Morgunblaðið - 26.07.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
Bjarna Benediktssyni öðru sinni:
„Ég held að hafi nú bara verið
Listasafn Reykjavíkur sem tók þá
ákvörðun, en safnið fer með mál-
verkamál borgarinnar. Ég held að
það hafi ekki verið nein pólitík í
því,“ sagði Dagur. „En mér skild-
ist á fundi mínum með framleið-
endunum í Höfða að þeir vildu
hafa sviðsmyndina eins nálægt
upprunalega útlitinu og mögulegt
væri. Þeir fá náttúrlega sjálfdæmi
í því, en það hefur ekki verið rætt
um einstaka innanstokksmuni.“
Ekki verið rætt
- Finnst þér ekki skipta máli,
þegar um heimsögulegan viðburð
er að ræða eins og leiðtogafund-
urinn var, að fundarherbergið í
Höfða fái að halda sér jafnmikið
og mögulegt er í þeirri mynd sem
það var í október 1986?
„Ég held að þeir sem framleiða
og leikstýra myndinni muni sjá til
þess og ekki bara innandyra í
Höfða, heldur einnig varðandi allt
umhverfi utan við Höfða, sem er
vitanlega miklu flóknara mál,
vegna þeirra miklu breytinga sem
þar hafa orðið. Þess vegna held ég
að myndir og aðrir innanstokks-
munir séu minnsta málið í þessu.“
- Muntu beita þér fyrir því að
málverkið af Bjarna heitnum
Benediktssyni fari aftur upp á
vegg í Höfða til frambúðar?
„Það kemur til greina, en það
hefur bara ekkert verið rætt. Það
verður örugglega sett upp í Höfða,
ef tökur myndarinnar fara þar
fram. Það hafa einhverjir viljað
gera mikla pólitík úr þessu, en í
mínum huga hefur myndavalið í
Höfða aldrei snúist um pólitík.
Málverkið af Bjarna Benedikts-
syni hefur aldrei verið neitt stór-
mál, heldur það að Höfði sé fal-
legur og aðgengilegur.“
Málverkið sem hangir á veggn-
um í fundarherberginu nú, er
Búðareyri við Seyðisfjörð, olíu-
málverk á striga eftir Gunnlaug
Scheving, málað á árunum 1930 til
1935.
Það er Listasafn Reykjavíkur
sem velur listaverk sem hanga á
veggjunum í Höfða. Helga Lára
Þorsteinsdóttir, safnafræðingur
hjá Listasafni Reykjavíkur, sagði í
samtali við Morgunblaðið að mál-
verkið af Bjarna Benediktssyni
væri í geymslu á Kjarvalsstöðum.
Aðspurð um hvort það hefði
verið rætt að setja málverkið af
Bjarna Benediktssyni aftur upp í
fundarherberginu í Höfða, áður en
tökur hæfust næsta vor á kvik-
myndinni um leiðtogafundinn,
sagði Helga Lára: „Mér skilst að
það standi til og það kæmi mér
ekki á óvart ef það yrði gert. Það
væri auðvitað eðlilegt að leik-
myndin yrði eins lík upphaflegu
myndinni og hægt væri. Það er
dálítið síðan þetta var rætt, en við
erum mjög fljót að bregðast við,
verði eftir því óskað.“
Ljósmynd/Hvíta húsið Washington
Heimsmynd Þessi mynd, sem ljósmyndari Hvíta hússins tók, var birt í öllum helstu fjölmiðlum
heims þann 13. október 1986, iðulega á forsíðu, eins og t.d. gert var í Morgunblaðinu þann dag.
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Til stendur að gera leikna kvik-
mynd um leiðtogafund þeirra Ro-
nalds Reagans og Mikhails Gor-
bachevs, sem haldinn var í Höfða,
í Reykjavík í október 1986. Fram
hefur komið að framleiðendur
kvikmyndarinnar hafa óskað eftir
að fá að kvikmynda í Höfða í einn
mánuð næsta vor.
Jafnframt hefur komið fram að
verði áform um gerð myndarinnar
að veruleika muni Michael Dou-
glas leika Ronald Reagan og Cri-
stoph Waltz leika Gorbachev.
Jafnframt að Baltasar Kormákur
hafi verið beðinn um að leikstýra
myndinni.
Ljósmyndin sem birt var á for-
síðu Morgunblaðsins mánudaginn
13. október, 1986, að afloknum
leiðtogafundinum, var tekin af
ljósmyndara Hvíta hússins. Hún
sýnir þá Gorbachev og Reagan í
fundarherberginu í Höfða og að
baki blasir við málverk Svölu Þór-
isdóttur Salman af Bjarna Bene-
diktssyni heitnum, fyrrverandi
forsætisráðherra og borgarstjóra.
