Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 43
1987, en árið 1992 ákvað hann að
leggja gítarinn til hliðar og snúa sér
að fyrirtækjarekstri.
Einar stofnaði fyrirtækið EB Kerfi
í apríl 1992, þá 17 ára, og hefur starf-
rækt það síðan. Fyrirtækið sérhæfir
sig í leigu, sölu og þjónustu með
hljóð- og ljósakerfi fyrir ýmsa við-
burði, stóra sem smáa, m.a. búnað
fyrir hljómsveitir, en Einar var lengi
hljóðmaður hjá Björgvini Halldórs-
syni og hljómsveitum hans. Þá hefur
EB Kerfi séð um hljóðkerfi fyrir
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sl. 18 ár
ásamt fjölda annarra viðburða í rúma
tvo áratugi.
Árið 2007 flutti Einar EB Kerfi í
stærra húsnæði á Selfossi og hóf jafn-
framt rekstur á skemmtistaðnum
Hvíta húsinu sem hann hefur nú rek-
ið í tæp sjö ár. Ári síðar bætti hann
við athafnasemina og tók við rekstri á
Útvarpi Suðurlands. Útvarpið hefur
vaxið og dafnað síðan og notið mikilla
vinsælda sumarbústaðagesta og ann-
arra á Suðurlandi.
Enn bættust við verkefni því árið
2010 lét Einar gamlan draum rætast
og hélt í fyrsta sinn kjöthátíðina
Kótelettuna á Selfossi sem hann hef-
ur síðan haldið annan laugardag í
júní, ár hvert, við sívaxandi vinsældir
landsmanna.
Ellefu ára athafnamaður
Einar hefur alltaf haft gaman af
öllum sínum verkefnum: „Ég held að
það sem reki mig áfram í öllu þessu
stússi sé áhuginn á því að skemmta
öðrum. Ég hef alltaf haft gaman af
því að sjá fólk kætast og koma því á
óvart. Þessi störf mín hafa í raun öll
snúist um þá áráttu.
Þegar ég var ellefu ára héldum við
krakkarnir í hverfinu tónleika í bíl-
skúrnum hjá Gumma Lýðs og Hildu
sem við fengum til afnota. Við sung-
um og spiluðum Eurovision-lög og
seldum poppkorn og djús á staðnum.
Daginn eftir fórum við með ágóðann í
verslunina Höfn, keyptum þar pylsur
sem við grilluðum og buðum krökk-
unum í götunni til grillveislu.
Ég byrjaði ungur að matreiða og
hef alltaf haft sérstaklega gaman af
því að grilla íslenskt kjöt. Auk þess er
ég hófsamur veiðimaður en ég hef
haft það fyrir reglu að fara einu sinni
á ári að veiða í Rangánum ásamt
kærum frændum mínum.
Á veturna höfum við fjölskyldan
svo farið á skíði þegar tími til gefst.“
Fjölskylda
Sambýliskona Einars er Anna
Stella Eyþórsdóttir, f. 9.8. 1981,
hægri hönd eiginmannsins í allri hans
atvinnustarfsemi. Hún er dóttir Ey-
þórs Kristjánssonar, f. 31.7. 1959,
húsasmiðs í Reykjavík, og Ragnhild-
ar Vilhjálmsdóttur, f. 23.11. 1958,
húsfreyju og fyrrv. verslunarstjóra á
Selfossi.
Börn Einars og Önnu Stellu eru
Karen Lind Einarsdóttir, f. 22.4.
2002, Einar Bjarki Einarsson, f.
14.10. 2005, og Jón Daði Einarsson, f.
27.9. 2011.
Systkini Einars eru Kjartan
Björnsson, f. 4.9. 1965, rakarameist-
ari á Selfossi; Gísli Björnsson, f. 4.11.
1969, kaupmaður á Selfossi; Björn
Davíð Björnsson, f. 2.5. 1980, rak-
arameistari á Selfossi.
Foreldrar Einars eru Björn Ingi
Gíslason, f. 2.9. 1946, rakarameistari
á Selfossi, og Hólmfríður Kjart-
ansdóttir, f. 6.1. 1948, fyrrv. skrif-
stofukona hjá Selfossveitum.
