Morgunblaðið - 23.08.2014, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég kann litlar skýringar áþví af hverju ég lagðistyfir NWOBHM sveitinaSaxon nú um daginn
(þýðing: New Wave Of British
Heavy Metal). Jú, reyndar, ég er
með skýringu. Ég hef alltaf verið
hrifinn af tónleikaplötu hennar, The
Eagle Has Landed, en hún inniheld-
ur beint af augum, „ekkert kjaftæði“
rokkara með nöfnum eins og „Mot-
orcycle Man“ og „Heavy Metal
Thunder“. Þennan dag vantaði mig
sæmilega heilalausa en stuðgefandi
tónlist þar sem ég var að klára eitt-
hvert verkefnið og Saxon skaut þá
upp í kollinn. Einfaldlega.
Pönk og þungarokk
Þessi yfirlega reif hins vegar upp
ýmsar pælingar sem nú verða viðr-
aðar. Ég fór að hugsa um hina
ágætu bók Simon Reynolds, Ret-
romania, þar sem hann leggur upp
með þá kenningu að poppmenning í
dag sé háð, og í raun með þráhyggju,
gagnvart eigin fortíð. Það skýri þá
staðreynd að 30 og 40 ára gamlar
hljómsveitir spila í dag fyrir marg-
falt fleiri aðdáendur en þær áttu
nokkru sinni kost á í árdaga. Saxon
fellur hér eins og flís við rass.
NWOBHM bylgjan var ekki lang-
líf (1979 – 1981 ca) en áhrifin því
meiri, t.a.m. er bandarískt frum-
þrass (Metallica o.fl.) skilgetið af-
kvæmi þeirra hræringa. Iron Mai-
den, Def Leppard og Saxon eru jafn-
an tilteknar sem helstu sveitir
senunnar. Þessi nýbylgja bresks
þungarokks þreifst á vissan hátt á
hugmyndafræði pönksins, það skipti
ekki máli hvað þú gætir heldur hvað
þú gerðir og flóðbylgja hráslagalegs
bárujárnsrokks á litlum, óháðum
merkjum skall af miklum krafti á
Bretlandseyjum. En ólíkt pönk-
urunum horfðu þessir rokkarar sem
bergnumdir til rokkhetjanna frá átt-
unda áratugnum; Deep Purple, Whi-
tesnake, Aerosmith og þeirra líka.
Það var því einnig þumlað af krafti í
gegnum rokkklisjubókina.
Hótfyndni almættisins
Iron Maiden lifði af upprunalegu
flóðbylgjuna og varð að vinsælustu
þungarokkssveit heims á níunda
áratugnum, fagurfræði hennar öll og
háttsemi alveg einstaklega ensk. Def
Leppard, sem kemur frá Sheffield,
var hins vegar með dollaramerki í
augunum og amerískur hljómur
hennar rataði á endanum til þeirra
sem sveitin var að reyna að höfða til
(plata hennar frá 1983, Pyromania,
seldist í tíu milljón eintökum í
Bandaríkjunum og platan sem kom
út þar á eftir, Hysteria, seldist enn
betur). Saxon, sem koma frá
krummaskuðinu Barnsley, lék hins
vegar einstaklega sjarmerandi, bjór-
legið tuddarokk og á tímabili stóð
hún jafnfætis þessum tveimur ris-
um. Það er stórkostlegt að skoða
gamlar myndir af Saxon, meðlimir
líta út eins pípulagningamenn sem
var varpað í þungarokksklæðnað
fyrir einhverja hótfyndni almætt-
isins. Algjörir gaurar eða „lads“ eins
og Bretinn segir. Saxon missti hins
vegar rækilega fótanna með plöt-
unni Power & the Glory (1983) en
innihaldið þar er í skarpri andstöðu
við titilinn. Aldrei lagði hún þó upp
laupana, „gaurarnir“ bitu einfald-
lega í saxnesku skjaldarrendurnar
og þolinmæðin skilaði þeim loks í
fang fortíðarvindanna sem næða svo
hressilega um popplendur í dag.
Saxon gefur nú reglubundið út plöt-
ur og heldur tónleika um heim allan
fyrir fullum húsum.
