Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014 HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 SÍMI 5 200 200 · GAP.IS ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR Benedikt Jóhannesson skrifar á heimur.is um mannlýsingar og segirað á tímum ljósmynda og myndbanda sé hæfileikinn til mannlýs-inga að hverfa. Hann tekur dæmi úr bókum Kristleifs Þorsteins-sonar (1861-1952), Úr byggðum Borgarfjarðar. Jón Sigurðsson „var mannúðarmaður, ríkur af góðvild, en fátækur að fé. Vann hann af miklu kappi, en minni forsjá, gaf sér litla hvíld og bar þó lítið úr býtum. … Hann var meðalmaður á vöxt, kvikur og knálegur, fölleitur og grannleitur, næstum skegglaus. Ekki var hann greindur, en vel fór hann með sínar litlu gáfur.“ Hér eru andstæður áberandi. Og ef lesendur vantar dæmi um ýkjur þá er það hér: „Og svo munnstór er hún, að þar á hún engan sinn líka, því að standi maður fyrir aftan hana, má sjá þaðan í bæði munnvik hennar.“ Uppnefni hvers kyns eru á undanhaldi sem betur fer. Meinlaus viðurnefni eins og skjálfti og stormur heyrast þó enn um þekkta og góða menn – og ein- stöku sinnum er gripið til gamalla nafngifta yfir stjórnmálamenn nútímans (t.d. Skalla-Grímur; þar er ekki leiðum að líkjast). Í bókinni Krosshólshlátur stendur á bls. 171 um góðan Svarfdæling: „Á yngri árum var hann auknefndur „Kalli rauði“ vegna háralitar síns en seinna „Kalli nine- fingers“ eftir að hann missti fingur í vinnuslysi.“ Ef lesendur vilja skemmti- legt og ábyrgðarlaust lesefni kringum göngur og réttir bendi ég þeim á að lesa Krosshólshlátur. Gaman er að líta á gömul auknefni. „Eyvindur hani hét maður göfugur,“ segir í Landnámu. Frændur hans í Eyjafirði gáfu honum land og bjó hann í Hanatúni. Þá tók ekki betra við því eftir það var hann kallaður Túnhani. Í Landnámu stendur að Hanatún sé nú kallað Marbæli (nú týnt nafn í Eyjafirði en þekkist m.a. í Skagafirði). Bent hefur verið á að Marbæli hafi ekkert með býli við sjó (mar) að gera. Þetta merkir margbýli, þ.e. bær þar sem mörg hús eru og margbýlt er. Sömu merkingar er Þykkvibær. Ég hlustaði á góðan þátt Unu Margrétar Jónsdóttur 18. júní sl. um sr. Friðrik A. Friðriksson á Húsavík. Mikil himnasending hefur sá maður verið fyrir Húsvíkinga á fjórða áratug síðustu aldar. Hann orti texta, stjórnaði kórum og flutti með sér tónlist úr Vesturheimi þar sem hann hafði starfað sem prestur. Og konan hans (dönsk) lék undir á píanó og orgel. Mér hafði alltaf misheyrst þegar einn af textum Friðriks var sunginn (Fram í heiðanna ró). Þar fannst mér alltaf vera sagt: „aldrei heyrist þar hljóð“, og skildi ekkert í þessu því að það hlaut nú að vera einhver fugla- söngur þarna framfrá. En: „þar er vistin mér góð/ aldrei heyrist þar hnjóð,“ sagði skáldið. Tvennt að lokum: 1) „Ég hélt ég gæti ekki gengið aftur,“ sagði konan í blaðaviðtali. Mér krossbrá og hugsaði: Er kominn draugur á stjá? 2) Og hver er svo fleirtalan af þúsundkall? Svarið er að finna í fyrirsögn þessa pistils. Þið sundkallar Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Morgunblaðið/Golli Fyrir viku var fjallað hér á þessum vettvangi umþá spurningu, hvort íslenzka heilbrigðiskerfiðværi hrunið. Spurningin hafði vaknað í hugagreinarhöfundar vegna eigin samskipta við ýmsar stofnanir heilbrigðisþjónustunnar og vegna frá- sagna annarra af slíkum samskiptum. Viðbrögð við þeirri grein hafa verið á þann veg, að líklega er ekki ástæða til að hafa spurningarmerkið með. Á ári hverju fá um 400 Íslendingar blóðtappa í heila. Víða um lönd eru þræðingaraðgerðir í boði til að losa þá blóðtappa. Á Íslandi er ekki kostur á slíkri aðgerð. Hvað veldur? Um 6000 Íslendingar búa við svokallað gáttatif, sem er hjartsláttaróregla. Sérfróðir segja, að margir þeirra