Morgunblaðið - 23.08.2014, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Varasamt að fljúga yfir Heklu
2. Sá stærsti hingað til
3. Stýrir Jafnréttisstofu án bílprófs
4. Svona er hin týpíska íslenska kona
Nú styttist óðfluga í tónleika
poppgoðsins Justins Timberlake í
Kórnum í Kópavogi en þeir hefjast
annað kvöld, sunnudag, klukkan
19.30. Tónleikarnir eru hluti af The
20/20 Experience heimstúr kapp-
ans og hefur verið birtur lagalisti
fyrir kvöldið. Um er að ræða 32 lög
en þar á milli eru flest af hans
þekktustu lögum. Meðal þeirra má
nefna Rock Your Body, My Love, Cry
Me a River, Señorita og SexyBack.
Að sjálfsögðu getur eitthvað komið
upp í skipulaginu en að öllu
óbreyttu endar kappinn síðan á lag-
inu Mirrors sem tekið er af plötunni
The 20/20 Experience sem kom út í
fyrra.
AFP
Lagalisti Justin Tim-
berlake kominn á netið
Snorri Ásmundsson verður með
þátttökugjörning í Listasafni Ís-
lands í dag milli kl. 17 og 19. Um
árabil hefur Snorri tekið tveggja
mínútna löng vídeó-portrett af
fólki í sínu nánasta umhverfi, m.a.
af þjóðþekktum einstaklingum. Í
dag mun hann sjálfur sitja fyrir í
eigin verki og býður jafnframt
gestum og gangandi
að sitja fyrir. Hver
upptaka er tvær mín-
útur en samantekt
portrett-verkanna
sem tekin eru í
tilefni Menn-
ingarnætur
verður sýnd
síðar í Lista-
safni Ís-
lands.
Þátttökugjörningur í
Listasafni Íslands
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-10 m/s, hvassast norðvestantil. Skýjað að mestu
vestantil, en annars bjart með köflum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á sunnudag Suðvestan 5-13 m/s. Rigning með köflum, en yfirleitt þurrt suðaustan- og
austanlands. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag Suðvestlæg átt 5-10 m/s og rigning en þurrt
austast. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands. Á þriðjudag Sunnan og suðvestan 5-
13 m/s. Rigning með köflum vestantil, en bjartviðri norðaustantil. Hiti breytist lítið.
U18 ára lið Íslands í handknattleik
karla tryggði sér í gær farseðilinn í
lokakeppni heimsmeistaramótsins
sem fram fer í Rússlandi á næsta ári.
Það var ljóst eftir sigur á Hvíta-
Rússlandi á Evrópumótinu sem fram
fer í Póllandi. Strákarnir spila um 9.-
10. sæti á mótinu við Króatíu, en
efstu tíu þjóðirnar á EM komast inn í
lokakeppnina. »1
Strákarnir á HM með
sigri á Hvít-Rússum
Keppni í þýsku 1. deildinni í
handbolta hefst í dag eftir
sumarfrí. Flestir eru sam-
mála um að Kiel verji þýska
meistaratitilinn í vor, en
eina liðið sem gæti staðið í
Kiel sé Rhein-Neckar Lö-
wen. Níu Íslendingar spila í
deildinni í vetur og þá eru
þrír íslenskir þjálfarar í
deildinni sem í eru 19 lið í
vetur. Spáð er í spilin í
íþróttablaðinu í dag. »3
Aðeins Löwen
sem ógnar Kiel
Kjartan Henry Finnbogason og sam-
herjar hans í KR ætla sér að berjast
til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn
í Pepsi-deildinni í knattspyrnu. KR er
að elta FH og Stjörnuna en meistara-
liðið úr Vesturbænum er
sex stigum á eftir
toppliðunum þegar
öll liðin eiga sjö leiki
eftir. »2
KR-ingar ætla að
berjast til þrautar
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Jóhann Páll Hreinsson varði dokt-
orsritgerð sína í læknavísindum frá
læknadeild Háskóla Íslands í sumar
einungis 26 ára gamall. Þá lauk hann
kandídatsprófi í júní sl. nánast sam-
hliða doktorsnáminu, sem verður að
teljast frábær árangur.