Lifandi safngripir
Biff Byford, söngvari Saxon (já,
hann er jafn svakalegur þessi maður
og nafnið gefur til kynna) tilkynnti
fyrir stuttu á vefsetri Saxon að sveit-
in hefði hlaðið í tuttugustu hljóð-
versplötuna. Það eru merkilega
margar sveitir, samtíða Saxon, sem
búa við svipuð skilyrði í dag. Þegar
maður sér auglýsingar um þunga-
rokkshátíðir mætti halda að þær
væru frá 1984 fremur en 2014. Þess-
ar sveitir eru starfandi en fæstar
þeirra eru í fullu fjöri eins og gjarn-
an er sagt. Hljóðversplöturnar nýju
slaga aldrei upp í fyrri tíma afrek og
tónleikum er oft og iðulega landað
með herkjum. Ekkert af þessu
skiptir þó sköpum þar sem fólk er
jafnan komið til að berja lifandi safn-
gripi augum. Glúrnustu gripirnir
vita þetta og spila meðvitað inn á
þessa þörf – já, þessa þráhyggju -
fólks. Frægðin varð aldrei jafn
stjarnfræðileg og Biff og félagar
hefðu efalaust viljað en af seiglu áttu
þeir greinilega nóg. Það er vissulega
bölvun og blessun sem fylgir „ret-
rómaníu“ Reynolds; úr sér gengnir
hundar taka upp pláss sem betur
væri varið í aðra en um leið er líka
svigrúm fyrir þá sem hafa sýnt fram
á að allt er áttræðum fært. Lýk
þessu með vísun í hallærislínur úr
einum af slögurum Saxon: „Never
surrender / When you’re up against
the wall / Never surrender / Stand
up, fight them all.“
Tónlistarleg stríðshross
Eldgamlar hljómsveitir hafa aldrei haft það jafngott og núna Þráhyggja gagnvart eigin fortíð
Eitt af mýmörgum dæmum er þungarokkssveitin Saxon, sem enn siglir seglum þöndum
Hei þú! Biff Byford, söngvari Saxon, veit upp á hár hvað hann vill.
» Aldrei lagði hún þóupp laupana, „gaur-
arnir“ bitu einfaldlega í
saxnesku skjaldarrend-
urnar og þolinmæðin
skilaði þeim loks í fang
fortíðarvindanna sem
næða svo hressilega um
popplendur í dag
„Ég hef alltaf verið spenntur fyrir
sembalnum sem hljóðfæri, en þetta
er gjörólíkt píanóinu þó að hljóð-
færin tvö séu útlitslega ekki alveg
ósvipuð,“ segir Árni Heimir Ingólfs-
son, sem heldur sembaltónleika í
Hannesarholti í dag kl. 14.
„Ég var svo heppinn að fá lista-
mannalaun og eitt þeirra verkefna
sem ég hef verið að vinna að er að
læra meira inn á þetta hljóðfæri, en
ég lærði aðeins á það í námi mínu í
Bandaríkjunum á sínum tíma,“ segir
Árni Heimir, sem tekið hefur einka-
tíma í semballeik bæði hér- og er-
lendis síðastliðin tvö ár.
Spurður um efnisskrá tónleikanna
segist Árni Heimir munu bjóða upp
á ferðalag um barokkið og leika
verk eftir Girolamo Frescobaldi,
William Byrd, Antoine Forqueray
og J.S. Bach. „Efnisskráin spannar
því allt barokktímabilið og fjögur
lönd, þ.e. Ítalíu, England, Frakkland
og Þýskaland,“ segir Árni Heimir,
sem fræða mun tónleikagesti um
bæði tónskáldin og hljóðfærið sjálft.
Aðgangur er ókeypis.
Sembaltónar í
Hannesarholti
Fagurskreytt Hljóðfærið sem Árni Heimir leikur á var smíðað af Marc Du-
cornet í París 2011, en allnokkur biðtími er eftir handsmíðuðu hljóðfæri.
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Róðarí (Aðalsalur)
Þri 16/9 kl. 20:00 Sun 28/9 kl. 20:00
Lau 20/9 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00
LÓKAL (Aðalsalur)
Mið 27/8 kl. 12:00 Fös 29/8 kl. 20:00 Sun 31/8 kl. 20:00
Fim 28/8 kl. 20:00 Lau 30/8 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 7/9 kl. 14:00 Sun 21/9 kl. 14:00
Sun 14/9 kl. 14:00 Sun 28/9 kl. 14:00
Kameljón (Aðalsalur)
Lau 6/9 kl. 20:00 Sun 21/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00
Fös 12/9 kl. 20:00 Lau 27/9 kl. 20:00
Petra (Aðalsalur)
Fös 29/8 kl. 19:00 Fös 5/9 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 19:00 Fim 11/9 kl. 20:00
Full búð af
nýjum vörum
Kringlunni 4
Sími 568 4900