkúrat snið og lit-
ur sem fermingarbarnið óskaði
sér. Ekki var minnið þitt síðra og
kunnir þú aragrúa af vísum,
orðatiltækjum og öðrum vísdómi.
Ég varð síðan heimalningur
hjá ykkur þegar framhaldsskóla-
ganga mín hófst. Alltaf hafði ég
skjól á Langholtsveginum hjá afa
og ömmu fram á síðasta dag. Það
var alltaf svo notalegt að koma í
ömmu- og afakot. Setjast í hæg-
indastólinn og lesa Moggann,
spjalla og stundum bara til að
taka smá lúr.
Ást ykkar afa var engum dul-
in, meðan afi var enn í vinnu
kom hann alltaf heim í hádeg-
ismat og man ég alltaf eftir að
hann kyssti þig kveðjukossi í
hvert skipti sem hann fór aftur í
vinnuna. Áfallið var mikið þegar
hann veiktist og lést og nú ertu
komin aftur í faðm þíns heitt-
elskaða, þar hafa verið fagnaðar-
fundir. Veit að afi hefur tekið vel
á móti þér.
Hvíldu í friði, elsku amma. Þín
Sólrún Björk.
Elskuleg frænka mín, hún
Gunna Tholl, er látin. Hún hét
reyndar Guðrún Ragnheiður.
Foreldrar hennar voru hjónin
Hólmfríður Pétursdóttir og Gísli
Thorlacius. Þau bjuggu í Saurbæ
á Rauðasandi. Gunna var eina
barn þeirra. Það var mannmargt
og umsvifamikið heimili. Þar var
kirkjustaður og Gísli var hrepp-
stjóri. Á sumrin voru þar mörg
börn í sumardvöl. Þar var stórt
bú á þeirrar tíðar mælikvarða.
Mér finnst ég hafa þekkt
Gunnu frænku frá því ég man
eftir mér. Á þessum árum var
farskóli í Rauðasandshreppi. Við
börnin frá Hvalskeri þurftum að
sækja skóla á Rauðasand og
bjuggum þá hjá ættingjum. Ég
bjó hjá frænku minni í Saurbæ.
Þar leið mér vel og kom okkur
frænkum vel saman. Við deildum
bókunum á milli okkar. Við
deildum rúmi saman. Við skulf-
um saman meðan sængurfötin
voru að hlýna. Við sungum sam-
an lög sem við kunnum, nátt-
úrlega án undirleiks. Þegar ég
gömul kona hugsa til baka,
finnst mér þetta vera dýrmætur
fjársjóður minninganna.
Gunna ólst upp við algeng
sveitastörf þess tíma. Hún fór á
húsmæðraskólann á Staðarfelli,
það þótti góður undirbúningur
undir húsfreyjustarfið. Þá áttu
konur að vera heima og annast
börn og bú.
Árið 1945 brugðu foreldrar
hennar búi og fluttu til Reykja-
víkur þar sem ævistarf Gunnu
var eftir það. Hún fór að vinna í
Nóa Síríusi. Þar kynntist hún
mannsefni sínum honum Ingi-
bergi Grímssyni. Það var mikið
gæfuspor fyrir þau bæði. Af
miklum dugnaði kom hann upp
húsi á Langholtsvegi 155 í félagi
við annan mann. Þar bjuggu þau
upp frá því. Hún tók foreldra
sína til sín og voru þau þar til
æviloka svo og Kristín móður-
systir okkar.
Gunna og Ingibergur eignuð-
ust fimm börn, þau voru Hólm-
fríður Margrét, Pétur, Sólveig,
Hrefna Sumarlína og Gísli, hann
lést 15 ára gamall. Þetta eru allt
nýtir og góðir þjóðfélagsþegnar.
Það var nóg starf fyrir Gunnu að
sjá um þetta stóra heimili. Hún
saumaði og prjónaði á fjölskyld-
una af miklum myndarskap. Þau
hjón ræktuðu fallegan garð við
húsið sitt. Þau byggðu sér sum-
arhús vestur á Fellsströnd hjá
Hrefnu dóttur sinni þar sem þau
ræktuðu upp trjáreit. Þau höfðu
bæði ánægju af allri ræktun.
Þegar Ingibergur missti heils-
una, hjúkraði Gunna honum af
stakri alúð þar til hann lést árið
2001. Eftir það bjó hún áfram í
húsi sínu með aðstoð barna
sinna. Hólmfríður Margrét
keypti kjallaraíbúðina og börn
Hrefnu áttu í góð hús að venda
hjá þeim mæðgum þegar þau
voru við nám hér í bænum.
