Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 Á göngu minni í átt frá bílnum að Borgar- leikhúsinu sé ég ljós- myndara Morgun- blaðsins og Ágústu Evu Erlendsdóttur við það að hefja myndatöku. Ágústu Evu þótti lítið mál að setja sig í stellingar fyrir myndatökuna enda lætur hún sér fátt fyrir brjósti brenna og frjáls- legt fas hennar skein í gegn fyrir framan myndavélina. Skemmti- legur og uppátækjasamur karakter hér á ferð, eins og flestum er kunnugt. Ágústa Eva bregður sér í gervi Línu langsokks eftir Astrid Lind- gren í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og þýðingu Þórarins Eldjárns. Leikritið verður frumsýnt um miðjan september. Eftir myndatökuna bregðum við okkur í matsalinn í Borgarleikhús- inu. Leikkonan knáa hefur ekki fengið sér munnbita síðan árla morguns og er svöng. Áður en við hefjum spjall fær hún sér úr hlað- borði Borgarleikhússins, sem er til fyrirmyndar, og segir Ágústa Eva að þar sé einnig ávallt eitthvað fyr- ir grænmetisætur. Eiga margt sameiginlegt Spurð út í barnæsku sína segir Ágústa Eva að þær Lína eigi margt sameiginlegt en viðurkennir þó að hafa lítið sem ekkert vitað um tilvist Línu á yngri árum. „Ég fór lítið í leikhús og las ekki mikið af bókum heldur var ég meira að leika mér og sulla í drullupoll- unum. Ég þekkti Línu því mjög lít- ið og kannski ein af fáum börnum sem þekktu hana lítið,“ segir Ágústa Eva, sem áttaði sig á því þegar hún las um Línu langsokk fyrir hlutverk sitt hversu líkar þær væru í raun og veru. „Það kom virkilega á óvart hvað hún minnir mig mikið á sjálfa mig. Til dæmis var ég í Mjölni tveimur dögum áð- ur en ég las handritið. Mér fannst gólfið þar eitthvað svo rykugt og ætlaði mér aðeins að skúra það. Ég fann ekki moppu og fór því bara á fjóra fætur með tuskur að vopni. Það er nokkuð sem Lína myndi gera,“ segir Ágústa og hlær. „En ég fékk líka fremur frjálslegt uppeldi eins og Lína fékk. Pabbi hennar Línu var ekki að sníða henni þröngan stakk heldur ól hana þannig upp að hún ætti að vita að hún gæti allt. Það er mjög mikilvægt að vita að maður getur gert allt sem maður vill með réttu hugarfari. Sjálf er ég líka komin af fólki sem tekur lífið ekkert rosa- lega hátíðlega og er ekki að skil- greina sig neitt. Mér finnst slíkar merkingar svo leiðinlegar: Ertu hlynnt/ur þessum isma eða hinum? Ertu með þessu eða á móti hinu? Ertu búin/n að lesa þetta eða hitt? Fólk á bara að fá að vera einhvern veginn, alveg eins og það vill vera.“ Er Lína góð fyrirmynd? „Lína er góð fyrirmynd fyrir alla. Hún finnur hvert einasta tækifæri til að gera lífið skemmti- legra fyrir sig og aðra. Lína reynir að breyta öllum neikvæðum og leiðinlegum aðstæðum í skemmti- legar og jákvæðar aðstæður. Hún lifir ekki fyrir sjálfa sig heldur fyr- ir aðra. Sönn hamingja felst meðal annars í því að lifa fyrir aðra. Gott dæmi um hvað Lína gerir allt fyrir fólkið sem henni þykir vænt um er til dæmis í enda leikritsins þegar Lína er um það bil að fá að hitta föður sinn, sjóræningjann, sem hún hefur lengi beðið eftir að sjá. Vinir hennar Anna og Tommi eru afar leið á þeim tímapunkti svo hún ákveður að bíða með að hitta pabba sinn og verður um kyrrt hjá vinum sínum.“ Amman í Grjótaþorpinu Óhætt er að segja að Lína lang- sokkur hafi lagt ákveðinn grunn fyrir aðrar sterkar kvenpersónur í barnasögum á sínum tíma. Þrátt fyrir það eru ekki mörg leikrit sem hafa kvenhetjur í aðalhlutverki. „Lína langsokkur er ákveðinn brautryðjandi. Það eru ekki mörg leikrit með kvenkyns fyrirmyndir fyrir stelpur að elta. En stelpur þurfa ekki aðallega kvenkyns fyr- irmyndir. Við eigum öll að taka okkur fyrirmyndir alls staðar að úr lífinu. Helsta fyrirmyndin mín í líf- inu er bróðir minn, Finnbogi Þór. Hann er einu ári yngri en ég og við höfum alla tíð verið mjög náin og góðir vinir. Ólumst upp bara svolítið eins og tvíburar,“ segir Ágústa Eva sem á fleiri fyrir- myndir úr fjölskyldunni. „Amma mín var í Kvennalistanum á sínum tíma, Laufey Jakobsdóttir. Hún kom fram í sjónvarpinu og sagði allt sem henni datt í hug. Hún var kjaftfor og mikið hörkutól.“ Laufey var fræg baráttukona, gjarnan kölluð bjargvætturinn Laufey eða amman í Grjótaþorpinu. „Hún var ofboðslega góð kona. Þegar vand- inn með Hallærisplanið var hérna á sjöunda, áttunda og níunda ára- tugnum voru unglingar þar á fyll- eríi og margir drápust áfengis- dauða eða voru beittir ofbeldi. Þetta var í kringum 1980 og hún bjó í Grjótaþorpinu í Reykjavík. Amma fór þangað á nóttunni, sótti unglinga sem lágu eins og hráviði um göturnar og tók með sér heim. Hún leyfði þeim að sofa úr sér og gaf þeim súpu. Hún var kölluð amman í Grjótaþorpinu. Ég hugsa að amma hafi þarna verið að stíga út úr norminu.“ Hugsaði aldrei um framtíðina Aðspurð hvort leiklistin hafi alltaf legið fyrir svarar Ágústa Eva því neitandi. „Ég ætlaði aldrei að verða neitt sérstakt. Ég hugsaði aldrei um framtíðina þegar ég var barn eða hvað ég ætlaði að verða. Ég hef alltaf lifað í núinu og gert það sem mig langar þá stundina. Það getur verið kostur og það get- ur líka verið ókostur. En ég held samt að það sé mjög gott að lifa í núinu. Óttaleysið tel ég vera það sem fleytir manni lengst í lífinu. Einkennismerki Línu er meðal annars það að hún er aldrei hrædd, enda er ekkert að óttast. Enginn á að vera hræddur við að tjá sig eða koma til dyranna eins og hann er klæddur. Ekki vera að hengja sig á hitt og þetta og halda að ham- ingjan felist í að verða eitthvað ákveðið eða að verða einhver sem maður er búinn að ákveða fyr- irfram. Við þurfum að finna út „Ég var bara eins og hor“ ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR VERÐUR LÍNA LANG- SOKKUR Á NÝJU LEIKÁRI BORGARLEIKHÚSSINS. HÚN SEGIR AÐ LÍNA SÉ GÓÐ FYRIRMYND FYRIR ALLA ÞVÍ HÚN ER ÓHRÆDD VIÐ AÐ VERA HÚN SJÁLF. ÁGÚSTA EVA ÆTLAÐI SÉR ALDREI AÐ VERÐA LEIKKONA ENDA HUGSAR HÚN EKKI UM FRAMTÍÐINA HELDUR LIFIR Í NÚINU. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.