Morgunblaðið - 16.08.2014, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Bubbi og Hrafnhildur selja …
2. Íslendingar í Noregi eru vinsælir
3. Allt að 30-40 m/s í hviðum
4. Festist í kynlífsleik í eldhúsinu
Björk: Biophilia Live, heimildar-
mynd um síðustu tónleikana í
Biophilia-tónleikaferð Bjarkar, í Alex-
andra Palace í Lundúnum í fyrra,
verður sýnd í Bíó Paradís frá 6. sept-
ember nk. og er Ísland fyrsta landið
sem tekur myndina til almennra sýn-
inga, að því er segir á vef kvikmynda-
hússins. Myndin var Evrópufrumsýnd
í síðasta mánuði á kvikmyndahátíð-
inni í Karlovy Vary í Tékklandi.
Björk: Biophilia Live
sýnd í Bíó Paradís
Einn þekktasti rannsóknarblaða-
maður heims, John Pilger, mun sækja
Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, í næsta mánuði. Pilger hef-
ur gert hátt í 60 heimildarmyndir og
er Þögla uppreisnin (e. The Quiet
Mutiny) að öllum líkindum sú þekkt-
asta, mynd sem hafði mikil áhrif á
viðhorf Bandaríkjamanna til Víet-
namstríðsins. Pilger mun sækja mál-
þing RIFF, Stríð og frið, og fara yfir
flókið samspil fjölmiðla og stríðs-
reksturs, eins og segir í tilkynningu.
Blaðakonan og leikstjórinn Suha
Arraf mun einnig sækja málþingið.
Hún er palestínsk að uppruna, býr í
Ísrael og hefur fjallað mikið um
Hamas-liða í Palestínu. Arraf á m.a.
að baki heimildarmyndina Konurnar í
Hamas (e. Women of Hamas) frá
árinu 2010. RIFF mun frumsýna kvik-
mynd eftir Arraf á hátíðinni, Villa
Touma, sem fjallar um stöðu kvenna
og baráttu þeirra í Palestínu
skömmu eftir hernám Ísr-
aela. Heimildamynd
Pilgers, Ósýnilega stríð-
ið (e. The War You
Don’t See), verður
einnig sýnd á
RIFF.
Heimskunnir blaða-
menn sækja RIFF
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjart með köflum um S- og V-vert landið. Hvessir árla dags fyrir
austan en fer að lægja V-til síðdegis á morgun. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast S-lands.
Á sunnudag Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Dálítil væta öðru hvoru NA- og A-til en
annars bjart með köflum. Hiti 8 til 14 stig að deginum.
Á mánudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og bjart með köflum, en skýjað vestast.
Hiti víða 8 til 16 stig, hlýjast S-lands.
Leiknismenn láta engan bilbug á sér
finna í 1. deild karla í knattspyrnu og
eru komnir með níu stiga forskot á
næsta lið, ÍA. Pepsi-deildin blasir því
við þeim. Skagamenn töpuðu fyrir HK
og því eygja HK-ingar von á að kom-
ast upp, en þeir eru í 3. sæti, tveimur
stigum á eftir ÍA. BÍ/Bolungarvík
komst úr fallsæti, á kostnað KV, með
mögnuðum sigri. »4
HK eygir von um að
fylgja Leikni upp
Stjarnan komst í gærkvöld
á toppinn í Pepsi-deild karla
í knattspyrnu með 2:1-sigri
á Val á Hlíðarenda. Arnar
Már Björgvinsson var í aðal-
hlutverki því hann skoraði
fyrra mark Stjörnunnar,
lagði upp það síðara og tap-
aði svo boltanum í aðdrag-
anda marks Vals. Stjarnan
er í 1. sæti deildarinnar með
35 stig eftir 15 leiki en
Valur í 5. sæti. »2
Flest gengur upp
hjá Stjörnunni
Sannkallaður stórleikur er á dagskrá
á Laugardalsvellinum í dag þegar KR
og Keflavík leika til úrslita í Borg-
unarbikarnum. KR er sigursælast
allra liða í bikarnum, en liðið hefur 13
sinnum hampað bikarnum, síðast
fyrir tveimur
árum. Kefla-
vík hefur
fjórum sinn-
um landað
titlinum.
»2
Bikarinn í Frostaskjólið
eða til Keflavíkur?
