Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 11
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
Félagar í Lionsklúbbnum Dynk í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi fóru um
sl. helgi í hálendisleiðangur inn með
Þjórsá. Gerðu sér erindi að skoða
hinn fræga og fallega foss í Þjórsá
sem klúbburinn er nefndur eftir.
Segja má að farið hafi verið farið
bakdyramegin í málið, þ.e. að ekið
var að fossinum austanmegin frá;
það er norður eftir Búðarhálsi á
Holtamannaafrétti. Á Suðurlandi
gildir að Holtamenn tala um Gljúf-
urleitarfoss en Gnúpverjar segja
Dynkur. Bæði nöfnin eru því rétt.
Leiðsögumaður í ferðinni var Sig-
urður Páll Ásólfsson á Ásólfsstöðum.
„Hann gjörþekkir svæðið eftir ára-
tugastörf við vatnamælingar á há-
lendinu. Er jafnframt góður sögu-
maður,“ sagði Björgvin G.
Sigurðsson, sveitarstjóri í Ásahreppi
og nú ráðherra. Hann er einn liðs-
manna Dynks, en starfssvæði
klúbbsins er heimasveit hans.
Fossinn Dynkur er 38 metra hár.
Fellur fram af mörgum stöllum í
smáfossum sem mynda einstaklega
fallegt, formfagurt og heildstætt
fossakerfi, sem er hliðstæðufátt á Ís-
landi. Vatn í fossinum er minna en
áður, vegna miðlunar fyrir virkjanir
á svæðinu.
ÞJÓRSÁ
Lionsmenn úr Hreppum við fossinn fagra. Fremstur er Sigurður Páll Ásólfsson
leiðsögumaður sem þekkir sjálfsagt flestum betur til á þessu svæði.
Ljósmynd/Björgvin G. Sigurðsson
Skoðuðu Dynkinn
Bæjarráð Hornafjarðar er ósátt við
þá ætlan að sveitarfélagið, sem
nær frá Hvalnesskriðum á Skeið-
arársand, eigi að tilheyra embætti
lögreglustjórans á Austurlandi,
skv. breyttri skipan í lögreglu-
málum. Áður hafa Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga látið sama í
ljós. Segir að mikilvægt sé að þeir
sem hagsmuna eigi að gæta eigi
kost á því að leita til þingmanna
kjördæmisins með mál sem snerta
málefni umdæma sýslumanna og
lögreglustjóra. Hornafjörður er nú
í Suðurkjördæmi en tilheyrði forð-
um gamla Austurlandskjördæminu.
Hornfirðingar vilja raunar að
sjálfstæður lögreglustjóri sé áfram
á svæðinu, ella löglærður yfirlög-
regluþjónn. Þá verði að tryggja að
á Höfn verði áfram tveir varð-
stjórar og aðrir tveir óbreyttir.
HORNAFJÖRÐUR
Lögregla sé í kjördæmi
Bæjaryfirvöld á Hornafirði vilja koma
lögreglumálunum í örugga höfn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Í vikunni hófust skipulagðar rútu-
ferðir á leiðinni milli Patreksfjarðar,
Brjánslækjar á Barðaströnd og Ísa-
fjarðar. Ferðaþjónusta Vestfjarða
ehf. samdi við Fjórðungssamband
Vestfirðinga um þetta verkefni og
sinnir því með Vestfjarðaleið ehf. og
Sæferðum hf.
Ferðir milli Patreksfjarðar og
Brjánslækjar verða daglega allt árið
í tengslum við ferjusiglingar Bald-
urs yfir Breiðafjörð. Með þessu
skapast fólki á ferðinni tækifæri á að
tengjast ferðum Baldurs og þar með
kerfi Strætó úr Stykkishólmi til
Reykjavíkur þaðan sem leiðirnar
liggja áfram um allt land.
Ferðir milli Ísafjarðar og Brjáns-
lækjar verða þrisvar í viku til 15.
september næstkomandi, á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstudög-
um. Gert er ráð fyrir að þær hefjist
að nýju 15. maí á næsta ári – eða um
leið og Dynjandis- og Hrafnseyr-
arheiðar eru orðnar færar en þær
eru snjóþungar enda yfir há fjöll að
fara.
