Morgunblaðið - 16.08.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Utanríkisráðherrar ríkja Evrópu-
sambandsins og framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins hafa látið í
ljósi miklar áhyggjur af fréttum um
að rússneskir herbílar hafi farið inn
fyrir landamæri Úkraínu í fyrrinótt
til að flytja hergögn til uppreisnar-
manna.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði að frétt-
irnar um hergagnaflutningana sýndu
að Rússar héldu áfram að senda vopn
og hermenn á yfirráðasvæði upp-
reisnarmannanna. „Þetta sýnir svo
ekki verður um villst að Rússar halda
áfram að ýta undir ófrið í austan-
verðri Úkraínu,“ sagði hann.
„Þetta er alvarlegt brot á þjóða-
rétti,“ sagði Carl Bildt, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, og sakaði
uppreisnarmennina í „alþýðulýð-
veldi“ þeirra um „glæpastarfsemi“.
Martin Lidegaard, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, kvaðst hafa
„miklar áhyggjur af framferði Rússa
síðustu mánuði og síðustu klukku-
stundir“. „Við teljum að rússnesk
stjórnvöld þurfi að gera sér grein fyr-
ir því að Evrópusambandið og
Bandaríkin eru staðráðin í því að
bregðast við hvers konar nýjum árás-
um af hálfu Rússa.“
Ráðamenn í Kreml neituðu því að
rússnesk hergögn hefðu verið flutt
yfir landamærin.
Bresku dagblöðin The Daily Tele-
graph og The Guardian sögðu að
blaðamenn þeirra á staðnum hefðu
séð rússneska herflutningabíla aka
yfir landamærin og fara inn á yfir-
ráðasvæði uppreisnarmannanna í
grennd við borgina Lúhansk.
Úkraínumenn og stjórnvöld á
Vesturlöndum hafa lengi sakað
Rússa um að hafa sent vopn og her-
menn yfir landamærin til að efla upp-
reisnarmennina en þetta er í fyrsta
skipti sem vestrænir blaðamenn
verða vitni að slíkum flutningum.
Norðmenn refsa Rússum
The Daily Telegraph sagði að
minnst 23 rússneskum herbílum
hefði verið ekið yfir landamærin í
fyrrinótt. Her Úkraínu staðfesti að
rússneskir vöruflutningabílar og
brynvarðir liðsflutningabílar hefðu
farið yfir landamærin. Petro Poro-
sénkó, forseti Úkraínu, sagði að stór-
skotalið Úkraínuhers hefði eyðilagt
„verulegan hluta hergagnanna“ eftir
að þau voru flutt yfir landamærin.
Að sögn The Daily Telegraph virt-
ust bílarnir ekki vera hluti af bílalest
sem Rússar sendu að landamærun-
um í grennd við Lúhansk til að flytja
hjálpargögn til nauðstaddra íbúa
yfirráðasvæða uppreisnarmann-
anna. Um 60 úkraínskir landamæra-
verðir voru sendir á rússneska
landamærastöð til að kanna farm
bílanna. Talsmaður Alþjóðaráðs
Rauða krossins sagði að úkraínskir
og rússneskir embættismenn væru
að semja um tilhögun flutninga á
hjálpargögnunum og flutningarnir
hæfust um leið og samkomulag næð-
ist. Íbúarnir eru að verða uppi-
skroppa með matvæli og hafa verið
án rafmagns og rennandi vatns í
nokkrar vikur. Yfir 2.000 manns
hafa beðið bana í átökunum og
285.000 manns hafa flúið heimkynni
sín.
Norðmenn hafa farið að dæmi
Evrópusambandsins og gripið til
refsiaðgerða gegn Rússlandi vegna
stuðnings landsins við uppreisnar-
mennina. „Ástandið í austanverðri
Úkraínu versnar með hverjum deg-
inum sem líður. Mikilvægt er að
þjóðir heims standi saman í við-
brögðum sínum við aðgerðum
Rússa,“ sagði Børge Brende, utan-
ríkisráðherra Noregs.
Rússneskum hergögnum eytt
Rússar sendu bíla með hergögn inn í Úkraínu Úkraínuher sagður hafa eyðilagt verulegan hluta
hergagnanna í stórskotaárás Ráðamenn í Evrópu hafa miklar áhyggjur af framgöngu Rússa
AFP
Mannskæð átök Úkraínskir hermenn aka skriðdrekum í gegnum bæ nálægt borginni Donetsk. Hörð átök geisa í
Donetsk og borginni Lúhansk, höfuðvígjum uppreisnarmanna í austanverðri Úkraínu. Yfir 2.000 manns hafa fallið.
