Morgunblaðið - 16.08.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Páll Sigurðsson, Sauðkrækingur, hefur starfað sem kennari ílagadeild Háskóla Íslands í 41 ár. Hann lauk embættisprófi ílögfræði árið 1969 og fór hann þá í fjögurra ára framhalds-
nám í Noregi og Þýskalandi. Hann sneri heim sumarið 1973 og hóf
dósentsstörf við Háskóla Íslands strax um haustið. Seinna varð hann
prófessor og hefur gegnt þeirri stöðu síðan, þar til hann lætur af
störfum núna, orðinn 70 ára. Páll efast um að aðrir hafi verið lengur
í samfelldu starfi við Háskóla Íslands en hann sjálfur.
Páll ætlar í Grímsborgir í Ölfusi með eiginkonunni á afmælis-
deginum, en þar ætla þau að hafa það huggulegt í eina nótt.
Þegar Páll les ekki lögin málar hann og les þjóðleg fræði. „Ég les
mikið af þjóðlegum fræðum og síðan mála ég í frítíma mínum. Ég
hef haldið sýningar og slíkt í gegnum tíðina en ég hef ekki sinnt því
áhugamáli nægilega vel. Mig langar til að byrja að mála aftur af viti
og sjá hvort ég er dauður úr öllum æðum,“ segir Páll, sem hefur
málað í frístundum sínum alla tíð frá því að hann var barn.
Þá ætlar hann að verðlauna sig með ferð til Kanada. „Svo ætla ég
til Kanada í tíu daga og taka því rólega. Þetta eru svona smá verð-
laun til sjálfs mín vegna stórafmælisins.“
Páll á tvö börn, þau Ólaf og Önnu Sigríði, en hann er giftur Sig-
ríði Ólafsdóttur, fyrrverandi héraðsdómara. isb@mbl.is
Páll Sigurðsson er 70 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frístundamálari Mig langar til að byrja að mála aftur af viti og sjá
hvort ég er dauður úr öllum æðum,“ segir Páll, sem er sjötugur í dag.
Lagasnillingur og
frístundamálari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Þær Filippía Þóra
Jónsdóttir og Kristín Dís Karls-
dóttir héldu tombólu á Eyr-
arbakka. Þær söfnuðu 2.585 kr.
og færðu Rauða krossinum
ágóðann.
Hlutavelta
A
nna Rebekka fæddist á
Akureyri 16.8. 1954 og
ólst þar upp: „Ég bjó í
Víðimýri á Brekkunni.
Það var lífleg gata með
stórum krakkaskara sem kom sam-
an á kvöldin til að fara í „slábolt“.
Þá færðu foreldrar bílana sína svo
við gætum leikið okkur.
Ég ólst einnig upp í miklum
íþróttaanda en pabbi var á kafi í
íþróttastarfinu og var reyndar um
tíma formaður KA. Ég held að ég
hafi prófað flestar íþróttagreinar
sem boðið var upp á í bænum en fór
þó mest á skíði og geri það enn.“
Anna var í Barnaskóla Akureyr-
ar, Gagnfræðaskólanum, lauk stúd-
entsprófi frá MA 1974, útskrifaðist
frá Íþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni 1976 og lauk prófum
frá KHÍ 2004. Þá hefur hún sótt
fjöldamörg námskeið í íþróttafræð-
um, dómaranámskeið í fimleikum
og sinnt starfstengdu námi af ýms-
um toga.
Anna hefur kennt við Grunnskóla
á Akureyri frá 1976. Hún sinnti
skíðakennsla við Skíðaskólann í
Hlíðarfjalli 1976-79, vann við
Íþróttaskóla fyrir börn sumrin
1977-79, var þjálfari í frjálsum
íþróttum á sumrin hjá KA 1976-78,
stofnaði, ásamt Þresti Guðjónssyni,
Fimleikaráð Akureyrar, var yf-
irþjálfari þar 1977-88, oft far-
arstjóri þar í keppnisferðum og sat
í stjórn Fimleikaráðs 1980-88,
sinnti danskennslu hjá gömlu-
dansaklúbbnum Sporinu 1977-82,
vann í Dynheimum og var þá m.a.
með gömludansanámskeið fyrir
unglinga, stjórnaði sýningahópum
unglinga og fullorðinna í dansi sem
sýndu víða á Norðurlandi, sinnti
sundkennslu á sumarnámskeiðum á
Akureyri og Dalvík 1984-85 og
kenndi líkamsrækt fyrir konur
1994-2011.
Anna fór fyrir Kjarnakonum,
hlaupahópi kvenna á Akureyri
Anna Rebekka Hermannsdóttir kennari á Akureyri – 60 ára
Skíðaparadís Anna Rebekka með fjölskyldunni í glampandi sól í Hlíðarfjalli sem hún þekkir eins og lófann á sér.
Orkukona á Akureyri
Í garðinum Þau eru mörg handtökin í garðinum sem er heill hektari að stærð.
Matthías Matt-
híasson, raf-
virkjameistari,
Sléttuvegi 23,
er níræður í
dag, 16. ágúst.
Hann heldur
upp á afmæli
sitt með nán-
ustu ættingjum.
Árnað heilla
90 ára
– með morgunkaffinu
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Opið: 8
:00 - 18
:00
mánud
.– fimm
tud.,
8:00 - 1
7:00 fö
stud,
bílalakk
frá þýska fyrirtækinu
Ekki bara fyrir
fagmenn líka
fyrir þig
Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla.
HÁGÆÐA