Morgunblaðið - 23.08.2014, Síða 6

Morgunblaðið - 23.08.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Kaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Engin merki eru um að skjálfta- virkni í kringum Bárðarbungu fari að linna í bráð. Virknin hófst aðfara- nótt laugardagsins 16. ágúst og hef- ur haldið óslitið áfram síðan. Um 25 kílómetra berggangur hefur mynd- ast á 5 til 10 kílómetra dýpi undir Dyngjujökli. Hef- ur hann lítið lengst síðustu daga en kviku- flæði virðist enn vera eftir honum og eru vísbend- ingar um að hann sé nú að greinast í norðausturend- anum. Frá upphafi virkninnar hafa færslur lands á yfirborði verið mældar með GPS-mælum. Hafa færslurnar verið yfir 14 cm á Dyngjuhálsi, um 15 til 20 kílómetr- um frá bergganginum. Til saman- burðar má benda á að Ísland gliðnar um tæpa 2 cm á hverju ári. Lengi leynst undir ísnum Guttormur Sigbjarnarson jarð- fræðingur skrifaði töluvert um eld- stöðvar í norðanverðum Vatnajökli á tíunda áratug síðustu aldar, þar sem hann tók saman niðurstöður rann- sókna sinna og annarra. Hann telur að eldstöðin Bárðarbunga hafi löngum verið vanmetin. „Hún er svo hulin jökli að það hef- ur lengi reynst erfitt að fá skýra mynd af henni, þrátt fyrir að marg- an grunaði að þarna undir ísnum leyndist stærðarinnar askja,“ segir Guttormur og bætir við að Bárð- arbunga gæti haft víðtækari áhrif en ljóst þætti við fyrstu sýn. „Vitað er að gos og hlaup hafa komið frá svæðinu við Hamarinn suðvestan við Bárðarbungu og ein- hver tengsl gætu verið á milli Bárð- arbungu annars vegar og Dyngju- fjalla og Kverkfjalla hins vegar. Ósköp lítið er þó hægt að fullyrða um það með einhverri vissu.“ Helgi Björnsson jarðeðlisfræð- ingur hefur í áratugi mælt þykkt Vatnajökuls með svokallaðri íssjá, til að öðlast þekkingu á því hvernig landið liggur undir jöklinum, en á meðfylgjandi mynd má sjá afrakstur þeirrar umfangsmiklu vinnu. Almannavarnarfundur var í gær haldinn á Egilsstöðum, þar sem fulltrúar almannavarna, lögreglu og vísindamanna ræddu stöðuna á áhrifasvæði hugsanlegs flóðs og þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í á undanförnum dögum. Vísindamenn frá Veðurstofunni hafa ferðast um jökulinn og komið fyrir jarðskjálfta- og GPS-mælum við bæði Hamarinn og Dyngjujökul. Vatnamælingamenn hafa einnig ver- ið við störf á svæðinu norðan Vatna- jökuls, sem enn er lokað almenningi. Mörg hundruð manna um landið allt hafa unnið að því að búa sam- félagið undir eldgos í Bárðarbungu og hafa tugir stofnana komið að þeirri vinnu, að sögn Víðis Reyn- issonar, deildarstjóra almanna- varnadeildar ríkislögreglustjóra. Landið hvergi hrjóstugra Fyrir atburði undanfarinnar viku hafði engin sérstök viðbragðsáætlun verið gerð sem varðaði þá vá sem stafar af eldgosi í norðanverðum Vatnajökli og jökulhlaupi í kjölfarið. Enda hefur langur tími liðið síðan Bárðarbunga bærði síðast á sér, þó að landslagið norðan jökulsins beri því enn merki, eins og segir í grein Guttorms um eldstöðvar í Vatna- jökli, sem birtist í tímariti hins ís- lenska náttúrufræðifélags árið 1995: „Fram á 20. öld var svæðið norðan við Vatnajökul svo afskekkt og fáfar- ið að fyrir kom að eldsumbrot á svæðinu uppgötvuðust fyrst þegar menn fundu þar nýlega runnin og áður óþekkt hraun. Hvergi er Ísland hrjóstrugra en einmitt hér, gróð- urvana hraun á stórum svæðum, orpin framburði jökulvatna. Í þess- ari lífvana eyðimörk er jörðin kvik.