PATREKSFJÖRÐUR
Baldursrúta af stað
Frá Patreksfirði er nú greið leið með
strætó til Brjánslækjar í skip þar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heimilisiðnaðurinn býðurupp á marga möguleika.Ég vona að þegar fram
líða stundir geti þetta kannski
orðið eitthvað meira,“ segir Að-
alheiður Lára Guðmundsdóttir í
Grundarfirði. Hún opnaði á dög-
unum á félagsmiðlinum Facebook
síðuna Kafla-prjónavörur þar sem
hún kynnir handavinnu sína.
Þarna getur fólk sem áhuga hef-
ur kynnt sér það sem Aðalheiður
prjónar – og lagt inn pantanir.
Lærði kúnstina ung
Aðalheiður segir að prjónaskapur
og öll handavinna hafi alltaf verið
stór þáttur í lífi sínu. „Ég var
bara stelpa þegar ég lærði þessa
kúnst og fannst strax gaman.
Síðan hefur þetta bara undið upp
á sig. Ég fylgi bæði uppskriftum
og hef fikrað mig áfram með
ýmislegt nýtt,“ segir Aðalheiður,
sem síðasta vetur sótti námskeið
við Háskólann á Bifröst sem bar
yfirskriftina Máttur kvenna. Það
var ætlað konum sem vilja hefja
atvinnurekstur eða standa á tíma-
mótum í lífinu og vilja róa á ný
mið eins og að afla sér frekari
menntunar.
En aftur að prjónaskapnum.
Síðasta haust bar Aðalheiður
Lára, sem er fædd og uppalin í
Breiðuvík á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi, sigur úr býtum í sam-
keppni Landssamtaka sauðfjár-
bænda og Ístex. Þar var keppt
um bestu íslensku óveðurspeys-
una og Kafla, sem var hennar
uppskrift, þótti best. Grænn,
svartur, hvítur og blár eru lit-
irnir í peysunni, sem er hneppt,
og tölurnar unnar úr klaufbeinum
kinda.
„Einhverju sinni þegar ég var
á vakt í sauðburði að nóttu sá
ég grænan mosann, dökkt hraun-
ið og himinblámann. Þetta greip
mig og ég ákvað að prjóna út
frá þessu. Í prjónaskapnum
finnst mér alltaf gaman að gera
eitthvað öðruvísi, eitthvað sem
sker sig úr fjöldanum,“ segir Að-
alheiður sem á vefsíðu sinni
kynnir húfur, peysur, vettlinga,
púða, pottaleppa og annað slíkt.
Allt prjónað og gert af meist-
arahöndum.
GRUNDARFJÖÐUR
Prjónar eftir pöntunum
PRJÓNAKONAN FÓR Á
BIFRÖST. OPNAÐI SVO
VEFSÍÐU TIL AÐ KYNNA SIG
OG SITT. ÞAR MÁ LEGGJA
INN ÓSKIR UM VÖRUR.
Aðalheiður Lára í snoturlega hannaðri peysu sem hún prjónaði. Hún sést
hér halda á púða þar sem Kirkjufellið er fyrirmynd. Fjallið sjálft í baksýn.
Morgunblaðið/ Skapti
Óánægja er með þá ætlun heilbrigðisráðherra að
heilbrigðisstofnanir norðanlands sameinist í eina. Það
segir byggðaráð Skagafjarðar gegn vilja Skagfirðinga
og vill yfirtaka rekstur sjúkrahússins á Króknum.
Skagafjörður
Ferðum strætó í Árborg, sem fara milli Selfoss, Eyrar-
bakka og Stokkseyrar, var fjölgað í vikunni. Var m.a. bætt
við tveimur ferðum síðdegis, svona að koma til móts við
t.d. krakka á ströndinni sem æfa íþróttir á Selfossi.
Árborg
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Gla›legar
bóka-
sto›ir
Ugla eða Kisa
Kr. 3.600 settið (2 stk.)