Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2014 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Það sem við höfum séð og upplifað er ótrúlegt og togar í okkur aftur,“ sagði Christopher Roy Oddleifson áður en hann hélt aftur heim til Kanada í vik- unni eftir að hafa skoðað sig um í Reykjavík og á Suðurlandi með Laur- en, dóttur sinni, í eina viku. Chris, eins og hann er gjarnan nefndur, er einn þekktasti leikmað- urinn af íslenskum uppruna í NHL- deildinni í íshokkíi undanfarna ára- tugi, en hann var upp á sitt besta á átt- unda áratugnum. Chris lék 524 leiki með Boston Bruins, Vancouver Ca- nucks og Dallas Black Hawks, skoraði 85 mörk og átti 191 stoðsendingu. Hann lék með mönnum eins og Bobby Orr, Phil Esposito og Andre Savard hjá Boston og var meðal annars fyr- irliði Canucks. Ætlaði að verða kennari „Ég ætlaði mér aldrei að verða at- vinnumaður, enda litlir peningar í ís- hokkíi á uppvaxtarárum mínum, held- ur stefndi ég að því að verða sögu- og stærðfræðikennari,“ segir Chris. Hann ólst upp í Winnipeg, sonur Ir- vins Oddleifson, sem lést fyrir nokkr- um árum, og Robertu, sem er níræð og af enskum ættum. Hún var að selja eign sína í Winnipeg og hyggst flytja til Toronto. Chris og Debbie, eiginkona hans, búa í smábæ skammt frá Vancouver, en hann fór út í fasteignasölu eftir að ferlinum lauk 1983. Hann segir að hann hafi ekki verið sá besti í hópnum á unglingsárunum en félagar hans hafi ekki einbeitt sér að íþróttinni heldur haft öðrum hnöppum að hneppa. „Við vorum allir skotnir í sömu stelpunni, sem var af íslenskum ættum,“ rifjar hann upp. „Hún fór einu sinni til Ís- lands og kom til baka með fullar tösk- ur af lopapeysum. Við keyptum þær af henni og það voru mín helstu tengsl við Ísland. Ég hef líka haldið sam- bandi við Dan Johnson, sem lék með mér áður en ég fór í atvinnumennsku. Í nýlegri heimsókn hans til mín gaf hann mér þrjá steina, sem hann bað mig um að varðveita vel því þeir væru frá Íslandi. Þó að þeir geti alveg eins verið úr rennusteininum fyrir utan heimili hans í Winnipeg eða á Gimli ýttu þeir undir þessa fyrstu heimsókn okkar til Íslands.“ Chris segir að svo virðist sem allir á Íslandi tali ensku. „Við vorum á hóteli skammt frá Vík og ég hafði orð á þessu við kokkinn, sem talaði lýtalausa ensku. „Takk,“ svaraði hann, „en ég er reyndar frá New York“. Ferðin var ævintýri líkust en allt er dýrt á Íslandi, þó að ég skilji ekki hvers vegna ekki þarf að borga fyrir að sjá staði eins og Þingvelli, Gullfoss og Geysi til að hafa upp í kostnað. En við komum örugglega aftur, því við eigum eftir að sjá svo mikið.“ Á vit lopapeysu og steina  Chris Odd- leifson á slóðum forfeðranna Morgunblaðið/Eggert Frægur Chris Oddleifson og Lauren fyrir utan skautahöllina í Laugardal, sem er heldur minni en hann á að venjast. Oddleifur Sigurðsson frá Hörðubóli í Snóksdal í Dalasýslu var langalangafi Garry Oddleifson. Hann eignaðist tvo syni með fyrri konu sinni og eftir að hún dó vann hann víða á Norðurlandi, síðast á Ána- stöðum á Vatnsnesi, þaðan sem hann hélt til Vest- urheims 1874 með Unu Stefánsdóttur, seinni konu sinni og langalangömmu Chris, og tveimur börn- um, Gesti og Ingibjörgu. Stefán Oddleifsson, langafi Chris, flutti vestur 1885. Garry Odd- leifson, sem býr í Winnipeg og hefur meðal ann- ars starfað mikið fyrir Lögberg-Heimskringlu og Þjóðræknisfélagið og er frændi Chris, segir að aðeins einn sonur Oddleifs hafi verið eftir á Íslandi og hann hafi verið barnlaus. Hann hefur reynt að grennslast fyrir um ættingja hérlendis án árangurs. Engin fjölskyldutengsl á Íslandi LANGALANGAFI OG -AMMA ÚR DALASÝSLU OG AF VATNSNESI 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Jón greiðir hæstu skattana 2. Svona er að vera ógæfukona 3. Margir með niðurgang vegna smits 4. Hver er Chung Tung Augustine Kong?  