Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 47

Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 HÁR Dreifingaraðili Viljum bæta við söluaðilum Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á MEST SELDU HÁRVÖRURNAR Á MARKAÐNUM Í DAG Hárteygjur Hárburstar Bandaríski uppistandarinn Dean Young mun efna til veislu á Bar 11 við Hverfisgötu 18 í kvöld klukkan 21.30 en þar hyggst hann skemmta gestum með sínu sér- stæða gríni. Dean Young er meðal annars ritstjóri Scene Magazine en uppistandið er hluti af Icelandic Comedy Festival. Mikið hefur ver- ið um uppistand á Bar 11 upp á síðkastið en nú síðast fór þar ein- mitt fram keppnin Best of Til- raunauppistand 2014 en þar fór Sigurður Anton Friðþjófsson með sigur af hólmi. Morgunblaðið/Eggert Skemmtun Uppistandarinn Dean Young verður á Bar 11 í kvöld klukkan 21.30. Uppistand á Bar 11 Dalabyggð er áhugasöm um menn- ingu og það hefur til dæmis komið fram í Eiríksstöðum sem Dalabyggð hefur byggt upp. Friðjón Þórðarson, frændi minn, hafði forystu um það verk á sínum tíma og reyndar ýtti hann líka af stað Sturlusetri fyrir nokkrum árum og við höfum haldið ótrauðir áfram með það. Áhugi Dala- manna á nútímamenningu er eflaust bara eins og annarra landsmanna. Það eru til dæmis haldnir Búðardals- dagar en þar er mest um popp og stuð í nútímavísu. Áhuginn á eldri menningararfleið er þó kannski meiri hér í Dalabyggð en víðast hvar ann- ars staðar. Á síðasta ári héldum við til að mynda upp á 350 ára afmæli sagnaritarans Árna Magnússonar sem fæddist á Hvannabrekku í Döl- um. Það vakti dálitla athygli en ég hefði verið til í að sjá meiri þátttöku úr byggðarlaginu,“ segir hann. Í samvinnu við Háskóla Íslands „Það hefur verið búin til verkefn- isstjórn sem á að halda áfram með verkið og gera tillögur til sveitar- stjórnarinnar um Sturlusetur núna fyrir áramót. Við erum í samvinnu um þetta verkefni við Háskóla Ís- lands og það er sameiginlegur starfs- maður Dalabyggðar og Háskóla Ís- lands, Þórunn María Örnólfsdóttir, sem er að vinna í þessu með okkur. Þegar hátíðin er búin þá kemur þessi verkefnisstjórn saman og vinnur sín- ar tillögur. Við munum leita eftir samvinnu við Árnastofnun og Menntamálaráðuneytið um stuðning við þetta verkefni,“ segir hann að lokum. Þess má geta að það tekur tvo og hálfan tíma að keyra úr Reykjavík vestur í Dali. Beygt er út af á veg 60, Vestfjarðaveg um Bröttubrekku og Svínadal og svo til vinstri að kirkj- unni á Staðarhóli sem sést vel frá Skriðulandi. Afmæli Sturluhátíð hefst á sunnudaginn klukkan hálf tvö. Dagskrárliðir » „Hann vissi ég alvitrastan og hófsamastan“ - Einar Kára- son rithöfundur talar um Sturlu. » „Arfleifð Sturlu Þórð- arsonar“ - Guðrún Nordal for- stöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar. » „Sturla og Dalirnir; framtíð- arsýn“ - Halla Steinólfsdóttir bóndi og Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur. » Einar K. Guðfinnsson, for- seti Alþingis, flytur ávarp. » Forseti norska stórþingsins, Olemic Thommessen, flytur ávarp. » Að lokinni dagskrá mun Magnús A. Sigurðsson, forn- leifafræðingur og minjavörður Vesturlands, leiða gesti að Staðarhóli þar sem Sturla Þórðarson bjó. Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is Lengi hafa menn velt vöngum yfir höfundi Njálu. Eitt af þeim nöfnum sem oft heyrist nefnt í því samhengi er einmitt Sturla Þórðarson en rit- höfundurinn Einar Kárason er hall- ur undir þessa kenningu. „Ég er meira en hallur undir hana,“ segir Einar. „Ég tel það haf- ið yfir allan vafa að Sturla sé höf- undur Njálu. Vangaveltur Matthías- ar Johannessen komu mér upphaflega á sporið.