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það er stundum eins og það hafi gerst í gær. Ekki
síst þegar menn hittast til að ræða þennan tíma og
rifja upp gömul afrek,“ segir Reynir Vignir, endur-
skoðandi og fyrrverandi formaður Vals. Hann var
meðal leikmanna 5. flokks Vals sem urðu Íslands-,
Reykjavíkur- og haustmeistarar fyrir hálfri öld, en
sumarið 1964 lék liðið tólf leiki, vann 11 þeirra og
gerði eitt jafntefli.
Valsstrákarnir, sem nú eru á sjötugsaldri, flestir
fæddir 1952 en nokkrir 1953, hittust í Lollastúku á
Valsvellinum í gærkvöldi til að spjalla en einnig til
að heiðra Róbert Jónsson, sem þjálfaði í mörg ár
með góðum árangri hjá Val og víðar. Á næsta ári
segir Reynir að tækifæri sé til að heiðra Lárus
Loftsson, sem tók við þjálfun yngri strákanna og
gerði þá aftur að Íslandsmeisturum í 5. flokki 1965.
Hafa haldið sinni barnatrú
Margir strákanna í meistaraliðinu 1964 voru síðar
kjarninn í sigursælum meistaraflokki Vals. Sumir
þeirra, t.d. Ingi Björn Albertsson og Árni Jón Geirs-
son, áttu feður í fremstu röð í boltanum og synir
þeirra hafa fetað í fótsporin. Ingi Björn og Hörður
Hilmarsson voru atvinnumenn í knattspyrnu um
tíma og flestir hafa þeir á einn eða annan hátt komið
að störfum fyrir Val. „Menn hafa haldið sinni
barnatrú,“ segir Reynir.
„Það er ótrúlegt hvað menn muna frá þessum
tíma. Tryggvi Tryggvason, sem skoraði bæði mörk
Vals í úrslitaleiknum við ÍA í ágúst 1964, lýsti því
nýlega fyrir mér hvernig hann skoraði seinna mark-
ið í úrslitaleiknum. Hann komst laglega einn inn
fyrir vörnina, að eigin sögn, og skaut svo eldsnöggt
með tánni, en varnarmaður Skagaliðsins andaði
nánast ofan í hálsmál hans,“ rifjar Reynir upp hlæj-
andi.
Vísir að því sem síðar varð
Reynir hélt nákvæmt bókhald og skráði skil-
merkilega öll úrslit á þessum árum. „Pabbi gaf mér
dagbók í ársbyrjun 1963. Þá var ég búinn að spila
fjóra leiki sem átta og níu ára polli og mundi eftir
þeim. Þegar keppnistímabilið 1963 byrjaði færði ég
leiki sumarsins inn og alla leiki eftir það meðan ég
var í þessu. Frá 1964 skráði ég hverjir spiluðu hvern
leik og hverjir skoruðu. Þarna eru tölulegar stað-
reyndir á blaði og það má kannski segja að þarna
hafi verið kominn vísir að því sem síðar varð,“ segir
Reynir Vignir, vinstri útherji 1964, sem starfað hef-
ur sem endurskoðandi í tæp 40 ár hjá PWC.
Eins og það hafi gerst í gær
Valsmenn hittust og
rifjuðu upp gömul afrek
Ljósmynd/Ragnar Vignir
Valsmenn verðlaunaðir Frá Melavellinum í ágústmánuði 1964. Sveinn Zoëga, stjórnarmaður KSÍ og
síðar heiðursfélagi Vals, afhendir Íslandsmeistarabikarinn að síðasta leiknum loknum. Efsta röð frá
vinstri: Vilhjálmur Kjartansson, Árni Jón Geirsson, Tryggvi Tryggvason, Aron Björnsson, Bergur
Benediktsson og Ingi Björn Albertsson. Miðröð: Einar Óskarsson, Reynir Vignir, Hörður Hilmarsson,
Gústaf Níelsson og Þorsteinn Helgason fyrirliði. Neðsta röð frá vinstri: Sigurður Haraldsson, Jón
Gíslason og Guðmundur Jóhannesson. Baldur Jónsson vallarstjóri fylgist með í glugganum.
Morgunblaðið/Eggert
Þrenning Frá vinstri: Hörður Hilmarsson, Róbert Jónsson og Reynir Vignir á Valsvellinum í gær.