Laugardaginn 26. júlí klukkan 14 verður opnuð í Listasal Mos- fellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, einkasýning Þórdísar Jóhann- esdóttur undir heitinu „Um- myndun“. Þar sýnir hún röð ljós- mynda með ljóðrænu yfirbragði sem hún hefur unnið að undanfarið. Þórdís Jóhannesdóttir útskrif- aðist úr myndlistardeild Listahá- skóla Íslands árið 2007 og stundar nú nám í myndlist á meistarastigi við sama skóla. Hún hefur unnið öt- ullega að myndlist undanfarin ár og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis. Þórdís er einnig annar helmingur myndlistartvíeykisins Hugsteypunnar. Sýningin „Um- myndun“ er önnur einkasýning Þór- dísar. Sýning Þórdísar er opin á af- greiðslutíma Bókasafns Mosfells- bæjar kl. 12 til 18 virka daga og 12 til 15 á laugardögum. Sýningin stendur til 16. ágúst. Ummyndun Þórdísar í Mosfellsbæ  Larry Spotted Crow Mann er af ætt- flokki nipmuc-indíána í Massachu- setts í Bandaríkjunum. Hann er rithöf- undur, skáld, sögumaður og trommari. Hann heldur fyrirlestra víða um heim, þar sem hann hvetur fólks til meðvit- undar um stöðu indíána og náttúrunn- ar. Hann er einnig þekkur fyrir að hjálpa ungum indíánum til betra lífs eftir áfengis- og vímuefnavanda. Hann stoppar stutt á Íslandi en mun halda sagnakvöld í vinnustofu listamannsins Tolla á Héðinsgötu 2 í Reykjavík mánu- dagskvöldið 28. júlí klukkan 20. Larry gaf nýverið út bókina „The Mourning Road to Thanksgiving“, sem er saga sem segir af raunverulegum vanda indíána í núverandi menningarheimi Bandaríkj- anna. Flekkótta krákan með sagnakvöld FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg vestlæg átt og skúrir vestantil á landinu en annars skýjað með köflum. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast norðaustantil. Á sunnudag Hægviðri, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Vaxandi suðaustanátt með rigningu suðvestanlands seint um kvöldið. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag Suðaustan og síðan suðvestan 5-13 m/s og rigning sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum norðaustantil. Hiti 10 til 21 stig, hlýjast norðaustanlands. Íslandsmeistarar Stjörnunnar leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu þetta árið og mæta þar Selfossi. Þetta var ljóst eftir að Stjarnan lagði Breiðablik í undan- úrslitum í gær þar sem Harpa Þor- steinsdóttir var enn á ný á skotskón- um. Blikar ná því ekki að verja bikarmeistaratitil sinn en Stjarnan getur náð tvennunni. »2 Stjarnan í bikarúrslit og mætir þar Selfossi Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitum á HM ungmenna 19 ára og yngri í Eugene í Bandaríkj- unum. Hann kastaði 69,99 metra sem var fjórða lengsta kastið í undanriðl- unum. „Aðstæður voru nokkuð erfiðar þar sem mótvindurinn var nokkuð mikill,“ sagði Sindri við Morgunblaðið. »1 Sindri Hrafn keppir til úrslita Birgir Leifur Hafþórsson hefur fjög- urra högga forystu þegar keppni á Ís- landsmótinu í golfi er hálfnuð. Í kvennaflokki er töluvert meiri spenna þar sem einungis tvö högg skilja efstu fjóra keppendur að þar sem vallarmet var sleg- ið, en vætutíðin hentar kylf- ingum vel að þeirra sögn. »1 Guðrún Brá og Ólafía settu vallarmet

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.