Heimsmynd fjarlægð
Þessi ljósmynd varð heimsmynd
með því að birtast í öllum helstu
fjölmiðlum heims, sjónvarpi, dag-
blöðum og tímaritum.
1994 létu R-listinn og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
fjarlægja málverkið af Bjarna
Benediktssyni og koma fyrir í
geymslu. Þegar Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálsson varð borgarstjóri um
skamma hríð, eða í rúmt ár frá
2006 til 2007, lét hann verða eitt
af sínum fyrstu verkum, að láta
setja málverkið af Bjarna Bene-
diktssyni aftur á sinn stað í Höfða
við hátíðlega athöfn. Þar fékk mál-
verkið að vera í friði í nokkur ár,
eða allt til ársins 2011 að meiri-
hlutinn undir stjórn þeirra Jóns
Gnarr borgarstjóra og Dags B.
Eggertssonar, forseta borg-
arstjórnar, lét fjarlægja málverkið
á nýjan leik, og breyta þar með
hinu fræga sögusviði.
Fá frjálsar hendur
„Það hefur ekki verið tekin end-
anleg ákvörðun um að hluti kvik-
myndarinnar um leiðtogafundinn
verði tekinn upp í Höfða,“ sagði
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
í samtali við Morgunblaðið. „Eitt
af því fyrsta sem ég gerði eftir að
ég tók við, var að hitta Baltasar
Kormák og framleiðendur mynd-
arinnar í Höfða, til þess að undir-
strika að þeim stæðu allar dyr
opnar, hvað varðar afnot að
Höfða. Samt sem áður er það ekki
frágengið, að þetta verði gert hér,
en ég vona svo sannarlega að það
verði.“
Dagur var spurður hvers vegna
síðasti borgarstjórnarmeirihluti
hefði látið fjarlægja málverkið af
Morgunblaðið/Kristinn
Breytt Í stað málverksins af Bjarna Benediktssyni hangir nú uppi mynd eftir Gunnlaug Schev-
ing, Búðareyri við Seyðisfjörð, en fundarherbergið er að öðru leyti mjög lítið breytt frá 1986.
Málverkið af Bjarna Benediktssyni
aftur á leið upp á vegg í Höfða?
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri telur enga pólitík hafa verið í því að málverkið hefur í tvígang
verið fjarlægt úr fundarherberginu í Höfða og komið fyrir í geymslu á Kjarvalsstöðum
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr
Ken Adelman, fyrrverandi forstjóri Afvopnunar- og
vopnaeftirlitsstofnunar Bandaríkjanna, (e. Director of
the U.S. Arms Control and Disarmament Agency) og
fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, fylgdi forsetanum hingað til Reykjavíkur, á
leiðtogafundinn 1986.
Adelman hefur nýverið skrifað bók um fundinn, Reag-
an í Reykjavík, 48 stundirnar sem bundu enda á kalda
stríðið (e. Reagan at Reykjavik, Forty-Eight Hours that
Ended the Cold War).
Bók Adelmans hefur hlotið afar góða dóma í Banda-
ríkjunum og er sögð skrifuð af yfirgripsmikilli þekkingu, sanngirni og
innsýn í það sem raunverulega gerðist. Í bókadómi The Washington Post
um Reagan í Reykjavík, segir m.a. að Adelman endurspegli á sannfær-
andi hátt í frásögnum sínum þá rússíbanareið sem átti sér stað í Höfða
þann 11. og 12. október 1986, bæði hvað varðar væntingar og tilfinningar.
Adelman greindi frá því nýverið í fyrirlestri að hann hefði tekið að sér
að framleiða kvikmynd um leiðtogafund þeirra Reagans og Gorbachevs í
Reykjavík, ásamt Ridley Scott. Væntanlega verður handrit bókarinnar að
miklu leyti byggt á nýútkominni bók Adelmans.
Eins og fram kemur í aðaltexta, kemur til greina að Michael Douglas
leiki Ronald Reagan í myndinni og að Baltasar Kormákur leikstýri henni.
Ekki náðist í Baltasar Kormák við vinnslu þessarar greinar.
Reagan í Reykjavík
KEN ADELMAN, RÁÐGJAFI BANDARÍKJAFORSETA
Ken
Adelman
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Höfði Skyndilega var „Hofdi-House“ á hvers manns vörum víða um heim haustið 1986 og hefur oft verið síðan.