Úr frændgarði Einars Björnssonar
Einar
Björnsson
Þorbjörg Grímsdóttir
húsfr. í Rvík
Aðalbjörn Stefánsson
prentari í Rvík
Katrín Aðalbjörnsdóttir
þjónustukona á Hvolsvelli
Kjartan Einarsson
húsasmiður á Hvolsvelli
Hólmfríður Kjartansdóttir
skrifstofukona á Selfossi
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfr. á Sperðli
Einar Einarsson
b. á Sperðli í Landeyjum
Þóra Gunnlaugsdóttir
húsfr. á Kljáströnd og Ólafsfirði
Sigurbjörn Jóhannsson
b. á Kljáströnd
Rannveig Sigurbjörnsdóttir
húsfr. á Selfossi
Gísli Sigurðsson
rakari og eftirherma í Rvík og á Selfossi
Björn Ingi Gíslason
rakarameistari á Selfossi
Ingigerður Björnsdóttir
húsfr. á Króki
Sigurður Þorbjörnsson
b. á Króki í Ölfusi
Afmælisbarnið Einar skemmtana-
og útvarpsstjóri með meiru.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
Þórarinn Sigurjónsson alþing-ismaður fæddist í Sætúni íVestmannaeyjum 26.7. 1923.
Foreldrar hans voru Sigurjón Árna-
son, bóndi og smiður í Pétursey í
Mýrdal, og Sigríður Kristjánsdóttir
húsfreyja.
Eftirlifandi eiginkona Þórarins er
Ólöf Ingibjörg Haraldsdóttir hús-
freyja og eru börn þeirra Sigríður,
Haraldur, Kristín, Sigurjón sem lést
í æsku, Sigurjón Þór sem lést í æsku
og Ólafur Þór.
Þórarinn lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1943 og sinnti síðan ýms-
um störfum til sjós og lands. Hann
starfrækti um árabil alhliða við-
gerðaverkstæði í Pétursey, ásamt
uppeldisbróður sínum, Þórhalli, og
stundaði fólks- og vöruflutninga á
eigin bifreiðum.
Þórarinn var bústjóri í Laugar-
dælum 1952-80. Hann var alþing-
ismaður Sunnlendinga fyrir Fram-
sóknarflokkinn 1974-87, sat á þingi
Alþjóðaþingmannasambandsins
1977-85, í stjórn Framkvæmdastofn-
unar ríkisins 1980-83, var formaður
Þingvallanefndar, Veiðimálanefndar
ríkisins, Sauðfjársjúkdómanefndar,
Sambands eggjaframleiðenda, Verk-
stjórafélags Suðurlands, sat í stjórn
Verkstjórasambands Íslands, var
sýslunefndarmaður Hraungerðis-
hrepps, formaður Framsóknarfélags
Árnessýslu um árabil, sat í stjórn
Kaupfélags Árnesinga í 30 ár og var
formaður þess um árabil og sat í
stjórn SÍS 1968-92. Að auki voru
honum falin fjölmörg önnur opinber
trúnaðarstörf sem og í atvinnu- og
félagslífi.
Þórarinn var alla tíð mikill áhuga-
maður um starf ungmennafélags-
hreyfingarinnar, var félagi í Rotary
og lét sig miklu varða velferð Laug-
ardælakirkju sem fyrir hans til-
stuðlan og fleiri var endurreist á hin-
um forna kirkjustað fyrir nærri
hálfri öld. Hann var meðal annars
formaður sóknarnefndar og með-
hjálpari um áratuga skeið.
Sigurjón var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyr-
ir störf að landverndar- og landbún-
aðarmálum
Sigurjón lést 20.7. 2012.
Merkir Íslendingar
Þórarinn
Sigurjónsson
Laugardagur
95 ára
Friðrik Glúmsson
90 ára
Ragnhild Johanne Röed
85 ára
Inga Nancy Wendel
80 ára
Fríða Kristín Gísladóttir
Svava Sumarrós
Ásgeirsdóttir
75 ára
Anna Pálsdóttir
Gíslína Jóhannesdóttir
Guðmundur Baldursson
Guðmundur Guðmundsson
Högni Kristinsson
Margrét Sigurðardóttir
Ragna Fossádal
70 ára
Arnór Benediktsson
Atli Magnússon
Áshildur Emilsdóttir
Guðmundur H. Friðgeirsson
Gylfi Garðarsson
Hrafnhildur B.
