Morgunblaðið - 16.08.2014, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Alþjóðlega bókmenntahátíðiní Edinborg stendur nú yfirog margt er um dýrðir
nema hvað, upplestrar og uppá-
komur í massavís en miðstöð hátíð-
arinnar er á Karlottutorgi rétt of-
an við Prinsastræti.
Barnabókmenntum eru gerð ríku-
leg skil á hátíðinni og einn af upp-
lesurum var Aidan Moffat en hann
er hvað þekktastur fyrir að hafa
verið annar helmingur Arab Strap
sem er ein rómaðasta neðanjarð-
arsveit Skota. Las hann upp úr
nýrri barnabók sem hann mun gefa
út í haust en hún kallast The Blue
Lavender Dress.
Glasgow-gaur
Moffat gekk í salinn, Glasgow-
gaurinn sem hann er, í lögskip-
uðum indí-strigaskóm og stutt-
buxum. Skeggið, gráslikjað, ber
hann af miklum myndarbrag og
hann leit barasta vel út með fjörugt
blik í auga. Mikið vatn hefur runn-
ið til sjávar síðan hann og félagi
hans Malcolm Middleton hjuggu til
hið kaldhamraða, raunhyggjulega
neðanjarðarpopprokk sem var ein-
kenni Arab Strap og munaði þá
ekki síst um frábæra texta Moffat,
þar sem hann dró upp sterkar,
skýrar myndir af grátbroslegri öm-
urð með einni eða tveimur setn-
ingum. Það gengur hægar á bjór-
kippuna í dag getum við sagt en
ekkert sér hins vegar á orðfiminni,
eins og heyra mátti er hann þuldi
söguna upp utanbókar fyrir fullum
sal af foreldrum og börnum á aldr-
inum 3 til 10 ára. Sagan fjallar um
Mabel litlu, sem á sér enga ósk
heitari en að eignast nýjan kjól fyr-
ir væntanlegt jólaball. Moffat svar-
aði spurningum úr sal í sögulok en
einnig fékk ungviðið að spreyta sig
á litaleik þar sem átti að lita/hanna
kjól á nefnda Mabel. Höfundurinn
skoðaði myndirnar vandlega og
hafði meira að segja dreift tússlit-
unum sjálfur í upphafi. Moffat var
gefandi og glaður og mjög svo
náttúrulegur í þessu umhverfi
Aidan og ungviðið
Gáski Aidan Moffat er glúrinn textasmiður og nú nýtir hann sér þá guðsgjöf til barnabókaskrifa.
enda orðinn faðir sjálfur og voru
börnin hans tvö á staðnum.
Afasaga
Það er síst nýlunda að tónlist-
armenn leggist í barnabókaskrif.
Madonna, Bubbi, Dolly Parton og
Paul gamli McCartney hafa m.a.
gefið út slík rit. Gæðin eins misjöfn
og höfundarnir eru margir; Court-
ney Love á víst að hafa gefið út
einhverja skelfingu á meðan Colin
Meloy, kenndur við The December-
ists, á að hafa landað meist-
arastykki í þeim fræðunum. Í
spurningatímanum kom ýmislegt
athyglisvert fram, t.a.m. er sagan í
raun ekki Moffats heldur hefur
hún gengið mann fram af manni í
fjölskyldunni og var það afi hans
sem var vanur að segja honum
hana. Hann snikkaði síðan ýmislegt
til og kom henni í nútímabúning ef
svo mætti segja. Það var þá líka
ástæða fyrir fumlausum flutn-
ingnum en Moffat hefur flutt sög-
una reglulega undanfarin ár á tón-
leikum og sent mannskapinn
rólegan út í nóttina eins og hann
orðaði það, kíminn bæði og ker-
skinn. Sagan er haganlega mynd-
skreytt af Emmeline Pidgen, ung-
um og upprennandi teiknara og
barnabókahöfundi, en upprunalega
stóð til að sagan yrði skreytt af
Bandaríkjamanni sem hefur unnið
við ofurhetjusögur á borð við Su-
perman og Batman (nafn hans kom
ekki fram). Þegar botninn datt úr
því, sökum tímaskorts hjá þeim
höfundi, fór Moffat inn á sitt elsk-
aða Tíst og auglýsti þar eftir teikn-
ara. Emmeline gaf sig þar fram
innan fimm mínútna.
