Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
POLAROIDPOLAROID
VEIÐIGLERAUGU
GUL, BRÚN OG GRÁ
MEÐ FJÆRSTYRK
TVÍSKIPT
ALVÖRU GLER,
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
HAMRABORG 10 | SÍMI: 554 3200 | SOS@EYEWEAR.IS | OPNUNARTÍMI VIRKA DAGA: 9:30-18
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Eins og kunnugt er seldi Nýherji
alla starfsemi sína í Danmörku á
fyrsta ársfjórðungi.
Tekjur TM Software jukust um
19% á öðrum ársfjórðungi miðað við
sama tímabil í fyrra, en athygli vekur
að erlendar tekjur félagsins jukust
um 86% á milli ára. „Meginskýringin
á verulegum tekjuvexti TM Software
er góður gangur í þróun og sölu á
hugbúnaðarlausninni Tempo, sem er
tímaskráningar- og verkbókhalds-
kerfi sem er nú notað af um fimm
þúsund viðskiptavinum í yfir hundr-
að löndum. Tekjur af Tempo eru all-
ar í erlendri mynt og eru vel á fjórða
hundrað milljónir það sem af er ári,“
segir Finnur og bætir við að vel-
gengni Tempo sé gott dæmi um
hvernig íslenskt hugvit eigi erindi til
viðskiptavina óháð landamærum.
Til að styðja við áframhaldandi
vöxt hefur enn meiri áhersla verið
lögð á þróun á vörum Tempo og var
stöðugildum til að mynda fjölgað um
fimmtán á fyrri hluta ársins.
Heimild til að auka hlutafé
Á stjórnarfundi Nýherja í gær var
samþykkt að auka hlutafé félagsins
um allt að tíu milljónir hluta til að
selja til starfsmanna og stjórnar-
manna. Miðað við gengi bréfa félags-
ins í gær nemur virði hlutafjáraukn-
ingarinnar um fjörutíu milljónum
króna.
Finnur nefnir aftur á móti að
aukningunni sé ekki ætlað að efla
eiginfjárstöðu félagsins, sem sé
nokkuð undir markmiðum stjórnar-
innar. Með útboðinu sé fyrst og
fremst verið að bregðast við sýndum
áhuga starfsfólks á að kaupa bréf í
félaginu. Eitt af meginverkefnunum
framundan sé þó að laga eiginfjár-
stöðuna.
Þess má geta að stjórn Nýherja
hefur heimild til að hækka hlutafé fé-
lagsins um allt að 150 milljónir hluta,
þ.e. um 600 milljónir króna, með sölu
nýrra hlutabréfa.
Nýherji úr tapi í hagnað
Ljósmynd/Arnaldur
Umskipti Nýherji skilaði 125 milljóna króna hagnaði á fyrri árshelmingi.
Forstjóri Nýherja segir afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi í samræmi við
væntingar sínar Til lengri tíma geri stjórnendurnir þó kröfur um betri afkomu
Jákvæð afkoma
» Afkoma allra félaga Nýherja-
samstæðunnar var jákvæð á
fyrri helmingi ársins. Heildar-
hagnaður var 69 milljónir.
» Athygli vekur að erlendar
tekjur TM Software jukust um
86% milli ára.
BAKSVIÐ
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja,
segir að afkoma samstæðunnar á
öðrum fjórðungi ársins sé í samræmi
við væntingar sínar. „Til lengri tíma
gerum við þó kröfur um betri afkomu
en það sem af er ári,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið. Mestu
skipti þó að hafa náð ákveðnum við-
snúningi í rekstri félagsins.
Hagnaður Nýherja á öðrum árs-
fjórðungi nam 69 milljónum króna,
samanborið við 862 milljóna króna
tap á sama tímabili í fyrra. „Allar
einingar okkar skila jákvæðri af-
komu, horfur í rekstri þeirra eru
góðar og við finnum byrinn í
seglunum,“ segir Finnur.
EBITDA samstæðunnar, þ.e.
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, nam 207 milljónum
króna á ársfjórðungnum og jókst um
tæp 29% á milli ára. Þá jókst vöru- og
þjónustusala jafnframt lítillega og
nam 2,85 milljörðum króna á tíma-
bilinu.
