Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Side 18
Græn svæði innan borgarmarka veita fólki tækifæri til að flýja ærandi hávaða og steypu stórborga. Morgunblaðið/Styrmir Kári H vaða borgir heims eru best til þess fallnar að stuðla að almennu heilbrigði íbúa sinna? Til eru ýmsir listar yfir slíkar borgir á ólíkum miðlum netsins. En hvað gerir borg heilsu- samlega? Ýmsir þættir koma til skoð- unar á borð við gæði heilbrigðisþjón- ustu, umfang og skipulag almennings- samganga og aðgengi að grænum svæðum innan borgarmarka. Hér er að finna fimm borgir sem eiga það sameiginlegt að birtast iðulega á list- um yfir heilnæmustu borgirnar enda hafa yfirvöld þar lagt áherslu á að reka borgirnar með það fyrir augum að tryggja heilbrigði íbúanna. FIMM BORGIR ÞAR SEM ÍBÚAR NJÓTA MIKILLA LÍFSGÆÐA Höfuðborgir heilsunnar STÓRBORGIR ERU EKKI FYRSTU STAÐIRNIR SEM KOMA UPP Í HUG- ANN ÞEGAR HUGSAÐ ER UM HEILNÆMT LOFT OG LYKILINN AÐ LÖNGU LÍFI. BORGARYFIRVÖLD VÍÐA UM HEIM LEGGJA ÞÓ RÍKA ÁHERSLU Á HEILBRIGÐI ÍBÚA OG HÉR ER AÐ FINNA FIMM BORGIR SEM ÞEKKTAR ERU FYRIR LÍFVÆNLEGT UMHVERFI. Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is * Gæði heilbrigðis-þjónustu,menntakerfi og um- fang og skipulag al- menningssamganga hafa áhrif á mat á lífsgæðum íbúa borga. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 Ferðalög og flakk Borgir Vestur-Evrópu eru iðulega ofarlega á listum yfir lífsgæði íbúa heims og hafa þar ítrekað betur en borgir í Norður- og Suður- Ameríku. Í Skandinavíu er hins vegar að finna mestu lífsgæði Evrópu hvað heilbrigði varðar og því þarf ekki að koma á óvart að sjá Kaup- mannahöfn víða á listum. Höfuðborg Dan- merkur er afar vinsæll áfangastaður Íslend- inga og trónir á toppi margra lista yfir heilbrigði borga. Rík hjólreiðamenning borg- arinnar hefur þar mikil áhrif auk þess sem Danir hafa minnkað útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda umtalsvert undanfarinn áratug. Útstreymið hefur dregist saman um 20% frá árinu 2005 og er það hluti af markmiði borg- aryfirvalda um að verða fyrsta borg heims sem nær jafnvægi í kolefnisútblæstri, það er að segja skilur ekki eftir sig nein kolefn- isfótspor í umhverfinu. Ætlunin er að ná þessu markmiði fyrir árið 2025. Um helm- ingur íbúa Kaupmannahafnar hjólar í vinnuna dag hvern og um 400 kílómetrar af hjólastígum liggja um borgina. Hjól- reiðastígurinn um Dronning Louise-brú sem tengir Nør-re- bro við miðbæinn er fjölfarnasta hjóla- leið í heimi og þar fara um 36.000 hjól- reiðamenn á hverjum einasta degi. Jafnvægi í kolefnisútblæstri 2025 Furstadæmið á frönsku Rivíerunni er aðeins tveir ferkílómetrar að stærð og er þéttbýlasta ríki heims. Hvergi á hnettinum mælist langlífi jafnmikið eða rétt tæp- lega 90 ár. Þess ber þó að geta að íbúar Mónakó eru aðeins rétt tæplega 40 þús- und og úrtakið því öllu smærra en í stærri samfélögum. Þar eru jafn- framt flestir milljóna- og milljarðamæringar heims miðað við höfða- tölu. Þau miklu auðæfi sem íbúar Mónakó búa yfir gera þeim kleift að eiga fyrir heilbrigðisþjónustu á heims- mælikvarða. Heilbrigðiskerfi Mónakó er í þrettánda sæti Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þar hefur jafnframt ver- ið gripið til margvíslegra úrræða í þágu umhverfisins, meðal annars er stefnt að því lágmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda á ráðstefnum sem haldnar eru í Mónakó í stórum stíl. Þá keyra opinberir starfsmenn í auknum mæli um á rafmagnsbílum og græn svæði eru víða. Langlífir milljónamæringar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.