Örendi
Moffat hefur verið með mörg
járn í eldi allt síðan Arab Strap
þraut örendi árið 2006. Hann gaf
lítið upp um framhald á þessu svið-
inu, hann fengi stöðugt alls kyns
hugmyndir og ekki nema brota-
broti af þeim væri hrint í fram-
kvæmd. Barnabókaskrif þurfa því
ekki að koma sérstaklega á óvart
frekar en hvað annað, Moffat sann-
aði sig sem mikinn mann orðsins er
hann vann með Arab Strap og að
vera laus við múl hljómsveitar virð-
ist henta honum vel sköpunarlega.
Það að hann veiti þessari náð-
argáfu sinni inn á sem flesta geira
af því taginu sýnist óskaplega eðli-
legt. Hvet fólk t.a.m. til að tékka á
Tístinu hans, en orðheppni hans
þar er slík að hann gæti endað á
auglýsingastofu ef hann passar sig
ekki.
»Mikið vatn hefurrunnið til sjávar
síðan hann og félagi
hans Malcolm Middle-
ton hjuggu til hið kald-
hamraða, raunhyggju-
lega neðanjarðarpopp-
rokk sem var einkenni
Arab Strap
Aidan Moffat, fyrrverandi söngspíra
Arab Strap, gefur út barnabók Flutti
söguna á Bókmenntahátíð Edinborgar
Sýningin Sniffer verður opnuð í dag
kl. 15 í Listasafni ASÍ. Á henni sýna
Erica Eyres og Sigga Björg Sigurð-
ardóttir innsetningu sem þær hafa
unnið í sameiningu en hluta verk-
anna unnu þær þó hvor í sínu lagi.
Innsetningin samanstendur af teikn-
ingum, þrívíðum verkum og mynd-
böndum sem saman mynda marg-
radda frásögn, sögu Sniffers,
lánlausrar útgáfu af Oliver Twist,
söguhetju Charles Dickens, eins og
segir í tilkynningu. „Sniffer er fædd-
ur í júní og því dæmigerður tvíburi.
Ungur var hann yfirgefinn af for-
eldrum sínum og eyddi æskuárunum
einsamall á götunni í stefnulausri
leit að næringu og ást. Sniffer er
klofinn persónuleiki (algengur kvilli
hjá fólki í tvíburamerkinu) sem veld-
ur honum ómældum erfiðleikum og
sársauka þegar hann reynir að finna
sinn stað í tilverunni. Hver er Snif-
fer? Hvaðan kemur hann? Og hvað
er hann búinn að gera við þetta
hús?“ segir í tilkynningu um sýn-
inguna sem verður opin alla daga
nema mánudaga kl. 13-17. Eyres og
Sigga hafa gefið út litla bók með
teikningum og textum sem varpa
ljósi á ömurlega ævi söguhetjunnar,
í tilefni af sýningunni.
Sniffer Kynningarmynd fyrir sýninguna Sniffer í Listasafni ASÍ.
Hver er Sniffer?
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
"Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín!"
-Guardian
"Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!"
-T.V., Biovefurinn.is
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
16
16
L
L
L
12
14THE EXPENDABLES 3 Sýnd kl. 5 - 8 - 10:35 (P)
LUCY Sýnd kl. 6 - 8 - 10
NIKULÁS LITLI Sýnd kl. 2 - 3:55
PURGE Sýnd kl. 10:20
22 JUMP STREET Sýnd kl. 8
AÐ TEMJA DREK... 2D Sýnd kl. 2 - 5
TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 1:50
POWERSÝNING
KL. 10:35
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Jet
LI
Harrison
FORD
Mel
GIBSON
Arnold
SCHWARZENEGGER
Terry
CREWS
Kellan
LUTZ
Ronda
ROUSEY
Glen
POWELL
Robert
DAVI
Sylvester
STALLONE
Jason
STATHAM
Victor
ORTIZ
Kelsey
GRAMMER
Dolph
LUNDGREN
Wesley
SNIPES
Antonio
BANDERAS
Randy
COUTURE
ÍSL.
TAL
ÍSL.
TAL