Morgunblaðið - 26.07.2014, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu
Ljósmynd/Nice Sky Adventures
Fiðringur Íeda Herman flaug í fyrsta sinn í svifvæng í Utah á síðasta ári. Eigandi svifvængjafélagsins fagnaði komu
Íedu og slagorðið „88 and feeling great“ varð til. Hann hefur notað það í auglýsingum og það hefur vakið lukku.
New York-borg birtast við sjón-
deildarhringinn. Þau hjónin höfðu
verið um viku á leiðinni með skipi
bandaríska hersins og þó að gott
væri að eygja land fylltist Íeda
skelfingu á sama tíma. „Ég var
gjörsamlega græn og hafði ekki
nokkra hugmynd um hvað ég hefði
nú komið mér út í. Það var sérstök
upplifun þegar ég kom aftur til
Reykjavíkur því að mér leið nánast
eins og þegar ég kom til New York
í fyrsta skipti. Öll þessi háhýsi og
ótrúlegu byggingar komu mér í
opna skjöldu,“ segir Íeda og minn-
ist þess að þegar hún fór utan 1945
voru engar húsbyggingar hærri en
Hótel Borg. „Það var fjórar eða
fimm hæðir og hærri hús hafði
maður ekki séð.“
Fyrstu vikurnar á erlendri
grund einkenndust af einföldum
samræðum því hin nýgifta íslenska
sveitastúlka bjó ekki yfir fjöl-
breyttum orðaforða. „Ég kunni
enga ensku. Jú, ég gat sagt „yes“,
„no“ og „sigarettes“ en það var líka
allt og sumt,“ segir hún og hlær
dátt að minningunni.
Skipið hafði ekki siglt í
margar klukkustundir frá
Íslandi þegar Íeda komst að
því að hún vildi ekki fara
vestur um haf. „Ég vildi
bara fara heim en hvernig
átti ég að fara að því? Á
þessum tíma var ekki hægt
að stökkva upp í flugvél,
fyrir utan að ég komst ekk-
ert af skipinu. Maður getur
rétt ímyndað sér ef börnin
manns tækju upp á svona löguðu í
dag. Hvað myndi maður gera?
Binda þau?“ Sú var einmitt raunin
að móðir Íedu var síður en svo sátt
við að horfa á eftir tvítugri dóttur
sinni hverfa til annarrar heimsálfu.
Henni leist ekkert á þennan ráða-
hag og óttaðist að dóttirin lenti í
höndum ribbalda í Bandaríkjunum.
„Fyrir það fyrsta voru stúlkur sem
vildu vera með hermönnum litnar
hornauga og þóttu ekki sérlega
prúðar. En mamma sætti sig við
það að lokum. Ég reyndi að spyrja
Del hvaðan hann kæmi því mamma
vildi vita hvar í Bandaríkjunum við
myndum búa. Við þekktum bara
þrjá staði: New York, Chicago og
Hollywood. Stjörnurnar voru allar í
Hollywood, skýjakljúfarnir voru í
New York og í Chicago voru allir
glæponarnir. Þannig að þegar ég
sagði mömmu að maðurinn væri frá
svæðinu í kringum Chicago hélt ég
að mamma mín yrði ekki eldri. Hún
greip andann á lofti og sá fyrir sér
að hann væri einn af þessum
glæpamönnum í Chicago,“ útskýrir
Íeda sem man vel eftir skelfingar-
svipnum á móður sinni. Síðar kom
hún þó og heimsótti þau og sá að
það fór vel um þau, þrátt fyrir „alla
glæpamennina“ sem hún var viss
um að væru í meirihluta.
Vildi fljúga eins og máfur
Það er erfitt að ímynda sér að
þessi fíngerða kona hafi alið tíu
börn í þennan heim á árunum 1945
til 1968. Það þótti sérstakt að þau
Del skyldu eignast svona mörg
börn og sumir báðu góðan guð að
blessa Íedu þegar hún gekk um
bæinn með krakkaskarann á eftir
sér. Sjö stúlkur og þrír piltar.
Barnauppeldið gekk vel og að því
kom að Íeda gat farið í nám. Hún
lærði innanhússhönnun í Chicago
School of Interior Design og rak
sína eigin hönnunarverslun. Hún
skrifaði greinar í dagblöð og tíma-
rit auk þess sem hún skrifaði hand-
bók um hönnun. Hún hætti að
vinna árið 2009 og nú lætur hún
drauma sína rætast. Þá drauma
sem eftir eru. „Einn þeirra var að
geta flogið eins og máfur. Ég man
eftir sjálfri mér, átta ára gamalli á
Vopnafirði, þar sem ég bjó til eins
konar vængi og ætlaði mér að
fljúga. Það fór illa,“ segir Íeda og
heil áttatíu ár liðu þar til hún gerði
aðra tilraun til að fljúga eins og
máfur. Það tókst í það skiptið en þá
fór hún í svifvæng í Utah í Banda-
ríkjunum. „Þeim fannst það dálítið
merkilegt að 88 ára gömul kona
vildi prófa þetta þannig að eigandi
fyrirtækisins bjó til slagorð sem
hann notaði síðar til að auglýsa sig.