Ýtt lymskulega í læknisfræðina
„Ég held að ég hafi verið 18 ára
þegar ég ákvað að fara í læknisfræði
en ég hef alltaf haft áhuga á faginu.
Móðir mín ýtti mér lymskulega út í
læknisfræðina á sínum tíma. Ég veit
ekki nákvæmlega hvernig hún fór að
því, en hún kom að minnsta kosti
hugmyndinni í kollinn á mér,“ segir
Jóhann. Hann kveðst hafa mikinn
áhuga á mannslíkamanum og þá sé
þörfin til að hjálpa fólki líka ein af
ástæðunum fyrir því að hann valdi
læknisfræði.
Jóhann er fæddur og uppalinn í
Reykjavík, en foreldrar hans eru að
norðan, annars vegar frá Dalvík og
hins vegar Ólafsfirði. Móðir hans
heitir Arna Auður Antonsdóttir og er
lífeindafræðingur en faðir Jóhanns
heitir Hreinn Pálsson og er próf-
stjóri í Háskóla Íslands. „Faðir minn
hélt uppi einkunnunum mínum í
náminu,“ bætir Jóhann kíminn við.
Var ekki mjög góður í námi
Þó að Jóhann skari fram úr í námi
nú þá gerði hann það ekki alltaf.
„Ég var ekkert svakalega góður
námsmaður í menntaskóla og náms-
áhuginn kviknaði ekki fyrr en á síð-
asta árinu í menntaskóla.“ Jóhann
útskrifaðist árið 2007 úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. „Eftir
stúdentsprófið ferðaðist ég um Evr-
ópu í eitt sumar og byrjaði síðan í líf-
eindafræði í Háskóla Íslands um
haustið. Ég byrjaði svo í læknisfræð-
inni eftir að hafa lokið einu ári í líf-
eindafræði.“
Jóhann lauk BS í læknavísindum
24 ára og hóf síðan rannsókn-
arstörfin en ekki er gerð krafa um að
ljúka meistaragráðu til að hefja dokt-
orsnám í læknavísindum. „Þegar ég
byrjaði í þessari vísindavinnu eftir
BS-námið var ég ekki endilega að
hugsa um að skrifa doktorsritgerð
um það. En ég hef mjög góðan og
hvetjandi leiðbeinanda, Einar Stefán
Björnsson meltingarlækni og ég á
honum mikið að þakka í þessu öllu
saman. Hann benti mér á að þetta
væri rakið doktorsverkefni, þetta
hefði verið ómögulegt án hans.“
Þá segir Jóhann að unnusta sín,
Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir,
hafi verið sér stoð og stytta í nám-
inu, en hún er einnig nýútskrifuð úr
læknisfræði.
Lauk doktorsnáminu 26 ára
Skrifaði rit-
gerðina samhliða
kandídatsnámi
Mynd/Gunnar Sverrisson
Doktorsvörnin Dr. Angel Lanas, prófessor í læknisfræði við Háskólann í Zaragoza, Jóhann Páll Hreinsson og
Tryggvi Stefánsson, skurðlæknir á Landspítalanum, á doktorsvörninni sem fór fram í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Doktorsritgerð Jóhanns ber heit-
ið: Blæðingar frá meltingarvegi:
nýgengi, orsakir, tengsl lyfja og
horfur. Í ritgerðinni rannsakar Jó-
hann nýgengi og orsakir blæð-
inga frá efri og neðri hluta melt-
ingarvegar á Íslandi. Jóhann Páll
segir niðurstöður ritgerðarinnar
vera á þann veg að blæðingar frá
efri og neðri hluta meltingar-
vegar virðast vera jafn-algengar
og það sé greinilegt að lyf, eins
og t.d. bólgueyðandi lyf eða
hjartamagnýl, tengist blæðingum
frá meltingarvegi. Jafnframt séu
horfurnar hjá þeim sem blæðir
mjög góðar, t.d. þurfi fáir að fara
í skurðaðgerð og mjög fáir deyi
vegna blæðinga frá melting-
arvegi.
Ritgerðin samanstendur af
fimm greinum og hafa þrjár
þeirra þegar verið birtar í erlend-
um, ritrýndum vísindatímaritum.
Birtist í vísindatímaritum
DOKTORSRITGERÐ JÓHANNS PÁLS