Kjartansdóttir
Jón Hákonarson
Rafn H. Ingólfsson
60 ára
Eiríkur Pétursson
Elfa Bryndís Kristjánsdóttir
Elín Sigríður Jósefsdóttir
Erla Þórkatla Bjarnadóttir
Höskuldur Sveinsson
Miriam Juarbal Portillo
Pétur Jóhannes Jensen
Rósa María Tryggvadóttir
Þóra Hansdóttir
50 ára
Anna Stefánsdóttir
Bóas Eydal Árnason
Guðmundur Guðmundsson
Jón Gíslason
Kári Ragnarsson
Kjartan Steinarr Egilson
Kristín Þ. Sigurðardóttir
Magnús H. Steingrímsson
Ómar Ragnarsson
Sigríður Anna Hjartardóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Sigurður Þór Elíasson
40 ára
Bjarni Grétarsson
Guðmundur Helgi
Sævarsson
Guðmundur Sigmarsson
Hildur Rósa Konráðsdóttir
Joy Nanna
Mariusz Zbigniew Sledz
Maríanna Þorgrímsdóttir
Róbert Reynisson
Svetlana Markovic
30 ára
Anna Jóna
Kristjánsdóttir
Anton Örn Pálsson
Arnar Freyr Einarsson
Árni Pétur Gunnsteinsson
Catharine Alexandria
Fulton
Eugen Schuldeis
Halla Ósk Haraldsdóttir
Haraldur Orri Björnsson
Helga Sigurðardóttir
Lovísa Ósk Þrastardóttir
Thomas Markus Dyck
Þuríður Hall Sölvadóttir
Sunnudagur
85 ára
Anna G. Júlíusdóttir
80 ára
Guðný J. Buch
Guðríður G.
Kristjánsdóttir
Guðrún Bergsdóttir
Hávarður Birgir Sigurðsson
Hulda Sigurðardóttir
Jóhann Jónsson
Jóna Jónmundsdóttir
Pétur Jónsson
75 ára
Erna Magnea Ólafsdóttir
Guðmundur Elíasson
Guðrún Alfreðsdóttir
Silvía J. Garðarsdóttir
Sverrir Sveinsson
Úlfar Sigurðsson
70 ára
Ásdís L. Sveinbjörnsdóttir
Fjóla Rósantsdóttir
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
Sigríður Ragnarsdóttir
Sigurjón Ólafsson
60 ára
Aivars Lucis
Guðlaug Skúladóttir
Jóhann Hannibalsson
Jón Pálmi Pálsson
Kristján Bjartmars
Ólafur Þorkell Pálsson
Óli Grétar
Metúsalemsson
Sólveig Svavarsdóttir
Sveinbjörn Egill Hauksson
Yuzuru Ogino
50 ára
Baldur Þórir
Guðmundsson
Bergþóra Björg
Jósepsdóttir
Birna Lísa Jensdóttir
Björgvin Viktor Færseth
Hanna Andrea
Guðmundsdóttir
Jamroon Yuchangkoon
Karl Þór Thomsen
Karlsson
Katla Gylfadóttir
Kristjana Einarsdóttir
Magndís Bára
Guðmundsdóttir
Ólafur V. Sigurvinsson
Ólöf Þuríður Ragnarsdóttir
Sólveig Jóna
Ögmundsdóttir
Svanhvít Jóhannesdóttir
Vilhjálmur B. Bragason
40 ára
Aðalheiður Níelsdóttir
Bjarki Arnarson
Bjarni Geir Gunnarsson
Fanney Long Einarsdóttir
Gunnar Reynisson
Gyða Rós Flosadóttir
Hafdís Unnur Daníelsdóttir
Jóhann Tómas Sigurðsson
Margrét Hrefna
Pétursdóttir
Pablo Rolando Diaz
Orellana
Ragnheiður Hrefna
Magnúsdóttir
Valgarður Ingi Ragnarsson
Viðar Gunnlaugur
Hauksson
30 ára
Anders Daniel Wendt
Barbara Wielgosz
Dóra Marteinsdóttir
Eiður Kristinn Eiðsson
Guðni Björn
Gunnlaugsson
Guðrún Sigurlín
Ólafsdóttir
Margrét Lára
Guðmundsdóttir
Marta Goðadóttir
Sigríður Jörundardóttir
Steinar Björnsson
Tómas Sigurður
Friðjónsson
Valdimar Þórðarson
Vitalija Bielskyte
Til hamingju með daginn