Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
UNFURL kr. 109.000 Svefnbreidd 120x200
TRYM kr. 198.900 Svefnbreidd140x200
RECAST kr. 123.900 Svefnbreidd 140x200IDUN Svefnsófi kr. 259.900 I Svefnbreidd 140x200
SVEFNSÓFAR
Góðir að nóttu
sem degi...
...
...
...
sem hafði verið bendlaður við kyn-
lífshneyksli árið 1998 eftir að óskað
hafði verið eftir því að tengill á frétt-
ina frá þeim tíma yrði fjarlægður.
Yfirvöld hafa einnig áhyggjur af
því að enn sé hægt að fá upp þær leit-
arniðurstöður sem óskað hefur verið
eftir að „gleymist“ á alþjóðlegri út-
gáfu Google-leitarvélarinnar.
„Þegar þeir halda þessu áfram
þýðir það að fjölmiðlar endurbirta
upplýsingarnar og þá fer lítið fyrir
réttinum til að vera gleymdur,“ segir
Billy Hawkes, yfirmaður persónu-
verndar Írlands.
Of mikið gert úr áhyggjum
Margir hafa litið á þessar hreins-
anir úr leitarniðurstöðum sem rit-
skoðun eða sögufölsun og hafa vef-
síður sem halda skrá um niðurstöður
sem hafa verið máðar út sprottið
upp. Þar á meðal steig stofnandi
Wikipedia, Jimmy Wales, fram fyrir
skjöldu og sagði að ekki ætti að láta
einkafyrirtækjum eins og Google
eftir að „endurskrifa söguna“. Það
væri hættulegt að láta fyrirtæki
ákveða hvað ætti að birtast á netinu
og hvað ekki.
Christopher Graham, yfirmaður
persónuverndar Bretlands, segir
hins vegar að of mikið hafi verið gert
úr slíkum áhyggjum. Google græði
fúlgur fjár á að fara með persónu-
upplýsingar fólks. Fyrirtækið þurfi
að taka til í sínum ranni.
„Allt þetta tal um að verið sé að
endurskrifa söguna og má út vand-
ræðalega hluti úr fortíðinni, þetta er
þvættingur, það er ekki að fara að
gerast,“ segir hann.
AFP
Netrisi Auk Google voru fulltrúar Microsoft og Yahoo kallaðir fyrir evr-
ópsk persónuverndaryfirvöld í vikunni til þess að ræða um áhrif dómsins.
Um 230.000 manns hafa flúið heimkynni sín í
austanverðri Úkraínu vegna átaka milli aðskiln-
aðarsinna og stjórnarhersins, að sögn talsmanns
flóttamannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í gær.
Talsmaðurinn sagði að um 100.000 flótta-
mannanna hefðu flúið til annarra héraða í Úkra-
ínu en 130.000 yfir landamærin til Rússlands.
Flestir flóttamannanna koma frá tveimur hér-
uðum sem borgirnar Lugansk og Donetsk til-
heyra.
óvissa vegna afsagnar Arsenís Jatsenjúks for-
sætisráðherra. Jatsenjúk var mjög heitt í hamsi
þegar hann tilkynnti afsögn sína á þingi Úkra-
ínu í gær. Hann kvaðst ekki eiga annarra kosta
völ en að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt eftir að nokkrir flokkar höfðu dregið sig út
úr samsteypustjórn landsins.
Líklegt er að afsögnin verði til þess að Petro
Porosénko, forseti Úkraínu, boði til þingkosn-
inga á næstunni.
Á meðal flóttafólksins eru einnig að minnsta
kosti 12.000 tatarar sem flúðu frá Krímskaga
eftir að hann var innlimaður í Rússland.
Átökin í Úkraínu hafa kostað um það bil þús-
und manns lífið síðustu þrjá mánuði að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Jatsenjúk sagði af sér
Ofan á ófremdarástandið vegna átakanna í
austanverðu landinu hefur bæst mikil pólitísk
Um 230.000 manns á flótta
Átökin í Úkraínu hafa kostað um þúsund manns lífið Um 130.000 manns hafa
flúið til Rússlands Mikil pólitísk óvissa eftir að forsætisráðherrann sagði af sér
AFP
Hersýning Sjóliðar í Svartahafsflota Rússlands æfa hersýningu í borginni Sevastopol á Krímskaga sem var innlimaður í Rússland fyrr á árinu.
Síðasta vika var
sú blóðugasta frá
því að stríðið í
Sýrlandi hófst en
yfir 1.700 manns
eru taldir liggja í
valnum í átökum
síðustu daga.
Fregnir bárust
af því í gær að
liðsmenn Isis
hefðu náð stórri
herstöð í nágrenni borgarinnar
Raqqa á sitt vald. Birtu íslamist-
arnir myndir af því þegar stjórnar-
hermenn voru höfuðhöggnir eftir
að orrustunni um stöðina lauk.
Isis ræður þegar stórum hluta
landsvæðisins í kringum Raqqa.
Fyrr í vikunni er talið að um tvö
hundruð manns hafi fallið þegar
uppreisnarmenn tóku yfir gaslind í
Homs-héraði. Alls hafa um 170.000
manns fallið frá því að átök brutust
út í Sýrlandi fyrir rúmum þremur
árum og milljónir eru á flótta.
SÝRLAND
Blóðugasta vikan
frá upphafi borg-
arastríðsins
Manni bjargað úr
rústum í Aleppo.
Rússneskir vís-
indamenn töpuðu
í vikunni sam-
bandi við gervi-
hnött sem inni-
heldur meðal
annars hóp eðla
og annarra dýra.
Unnið er að því
að ná aftur stjórn
á hnettinum sem
var skotið á loft um síðustu helgi.
Dýrin eru hluti af rannsókn á
áhrifum þyngdarleysis á æxlun eðl-
anna sem eru af gekkótegund en
auk þeirra eru nokkrar tegundir
skordýra og plantna um borð.
Hnötturinn þar sem frjálsar ástir
eðlanna eru í algleymingi svífur nú
um á sjálfstýringu. Þrátt fyrir það
hafa vísindaleg gögn haldið áfram
að berast niður til jarðar, þar á
meðal myndbandsupptökur af eðl-
unum að eðla sig.
RÚSSLAND
Ástarfley eðlanna
svífur stjórnlaust
Einhleyp
gekkóeðla