Morgunblaðið - 16.08.2014, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Már Guðmundsson, sem hefur verið
seðlabankastjóri undanfarin fimm
ár, hefur verið endurskipaður í
starfið til næstu fimm ára. Hann
segir í samtali við Morgunblaðið
hallast að því að seðlabankastjóri,
sérstaklega ef einn maður gegni
starfinu, eigi að vera skipaður eitt
tímabil. Ekki fleiri. Og viðkomandi
ætti að gegna starfinu í sjö eða átta
ár. Með þeim hætti sé nýja kerfið í
Bretlandi.
– Hverjir eru kostirnir við það
kerfi?
„Kosturinn er sá að það kemur
ekki upp þetta með endurskipun í
starfið. Þá skapast ekki svona
ástand eins og verið hefur á undan-
förnum mánuðum hér á Íslandi og
hefur skapast sums staðar annars
staðar.“
– Hvaða ástand?
„Það hefur verið óvissa í nokkra
mánuði hvað yrði með þessa skip-
un. Það er best að óvissan sé í sem
stystan tíma. Ef seðlabankastjóri
er skipaður í átta ár og það má
ekki endurskipa hann kemur þessi
óvissa aldrei upp. Og sjálfstæði
þess aðila er miklu meira.“
– Varst þú vongóður um að fá
starfið?
„Ég velti því ekki mikið fyrir
mér. Ég taldi það skyldu mína að
bjóða fram starfskrafta mína, eins
og ég útskýrði þegar ég sótti um
starfið. Bankinn er í miðju kafi í
mörgum mjög flóknum verkefnum.
Ekki síst, ásamt öðrum stjórnvöld-
um, að vinna að losun fjármagns-
hafta. Það er snúið.
Auk þess þarf að varðveita verð-
stöðugleika sem hefur náðst. Það er
ekki einfalt. Ég vildi sjá betur til
lands í þessum verkum öllum.“
Áhugi á að starfa erlendis
Már sagði í fréttatilkynningu,
þar sem upplýst var um endur-
skipun hans, að hann hefði í nokkur
ár haft hug á að skoða möguleikann
á að hverfa á ný til starfa erlendis,
„áður en aldursmörk hamla um of“.
Hann sagði því óvíst að hann myndi
sækjast eftir að sitja áfram ef
endurráðið yrði í yfirstjórn bank-
ans.
– Hvers vegna ertu að upplýsa á
þessari stundu að þú munir mögu-
lega ekki gegna starfinu í mörg ár
til viðbótar?
„Ég taldi rétt að gera það vegna
þess að það liggur fyrir að endur-
skoða á lög um seðlabanka sem
getur kallað á breytingar á yfir-
stjórn hans. Það gæti kallað á að
endurskipað væri í þá stöðu sem ég
nú gegni. Þetta var nefnt sérstak-
lega í skipunarbréfi ráðherra.
Ég taldi því rétt að það kæmi
fram að ég gerði mér grein fyrir
þessu og gerði engar athugasemdir
við það,“ segir Már og nefnir að
hann hafi bent á það í leiðinni að
fleira geti breyst vegna þess hugar
sem hann hafi haft á að skoða, eftir
ákveðinn tíma, að hverfa aftur til
alþjóðlegra starfa. Már var aðstoð-
arframkvæmdastjóri peningamála-
og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslu-
bankans í Basel í Sviss frá árinu
2004 til 2009.
Gott fyrir bankann og landið
– Vissi fjármálaráðherra þegar
hann framlengdi skipunartímann að
þú hefðir áhuga á að vinna erlendis
á næstu misserum?
„Já, hann vissi að ég hefði hug á
að skoða það eftir ákveðinn tíma,“
segir Már. „Ég taldi hins vegar
ekki heppilegt að gera það núna.
Ég hef verið upptekinn við vinnu.
Hef ekki getað skoðað það að neinu
gagni og það hefði líka verið mjög
erfitt fyrir bankann, tel ég, og
kannski að einhverju leyti landið,
að skipta um seðlabankastjóra á
þessum tímapunkti vegna verkefna-
stöðunnar sem ég nefndi áðan.“
– Við hvað langar þig helst að
vinna erlendis?
„Mér finnst ekki eðlilegt eða
tímabært að upplýsa um það að svo
stöddu. Þetta er nokkuð sem ég
ræði við mína fjölskyldu og aðra.“
– Af hverju viltu ekki ljúka
starfsferlinum hjá Seðlabanka Ís-
lands?
„Auðvitað gæti það farið svo. Því
miður er aldurstakmark hjá
alþjóðastofnunum. Hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum er það 65 ára og
hjá Alþjóðagjaldeyrisbankanum,
þar sem ég starfaði, er það 66 ára.
Það spilar inn í þetta,“ segir Már,
sem er sextugur.
