Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
15693
Vörubifreiðar fyrir Íslandspóst ohf.
Ríkiskaup, fyrir hönd Íslandspósts ohf., óska eftir
tilboðum í þrjár nýjar tveggja öxla vörubifreiðar
með einföldu húsi, með 220 hp og 850 Nm vél,
10 tonn að heildarþyngd (skráðar 9.990 kg), með
vörukassa og lyftu, þ.e. tvær vörubifreiðar með
5,5 m kassa og ein með 7 m kassa. Þær skulu
vera tilbúnar til notkunar og afhendingar fyrir
15. desember 2014.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is.
Tilboð verða opnuð 22. ágúst 2014 kl. 11.00 hjá
Ríkiskaupum
Fyrirtæki til sölu
Valgeirsbakarí, Hólagötu 17, Njarðvík, er til sölu
Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í 44 ár, það er í fullum rekstri og afkoma góð.
Valgeirsbakarí er staðsett í miðjum Reykjanesbæ.
Seljandi er tilbúinn að aðstoða nýja eigendur við fyrstu skrefin.
Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Örn Valgeirsson, sími 659 3001 eða 421 2630.
Tölvupóstfang: valgeirsbakari@simnet.is
Fyrirtæki
Frystiklefi
Ísfélag Vestmannaeyja hf Vestmannaeyjum,
óskar eftir tilboði í frystiklefa og flokkunar
stöð ásamt þjónusturýmum samtals
ca. 4000 m², sem fyrirtækið ætlar að
byggja í Vestmannaeyjum.
Tilboðið felur í sér jarðvegs og steypuvinnu,
framleiðslu og reisningu á burðarvirki og
klæðningum fyrir útveggi, innveggi, þaki,
hurðum og gluggum.
Áætlað upphaf verks er 1. september 2014
og skal verkinu að fullu lokið 30. apríl 2015.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu
Páls Zóphóníassonar ehf , Kirkjuvegi 23,
Vestmannaeyjum, frá og með þriðjudeginum
22. júlí 2014. Tilboð merkt „Frystiklefi“ skal
skila á Skrifstofu Ísfélags Vestmannaeyja hf,
Strandvegi 28, 900 Vestmannaeyjum eigi
síðar en mánudaginn 11. ágúst 2014
kl. 14.00 og verða opnuð þar í viðurvist
þeirra bjóðenda, sem þess óska.
Útboð
Raflagnir
Icelandair Hótel Reykjavík Marina
- Stækkun
J.E. Skjanni byggingaverktakar ehf. óska
eftir tilboðum í raflagnir, í verkið Icelandair
Hótel Reykjavík Marina - Stækkun. Verkið
skal vinnast á tímabilinu ágúst 2014 – maí
2015.
Útboðsgögn verða tilbúin til afhendingar
frá og með þriðjudeginum 29. júlí. Tengi-
liður Sævar Þorbjörnsson, sími 692 9867
og netfang saevar@skjanni.com.
Tilboð verða opnuð mánudaginn
18. ágúst, kl. 14:00 hjá J.E. Skjanna
byggingaverktökum ehf. Stórhöfða 25,
110 Reykjavík.
Tillaga að nýju deiliskipulagi lystigarðsins
á Fossflöt við Reykjafoss í Hveragerði.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 13.
mars sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi
lystigarðsins á Fossflöt við Reykjafoss skv. 1. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan nær til svæðis, sem afmarkast af Breiðumörk,
Reykjamörk, Skólamörk og landi Reykja í Sveitar-
félaginu Ölfusi. Fyrirhugað er að bæta almenna
aðstöðu í garðinum og auka útivistargildi hans.
M.a. er þar gert ráð fyrir litlu kaffihúsi og bættu
aðgengi að grunni ullarverksmiðjunnar Reykjafoss.
Tillaga að nýju deiliskipulagi Árhólmasvæðis
í Ölfusdal í Hveragerði.
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti þann 16. maí
sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi á Árhólma-
svæði í Ölfusdal skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 og meðfylgjandi umhverfisskýrslu, skv. 7. gr.
laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Deiliskipulagið nær til tveggja reita á svæðinu. Reitur
A er um 2ha að flatarmáli og liggur nálægt bæjarmörk-
um Hveragerðis og Sveitarfélagsins Ölfus, suðaustan
við Hengladalaá skammt frá Rjúpnabrekkum. Þar er
gert ráð fyrir bílastæði og stígum fyrir útivistarfólk, lóð
fyrir þjónustumiðstöð, tveimur lóðum fyrir smáhýsi
og aðkomu að gönguleið inn í Reykjadal og Grændal.
Reitur B er um 3ha að flatarmáli og er staðsettur
norðvestan við veg, sem liggur að hesthúsahverfi og
að Hengladalaá. Þar er gert ráð fyrir tjaldsvæði ásamt
salernishúsi og bílastæði.
Tillögurnar ásamt greinargerðum og umhverfis-
skýrslu liggja frammi á bæjarskrifstofunni, Sunnumörk
2, Hveragerði frá 28. júlí 2014 til 9. september 2014
og á heimasíðu Hveragerðisbæjar, www.hveragerdi.is
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar
og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 9. september
2014 annað hvort á heimilisfangið
Sunnumörk 2, 810 Hveragerði
eða á netfangið: gfb@hveragerdi.is
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar.
Tillögur að tveimur nýjum
deiliskipulögum í Hveragerði
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar auglýsir hér með eftirfarandi tillögur að nýju deiliskipulagi:
Tilboð/útboð
Útboð 15596
Kaup á gistingu og hótelþjónustu
vegna reksturs sjúkrahótels
Ríkiskaup, fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands,
óska eftir tilboði í gistingu og hótelþjónustu
vegna reksturs sjúkrahótels á höfuðborgar-
svæðinu fyrir sjúkratryggða sjúklinga.
Um er að ræða samning til þriggja ára með
möguleika á framlengingu um eitt ár tvisvar
sinnum.
Samningstími getur því orðið allt að 5 ár.
Markmið með útboðinu er að tryggja aðgengi
að heilbrigðisþjónustu, auka gæði þjónustunnar,
stuðla að hagkvæmni í rekstri og auknum
afköstum á sjúkrahúsum.
Stefnt er að undirritun samnings vegna útboðs
þessa í nóvember 2014 og að vinna samkvæmt
samningi hefjist eigi síðar en 1.3. 2015.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is
Tilboð verða opnuð 11. september 2014 kl. 11.00
hjá Ríkiskaupum.
Fyrirtæki
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Með faglegu ráðningarferli finnum við
starfsmanninn sem hentar þínu fyrirtæki.
Þrjú meginsvið Hagvangs
• Ráðningar
• Ráðgjöf
• Greiningar og próf
Hafðu samband við ráðgjafa Hagvangs eða
skoðaðu www.hagvangur.is til að kynna
þér þjónustuna sem er í boði.
Leitar þú að starfsmanni?