Morgunblaðið - 16.08.2014, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð
jeppadekk sem koma
þér örugglega hvert
á land sem er.
Útbreiðsla ebólusjúkdómsins er svo
hröð í Vestur-Afríku að samtökin
Læknar án landamæra ráða ekki við
hann og liðið gætu sex mánuðir þar
til hægt verður að ná tökum á hon-
um, að sögn Joanne Liu, yfirmanns
samtakanna, í gær.
Sameinuðu þjóðirnar segja að um-
fang ebólufaraldursins í V-Afríku sé
stórlega vanmetið. Til gríðarlegra
aðgerða hefði þurft að grípa til að
halda aftur af útbreiðslunni.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, hefur staðfest að 1.069 manns
hafi látið lífið. Bandarísk stjórnvöld
hafa skipað ríkisstarfsmönnum
sínum í Síerra Leóne og fjölskyldum
þeirra að snúa heim. Þar er sjúk-
dómurinn einna útbreiddastur en
hann hefur einnig greinst í Líberíu,
Gíneu og Nígeríu.
WHO segir að nú verði alþjóða-
samfélagið að bregðast við og að-
stoða við að takast á við versta far-
aldur ebólu allra tíma. Veiran sem
veldur sjúkdómnum uppgötvaðist
fyrir fjórum áratugum.
„Starfsmenn á þeim stöðum þar
sem smit eru flest sjá ummerki þess
að tölur um sýkta og látna séu stór-
lega vanmetnar,“ segir í tilkynningu
frá WHO.
AFP
Skæður faraldur Starfsmenn samtakanna Lækna án landamæra að störfum
á heimili manns sem lést af völdum ebólu í Kailahun-héraði í Síerra Leóne.
Tekið gæti hálft ár
að ná tökum á ebólu
Bandarískir háskólar eru í sextán af
20 efstu sætunum á nýjum lista
rannsóknastofnunar Jiaotong-
háskóla í Sjanghæ sem metur gæði
yfir 1.200 háskóla í heiminum á
hverju ári. Háskólarnir fjórir sem
eru ekki bandarískir eru allir í Evr-
ópu. Þar af eru þrír í Bretlandi,
Cambridge-háskóli í 5. sæti, Oxford-
háskóli í 9.-10. sæti og University
College í London í tuttugasta.
Tækniháskólinn í Zürich er í
nítjánda sæti. Á listanum yfir 100
bestu háskóla heims eru þrír í Sví-
þjóð, tveir í Danmörku, einn í Finn-
landi og einn í Noregi. bogi@mbl.is
100 bestu háskólar heims eftir löndum
Heimild: Jiaotong-háskóli í Sjanghæ/Alþjóðabankinn
Skv. flokkun kínversks háskóla sem hefur raðað niður bestu háskólum heims frá 2003
Röðun eftir
gæðum háskóla
Verg landsframleiðsla
á mann
Ástralía
Belgía
Kanada
Danmörk
Finnland
Frakkland
Ísrael
Japan
Holland
Noregur
Rússland
Svíþjóð
Sviss
Bretland
Bandaríkin
52
Þýskaland
1
10 20 30 40 50 60 70 80
30.000
(3,5 millj. kr.)
40.000
50.000
60.000
70.000
80.000
100.000 $
(11,6 millj. kr.)
Hlutfalls-
legur íbúafjöldi
Háskólar
í 100 efstu
sætunum
65
10 milljónir
25
Flestir bestu eru vestra
Bestu háskólar heims í ár
Oxford
9
8
Heimild: Jiaotong-háskóli í Sjanghæ
Harvard
7
2 9Stanford
Massachusetts
Institute
of Technology
Cambridge3
Berkeley
1
California
Institute
of Technology
6 Princeton
5
Chicago
4
Columbia
VE R I
TA S
HA R V ARD
Breyting frá síðasta ári
-1
-1
+1
+1
+1
Átta af tíu bestu háskólum heims eru í Bandaríkjunum
og tveir á Bretlandi, að mati Jiaotong-háskóla
François Hollande, forseti Frakk-
lands, og fleiri leiðtogar minntust í
gær um 450.000 hermanna sem
tóku þátt í innrás í Suður-
Frakkland fyrir sjö áratugum.
Innrásin var gerð rúmum tveimur
mánuðum eftir innrásina í Norm-
andí.
Helmingur hermannanna, sem
tóku þátt í innrásinni 15. ágúst
1944, var franskur eða frá nýlend-
um Frakklands á þessum tíma.
Fimmtán leiðtogar frá fyrrverandi
lýðveldum voru viðstaddir athöfn
til minningar um innrásina í
hafnarborginni Toulon í Suð-
austur-Frakklandi í tilefni af 70
ára afmælinu í gær.
Um 240 gamlir hermenn, margir
þeirra á tíræðisaldri, tóku þátt í
minningarathöfninni, þeirra á með-
al 40 frá fyrrverandi nýlendum
Frakklands. „Með fórnum sínum
tengdu þessir menn land okkar við
Afríku með blóðböndum sem eng-
inn getur losað,“ sagði Hollande.
Innrásarliðið barðist við um
250.000 þýska hermenn sem voru
illa vopnum búnir og dreifðir.
Mannfallið meðal bandamanna var
því miklu minna en í innrásinni í
Normandí. A.m.k. 4.400 hermenn
bandamanna lágu í valnum í
Normandí en um 1.000 í síðari inn-
rásinni.
Hermanna minnst Hollande meðal
gesta við minningarathöfnina í gær.
Haldið upp á innrásarafmæli