Morgunblaðið - 16.08.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ef þú ætlar að koma einhverju í verk
í dag þarftu að forðast alla truflun. Láttu
það eftir þér því að vilji er það eina sem
þarf til þess að stefna í rétta átt.
20. apríl - 20. maí
Naut Hlustaðu á þær raddir sem vilja leið-
beina þér og gefa góð ráð, því þær tala af
reynslu. Komdu þér inn í samninga sem
virðast lofa góðu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ljótur ávani að eyða um
efni fram og reyndar stórhættulegt. Frest-
aðu nú ekki lengur því sem þú hefur lofað
að framkvæma.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert fólki sannur innblástur en
hverfur svo á braut á réttri stundu. Skoðaðu
vináttu þína og annarra að þessu sinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það eina sem stendur í vegi fyrir þér
og manneskjunni sem þú vilt verða er einn
ávani eða tveir. Ekki óttast; þetta munu ef-
laust vera ánægjulegar upplýsingar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þig langi að hafa hönd í bagga
með öðrum eru þeirra mál stundum utan og
ofan við þitt færi. Mundu að maki þinn á
ekki síður kröfur á þig en þú á hann.
23. sept. - 22. okt.
Vog Með Júpíter þér við hlið ertu einfald-
lega heppinn. Ef einhver biður þig um álit
veit hann líklega að hann fær það óþvegið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það liggur vel á þér og því
muntu njóta þess að leika þér við börn þín,
maka þinn og vini í dag. Njóttu þess með
þeim sem hafa stutt þig og lagt hönd á
plóg.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt auðvelt með að sjá í
gegnum aðra en vertu sanngjarn því aðrir
geta líka séð í gegnum þig. Tillaga að gervi
fyrir hrekkjavöku: klassísk ofurhetja, ekki
síst ofurmaðurinn eða ofurkonan.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn hentar vel til að gera
ferðaáætlanir með einhverjum nánum þér.
Láttu ekkert koma þér á óvart þegar leitað
verður eftir stuðningi þínum við ákveðið
mál.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það hjálpar þér ekki að taka
skyndiákvarðanir. Gefðu þér nægan tíma,
því enginn árangur næst með því að beita
aðra þvingunum. Hikaðu ekki við að kanna
möguleikana sem þér bjóðast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Búðu þig undir tafir, ruglingsleg tjá-
skipti og að ávísanir týnist í pósti á næst-
unni. Gættu þess að misnota það ekki.
Síðasta vísnagáta var eftir Guð-mund Arnfinnsson:
Þessi er um borð í bát,
býsna langur tími,
fólk ef sér hann fer með gát
fljót á miklu stími.
Og svarar sér sjálfur
Höfð um borð í bát er ár,
býsna langur tími er ár,
vissast er að varast ár,
vaða garpar jökulsár.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Ár í bát er gjarna kennd við glamur
getur sumum fundist árin löng.
Árinn getur verið varasamur.
Víða árnar kyrja þungan söng.
Þá er kominn tími til að rifja
upp gátu eftir séra Svein Víking:
Sú er löngum þrælsins þrá.
Þreyttir starfsmenn hana fá.
Gjöldin synda greidd með fé.
Á gátu hverri hygg ég sé.
Rétt er að minna á, að svar
þarf að berast fyrir miðvikudags-
kvöld.
Davíð Hjálmar Haraldsson
skrifar í Leirinn aukna og end-
urbætta frásögn af viðureign for-
manns fjárlaganefndar við for-
stöðumenn ríkisstofnana o.fl.:
Kvað Vigdís: „Þótt hér sé fólk heppið
þá haldið samt ekki að þér sleppið,
nú athuga þarf
hvert einasta starf“
– og Drottin vorn tók hún á teppið.
„Og eyðslu með röngu þið reynið
að réttlæta – það er nú meinið –
um eldhús og hol
sem olíu og kol“
– og andskotann tók hún á beinið.
Fía á Sandi er áhyggjufull:
Hvað fólkinu fækkar er vandi
í fámennri sveit útá landi.
En í Helvíti og Himni á að spara
hvert eiga bændur að fara?
.