Rússnesk bílalest kom að landamærunum. Átök geisuðu í tveimur borgum.
Átök í austanverðri Úkraínu
LÚHANSK
Kharkív
Kamensk-
Shakhtinskí
KHARKÍV
Voronezh
Rostov við Don
Til Moskvu
MOSKVA
KÆNU-
BARÐUR
ÚKRAÍNA
RÚSSLAND
Donetsk
DONETSK
Höfuðvígi
uppreisnarmanna
Á valdi
uppreisnarmanna
Leið rússnesku
bílalestarinnar
Landamærastöð
Hörð átök
50 km
Lúhansk
Landamæra-
stöð í Donetsk
Fram hafa komið vísbendingar
um að refsiaðgerðir Bandaríkj-
anna og Evrópusambandsins
séu farnar að bíta á rússnesk
fyrirtæki,
auk þess
sem þær
auki ríkis-
útgjöldin og
kyndi undir
verðbólgu í
Rússlandi.
Refsi-
aðgerðirnar
hafa m.a.
orðið til
þess að rússneski orkurisinn
Rosneft hefur óskað eftir opin-
berri aðstoð að andvirði 1.500
milljarðar rúblna, jafnvirði
4.820 milljarða króna. Forstjóri
fyrirtækisins, Ígor Setsjín, hef-
ur lagt til að féð verði tekið úr
Velferðarsjóði Rússlands, sem
fjármagnar lífeyriskerfi lands-
ins, og notað til að kaupa skuld-
ir Rosnefnt, að sögn The Fin-
ancial Times.
Rosneft er stórskuldugt eftir
kaup á rússneska olíufyrir-
tækinu TNK-BP í fyrra og þarf
að greiða jafnvirði 3.540 millj-
arða króna fyrir lok næsta árs.
Rússnesk stjórnvöld svöruðu
refsiaðgerðunum með því að
banna innflutning á matvælum
frá Bandaríkjunum, löndum
Evrópusambandsins og fleiri
ríkjum, m.a. Noregi. Um 40% af
matvælum sem neytt er í Rúss-
landi eru innflutt og talið er að
bannið auki verðbólguna. T.a.m.
segir ein stærsta stórmarkaða-
keðja Rússlands að verðið á
fiskafurðum hækki um 20-36%.
Rússnesk stjórnvöld ætla að
draga úr innflutningnum á mat-
vælum með því að efla land-
búnaðinn með auknum ríkis-
styrkjum.
Líklegt er að refsiaðgerðirnar
kosti Rússland að minnsta kosti
jafnvirði 23.000 milljarða króna
á þremur árum, að mati Alexejs
Kúdrín, efnahagsráðgafa Pútíns
forseta og fyrrverandi fjár-
málaráðherra Rússlands.
Farnar að
bíta á Rússa
REFSIAÐGERÐIR
Ígor Setsjín
Borgarstjórn Los Angeles í Banda-
ríkjunum íhugar nú tillögu um að
kjörseðlar verði gerðir að happ-
drættismiðum til að auka kjörsókn-
ina í borginni. Aðeins um fjórð-
ungur skráðra kjósenda mætti á
kjörstað í síðustu borgarstjórnar-
kosningum í Los Angeles. Siða-
nefnd borgarinnar hefur nú sam-
þykkt tillöguna einróma og mælt
með því að borgarstjórnin komi
henni í framkvæmd.
Formaður siðanefndarinnar,
Nathan Hochman, segir að aðal-
vinningurinn geti numið 25.000 eða
50.000 dollurum (jafnvirði tæpra
þriggja og sex milljóna króna).
Að sögn dagblaðsins The Los
Angeles Times banna bandarísk al-
ríkislög greiðslur fyrir að kjósa en
siðanefndin segir að bannið gildi
ekki um borgarstjórnarkosningar.
Lög í Kaliforníu banni aðeins
greiðslur eða gjafir fyrir að kjósa
sérstakan frambjóðanda eða fyrir
að kjósa ekki.
BANDARÍKIN
Kjörseðlar gerðir að
happdrættismiðum?
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Betri birtustjórnun
MEIRA ÚRVAL
MEIRI GÆÐI
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
EFTIR MÁLI
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18