Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 42

Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Ísak Már Jóhannesson er nemi í líffræði við Háskóla Íslands ogheldur upp á 25 ára afmælið sitt í dag. Áhugi hans á líffræðinnier eftirtektarverður en hann eyddi liðnu sumri í Berlín við starfsnám hjá The Instute of Zoo and Wildlife Research þar sem hann sinnti m.a. rannsóknum á því sviði. Hann nýtti þó tíma sinn ut- an landsteinanna einnig í ferðalög og gerði sér ferð til Leipzig í Þýskalandi þar sem hann sótti techno-tónlistarhátíð og skemmti sér konunglega. Frítíminn fer þó að öllu jöfnu í hefðbundnari hluti eins og útivist og fjallgöngur með góðum vinum ásamt því að skella sér í frisbígolf þegar vel viðrar. Ekki stóð á svari þegar talið barst að óskaafmælisgjöfinni þetta árið sem reyndist vera borvél. „Það má segja að ég sé þegar búinn að fá óskaafmælisgjöfina og ég vissi ekki einu sinni að þetta væri hún,“ segir Ísak sem áttar sig nú enn betur á mikilvægi þess að eiga eina slíka á heimilinu. Afmælisdagurinn er þéttskipaður og hefst hann á ferð til Sand- gerðis á vettvangsnámskeið í vistfræði þar sem skoðaðar verða fjörur á staðnum. Um kvöldið er ferðinni svo heitið í Öskjuhlíðina þar sem grillaðar verða pylsur ofan í mannskapinn og árunum tutt- ugu og fimm fagnað af miklum ákafa. „Allir eru velkomnir sem vilja koma, í holuna bak við Keiluhöllina,“ segir Ísak. laufey@mbl.is Ísak Már Jóhannesson er 25 ára í dag Afmælisbarn Ísak hefur óbilandi áhuga á líffræði og er nýkominn frá Berlín. Í frítíma sínum spilar hann frisbígolf og stundar útivist. Ferðalangur í frisbígolfi Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. G eorg Aspelund Þorkels- son fæddist 23. ágúst 1974 í Keflavík. Hann ólst þar upp til fjögurra ára aldurs en flutti þá til Grindavíkur og var öll grunnskóla- árin þar. Svo flytur fjölskyldan aftur til Keflavíkur 1993. Georg flytur síð- an ásamt fjölskyldu sinni til Reykja- víkur 2000 og búa þau nú í Mosfells- bæ. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, útskrifaðist þaðan úr grunndeild rafiðna og fór síðan í raf- eindavirkjun í Iðnskólanum í Reykja- vík. Hann er nú í leiðsögunámi í Háskóla Íslands. Á og rekur Discover Iceland Georg vann ýmis störf sem ung- lingur, var í fiski, mikið í verslun, t.d. Kaupfélagi Suðurnesja, var flokks- stjóri hjá bænum og seldi bílavara- hluti og rafmagnstæki í Stapafelli í Georg Aspelund Þorkelsson framkvæmdastjóri – 40 ára Í Sankti-Pétursborg Fjölskyldan við Leníngrad-torg, frá vinstri: Karen, Elín, Esther og Georg. Úr tölvubransanum í ferðaþjónustuna Afmælisbarnið Georg fer með 3.000 farþega á hálendið á ári hverju. „Íslendingar“ er nýr efnis- liður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is • BLI A3 MFP Line of the Year 2013 • BLI A3 MFP Line of the Year 2012 • BLI A3 MFP Line of the Year 2011 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.