Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014 Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is „Ef þessi mál eru í verulegu ólagi þarf borgin að gera eitthvað í því. Það er engin spurning í mínum huga,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkurborgar, spurður um málefni almenningssalerna í miðborginni. Hann segir málið ekki hafa komið inn á borð ráðsins en engu að síður þurfi að bæta úr þessum málum sé aðstaðan ekki góð. „Þessi aðstaða þarf að vera í lagi fyrir alla.“ Rætt eftir helgi Greint var frá því í Morgun- blaðinu á fimmtudag að skortur á almenningssalernum í miðborg Reykjavíkur væri orðinn verulegt vandamál fyrir rekstraraðila kaffi- húsa og veitingastaða, en stríður straumur fólks leitar inn á staðina til þess eins að nota salernis- aðstöðu. Jakob Frímann Magnús- son miðborgarstjóri sagði brýnt að bregðast við ástandinu. Hjálmar segist munu hitta forsvarsmenn félagasamtakanna Miðborgin okkar á mánudag og þar muni hann ræða þessi mál. Starfs- hópur skoðaði málefni almennings- salerna í Reykjavík árið 2006 og skilaði skýrslu og tillögum til úr- bóta, sem enn er unnið eftir. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Salerni Sjö sjálfvirk almennings- salerni eru í miðbænum. Starfs- hópur lagði til að endurbyggt yrði almenningssalerni í Bankastræti. Hyggjast skoða mál almenningssalerna  „Þessi aðstaða þarf að vera í lagi“ Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Skólavörur í úrvali Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Úthaldsdögum á rannsóknaskipum Hafrann- sóknastofnunar fækkar úr rúmlega 320 dög- um í fyrra í innan við 200 daga á þessu ári. Ráðstöfunarfé stofnunarinnar lækkaði um ná- lægt 300 milljónir króna á milli ára, eða um 10%, að sögn Jóhanns Sigurjónssonar for- stjóra. „Forgangsröðin er orðin þröng en við höfum reynt að laga okkur að þessum erfiðu aðstæðum í rekstrinum eins og við höfum getað. Við höfum þurft að ganga á kjarnastarfsemina og erum í raun komin inn að beini,“ segir Jóhann. Fjölmörg verkefni hafa verið felld niður og önnur sameinuð. Jóhann nefnir að leiðangur til fjölgeisla- mælinga hafi verið felldur niður, en honum hafði verið frestað í fyrra um eitt ár. Ekki var farið í kjörhæfnisrannsóknir á veiðarfærum og einn ársfjórðungslegur leið- angur til sjómælinga við landið var felldur niður, en því verkefni hefur verið sinnt í yfir 20 ár. Lítið svigrúm eftir Ekki er útlit fyrir að farið verði í loðnuleið- angur í lok næsta mánaðar, eins og greint var frá í blaðinu í gær. Útgerð í Grundarfirði hljóp undir bagga með skip til að fara í rækjuleiðangur fyrir Norðurlandi og sjávar- útvegsráðuneytið veitti heimild til að greiða fyrir leigu á skipum til að sinna haustralli með aflaheimildum, eins og greint er frá hér til hliðar. „Við höfum allt árið og reyndar nokkur síðastliðin ár vakið athygli á þeim vanda sem stefndi í,“ segir Jóhann. „Allt sem við fellum niður getur haft fjárhagsleg áhrif á útveginn með lægra aflamarki eða meiri áhættu. Það er afleitt að fella niður loðnuleiðangur í haust, en í byrjun árs lá fyrir hversu mörgum dögum á árinu yrði varið í loðnuúthaldið. Mjög lítið svigrúm er eftir af því nú seinni hluta ársins en við eigum eftir að ræða þetta betur við fjárveitingarvaldið, ráðuneytið og atvinnugreinina. Dapurleg staða fyrir fiskveiðiþjóð Það er mjög alvarlegt að geta ekki sinnt þessu og dapurleg staða fyrir fiskveiðiþjóð að geta ekki staðið betur að hafrannsóknum. Það er grundvallaratriði að þekkingin sé til staðar til að geta fullnýtt þá fiskistofna sem eru við landið. Þannig hafa loðnustofninn og flestir fiskistofnar við landið verið fullnýttir um áratugaskeið á grundvelli góðrar vitneskju. Þetta er mjög varhugaverð staða og þá ekki síst í ljósi þeirra miklu sviptinga