Síðustu ár þegar ellin fór að
sækja að Gunnu, önnuðust þær
systur Hólmfríður Margrét og
Sólveig um móður sína af stakri
umhyggju og þegar hún var
komin á sjúkrahús vöktu þau
Hólmfríður Margrét, Pétur og
Sólveig yfir henni uns yfir lauk.
Gunna hafði trúarvissu um að
líf væri eftir dauðann. Ég vona
að henni hafi orðið að trú sinni
og að hennar hafi beðið vinir í
varpa þegar von var á gesti.
Ég þakka fyrir löng og góð
kynni gegnum öll árin sem við
urðum samferða.
Ljósið er skærast um skammdegis
nótt
það skín uns dagur rennur
þreyttum er sælt að sofna rótt
þá síðasta kertið brennur.
(Geir Gunnlaugsson)
Pálína Stefánsdóttir
frá Hvalskeri.
Guðrún Ragnheiður
Gísladóttir Thorlacius
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna fráfalls móður okkar,
INGIBJARGAR BERGÞÓRSDÓTTUR
frá Fljótstungu.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólkinu
á Kumbaravogi fyrir frábæra umönnun og
hlýju í hennar garð.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Hjörtur B. Hjartarson, Helga Brynjólfsdóttir,
Jónína M. Árnadóttir, Guðbjörn Sigvaldason,
Þorsteinn Árnason, Pia Hesselvig,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÁLL JÓNSSON,
Gránufélagsgötu 37,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Lögmannshlíð
fimmtudaginn 17. júlí.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 28. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Sigurgeir Pálsson, Jórunn Agnarsdóttir,
Rósa Pálsdóttir, Pálmi Vilhjálmsson,
Anna Kristín Pálsdóttir, Jón Frímann Ólafsson,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og aðstoð við andlát
og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður,
afa og vinar,
HJALTA JÓNSSONAR,
Borgarlandi 22 a,
Djúpavogi.
Jóhann Hjaltason, Guðrún S. Sigurðardóttir,
Sigurbjörn Hjaltason, Guðrún B. Jónsdóttir,
Guðný M. Hjaltadóttir, Þröstur Stefánsson,
Svala B. Hjaltadóttir, Guðmundur H. Gunnlaugsson,
Bryndís Jóhannsdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug vegna andláts og útfarar
SIGURLAUGAR GUÐRÚNAR
GUNNARSDÓTTUR,
Sillu Gunnu.
Guð blessi ykkur öll.
Garðar Víðir Guðjónsson,
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Gunnar S. Steingrímsson,
Brynhildur Sigtryggsdóttir, Ómar Kjartansson,
Guðrún Sigtryggsdóttir, Þorsteinn Ólason,
Vala Jóna Garðarsdóttir, Viðar Þórðarson.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður
okkar,
KRISTÍNAR MARÍU JÓNSDÓTTUR,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
miðvikudaginn 25. júní.
Starfsfólki á deild B7 á LHS í Fossvogi og á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands sendum við
bestu þakkir fyrir einstaka þjónustu og alúð.
Sérstakar þakkir færum við systrunum Guðrúnu, Grétu og
Ragnheiði Jónsdætrum fyrir ómetanlega vináttu og hlýhug
við móður okkar í gegnum árin.
Óskar Gísli Gylfason,
Selma Hrönn Maríudóttir,
Berglind Karitas Þórsteinsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástríkrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og dóttur,
KRISTÍNAR GUNNARSDÓTTUR
kennara,
Grænagarði 5,
Keflavík,
áður til heimilis í Bolungavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks D-deildar HSS í
Keflavík og hjúkrunarfólks á deild 11B, LSH við Hringbraut.
Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks Heiðarskóla í Keflavík.
Benedikt Kristjánsson,
Ragnhildur Helga Benediktsdóttir,Hagbarður Marinósson,
Kristján Heiðberg Benediktsson, Ásdís Viggósdóttir,
Aron Ívar Benediktsson,
Helga Guðmundsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR GUÐNASONAR,
Herjólfsgötu 15,
Vestmannaeyjum.
Starfsfólki sjúkradeildar Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja
sendum við hjartans þakkir fyrir góða og hlýja umönnun
Lilja Ársælsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Gunnar Einarsson,
Lovísa Sigurðardóttir, Guðmundur Sv. Hermannsson,
Guðni Sigurðsson, Olga Sædís Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar,
RAGNA JÓHANNSDÓTTIR,
Keilusíðu 6,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð
fimmtudaginn 24. júlí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Börn og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir mín,
ÞÓRUNN INGÓLFSDÓTTIR,
Hlíðargötu 35,
Fáskrúðsfirði,
lést mánudaginn 21. júlí á hjúkrunarheimilinu
Uppsölum, Fáskrúðsfirði.
Útför hennar fer fram frá Fáskrúðsfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 29. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Ólafur Þorsteinsson.