Þar stóð: Eighty eight and feeling
great!“
Íeda er sannfærð um að aldur
sé eitthvert fyrirbæri sem verður
til í speglinum. „Ég lít í spegilinn
og hugsa með mér: Hvaða gamla
kona er þetta? Því ég finn ekkert
fyrir því að ég sé orðin svona göm-
ul. Maður tekur bara hverjum degi
eins og hann kemur fyrir,“ segir
Íeda sem hefur einstaka sinnum
heimsótt eldri borgara í bænum
þar sem þau hjón búa og haldið er-
indi um Ísland. Hún hefur þá staðið
sjálfa sig að því að segja að erindi
loknu að „gamla fólkið hafi virki-
lega notið þess að hlusta,“ og um
leið áttað sig á að sumir áheyrend-
anna voru á sama aldri eða jafnvel
yngri en hún sjálf. Íeda er við góða
heilsu en tekur því sannarlega ekki
sem sjálfsögðum hlut þó svo að hún
sé ung í anda. Hún veit að allt get-
ur breyst í einni svipan en þangað
til ætlar hún að njóta þess að vera
allir vegir færir. „Ég ætla að fara í
svifvæng hér á Íslandi áður en ég
fer heim og Heidi, yngsta dóttir
mín, ætlar með því hún hefur enn
ekki prófað það,“ segir Íeda sem á
bágt með að bíða eftir nógu góðu
veðri til að láta sig svífa fram af
Hafrafellinu. Hún vonast til að veð-
ur leyfi það í dag. „Ég hlakka svo
til að finna kitlið í maganum og
spennuna líða úr mér. Þetta verður
svo gaman og ég hlakka ofboðslega
til,“ segir níræða ævintýrakonan
Íeda Jónasdóttir Herman sem
fagnar hverjum deginum sem renn-
ur upp.
„Ég lít í spegilinn og
hugsa með mér: Hvaða
gamla kona er þetta?
Því ég finn ekkert fyrir
því að ég sé orðin svona
gömul. “
Í dag verður haldinn götumarkaður í
Fógetagarðinum sem er á horni Að-
alstrætis og Kirkjustrætis. Þetta er
fyrsti laugardagurinn af fimm þar
sem götumarkaðshátíðin KRÁS er
haldin og mun fjöldi matreiðslu-
manna af hinum ýmsu veitinga-
húsum reiða fram kræsingar sem eru
þó einfaldar og kallast götumatur. Á
síðu makaðarins á Facebook segir að
tilvalið sé að mæta með drykkjarföng
og rölta á milli bása og smakka það
sem boðið er upp á.
Götumarkaðurinn verður opinn frá
klukkan 13 til 16 og á sama tíma að
viku liðinni.
Götumarkaður í dag
Morgunblaðið/Ómar
Markaður Fógetagarðurinn mun ilma.
KRÁS í Fógeta-
garðinum
Roller Derby á Íslandi og Reykjavík-
urborg standa fyrir hjólaskauta-
viðburðum víðsvegar um borgina í
sumar. Í dag, laugardaginn 26. júlí,
veður skautað með fram sjónum frá
Nauthólsvík.
Mæting er við Kaffi Nauthól strax
að Druslugöngu lokinni, eða klukkan
15.30 og verður lagt af stað klukkan
16 sem leið liggur meðfram sjónum
alla leið að Hörpu. Við Hörpu mun
hljómsveitin White Signal byrja að
spila klukkan 16.30 og halda uppi
fjörinu sem mannskapurinn verður
eflaust kominn í eftir skautaferðina.
Skautað inn í sumarið
Morgunblaðið/Kristinn
Skautað Roller Derby á Íslandi.
Hjólaskauta-
viðburðir víða
Íeda Herman skrifaði bókina
Trolls - Monster Worm - Hidden
People Fond Memories of Ice-
land og kom sú bók út í Banda-
ríkjunum fyrr á þessu ári. Bók-
arkápan skartar skreytingu eftir
Mugg og er bókin ljómandi
skemmtilega skrifuð. Íeda skrif-
aði bókina í raun og veru fyrir
börnin sín og barnabörn „til
þess að þau viti hvaðan þau
koma,“ segir Íeda og brosir
breitt. Hún er stolt af íslenska
upprunanum og þegar börnin
hennar voru lítil fengu þau að
heyra ævintýralegar sögur af
álfum og tröllum, furðuverum
sem komu út úr íslensku þok-
unni í dauðaþögn og síðast en
ekki síst jólasveinunum sem
börnin hennar lærðu
snemma að þekkja
með nöfnum. Íeda
vinnur nú að annarri
bók, barnabók, en
veit að hún mun líka
skrifa framhald ævi-
minninga sinna. Af
nógu er að taka og
orka Íedu er hvergi
nærri á þrotum.
Æskuminn-
ingar í bók
FYRSTA BÓKIN KOMIN ÚT