Hallmundur Kristinsson lætur
þess getið á Leirnum, að einn fé-
lagi sinn á fésbók yrki á Boðn-
armiði:
Eta mun ég á mig gat.
Ei skal svangur þrauka.
Ég vil borða mikinn mat
mér til hægðarauka.
„Sá gamli“ er höfundurinn og
segist Hallmundur vona að hann
reiðist sér ekki þótt hann biðji
hann ekki leyfis birta vísuna.
Halldór Böndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vigdís tekur á teppið
efra og neðra
Í klípu
„OG HVAÐ? ÞÚ VISSIR ALVEG AÐ ÞÚ
MYNDIR DEYJA INNRA MEÐ ÞÉR ÞEGAR
ÞÚ TÓKST VIÐ ÞESSU STARFI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA AÐ VEÐJA Á
ÞENNAN GAUR HÉR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ískalt öl.
ENDALOKIN
ERU
YFIRVOFANDI
GÖNGUTÚRAR Í RIGNINGU
ERU RÓMANTÍSKIR.
ÞAÐ ER LÍKA GAMAN AÐ
HLAUPA FRAMHJÁ GARÐÚÐARA!
ÞAÐ ER EKKI
RÓMANTÍSKT!
NEI, EN ÞAÐ ERU
MINNI LÍKUR Á AÐ
VERÐA FYRIR ELDINGU.
EITT STIG
FYRIR
VÆNISJÚKA.
HELGA, ÉG
ER KOMINN
HEIM!
HÆ. ÉG HEF VERIÐ Í
RÁNSFERÐ Í SEX
MÁNUÐI, FJARRI ÞÉR
OG BÖRNUNUM ...
OG ÞÚ
SEGIR BARA
„HÆ“?!
ÉG VAR AÐ FARA AÐ BÆTA VIÐ:
„HVAÐ KOMSTU MEÐ HANDA
OKKUR?“
Matreiðsluþættir í sjónvarpinuhafa löngum heillað Víkverja.
Það er þessi mikla natni sem mat-
reiðslumenn búa yfir og sýna í verki.
Þeir ná að miðla því með einstaklega
vönduðum vinnubrögðum. Þátturinn
sem Víkverji er með í huga er danski
þátturinn sem útleggst á hinu ylhýra:
Hið ljúfa líf. Sætindin eru búin til af
svo mikilli ást að Víkverji fær vatn í
munninn í hvert skipti sem hann gón-
ir á þáttinn.
x x x
Afkvæmi Víkverja, sem er fjögurraára gamalt, þykir þættirnir ekki
síður áhugaverðir. Það spyr sam-
viskusamlega um hvert orð sem hin
sykursæta skvísa lætur falla af
vörum sínum. Móðirin situr því sveitt
við að stauta sig fram úr dönskunni
og þýða á milli þess sem hún les upp
textann samviskusamlega. Sú athöfn
er í sjálfu sér ekki ýkja erfið.
x x x
Málið fer að vandast þegar bláeygtbarnið spyr Víkverja hvers
vegna í ósköpunum þær tvær (móðir
og stúlkubarn) geti ekki reitt fram
álíka kræsingar og hin danska gerir á
einni svipstundu. Víkverji kaldsvitnar
og efri vörin byrjar að kiprast. Í
gegnum huga hans fer ófögur mynd
af síðasta jólahaldi.
x x x
Þá ákvað Víkverji að „skella“ í ísfyrir jólin. Ekki venjulegan ís
heldur rjómaís með vanillubragði.
Þar sem Víkverji er ekki mikið fyrir
dúll og jú, á það til að vera með sletti-
rekuhátt í eldhúsinu. Þá brytjaði
hann alla vanillustöngina niður í ísinn
og skellti í frysti.
x x x
Svipurinn á fjölskyldu Víkverja varekki frýnilegur þegar hún þurfti
að bryðja niðursaxaða vanillustöng í
ísnum. Hún gat þó ekki haldið það út
heldur tíndi eitursvarta stöngina úr
ísnum og brosti annkannalega.
x x x
Ætli Víkverji reyni ekki við heldureinfaldari uppskriftir en það
sem hin danska reiðir fram eins og
hendi sé veifað á skjánum. Kannski
búðing. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu. (Sálmarnir 106:1)