Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 27
Lego Architecture Studio, Kristján Örn og
Kristján unnu með Lego að þróun vörunnar.
700 turnar á skalanum
einn á móti 1.000 voru
sýndir á Feneyjatvíæringnum.
stofuna til Delft í Hollandi þar sem hann
stýrir stúdíói innan arkitektúrdeildar
tækniháskólans TU-Delft.
„Hann stakk upp á því að við værum með
hálfs árs námskeið þar sem eingöngu væri
byggt úr Lego.“
Á fyrri helmingi námskeiðsins unnu nem-
endurnir alls 700 líkön af skýjakljúfum í skal-
anum einn á móti 1.000, með þeirri hugsjón
að leiðarljósi að opna skýjakljúfinn og gera
hann meiri hluta af sínu nánasta borg-
arumhverfi. „Þá voru valdir 16 skýjakljúfar
og þeir stækkaðir upp í skalann einn á móti
100 og úr því urðu þriggja metra há Lego-
líkön. Þessir 16 turnar fóru síðan á sýningu í
Hong Kong og litlu turnarnir 700, í skalanum
1 á móti 1.000 voru sýndir á Feneyjatvíær-
ingnum,“ segir Kristján Örn og bætir Krist-
ján við að vinnan með meistaranemum hafi
fært verkefnið á hærra plan.
Bæta borgarmenningu með Lego
Síðan verkefnið fór af stað hafa nafnarnir
ferðast víða með vinnustofurnar, til að
mynda til Danmerkur, Hollands og Finn-
lands, og vakið í leiðinni athygli hjá alþjóð-
legum fjölmiðlum með skemmtilegri nálgun
sinni á arkitektúr.
„Um miðjan ágúst á þessu ári var okkur
boðið að koma til Georgetown í Penang í
Malasíu. Þar eru starfandi samtök sem bera
heitið #Better Cities. Þau hafa verið að
ferðast um Malasíu og stuðla að kynningu á
nýjum hugmyndum um borgarumhverfi og
bættri borgarmenningu í Suðaustur-Asíu,“
segir Kristján.
Samtökin höfðu kynnt sér vinnustofur
KRADS sem sýnir hve öfluglega hug-
myndafræði verkefnisins hefur breiðst út um
heiminn.
„Þeir buðu okkur því að koma og stýra
tveggja daga vinnustofu með arkitektum og
masterclass-nemendum í George Town í
Penang í tengslum við árlega borgarmenn-
ingarhátíð,“ útskýrir Kristján og bæta þeir
við að
þessi litli Lego-kúrs sem byrjaði í listahá-
skólanum á Íslandi hafi heldur betur gefið af
sér.
„Hugmyndin var upphaflega að búa til
vinnustofu fyrir arkitektanema sem við gæt-
um ferðast með um heiminn. Það var aðeins
minna að gera hjá okkur á stofunni árið
2009, eins og víða annars staðar þá í bygg-
ingargeiranum, og því upplagður tími til að
skapa sér sín eigin verkefni og læra eitthvað
nýtt um leið. Við bjuggumst þó ekki við að
ná alla leið á hina hlið hnattarins með kubb-
ana og að fá að taka þátt í að þróa nýja
vöru fyrir Lego,“ bætir Kristján við að
lokum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ljósmynd/ Frans Parthesius
Ljósmynd/Frans Parthesius
Ljósmynd/Frans Parthesius
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
O G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i O P I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
STÓLADAGAR
full Búð Af ný
jum og fAlleg
um BoRðstofu
stólum
AVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJAVÍK
mARcus
borðstofustólar
TILBOÐSVERÐ
6.390 kr.
Fullt verð: 7.990 kr.
margir litir
mARcus
20%
AfsláttuR!