Morgunblaðið - 23.08.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
Meðal ástæðna þess hve illa útsend-
ingar RÚV hafa náðst í Kelduhverfi
og Öxarfirði er að útvarpsmastur
RÚV á Viðarfjalli féll til jarðar vegna
ísingar í byrjun árs.
Á borgarafundi sem almannavarnir
og lögregla stóðu fyrir í Öxarfirði var
nokkuð rætt um léleg útsendingar-
skilyrði Ríkisútvarpsins á hugsanlegu
flóðasvæði. Heimamenn lýstu þar
áhyggjum vegna málsins, enda kæmu
yfirvöld helst skilaboðum til íbúa í
gegnum útvarpið.
„Dreifikerfi okkar er í sífelldri end-
urnýjun. Þar er unnið eftir stóru plani
en svo brugðist við þegar möstur eða
sendar bila,“ segir Gunnar Örn Guð-
mundsson, forstöðumaður tæknisviðs
hjá RÚV. „Upphaf vandamálsins
þarna er að það hrundi hjá okkur
mastur á Viðarfjalli í byrjun árs og
það er meiriháttar mál, bæði hvað
varðar vinnu og peninga, að ganga frá
því og koma öðru mastri upp.“
Mastrið, sem var 48 metra hátt, gaf
eftir undan vindi vegna mikillar ísing-
ar hinn 1. janúar. Eftir það lágu FM-
útsendingar RÚV niðri í Kelduhverfi
og Öxarfirði. Langbylgjuútsendingar
nást eftir sem áður vel á svæðinu, auk
þess sem stafrænar útsendingar og
netþjónusta eru með eðlilegum hætti.
„Það er því ekki hægt að segja að þótt
FM-útsendingar falli niður sé öryggi
stefnt í hættu,“ segir Gunnar Örn.
RÚV hefur unnið með sérfræðing-
um Vodafone að því að setja upp nýj-
an búnað til að bæta það sem brást,
bæði með nýju loftneti á Viðarfjalli og
viðgerð á loftneti í Auðbjargarstað-
arbrekku. Gunnar Örn bendir á að
dreifikerfi RÚV sé mikið að umfangi
og samanstandi af tæplega 200 FM-
og langbylgjusendum um allt land,
auk stafrænna sjónvarpsútsendinga
sem innihaldi útvarpsútsendingar og
gervihnattaútsendingar auk dreifing-
ar ruv.is í gegnum net.
„Markmið Ríkisútvarpsins hefur
ætíð verið að bæta dreifikerfi sitt og
það hefur alls ekki breyst. Vonast er
til að efla dreifikerfi RÚV á næstu ár-
um.“
Mastrið féll í janúar
Nýtt útsendingarmastur fyrir möguleg flóðasvæði sett upp
Morgunblaðið/Kristinn
RÚV Útsendingar hafa náðst illa í
Kelduhverfi og Öxarfirði.
Varar við flugi yfir Heklu
Lítill fyrirvari gosa úr fjallinu og öflugur gosstrókur skapar hættu fyrir flugið
Prófessor í jarðeðlisfræði telur að varasamt geti
verið að fljúga yfir Heklu vegna hættu á að hún
gjósi með litlum fyrirvara. Hann segir hættu á því
að grunlaus flugmaður geti flogið inn í gosstrók
með skelfilegum afleiðingum og rifjar upp að litlu
hafi munað að svo færi í byrjun gossins 1980.
Ábendingin kemur fram í bréfi sem Páll Einars-
son sendi Samgöngustofu og birt er á vefnum allt-
umflug.is. Hann tekur fram að hann hafi ekki í huga
þá almennu hættu sem stafi af því að fljúga yfir
virkt eldfjall enda séu 30 slík á Íslandi og lítil
áhætta að fljúga yfir þau flest.
Hann nefnir að Hekla virðist óvenju vinsæl meðal
flugmanna því 10–20 stórar farþegavélar fari beint
yfir fjallið á degi hverjum. Í úttekt sem vefurinn
gerði á fjölda véla sem fara um flugleiðina yfir
Heklu kemur fram að í fyrradag fóru nítján flug-
vélar þar um, þar af sautján farþegaþotur. Páll seg-
ir að Hekla skeri sig einnig frá öðrum eldfjöllum
vegna þess að hún hafi verið að undirbúa gos í fjór-
tán ár.