mundu hafa gagn af þræðingaraðgerð. Landspítalinn get- ur framkvæmt 70 slíkar aðgerðir á ári. Hvernig í ósköpunum má þetta vera? Á hverju ári fá 600-700 manns lyfjameðferð til að verj- ast blindu vegna hrörnunar í augnbotnum. Hér á landi er ekki kostur á nýjustu lyfjum í þessu sambandi og ekki að- staða til að veita lyfjameðferð með þeirri tíðni, sem æski- legt er að sögn sérfróðs manns. Get- um við sætt okkur við svona stöðu? Krabbameinslækningar eru sagð- ar í kreppu og skurðaðgerðir fram- kvæmdar án þeirrar tækni, sem eyk- ur öryggi og gæði verulega. Hvernig stendur á því að upplýs- ingar af þessu tagi um stöðu mála hafa ekki komið fram á opinberum vettvangi, alla vega ekki með þeim hætti að eftir hafi verið tekið? Þetta eru alvarleg mál en aðeins hluti af brothættri heildarmynd. Getur verið að það sé byrjað og hafi jafnvel tíðkast í einhvern tíma að forgangsraða í heilbrigðiskerf- inu eftir aldri? Fyrir ekki löngu var sagt við mann, sem kominn er hátt á sjötugsaldur og þarf á læknismeðferð að halda vegna til- tekins krabbameins: Þú ert heppinn að vera ekki orðinn sjötugur! Af hverju? spurði sjúklingurinn og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Af því að ef þú værir kominn yfir sjötugt fengir þú ekki nauðsynlega meðferð. Við fyrstu sýn mætti ætla að þetta hefði verið sagt í léttum dúr án þess að alvara fylgdi máli. En ekki þarf langt ferðalag um heilbrigðiskerfið til þess að komast að raun um að sá læknir, sem viðhafði þessi orð var ekki að gera að gamni sínu. Hér og þar í heilbrigðiskerfinu er far- ið að forgangsraða á þann veg, að sjúklingar sem komnir eru yfir sjötugt sitja á hakanum. Þetta er ekki almenn regla. Hún á við sums staðar en ekki annars staðar. Þetta er ekki ákvörðun, sem tekin hefur verið af þar til bæru stefnumarkandi yfirvaldi. Þetta er ekki formleg ákvörðun og kannski verður enginn tilbúinn til þess að viðurkenna að svona sé þetta. En þetta er engu að síður veruleiki. Þetta eru viðbrögð starfsmanna á stöku sviðum í heil- brigðiskerfinu, sem vita ekki sitt rjúkandi ráð, hvernig þeir eigi að veita þá þjónustu sem þeim ber en fá ekki pen- inga til. Eru einhver siðferðileg rök fyrir því að eldra fólk eigi ekki að fá sömu læknisþjónustu og yngra fólk? Kannski mundi einhver hafa tilhneigingu til að segja að út frá þjóðfélagslegu sjónarmiði eigi að láta þá ganga fyrir, sem séu á starfhæfum aldri? Hverjir eru það og hverjir ekki? Er alveg á hreinu að þá línu eigi að draga við sjö- tugsaldur? Auðvitað er það fráleitt. Nú á dögum eru það úrelt ald- ursmörk enda fjöldi fólks vel starfhæfur um sjötugt og næstu árin á eftir. Nær væri að fella þessi mörk niður eins og reyndar er rætt um að gera í Danmörku þessa dagana og lesa mátti frétt um í Berlingske Tidende sl. miðvikudag. Í samfélagi nútímans eru ákvarðanir af því tagi að for- gangsraða í heilbrigðisþjónustunni miðað við aldur ekki teknar þegjandi og hljóðalaust og framkvæmdar nánast í skjóli nætur. Slíkar hugmyndir á að ræða fyrir opnum tjöldum. Hvað verður næst? Að þeir fái aðgerð, sem geti borgað fyrir hana fullu verði? Hvað um þá, sem telja sig hafa borgað fyrir slíka þjón- ustu með skattgreiðslum á undanförnum áratugum? Reyndar er það ekki bara hin aldraða sveit sem á um sárt að binda. Á þessari stundu bíður ung kona eftir aðkallandi að- gerð en bið hennar verður um 18 mánuðir. Á meðan versnar það sem hana hrjáir og daglegir verkir aukast. Dæmi af þessu tagi eru út um allt í okkar litla sam- félagi. Það dugar ekki lengur að fela þessa stöðu. Það verða að fara fram opnar umræður um heilbrigðiskerfið og þá alvarlegu veikleika, sem komnir eru upp innan þess. Það er ekki nóg að endurreisa bankakerfið. Það þarf líka að endurreisa heilbrigðiskerfið. Það er