“ Sem kunnugt er, hefur Einar skrifað þrjár sögulegar skáldsögur er gerast á Sturlungaöld og kemur sú fjórða út í haust. Hann er því vel kunnugur tímabilinu en þegar hann fór að velta dýpra fyrir sér höfundi Njálu, kom ýmislegt áhugavert í ljós. „Einhver helstu mótrök gegn því að Sturla sé höfundur Njálu, hafa menn talið vera ókunnugleika höf- undar um staðhætti vestur í Dölum í sögunni. Þar með átti að vera ómögulegt að Sturla, allra manna kunnugastur í Dölum, hefði skrifað söguna. Matthías fór hins vegar vestur og kallaði til staðkunnuga menn. Þeir sýndu honum fram á hið gagnstæða – í Njálu er sagt frá stöðum í Dölum, sem eru afskekktir og úr alfaraleið, af þvílíkri kunnáttu að enginn nema heimamaður hefði getað sagt svo frá. Þetta er eitt at- riði sem styður kenninguna. Síðan komum við að Íslendingasögu Sturlu, en margir höfðu áður séð mikinn skyldleika á milli hennar og Njálu. Margt fellur algjörlega sam- an á milli bókanna og víða hafa fundist í bókunum nær orðréttar mannlýsingar er ganga aftur í báð- um bókum. Í grein sem ég skrifaði og birti í Skírni fyrir tveimur árum, kemur hins vegar fram uppgötvun sem ég gerði í þessu sambandi. Þarna kemur í ljós að bækurnar tvær eru byggðar algjörlega á sama módeli. Báðar eru í þremur hlutum og hlutunum má lýsa með nákvæm- lega sömu orðum á milli bóka. Sem dæmi má taka miðjukaflann: Með nákvæmlega sama aðdraganda er lýsing á sams konar atburði – stórt býli á Íslandi er umkringt af óvin- um og þegar ekki tekst að brjótast inn til að drepa fjóra nafngreinda menn, er kveikt í. Í þessum lýs- ingum fellur allt saman í báðum bókum. Fjöldi manna, hvað sagt er og hvaða persónur birtast á leik- sviðinu. Í síðasta hluta beggja bóka segir síðan frá því að einn af þeim fjórum mönnum sem ætlunin var að drepa, sleppur út úr eldinum og hefnir sín. Í hefndinni koma sömu tölurnar fyrir á milli bóka – farið er í tvo hefndarleiðangra og átta brennumenn drepnir í fyrri leið- angrinum en fimm í þeim seinni. Fyrstu hlutar bókanna eru einnig eins – fjallað er um eina aðal- persónu, mann er ber af öðrum mönnum fyrir fríðleik og atgervi. Þetta er Gunnar á Hlíðarenda í Njálu en Sturla Sighvatsson í Ís- lendingasögu. Þeir eru auðugir, voldugir og dáðir en verður það að falli að ofmetnast og hlýða ekki ráð- um eldri manna. Auðvitað er mis- ræmi milli bókanna einnig en ég þekki það sjálfur úr eigin skrifum, að það er auðvelt að lenda í því að muna ekki nákvæmlega hvernig hlutirnir voru í fyrri bók. Það er helst að yfirlesendur komi auga á slíkt en ég leyfi mér að efast um að Sturla hafi haft yfirlestrarfólk á sín- um snærum,“ segir Einar kíminn. Eftir að hafa skoðað Íslendinga- sögu og Njálu í þaula, telur Einar að Njála sé í raun túlkun á atburð- um Íslendingasögu. „Íslendinga- saga byggir auðvitað á samtíma- atburðum sem urðu á dögum Sturlu. Ég held að í Njálssögu færi hann söguna upp á goðsögulegt svið. Jafnvel helgisvið. Njáli er t.d. lýst sem heilögum manni. Hann er fórnarlamb eldsvoðans, auk þess sem synir hans fremja glæp sem hefur skírskotun við helstu glæpi Biblíunnar, þ.e. bróðurmorðið í sög- unni um Kain og Abel, og aftöku Krists. Þetta sést berlega þegar Höskuldur Hvítanessgoði er drep- inn en hann hefur þá yfir sömu setningar og Kristur í Biblíunni. Eins og heyra má, þá þykir mér það deginum ljósara að Sturla er höfundur Njálu.“ Morgunblaðið/Kristinn Sannfærður Einar Kárason er þess fullviss að Sturla Þórðarson sé höf- undur Njálu og telur Njálu raunar vera túlkun á atburðum Íslendingasögu. Leitar ekki lengur að höfundi Njálssögu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.