“ Bárðarbunga lengi leynst undir ís  Hundruð manna hafa unnið að því að búa samfélagið undir hugsanlegt eldgos  25 kílómetra berggangur hefur myndast undir Dyngjujökli  Jarðfræðingur telur eldstöðina hafa verið vanmetna Mynd/Jöklar á Íslandi eftir Helga Björnsson Hulið jökli Þessi tölvugerða mynd, sem unnin er eftir rannsóknum Helga Björnssonar jarðeðlisfræðings, sýnir hvernig landið liggur undir stærsta jökli Evrópu. Ljóst er að askja Bárðarbungu er gríðarstór og víðfeðm. Tungnaárjökull Bárðarbunga Grímsfjall Guttormur Sigbjarnarson Skammt frá Dyngjujökli er nokkuð sérstæður flugvöllur en Ómar Ragnarsson hefur ásamt öðrum annast gerð vallarins. Flugvöll- urinn er á milli Brúarjökuls og Kárahnjúka og er því austan við Dyngjujökul og Bárðarbungu. Hann er alþjóðlega viðurkenndur og tryggður fyrir allar flugvélar sem á annað borð mega lenda á honum. Þegar Morgunblaðið náði tali af Ómari var hann staddur á flugvell- inum ásamt vinum sínum en þeir voru að halda upp á tíu ára afmæli flugvallarins. „Við komum hingað á þremur flugvélum, hér er logn, heiðskírt og hlýtt, við sitjum hérna undir flugstöðinni og borðum morg- unmat.“ Flug- stöðin sem Ómar nefnir er ekki af venjulegu gerð- inni, heldur er það húsbíll sem notaður er sem slík. „Flugvöllurinn er sá næststærsti hér á landi á eftir Keflavíkur- flugvelli. Hann er með fimm brautir og er lengsta brautin 1.300 metr- ar.“ Ómar segir flugvöllinn vera lítið notaðan. „Hann var fyrst og fremst hugsaður sem völlur sem hægt væri að nota til vara ef eitthvað kæmi fyrir flugvélar á flugi yfir hálend- inu norðan Vatnajökuls.“ Þá hefur hann lítil varanleg áhrif á umhverfið. „Ef við myndum hætta að nota hann myndu öll ummerki vera farin ári seinna,“ segir Ómar. Flugvöllurinn mun vera vel stað- settur, og segir Ómar að hann sé ekki á neinu hættusvæði. „Ég er samt ekki nema eina eða tvær mínútur að fljúga á það svæði sem nú er mest í deiglunni og gæti orðið fyrir hamförum á næstunni.“ Fimm flugbrautir skammt norðan Vatnajökuls Flugvöllurinn ekki í hættu Ómar Ragnarsson Ljósmynd/Ómar Ragnarsson Bárðarbunga heitir eftir landnámsmanninum Bárði Heyangurs-Bjarnasyni, sem nam Bárðardal, samkvæmt upplýsingum frá Vísindavef Háskóla Ís- lands. Þótti honum sunnanvindarnir blíðari en þeir sem blésu að norðan og taldi hann því landkosti vera betri fyrir sunnan heiðina. Fluttist hann búferlum yfir hálendið og fór Vonarskarð, sem síðan heitir Bárðargata. Nam hann síðan Fljótshverfi og bjó að Gnúpum, en eftir þessa för hét hann Gnúpa-Bárður. Gnúpur, bústaður hans sunnan fjalla, heitir nú Núpar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á flugi Bárðarbunga séð ofan úr þyrlu. Víst er að slíkum tækjum var ekki til að dreifa þegar landnámsmaðurinn Bárður lagði leið sína suður með jökli. Af hverju Bárðarbunga?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.