Morgunblaðið - 16.08.2014, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Trompetleikarinn Snorri Sigurðar-
son heldur útgáfutónleika á Jazz-
hátíð Reykjavíkur annað kvöld kl. 23
í Norðurljósasal Hörpu með kvart-
etti sínum og leikur tónlist af nýút-
kominni sólóplötu sinni, Vellir. Plat-
an hefur að geyma níu frumsamin
djasslög eftir Snorra og er fyrsta
sólóplatan hans. Kvartettinn skipa,
auk Snorra, Agnar Már Magnússon
píanóleikari, Richard Andersson
kontrabassaleikari og Einar Schev-
ing trommuleik-
ari og leika þeir
á plötunni með
honum.
„Titillag plöt-
unnar var samið
í sumarbústað á
Þingvöllum síð-
asta haust og um það leyti er ég var
að ákveða nafn á plötuna og vinna í
henni flutti ég á Meistaravelli, frá
Brávallagötu,“ segir Snorri og hlær,
spurður hvaðan titill plötunnar
komi. Því hafi legið beinast við að
nefna plötuna Vellir.
En hvers konar djass má finna á
Völlum? Snorri segir erfitt að lýsa
því. „Þetta er náttúrlega mikill spuni
og ég leitast alltaf eftir því að gera
sterkar melódíur, reyni alltaf að
gera melódíska tónlist. Útgangs-
punkturinn er kannski sá að hlut-
irnir séu lagrænir.“
Byrjaði ungur
Snorri er 37 ára og hefur verið
virkur í íslenskum djassi og poppi
allt frá táningsaldri, m.a. leikið með
SjS Bigbandi, Stórsveit Reykja-
víkur, Jónasi Sig. og Ritvélum fram-
tíðarinnar og á upptökum og tón-
leikum með Sigur Rós, Diktu, Gus
Gus, Tómas R. Einarssyni og Er-
lend Øye.
„Ætli ég hafi ekki verið sextán ára
þegar ég fékk símtal úti í tónlistar-
skóla og var beðinn um að koma í
stúdíó að spila fyrir Borgardætur,“
segir Snorri, spurður hvenær tón-
listarferillinn hafi byrjað. Hann hafi
15 eða 16 ára leikið í sýningu Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti sem
byggð var á kvikmyndinni The Com-
mitments, upp úr því farið að leika á
sveitaböllum og leikið með hljóm-
sveitinni Sælgætisgerðinni á svip-
uðum aldri. „Ég gerði fyrstu plötuna
mína með henni og var síðan í hinu
og þessu. Ég byrjaði mjög ungur,“
segir Snorri.
Snorri segir persónulega túlkun
stóran hluta af djassinum og að hann
hafi lengi stefnt að því að gefa út
sólóplötu með eigin djasstónlist.
„Það er svo mikið sem kemur frá
manni sjálfum þó að maður sé að
spila tónlist annarra. Þetta er svo
náttúrulegur hlutur, þessi sköpun,
að gera hana síðan alveg sjálfur.“
–Þetta eru þungavigtarmenn sem
spila með þér á plötunni, þú hefur
væntanlega leikið með þeim áður?
„Jú, ég hef gert það en Richard er
nýtilkominn. Ég kynntist honum á
námskeiði í Danmörku, hann er ís-
lenskur að hluta til, búsettur núna á
landinu og það er mikill fengur að
hafa hann og Einar og Agnar líka,“
segir Snorri og bætir því við að fé-
lagarnir þrír séu allir æðislegir tón-
listarmenn.