í vistkerfinu og breytinga sem eru að verða á Íslandsmið- um. Það er slæmt að þurfa að draga svo mjög saman seglin á slíkum tímum,“ segir Jóhann. Mörg verkefni felld niður  Allt sem við fellum niður getur haft fjárhagsleg áhrif á útveginn með lægra aflamarki eða meiri áhættu, segir forstjórinn  Mikil fækkun úthaldsdaga Ljósmynd/Börkur Kjartansson Í ólgusjó Loðnuleiðangur í fyrrahaust skilaði miklum upplýsingum en er ekki á áætlun í haust. „Þetta er auðvitað grafalvarleg staða sem Hafrannsóknastofnun hefur verið í,“ segir Sig- urður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra spurður hvort ráðuneytið muni hlutast til um að stofnunin geti sinnt loðnuleiðangri í haust. „Þetta er ekki ný staða heldur hafa í þó nokk- uð mörg ár bæst við verkefni án þess að fjár- framlög hafi fylgt. Svo hefur stofnunin eins og aðrar stofnanir staðið frammi fyrir tals- verðum niðurskurði. Ég hef beitt mér eins og mögulegt er í fjár- lagagerð næsta árs til að reyna að tryggja eins mikla fjármuni til starfseminnar og hægt er. Ráðuneytið hefur ekki yfir neinum sjóðum að ráða til að grípa í og fjárveitingarvaldið er ekki á hendi framkvæmdarvaldsins.Við verðum að vísa til fjárlaganefndar og Alþingis, hvort menn séu tilbúnir að bæta enn frek- ar við það sem þegar hef- ur náðst til þess að bæta stöðu Hafrannsókna- stofnunar á milli ára. Hvort það kæmi til greina í fjáraukalögum eða eitt- hvað slíkt. Í þessu sitja allir við þetta borð að hafa ekki úr nægum fjármunum að spila og þurfa að halda sig innan fjárheimilda þannig að við náum markmiðum okkar um hallausan ríkisrekstur,“ sagði Sigurður Ingi. Grafalvarleg staða SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA UM VANDA HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR Sigurður Ingi Jóhannsson Jóhann Sigurjónsson Rækjuskipið Sigurborg SH-12 frá Grundar- firði er nú við rannsóknir á úthafsrækju fyrir Norðurlandi. Útgerð Sigurborgar, Soffanías Cecilsson hf, bauð skipið til þessa verkefnis þegar ljóst varð að Hafrannsóknastofnun myndi ekki geta sinnt því í ár vegna fjárskorts. Auk áhafnar skipsins er starfsfólk Hafrann- sóknastofnunar um borð undir leiðangurs- stjórn Ingibjargar Jónsdóttur fiskifræðings. Reiknað er með 15 daga leiðangri og kemur aflinn í hlut útgerðarinnar, en samráð var haft við aðrar rækjuútgerðir við undirbúning verk- efnisins. Rækjuveiðar fyrir Norðurlandi hafa verið heldur tregar lengst af fiskveiðiárinu. Í gær var ársaflinn orðinn rúmlega þrjú þúsund tonn og höfðu Sóley Sigurjóns GK, Sigurborg SH, Múlaberg SI, Brimnes RE og Berglín GK kom- ið með mestan afla að landi. Hafrannsóknastofnun auglýsti í sumar eftir skipum í árlegt haustrall stofnunarinnar. Þessa dagana er verið að ganga frá samn- ingum um leigu á tveimur skipum í verkefnið og verður greiðslan ekki í krónum heldur í heimild til að veiða tiltekinn fjölda tonna. Svip- að fyrirkomulag hefur verið viðhaft að hluta í netaralli og haustralli. Öðru skipinu lagt næsta ár Í vikunni hélt rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson í árstíðabundnar mælingar í hafinu við landið þar sem hitastig, selta og fleiri þætt- ir eru kannaðir. Í haust verður einnig farið í síldarleiðangur á Bjarna Sæmundssyni. Hins vegar er útlit fyrir að Árni Friðriksson verði bundinn við bryggju það sem eftir er ársins, en skipið er nýkomið úr makrílleiðangri. Fyrirhugað var að leggja Bjarna um mitt ár, en þar sem hann er minni var talið hagkvæm- ara að nota hann í þau verkefni sem eru á áætl- un það sem eftir er árs. Ef fram fer sem horfir á næsta ári varðandi fjárveitingar verður öðru skipinu lagt allt næsta ár. aij@mbl.is AFP Lögðu fram skip til rann- sókna á rækju  Greitt fyrir haustrallið með aflaheimildum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.