Finnur bendir á að félagið hafi
dregið sig út úr starfsemi erlendis að
mestu leyti og lagt þess í stað megin-
áherslu á að þjónusta íslenskt at-
vinnulíf um þarfir er snerta upplýs-
ingatækni. „Þar erum við sterk og í
sókn og endurspeglar afkoman það,“
segir hann.
í kjölfar þess að matsfyrirtækið
breytti horfum sínum fyrir íslenska
ríkið. Ástæðan er sú að stór hluti
vátryggingarekstrar og fjárfest-
inga TM er á íslenskum markaði.
TM hefur frá árinu 2007, eitt ís-
lenskra tryggingafélaga, verið með
styrkleikamat frá S&P. Matið gef-
ur félaginu tækifæri til að sækja
vátryggingaviðskipti á erlenda
markaði og er því mikilvægur liður
í möguleikum þess til vaxtar, að
því er félagið segir.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Stand-
ard & Poor’s (S&P) hefur breytt
horfum sínum fyrir fjárhagslegan
styrkleika Tryggingamiðstöðvar-
innar (TM) úr stöðugum í jákvæð-
ar.
Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn
félagsins til lengri tíma, BBB-, var
jafnframt staðfest, en það er sama
einkunn og S&P veitti langtíma-
skuldbindingum íslenska ríkisins í
síðustu viku.
Breytingin á horfum TM er gerð
S&P breytir horfum TM í jákvæðar
Félagið getur sótt á erlenda markaði
Morgunblaðið/Eggert
Einkunn Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn TM til lengri tíma er BBB-.
● Upplýsinga-
tæknifyrirtækið
Omnis hefur sam-
ið við Microsoft
um að gerast
söluaðili fyrir
Windows Azure.
Samningurinn er
liður í því mark-
miði Omnis að
verða leiðandi í
skýjaþjónustu en
fyrirtækjum sem nota Azure-
tölvukerfið hefur fjölgað mjög hér á
landi. Omnis er eitt af stærri fyr-
irtækjum landsins í rekstri tölvukerfa,
með alls 35 starfsmenn.
Omnis nýr söluaðili
fyrir Windows Azure
Eggert
Herbertsson
● IFS greining spáir því að rekstrar-
tekjur Icelandair Group aukist um
12% á milli ára og verði 286 milljónir
Bandaríkjadala, sem jafngildir tæpum
33 milljörðum króna, á öðrum fjórð-
ungi ársins. Þá telur IFS að EBITDA fé-
lagsins, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, verði um 34
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um
3,9 milljarða króna, á ársfjórðungnum.
Í afkomuspá sinni bendir IFS þó á að
sú stærð sé háð nokkurri óvissu vegna
verkfalla nokkurra starfsstétta félags-
ins.
Spá því að rekstrar-
tekjur aukist um 12%
!"#
#!##
$#
$ %
#""
""
#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%%
%
!$$"
#!"
$
#"!
#$
"$#"
%"
$
!$
#!"$
"
$
#"
#
"$
%
#!"%
● Netsölufélagið
Amazon skilaði
tapi upp á 126
milljónir Banda-
ríkjadala, jafnvirði
um 14,5 milljarða
íslenskra króna, á
öðrum fjórðungi
ársins. Afkoman
var undir vænt-
ingum greinenda
en til marks um
óánægju fjárfesta lækkuðu hlutabréf fé-
lagsins um 6% eftir að uppgjörið var
birt. Tekjur félagsins jukust þó umtals-
vert á milli ára, eða um 23%, og voru í
takti við væntingar sérfræðinga.
Afkoma Amazon olli
vonbrigðum
Jeff Bezos, stofn-
andi Amazon.
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Tekjur fjar-
skiptarisans Voda-
fone drógust sam-
an á öðrum
fjórðungi ársins.
Samdrátturinn
skýrist að mestu
leyti af harðnandi
samkeppni á
spænska farsímamarkaðinum þar sem
tekjur Vodafone drógust saman um
meira en 15%. Forstjórinn Vottorio
Colao sagði afkomuna í samræmi við
væntingar.
Tekjur Vodafone dróg-
ust saman á milli ára
Samdráttur í
tekjum Vodafone.