Morgunblaðið - 23.08.2014, Page 21

Morgunblaðið - 23.08.2014, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er svolítið annað þegar heima- menn standa að svona verki. Það fær meiri meðbyr,“ segir Þorfinnur Þór- arinsson, bóndi á Spóastöðum og for- ystumaður í Landgræðslufélagi Biskupstungna, um uppgræðslustarf félagsins. Landgræðslufélagið hefur grætt upp rofabörð og örfoka sanda á Biskupstungnaafrétti. Umhverfisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti landgræðsluverð- laun 2014, við athöfn í félagsheim- ilinu Aratungu í gær. Verðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasam- tökum og skólum sem unnið hafa að landgræðslu og landbótum. Til- gangur Landgræðslunnar er að vekja athygli þjóðarinnar á fórnfúsu starfi þjóðfélagsþegna og hvetja aðra til dáða. Verðlaunahafarnir í ár eru Eiríkur Jónsson, bóndi í Gýgjarhólskoti og Stóru-Vogaskóli í Vogum, auk Þor- finns Þórarinssonar á Spóastöðum. Heyrúllur mikið notaðar „Það kom til af því að menn höfðu miklar áhyggjur af moldroki á af- réttinum. Margt fé var um 1970 og sáu menn að það stefndi í óefni,“ seg- ir Þorfinnur um aðdragandann að stofnun félagsins. Sveitarfélagið og sauðfjárbændur hófu uppgræðslu á afréttinum. Landgræðslufélagið tók við þessum verkefnum fyrir tuttugu árum og var þeim tímamótum fagn- að í ár með hópferð inn á afréttinn og í Haukadalsskóg. Þorfinnur segir að félaginu hafi gengið vel að fylgja eft- ir þessum verkefnum, eftir að það tók við þeim. Áætlað er að búið sé að loka og græða upp 14-18 kílómetra af rofa- börðum í Hvítárnesi og víðar. Þá hafa örfoka sandar verið græddir upp og torfur á fallandi fæti teknar í fóstur. Stærsta verkefnið nú er að græða upp 70 hektara moldarflag við Lambafell. Félagið hefur mikið notað heyrúll- ur við uppgræðslustarfið og hefur efni úr 300-500 rúllum verið dreift á hverju ári, auk 25-40 tonna af áburði. Félagið heyjar sjálft gömul tún til að nota í þessum tilgangi og fær auk þess rúllur sem bændur ekki geta nýtt. Starfið er mikið unnið í sjálfbo- ðaliðsvinnu en reynt að greiða mönn- um fyrir vélavinnu. „Menn eru ekki kröfuharðir ef þeir fá að fara inn í af- rétt. Þegar menn sjá árangurinn er líka léttara að fá fólk til að taka þátt.“ Félagið ræktar einnig upp land- græðslufólk framtíðarinnar með fræðslustarfi og samstarfi við Reyk- holtsskóla. Ljósmynd/Áskell Þórisson Fjöregg Verðlaunahafar landgræðsluverðlauna með ráðherra og landgræðslustjóra, Sigurður Ingi Jóhannsson, Ei- ríkur Jónsson, Þorfinnur Þórarinsson, Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla, og Sveinn Runólfsson. Starf heimamanna fær meiri meðbyr  Landgræðsluverðlaun 2014 afhent í gær  Landgræðslufélag Biskupstungna hefur grætt upp 14-18 kílómetra af rofabörðum auk örfoka sanda og flaga Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu Bændur græða land- ið frá árinu 1994. Hann hefur haldið áfram starfi föður síns, Jóns Karlssonar, við land- græðslustörfin, grætt upp mela og rofabörð með tilbúnum áburði og húsdýraáburði og gjörbreytt ásýnd og nýting- armöguleikum jarðarinnar. Eiríkur hefur jafnframt farið fyrir hópi manna sem safnað hafa heyrúllum og flutt inn á Biskupstungnaafrétt til að græða upp rofabörð og mold- arflög. „Starf Eiríks og fjöl- skyldunnar í Gýgjarhólskoti hef- ur sýnt að hægt er að stunda búskap í sátt við landið og skila því í betra ástandi til komandi kynslóða,“ segir í rökstuðningi. Nemendur og kennarar Stóru-Vogaskóla í Vogum hafa sinnt uppgræðslu í nágrenni skólans í þrjá áratugi. Á vorin er einum kennsludegi varið til upp- græðslunnar. Í rökstuðningi segir: „Skólinn vill vera til fyrirmyndar í um- hverfismálum. Rusl er flokkað, leitast er við að spara orku, bæta nýtingu matvæla og á vor- in fara allir út og hreinsa rusl í þéttbýlinu í Vogum.“ Búið í sátt við landið BÓNDI OG SKÓLI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.