Morgunblaðið - 16.08.2014, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjölbreytni eykst í framleiðslu þeg-
ar Lambhagi tekur í notkun ný
gróðurhús sem tvöfalda aðstöðuna.
Jafnframt er Hafberg Þórisson,
aðaleigandi fyrirtækisins, að þróa
nýja ræktunaraðferð og næsta
skrefið í uppbyggingunni gæti orðið
í gróðrarstöð hans í Mosfellsdal.
Lambhagi er gamalgróin gróðrar-
stöð í Úlfarsárdal í Reykjavík.
Þekktasta afurð stöðvarinnar er
Lambhagasalat, sem selt er ferskt í
verslunum í pottum og í salat-
blöndum, en einnig eru ræktaðar
fleiri tegundir af blaðsalati og
kryddjurtum.
Meira olnbogarými
Á síðasta ári var garðyrkjustöðin
stækkuð um 3.000 fermetra með
byggingu nýrra gróðurhúsa. Það var
nærri tvöföldun frá fyrri stærð. Nú
er fjöldi manns og tækja á staðnum
enda verið að tvöfalda flatarmál
gróðurhúsanna á ný. Sett eru upp
7.000 fermetra gróðurhús frá Dan-
mörku.
Hafberg segir að salan á hinu
hefðbundna blaðsalati á innanlands-
markaði sé komin að mörkum hins
mögulega og því eigi hann ekki von á
mikilli aukningu á því sviði. „Það er
þörf á öðruvísi salati. Til eru ýmis af-
brigði, jafnvel aðrir litir. Mikið er
flutt inn. Þetta er ég að koma með,“
segir Hafberg og tekur jafnframt
fram að aukið pláss skapi betri
vinnuaðstöðu; meira olnbogarými til
að skipuleggja ræktunina.
Nýju gróðurhúsin eru af nýrri
kynslóð ræktunarhúsa, mun hærri
en fyrri hús og í þaki þeirra er hert
gler sem ekki brotnar svo glatt.
Meira loftrými í húsunum dregur úr
loftskiptum og hjálpar þannig garð-
yrkjufólkinu við að nýta betur hit-
ann og kolsýruna sem notuð er til að
hjálpa til við ljóstillífun plantnanna.
Við ræktun Lambhagasalats er
notuð vistvæn ræktunaraðferð sem
Hafberg hefur þróað og segir að
hvergi annars staðar hafi tekist að
koma í gagnið. Hún grundvallast á
því að halda pöddum og öðrum óþrif-
um frá plöntunum þannig að ekki
þarf að nota eiturefni við ræktunina
og óþarfi er að þvo afurðirnar. Það
gerir það að verkum að salatið verð-
ur alltaf ferskt og gott og geymist
betur.
Ræktunaraðferð Hafbergs hefur
vakið athygli erlendis. Hann hefur
fengið fyrirspurnir og er ráðgjafi við
uppbyggingu ræktunar í Kína og
víðar.
Ný aðferð þróuð
Þróunarstarfið heldur áfram og
væntanlega uppbygging í kjölfarið.
Hafberg er í samvinnu við hollenskt
fyrirtæki að þróa nýja aðferð til
ræktunar á grænmeti utandyra.
Hann sér þar tækifæri til að fram-
leiða nýjar afurðir, ferskari og betri
en þær sem fluttar eru inn til lands-
ins. Hann vill ekki fara nánar út í
nýju aðferðina en segir að innleiðing
hennar hér geti markað tímamót í
útiræktun grænmetis.
Unnið hefur verið að undirbúningi
aðstöðu í gróðrarstöð Hafbergs í
Lundi í Mosfellsdal til að taka nýju
aðferðina í notkun. Hann hefur hug
á því að ráðast í frekari fram-
kvæmdir þar þegar nýju gróður-
húsin í Lambhaga eru komin í
notkun, sem áætlað er að verði í
október næstkomandi. Verkefnið á
hug hans allan, þótt hann standi í
stórræðum þessa mánuðina, og seg-
ist myndu vera lengra kominn ef
hann hefði haft auka orku og fleiri
klukkutíma í sólarhringnum. Fjár-
málin skipta einnig máli. „Við erum
að fjárfesta fyrir 700 milljónir króna
hér. Hitt kostar dágóðan skilding til
viðbótar og tekur langan tíma að
skila sér til baka,“ segir Hafberg
Þórisson.
Litskrúðugra blaðsalat á markað
Gróðrarstöðin Lambhagi tvöfaldar gróðurhúsin Tilgangurinn er að framleiða aðrar tegundir
salats Hafberg Þórisson undirbýr uppbyggingu útiræktunar grænmetis með nýjum aðferðum
Morgunblaðið/Ómar
Pökkun Þótt mikil sjálfvirkni sé í ræktun á Lambhagasalati þurfa Lucie og
samstarfsfólk hennar ávallt að pakka afurðunum og koma á markað.
Morgunblaðið/Ómar
Garðyrkjubóndi í borginni Hafberg Þórisson hefur í mörg horn að líta þessar vikurnar. Stórhuga uppbygging er í
gróðrarstöðinni Lambhaga og jafnframt er hugað að þróun nýrrar ræktunaraðferðar í annarri stöð.
Hafberg Þórisson hefur með
fjölskyldu sinni byggt upp
gróðrarstöðina Lambhaga í
Úlfarsárdal í Reykjavík á síðustu
áratugum. Í ár eru einmitt 35 ár
frá stofnun fyrirtækisins og
verður þess minnst með opnu
húsi síðar á árinu.
Uppbyggingin hefur ekki
gengið þrautalaust fyrir sig,
eins og Hafberg hefur sagt frá í
viðtali: „Það var þungur róður
að setja salat á markað. Við
þurftum að standa mikið í versl-
unum sjálf, ég og konan mín, og
svo var ég með starfsfólk í því
að kynna salat og salöt, bæði í
verslunum og úti á götu, og fá
fólk til að prófa þessar nýju
hollu grænmetistegundir sem
ég vildi koma á markað hér.“
Þungur róð-
ur í upphafi
UPPBYGGING Í 35 ÁR
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Tækniþróunar-
sjóður
Styrkir til nýsköpunar
Umsóknarfrestur 15.september
Tækniþróunarsjóður styrkir nýsköpunarverkefni sem geta
aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Umsækjendur geta
verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.
Nánari upplýsingar um sjóðinn eru á www.rannis.is