alveg rétt sem einstaka þingmenn hafa sagt síðustu daga að forstöðumenn ríkisstofnana eigi að halda sig innan marka fjárlaga en getur verið að óskhyggja en ekki raunsæi hafi mótað ákvarðanir þeirra, sem fjárlögin setja? Kannski er staða heilbrigðiskerfisins enn eitt dæmið um það að fulltrúalýðræðið ráði ekki lengur við verkefni sitt og að þjóðin sjálf eigi að taka ákvarðanir um hvernig eigi að forgangsraða í ríkisbúskapnum. Ákvarðanataka um meginmál með þjóðaratkvæða- greiðslum er að breiðast út í lýðræðisríkjum Vest- urlanda. Framundan eru á Írlandi á næsta ári 5-6 þjóð- aratkvæðagreiðslur. Þetta er ekki gagnrýni á starfsmenn heilbrigðisþjón- ustunnar á Íslandi. Það er fólk, sem er að vinna erfitt og oft vanþakklátt verk við erfiðar aðstæður. Þetta er gagnrýni á þá, sem eiga að standa vörð um þetta kerfi, kjörna fulltrúa þjóðarinnar. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, á að leggja spilin á borðið fyrir þing og þjóð í haust. Af hverju eru þræðingar- aðgerðir til að losa um blóð- tappa ekki í boði á Íslandi? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Er við hæfi að forgangsraða eftir aldri? Ég flyt fyrirlestur á norrænasagnfræðingaþinginu í Jo- ensuu í Finnlandi 16. ágúst. Meg- instef þingsins er krossgötur: Mörk og mót á norðurslóðum (Crossovers: Borders and Encounters in the Nor- dic Space). Þar segi ég á ensku tvær örlagasögur, sem ég uppgötvaði í grúski á Þjóðarbókhlöðunni. Voru þær af gyðingakonu, sem varð Ís- lendingur, og nasista, sem varð kommúnisti. Þessar sögur fléttuðust saman vorið 1958. Þá var sextugs- afmæli gamla kommúnistaleiðtog- ans Brynjólfs Bjarnasonar haldið í Skíðaskálanum í Hveradölum. Þang- að var að sjálfsögðu boðið aldavini hans, Hendrik Siemsen Ottóssyni, ásamt konu sinni, Henny. Hún var þýskur gyðingur og hafði ásamt syni sínum og móður flúið til Íslands 1934 undan nasistum. Hér hafði hún kynnst Hendrik, sem kvæntist henni svo að hún fengi landvistarleyfi, og tókust með þeim góðar ástir. Nokkr- ir aðrir þýskir flóttamenn af gyð- ingaættum bjuggu þá í Reykjavík. Hér starfaði einnig deild úr þýska nasistaflokknum. Einn harðskeytt- asti nasistinn hét Bruno Kress og lærði íslenska málfræði. Kærði hann þýska ræðismanninn í Reykjavík til nasistaflokksins í Berlín fyrir að ganga ekki nógu ötullega erinda Þriðja ríkisins. Ræðismaðurinn tók þessu illa og lét reka Kress úr flokknum, en eftir talsvert þref var hann settur þangað inn aftur með úrskurði Adolfs Hitlers. Fékk Kress síðan styrk frá Ahnenerbe eða Arf- leifðinni, rannsóknarstofnun svart- stakka Heinrichs Himmlers, SS, til að semja málfræðibók. Kvæntist hann íslenskri konu og eignaðist með henni barn. Þegar Bretar her- námu Ísland var Kress handtekinn og sendur á eyna Mön en fór í fanga- skiptum til Þýskalands 1944. Þar gekk hann eftir stríð í lið með aust- urþýskum kommúnistum, skildi við sína íslensku konu og varð for- stöðumaður Norrænu stofnunar- innar í Greifswald. Íslenskir komm- únistar voru í sambandi við þá stofnun og þegar Kress kom hingað í heimsókn 1958 var honum boðið í af- mæli Brynjólfs. Þegar Henny Ott- ósson sá þar gamla nasistann, sem hún kannaðist við frá því fyrir stríð, brást hún ókvæða við en það upp- nám var þaggað niður. Ég komst síðan að því að bróðir Hennyar, Siegbert Rosenthal, hafði orðið fórn- arlamb þessarar sömu rannsókn- arstofnunar SS, Ahnenerbe, í tengslum við svokallað hauskúpumál í Natzweiler-fangabúðunum í El- sass. Myrtu nasistar Rosenthal og einnig konu hans og ungan son. Árið 1986 andaðist Henny Ottósson og sama ár varð Bruno Kress heið- ursdoktor við Háskóla Íslands. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Krossgötur: Mörk og mót

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.