Skipa ætti seðlabanka-
stjóra í eitt tímabil
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabankastjóri Már Guðmundsson hefur áhuga á að starfa erlendis.
Már Guðmundssson var endurráðinn sem seðlabankastjóri
● Davíð Lúther Sigurðarson hefur
keypt hlut PIPAR/TBWA í Silent ehf. og
á hann nú félagið að fullu. Silent starfar
við gerð kvikmyndaefnis fyrir netmiðla,
utanumhald alls kyns viðburða og
óhefðbundna markaðssetningu. Davíð
var annar af stofnendum fyrirtækisins
árið 2011 en PIPAR/TBWA hefur átt
meirihluta þess frá árinu 2012.
Breytingar hjá Silent
!
"#!
$"%#
%%
#!
$%"
!$
#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!
$#
"%
$"#!
%!
#%!
$
$!
# #
!
#
"
"#%
$"
%%"$
#%#
$
$%
#%
!
$"
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Samanlagt nemur fjárfesting ís-
lenskra fyrirtækja í nýsmíðuðum
fiski-, flutninga- og þjónustuskip-
um rúmum 50 milljörðum króna á
síðustu tveimur árum. Þetta kemur
fram í greiningu Íslenska sjávar-
klasans.
Við efnahagshrunið 2008 var
fjárfestingarþörf útgerða í nýjum
skipum orðin töluverð en í kjölfar
hrunsins stökkbreyttist efnahagur
sjávarútvegsfyrirtækjanna. Eigin-
fjárstaða sjávarútvegsins var nei-
kvæð um 80 milljarða króna í árs-
lok 2008. Í kjölfarið var ráðist í
mikla endurskipulagningu efna-
hags margra sjávarútvegsfyr-
irtækja og niðurgreiðsla skulda
hófst. Um nokkurra ára bil tafðist
því nær öll nýfjárfesting í grein-
inni.
Í árslok 2012 var eiginfjárstaða
sjávarútvegsins hins vegar orðin
jákvæð um 107 milljarða króna og
forsendur til nýfjárfestinga í nýj-
um skipum og öðrum framleiðslu-
tækjum því gjörbreyttar.
„Það var fyrst og fremst þessi
efnahagslegi veruleiki sem var
þess valdandi að lítið var fjárfest í
greininni um nokkurra ára skeið en
endurskipulagning skulda og
ábatasamur rekstur hefur snúið við
fjárhag félaganna og opnað þeim
svigrúm til fjárfestinga,“ segir í
greiningunni.
Fjárfestingarnar endurspegla
ekki aðeins aukna fjárfesting-
argetu heldur einnig breyttar
áherslur fyrirtækjanna, sem nú
draga úr vægi sjófrystingar en efla
í staðinn landvinnslu sína. Land-
vinnslan býður bæði upp á fjöl-
breyttari framleiðslu og betri nýt-
ingu hráefnis, auk þess sem
rekstur frystitogaranna hefur verið
þungur undanfarin ár, segir í
greiningunni.
11 skip í smíðum
fyrir útgerðir
Ellefu skip eru í smíðum fyrir ís-
lensk útgerðarfélög; níu ísfisk-
togarar og tvö uppsjávarskip. Þá
fékk Ísfélag Vestmannaeyja nýtt
uppsjávarskip, Sigurð, afhent í júlí
2014 og annað nýtt uppsjávarskip,
Heimaey, árið 2012. Samanlagt eru
þessi 13 skip fjárfesting fyrir um 35
milljarða íslenskra króna. Önnur
fjárfesting í sjávarklasanum glæð-
ist nú einnig, en Eimskip fékk ný-
verið afhent nýtt flutningaskip sem
fékk nafnið Lagarfoss. Á næsta ári
fær félagið svo annað sambærilegt
skip afhent, segir í greiningunni.
Það félag sem fyrirferðarmest er
í nýfjárfestingum nú er HB Grandi,
en félagið er með fimm ný skip í
smíðum. Samanlagður kostnaður
við þessi fimm skip er um 14 millj-
arðar króna, en um er að ræða tvö
ný uppsjávarskip af stærri gerðinni
og þrjá ísfisktogara. Auk þess hef-
ur HB Grandi lokið breytingum á
Helgu Maríu, sem nú er orðin ís-
fisktogari en var áður frystitogari.
Skipafloti HB Granda er kominn
nokkuð til ára sinna, en félagið átti
fjögur uppsjávarskip, þar af tvö
sem byggð voru árið 1960.
50 milljarðar
lagðir í ný skip
Fjárfestingarnar endurspegla aukna
fjárfestingargetu og breyttar áherslur
Fjárfestingar í skipum
undanfarin tvö ár
Tegund
Uppsjávarskip
Ísfisktogarar
Gámaskip
Þjónustuskip
12 milljarðar
21 milljarður
4,5 milljarðar
12,5 milljarðar
Fjárhæð
Heimild: Íslenski sjávarklasinn
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m2