Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 31
MESSUR 31á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014 ✝ Jens Hall-grímsson fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 6. ágúst 1954. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstu- daginn 1. ágúst 2014. Foreldrar hans voru Ragnheiður Samsonardóttir, f. 21.10. 1913, d. 2007, og Hall- grímur Gíslason vélstjóri, f. 14.1. 1914, d. 1997. Hálfbræður Jens eru Davíð Þórðarson, f. 18.8. 1940, d. 21.3. 1962, og Ingi Sigurður Þórðarson, f. 20.2. 1945. Jens giftist Helgu Margréti Gígja árið 1980, þau skildu. Fyrir átti hún tvo syni, Baldur Þór og Rúnar Pál sem Jens gekk í föðurstað. Saman áttu þau dæturnar Tinnu, f. 2.9. 1980, og Töru, f. 1.12. 1986. Tinna á dæturnar Helgu Sól- eyju og Viktoríu Töru og Tara á soninn Breka Þór, sambýlismaður Töru er John Freyr Aikman. Jens ólst upp á Þingeyri og bjó þar allt fram til ársins 1988. Hann kláraði gagnfæða- próf frá Héraðs- skólanum í Reykja- nesi árið 1972 og útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1976. Jens vann á sjó alla tíð, eða fram á sein- ustu ár, lengst af sem stýrimað- ur og skipstjóri. Hann útskrif- aðist með sveinspróf í múrverki frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2005 og stofnaði í kjölfarið fyrirtækið J. H. Múrverk og vann við það seinustu árin. Útförin fór fram frá Kópa- vogskirkju mánudaginn 11. ágúst 2014. Elsku besti pabbi minn, mikið rosalega getur lífið verið ósann- gjarnt oft. Ég er ennþá að reyna að átta mig á þessu öllu saman. Ég skil bara ekki hvernig eða hvað ég á að læra af þessu. Ég byrja árið á því að eignast ynd- islega drenginn minn, afastrákinn þinn sem þú varst svo stoltur af og svo ert þú bara tekinn frá okk- ur, hvernig getur þetta verið rétt. Elsku pabbi, svo vorum við búin að plana i mörg ár að fara saman á þjóðhátíð, þú í fyrsta skiptið, til að halda upp á sextugsafmælið þitt, það átti að gerast á þessu ári. Efst í huga mér eru allar yndislegu stundirnar þegar við sátum sam- an við eldhúsborðið heima og drukkum kaffi og spjölluðum, stundum sátum við líka bara í þögninni heillengi, mikið ofsalega voru það góðar stundir, eins og þú sagðir alltaf: „maður þarf ekki endilega að tala út í eitt til að njóta samverustundanna með þeim sem manni þykir vænt um“. Það er sko alveg satt, okkur leið alltaf svo vel saman og þögnin var alls ekki að trufla okkur. Ég er endalaust þakklát fyrir að vita hvað þú varst stoltur af mér, ég er líka óendanlega stolt af því að vera dóttir þín. Elsku pabbi minn, ég get ekki lýst því með orðum hvað ég sakna þín mikið, ég mun hugsa til þín og sakna þín á hverjum einasta degi. Ég mun halda áfram að gera mitt besta til að gera þig stoltan af mér alla daga. Hvíldu í friði, elsku besti pabbi minn, við hittumst svo aftur þegar minn tími er kominn. Ég elska þig. Tara. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín rosalega mikið, við skemmt- um okkur alltaf saman t.d. þegar við fórum saman í bústaðinn og fórum út í fjöruna að tína steina og þú boraðir gat og ég málaði steinana og þá var komið háls- men. Við vorum alltaf að dunda okkur, mála bústaðinn og mála blöð og lita í bækur. Ég á eftir að sakna þín rosalega mikið. Ég elska þig. Helga Sóley. Jens G. Hallgrímsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson Legsteinar sem standast íslenska veðráttu. Granítsteinar, gegnheil gæði. 30% afsláttur Helluhrauni 2, Hafnarfirði ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 með virkri þátttöku ferming- arbarna vorsins 2015. Hugleiðingu og bænir flytja fermingarbörn. Kirkjukór Árbæjarkirkju verða með kökusölu eftir messu. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Skírn. Séra Sigurður Jónsson sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt Lindu Jóhannsdóttur dják- nakandidat. Kór Áskirkju syngur. Organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13. Séra Sigurður Jónsson þjónar. Organisti Magnús Ragn- arsson. Vinir og vandamenn heim- ilisfólks velkomnir. BESSASTAÐAKIRKJA | Sameig- inleg messa Garða- og Bessa- staðasókna í Bessastaðakirkju kl 11. Organisti Jóhann Baldvinsson, prestar Sigrún Óskarsdóttir og Hans Guðberg Alfreðsson. BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 20. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjal- arnesi | Guðsþjónusta kl. 11 f.h. Séra Gunnar Kristjánsson prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Karlakór Kjalnesinga leiða söng, organisti er Páll Helgason. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjón- ar, organisti Örn Magnússon og fé- lagar úr kór kirkjunnar leiða almenn- an safnaðarsöng. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lok- inni. BÚSTAÐAKIRKJA | Upphaf ferm- ingarstarfa við morgunmessu sunnudaginn 17. ágúst kl. 11. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð til mess- unnar og á fund eftir messu. Fé- lagar úr Kór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris kantors. Fermd verður Kristín Her- mannsdóttir frá Luxemborg. Messu- þjónar aðstoða, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Molasopi og hressing eftir messu. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og mán, mið og fös. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudags- messa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Hjálmar Jónsson prédikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. Barn borið til skírnar og ferm- ingarfræðslan hefst með þessari guðsþjónustu. Eftir messu verður kynningarfundur með ferming- arbörnum og foreldrum þeirra. Kammerkór Dómkirkjunnar og org- anisti er Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Morg- unguðsþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson, organisti Guðný Einarsdóttir. Kór kirkjunnar syngur. Upphaf fermingarstarfsins í Fella- sókn. Fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra eftir guðsþjón- ustuna. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl.11. Fermd verður Þór- katla Sveinsdóttir og barn borið til skírnar. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arn- arsonar. Prestar Sigríður Kristín og Einar. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðs- þjónusta, sunnudaginn 17. ágúst kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari. Erla Björk Jóns- dóttir guðfræðingur flytur hugleið- ingu. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista. Við hvetj- um verðandi fermingarbörn og fjöl- skyldur þeirra til að mæta þar sem guðsþjónustan markar lok und- angenginnar fermingarfræðsluviku. Messukaffi verður í safnaðarheimili að lokinni guðsþjónustu. GLERÁRKIRKJA | Messa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 17. ágúst kl. 20.30. Sr. Arna Ýrr Sigurð- ardóttir þjónar og kveður söfnuðinn. Kaffi og meðlæti eftir messu. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Úrsula Aradóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon Leifsson. Kaffisopi eftir messu. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Sam- skot í líknarsjóð. Messuhópur þjón- ar. Félagar úr kirkjukór Grens- áskirkju syngja. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jó- hannsson. Molasopi eftir messu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta í Guðríðarkirkju sunnudaginn 17. ágúst kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari Kristbjörn Árnason og kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi- stund kl. 11. Fermdur verður Björn Heiðar Kristjánsson, Álfholti 54c, 220 Hafnarfirði. Félagi úr Barbörukórnum leiðir söng. Organisti er Guðmundur Sigurðs- son. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs Ath.: skráning í fermingarfræðslu stendur yfir á Hafnarfjarðarkirkja.is HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börnin. Axel Flierl leikur eftirspil. Al- þjóðlegt orgelsumar: Tónleikar laug- ardag kl. 12 og sunnudag kl. 17. Axel Flierl organisti frá Þýskalandi leikur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti Kári Allansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta kl. 11. Séra Steinunn Arn- þrúður Björnsdóttir þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju leiða söng. Org- anisti: Jón Ólafur Sigurðsson. Molasopi eftir stundina. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam- koma kl. 20. Ræðumaður: Ásdís Rafnsdóttir. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir samkomu. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Sigfús Bald- vin Ingvason, organisti Arnór Vil- bergsson. KÓPAVOGSKIRKJA | Ferming- armessa kl 11. Sr. Sigurður Arn- arson sóknarprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs- kirkju syngur undir stjórn Lenku Má- téová, kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Fyrsta messa eftir sumarleyfi verður næst- komandi sunnudag kl. 11. Sr. Guð- björg Jóhannesdóttir þjónar ásamt messuþjónum og kirkjuverði. Fé- lagar úr kór Langholtskirkju syngja við athöfnina undir stjórn Jóns Stef- ánssonar organista. Ein ferming- arstúlka verður fermd í messunni. Heitt á könnunni í litla salnum eftir messu. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Sigurvin Lárus Jóns- son prédikar og kveður söfnuðinn en hann leysti af sem sókn- arprestur sl. vetur. Bjarni Karlsson fráfarandi sóknarprestur þjónar með honum ásamt Aðalheiði Þorsteins- dóttur organista. Gert verður ráð fyr- ir börnum í athöfninni og mun Hjalti Jón Sverrisson æskulýðsfulltrúi kirkjunnar bjóða börnum með sér út að leika á kirkjulóðinni meðan á prédikun stendur. LÁGAFELLSKIRKJA | Messa eldri borgara í Lágafellskirkju kl 11. Umsjón hefur Fjóla Haraldsdóttir, djákni. MELSTAÐARKIRKJA | Messa kl. 14. Sameiginleg messa Melstaðar- og Breiðabólstaðarprestakalla, þar sem fermingarbörn næsta vors eru sérstaklega boðuð ásamt fjöl- skyldum sínum. Sr. Magnús Magn- ússon predikar, sr. Guðni Þór Ólafs- son þjónar fyrir altari. Organisti Pálína F. Skúladóttir. Eftir messu er fundur um fermingarstörfin, og síð- an verður útigrillið hitað og allir fá góðgæti í boði sóknarnefndar. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Fé- lagar úr Kór Neskirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti Steingrímur Þór- hallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffisopi á Torg- inu eftir messu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri- Njarðvík | Guðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar. Meðhjálp- ari Pétur R. Guðmundsson. Sókn- arprestur. SALT kristið samfélag | Sam- koma kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. 3. hæð. Ræðumaður Haraldur Jóhannsson. Túlkað á ensku. Barnapössun. SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Kvöld- messa kl. 20. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Rögnvaldar Val- bergssonar organista. Prestur sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Ferming- arbörn vorsins 2015 ásamt for- eldrum sínum sérstaklega kölluð til messunnar. Fundur vegna ferðalags fermingarbarna strax að messu lok- inni. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Guðbjörg Arnardóttir sókn- arprestur í Odda þjónar. Organisti Jörg Sondermann. Súpa og brauð. SELJAKIRKJA | Messa kl. 20. Sr. Sigurður Grétar Helgason predikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Alt- arisganga. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarna- son, sóknarprestur, þjónar. Bjarni Þór Jónatansson er organisti. Sig- urlaug Árnadóttir leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag 17. ágúst kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson, sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. ÚTHLÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag 17. ágúst kl. 16. Sr. Egill Hallgrímsson, sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. ÞINGMÚLAKIRKJA | Sameiginleg kvöldmessa Vallanes- og Þingmúla- sókna kl. 20. Prestur sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallanes- og Þingmúla- sókna leiðir söng. Kirkjugestum er boðið i kaffi í Fé- lagsheimilinu á Arnhólsstöðum eftir messu. ORÐ DAGSINS: Hinn rangláti ráðs- maður. (Lúk.16) Vatnsfjarðarkirkja Látinn er elsku- legur mágur minn, Jón Illugason, og mig langar til að kveðja hann með nokkrum minning- arbrotum. Hann og Guðrún systir mín hafa alltaf átt sitt heimili í Mý- vatnssveit. Það gat örugglega ekki öðruvísi verið svo rótfastur var hann þar, enda veit ég ekki til að annað hafi nokkru sinni komið til tals. Við Páll komum fyrst til þeirra ásamt syni okkar þriggja ára í byrjun júlí 1966. Þá áttu þau heima á Bjargi í húsi foreldra hans. Ég hafði ekki komið fyrr í Mývatnssveit og hvílík dýrð og fegurð sem alls staðar blasti við. Sólin skein í heiði, vatnið var speg- ilslétt svo langt sem augað eygði, fuglarnir sungu sinn dýrðaróð og gróður var allur í blóma. Og fjalla- hringurinn allt í kring. Þetta var sveitin hans mágs míns, sem hann var svo stoltur af og sem var hon- um svo kær. Við áttum framundan tveggja vikna frí og dvöl þarna hjá þeim og Alda systir okkar Gunnu var líka starfandi þar þetta sumar. Það var því mikil gleði og tilhlökk- un í okkar huga. En – næsta morgun var skollið á vetrarveður. Það snjóaði til fjalla og niður í Jón Illugason ✝ Jón Illugasonfæddist 5. júní 1938. Hann lést 1. ágúst 2014. Útförin fór fram 12. ágúst 2014. byggð, það var kalt og hvasst, ferða- menn lentu í erfið- leikum og var bjarg- að í hús víða í sveitinni, stígvél og skjólfatnaður seldist upp í Kaupfélaginu og tilveran hafði bara fengið nýjan svip. Það dró nú heldur úr þessu áhlaupi næstu daga en kalt og hvasst var mestallan tímann okkar þarna. Samt fóru þau með okkur á marga fallega staði á litla Fólksvagninum sínum og svo var líka setið og spjallað heima. Jóndi sagði okkur frá hug- myndum sínum um ferðamanna- þjónustu sem síðan varð ævistarf hans og systur minnar. Hann var líka fróður um svo margt og sagði vel frá. Við höfum oft síðan notið gestrisni þeirra, komið í afmæli og fermingar og séð sveitina í vor- skrúða. Einnig líka í september í brúðkaup Báru Mjallar og Jó- hanns, þá, alla leið frá Reykjavík til Seyðisfjarðar, var landið okkar í sinni fegurstu haustlitadýrð. Það er gott að eiga slíka minn- ingar. Við kveðjum nú Jón Illugason með virðingu og þökk, veri hann Guði falinn. Elsku Gunna mín og fjölskyld- an öll, við samhryggjumst ykkur innilega og biðjum Guð að vera með ykkur öllum. Kristín Lára Þórarinsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.