Betra að æfa ekki of mikið
Upptökur á Völlum fóru fram í
Sundlauginni 19., 20. og 21. mars sl.
og sá Birgir Jón Birgisson um upp-
tökustjórn, hljóðblöndun og hljóð-
jöfnun. Snorri segir þrjá upp-
tökudaga fyrir djassplötu nokkuð
ríflegan tíma. „Þeir reyndari gera
þetta jafnvel á tveimur dögum,“ seg-
ir hann og að betra sé að æfa ekki of
mikið áður en í hljóðver er farið. „Ef
maður æfir of mikið fer einhver
spenna úr tónlistinni og manni fer
jafnvel að leiðast. Þá fer maður að
leita að nýjum leiðum af því að
manni leiddist sú síðasta þó að hún
hafi hugsanlega verið sú besta,“ seg-
ir Snorri. Þeim félögum hafi liðið vel
í Sundlauginni. „Það gerast góðir
hlutir þar,“ segir Snorri um hljóð-
verið góða í Mosfellsbæ.
Frá Brávallagötu
til Meistaravalla
Blásið Snorri Sigurðarson fagnar sólóplötu sinni á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Snorri Sigurð-
arson fagnar Völl-
um á Jazzhátíð
Laugardagur 16. ágúst
Bandaríski djasstrommuleik-
arinn Ari Hoe-
nig heldur fyr-
irlestur um
starfsaðferðir
sínar í Kalda-
lóni kl. 14 og er
aðgangur
ókeypis. Hoe-
nig hefur m.a.
þróað aðferð til
að spila laglín-
ur á trommur
sínar og getur með því að
beygja tóninn í hljóðfærum sín-
um spilað hvaða tóna króma-
tíska skalans sem er og spunnið
yfir hljómaganga á sama hátt
og þeir sem leika á hljóma- eða
laglínuhljóðfæri.
Alþjóðlega sveiflusveitin Secret
Swing Society leikur og syngur
á Kolabrautinni kl. 17 og er að-
gangur ókeypis.
Stefán S. Stefánsson saxófón-
leikari heldur útgáfutónleika
með Stórsveit Reykjavíkur í
Norðurljósum kl. 20.
Alþjóðleg sveit djasskvenna
heldur tónleika á Björtuloftum
kl. 21 undir yfirskriftinni La-
dyPower in International Jazz.
Pachora leikur í Norðurljósum
kl. 22.
Valdimar Guðmundsson krúnar
með K tríói á Björtuloftum kl.
23.
Kvintett Björns Thoroddsen
gítarleikara fagnar nýrri plötu í
Norðurljósum kl. 24.
Sunnudagur 17. ágúst
Vinnusmiðja kvenna í djass-
tónlist fer
fram í Kalda-
lóni milli kl.
10-13. Smiðj-
unni lýkur með
tónleikum í
Kaldalóni kl.
13 og er að-
gangur ókeyp-
is. Meðal kenn-
ara eru
Kristjana Stef-
ánsdóttir.
Eini viðburðurinn á Jazzhátíð
Reykjavíkur í ár sem ekki fer
fram í Hörpu verður haldinn í
Kirkju óháða safnaðarins kl.
15. Þar verður flutt þakk-
argjörð til Vernharðs Linnets,
einum helsta velunnara djass-
ins á Íslandi sem stendur á sjö-
tugu.
Píanótríó Ástvalds Traustason-
ar leikur í Norðurljósum kl. 16.
Tómas R. Einarsson bassaleik-
ari fagnar nýrri plötu sinni í
Norðurljósum 20.
Bassaleikarinn Richard And-
erson, trommuleikarinn Andr-
eas Fryland og píanóleikarinn
Aaron Parks koma fram í
Norðurljósum kl. 21.30.
Leikið verður af fingrum fram
á Kolabrautinni kl. 22.30 og er
aðgangur ókeypis.
Trompettleikarinn Snorri Sig-
urðarson fagnar nýrri plötu
ásamt kvartett sínum í Norður-
ljósum kl. 23.
15 djassviðburðir um helgina
Ari Hoenig Kristjana
Stefánsdóttir
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn
Markaður, veitingar,
happdrætti, andlits-
málning og uppákomur.
Fjölskyldudagur á KEX til
styrktar börnum í Palestínu
KEX Hostel 17. ágúst milli 14 og 17
Allur peningur
sem safnast
rennur óskiptur
til hjálparstarfs
Rauða krossins.