Loks segir Páll að hættan við Heklu sé meiri
vegna þess að mælanlegur fyrirvari gosa sé þar
óvenju stuttur, eða 23–79 mínútur, samkvæmt
reynslu síðustu áratuga. Bendir prófessorinn á að
ekki sé víst að hægt verði að gefa út viðvörun vegna
næsta goss. Við þetta bætist að byrjunarfasi Heklu-
gosa sé óvenjulega öflugur og gosstrókurinn rísi
hratt. „Almennar reglur og vinnulagi í sambandi við
flug og eldgos duga því tæpast hér, þótt þær geti
verið gagnlegar við önnur eldfjöll,“ segir Páll í bréf-
inu til Samgöngustofu.
Leiðin verði færð um 10 kílómetra
Í samtali við alltumflug.is segir Páll að það geti
tekið gosmökkinn 5–20 mínútur að rísa upp í flug-
hæð. Hann metur það svo að aðeins þyrfti að færa
flugleiðina um 10 kílómetra í norður eða suður til að
vera öruggur og minnka áhættuna. Samgöngustofa
gaf þau svör að engar takmarkanir væru á flug-
umferð nema gos væri fyrirséð eða þegar hafið.
Mælanlegur fyrir-
vari gosa í Heklu er
óvenju stuttur
Páll Einarsson
Lottóspilarar
geta heldur bet-
ur farið að
hlakka til
kvöldsins því nú
er lottópott-
urinn sjöfaldur.
Samkvæmt
upplýsingum
frá íslenskri
getspá stefnir
því allt í að
potturinn verði heilar 75.000.000
króna.
Í síðustu viku var fyrsti vinn-
ingur tæpar 60.000.000 króna og
voru tölurnar þá 1, 3, 16, 33 og 35.
Bónustalan var 27. Tveir hlutu bón-
usvinning í síðustu viku og fékk
hvor þeirra 337.900 krónur.
Sjöfaldur pottur
með 75 milljónum
Sjór, sjósunds- og sjóbaðsfélag
Reykjavíkur, efndi til hins árlega
Viðeyjarsunds í gær en synt var
frá Skarfakletti út í Viðey sem er
um 910 metra sundsprettur.
Lögðu kapparnir af stað klukkan
hálfsex og var val á milli þess að
synda aðra leiðina eða báðar.
Ágætisveður var á svæðinu þegar
sundfólkið lagði af stað og var
sjórinn í kringum 12 stig. Að
loknu sundinu var þátttakendum
boðið í Laugardalslaugina sem
mörgum þótti vafalaust kærkomið.
Þegar ljósmyndara bar að var
ekki annað að sjá á fólki en að
það væri einbeitt og til í átökin
sem framundan voru.
Mikill kraftur í sjó-
sundsfólki á leið í Viðey
Morgunblaðið/Eggert
Sundgörpum boðið í Laugardalslaugina eftir átökin
Stuð Hátt í 100 manns tóku þátt í sundinu og fylgdu kajakræðarar með.
Göngukona
meiddist í gær á
fæti ofarlega í
Reykjadal. Voru
því björgunar-
sveitir í Árnes-
sýslu kallaðar út
en í fyrstu var
talið að bera
þyrfti konuna
töluverðan
spotta til þess að
koma henni undir læknishendur.
Þegar björgunarmenn mættu á
vettvang var hins vegar hægt að
koma björgunarsveitabíl að slys-
staðnum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
segir í tilkynningu að konan hafi
um klukkan hálffjögur verið komin
um borð í björgunarsveitabíl sem
ók með hana til móts við sjúkrabíl.
Var hún svo flutt með honum á
sjúkrahús til aðhlynningar.
Kona slasaðist á
fæti í Reykjadal
Björgunarsveitir
voru kallaðar út.
Samningar náð-
ust ekki í sumar
um áframhald-
andi aðkomu al-
mannatengsla-
fyrirtækisins
Athygli að
rekstri Evr-
ópustofu hér á
landi. Lauk
henni því 28. júlí
sl. Runnu á sama
tíma út ráðningarsamningar starfs-
manna Evrópustofu. Hjá Evr-
ópustofu störfuðu samtals fimm í
rúmlega fjórum stöðugildum, þar
af var einn starfsmaður Athygli.
Starfsmenn Evrópu-
stofu hættir
Alls störfuðu fimm
hjá Evrópustofu.