Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Side 16
Í
Sheffield búa um 551.800 manns en þrátt fyrir mikinn fólksfjölda er
borgin talin ein öruggasta borg Englands. Borgin er ein sú alla græn-
asta í Evrópu en hún inniheldur um 170 skóglendi, 78 almennings-
garða og ótal tré, eða um rúma tvo milljarða. Sheffield er meðal ann-
ars þekkt fyrir að vera við Peak District-þjóðgarðinn, sem þykir
einstaklega fallegur, og því er náttúran ávallt skammt undan.
Ekki er nóg með að borgin sé stútfull af fallegri náttúru heldur hefur
hún að geyma fjörugt næturlíf og gott úrval verslana. Þeir sem eru til-
búnir að eyða dágóðri summu í verslunum þegar þeir ferðast erlendis
ættu að leggja leið sína í Meadowhall-verslunarmiðstöðina en hún er ní-
unda stærsta verslunarmiðstöð Bretlands og iðar ávallt af lífi. Miðbær
Sheffield er einnig fjörlegur og fallegur og setur ráðhúsið glæsilegan svip
á bæinn.
Ferðamenn sem heimsækja Sheffield hafa því úr mörgu að velja, hvort
sem þeir hafa áhuga á útivist, slökun, skemmtanalífi, tónlist eða arkitekt-
úr svo eitthvað sé nefnt. Og þeir sem vilja stunda hreyfingu meðan á
heimsókninni til Sheffield stendur þurfa ekki að leita langt yfir skammt
því Sheffield er kunn fyrir að vera afar hæðótt og því fylgir því að rölta
um borgina ákveðin líkamsrækt.
Manchester-flugvöllur er tilvalið fyrsta stopp fyrir þá Íslendinga sem
hyggjast heimsækja Sheffield en lestin gengur þar á milli og tekur ferðin
rúma klukkustund.
FJÖLBREYTILEIKINN ÁBERANDI
Grænasta borg
Englands
ÞEGAR FÖRINNI ER HEITIÐ TIL ENGLANDS VERÐUR
LONDON EÐA MANCHESTER GJARNAN FYRIR VALINU
HJÁ ÍSLENDINGUM. ÞÆR BORGIR ERU AFAR SKEMMTILEGAR
OG LÍFLEGAR EN SHEFFIELD, ÞRIÐJA FJÖLMENNASTA
BORG ENGLANDS, ER ALLS EKKI SÍÐRI.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Keppendur Tour de France-hjólreiðakeppninnar hjóluðu í
gegnum Sheffield í júlí.
AFP
Sheffield er gjarnan kölluð grænasta borg Englands þar
sem gróður og falleg tré eru áberandi þar.
Ráðhúsið í miðbæ Sheffield er einstaklega glæsilegt. Byggingin var reist seint á nítjándu öld.
Ferðalög
og flakk
Aukin umferð um Leifsstöð
*Samkvæmt talningum Ferðamálastofu hefur ut-anlandsferðum Íslendinga fjölgað töluvert frásíðasta ári. Um 39 þúsund Íslendingar fóru utaní júlí síðastliðnum, um 6.200 fleiri en í júlí í fyrra.Það er óhætt að segja að umferð um Leifsstöðhafi aukist töluvert á þessu eina ári því um144.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu í
júlí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferða-
málastofu eða um 21.000 fleiri en í júlí í fyrra.
Í ágúst er Edinborg undirlögð sviðslistahátíðinni The Fringe, og mannmergðin á
götunum minnir á einhvers konar mánaðarlanga menningarnótt. Kabarett, dans-
og leiksýningar og það sem ég er spenntastur fyrir – uppistand. Flest uppistandið
sem ég fór á í byrjun var frekar óspennandi, þreyttir karlrembu- og kúkabrandarar
voru ekki alveg það sem ég var að leita eftir. Það var ekki fyrr en ég fór á nem-
endakeppni í uppistandi að ég sá eitthvað ferskt. Eini gallinn var að mér finnst
skoski hreimurinn svo erfiður að um leið og ég fattaði brandarann og byrjaði að
hlæja að honum var restin af salnum löngu búin með sinn hlátur. Þetta var orðið
svo slæmt að einu sinni kom kynnirinn fram, benti út í sal og spurði hver það væri
sem væri að horfa á þetta á plúsnum. Hann var að sjálfsögðu að benda beint á mig.
Þegar næsti keppandi steig á svið var salurinn svo meðvitaður um þetta að í hvert
skipti sem ég hló á eftir öllum hlógu allir aftur. Sá keppandi fékk því tvöfaldan hlát-
ur og endaði auðvitað á því að vinna keppnina og fékk 2.500 punda verðlaun.
Kveðja, Jón Ben. Við Tóta við kastalann. Hér er ég nýkominn á Royal Mile.
2.500 punda hláturinn
Grillað í Meadows, besta almenn-
ingsgarðinum.
PÓSTKORT F
RÁ EDINBOR
G