Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014
Sjötta bókin úr smiðju danska verðlaunarit-
höfundarins Jussi Adler-Olsen um rannsókn-
arlögreglumanninn Carl Mørck og samstarfs-
félaga hans í deild Q er væntanleg í Danmörku
24. október og nefnist Den grænseløse (Sá
markalausi). Fyrsta bókin í bókaflokknum um
Mørck, Kvinden i buret (Konan í búrinu), kom
út 2007 og síðan hefur komið ný bók í flokkn-
um á eins til tveggja ára fresti. Kvikmynd byggð
á fyrstu bókinni var frumsýnd í fyrra þar sem
Nikolaj Lie Kaas fór með hlutverk Carls
Mørck og 2. október nk. verður kvikmynd
byggð á annarri bókinni, Fasandræberne
(Veiðimennirnir), frumsýnd í Danmörku.
Þriðja myndin, sem byggist á Flaskepost fra P
(Flöskuskeyti frá P), er í vinnslu.
JUSSI ADLER-OLSEN
NÝ BÓK OG MYND
Danski spennusagnahöfundurinn Jussi Adler-
Olsen hefur slegið í gegn í mörgum löndum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Ástríður
Alda Sigurðardóttir píanóleikari koma fram á
stofutónleikum Gljúfrasteins á morgun,
sunnudag, kl. 16.
Efnisskrá sína helga þær lögum og ljóðum
frá öðrum tug tuttugustu aldar þegar Hall-
dór Laxness dvaldi í Bandaríkjunum og Kan-
ada. Heyrast munu íslensk og bandarísk
sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson, Gunnar
Reyni Sveinsson, Amy Beach, Ernest Char-
les, George Gershwin og amerísk þjóðlög í
útsetningu Aaron Copland.
Ingibjörg Guðjónsdóttir stundaði söng-
nám við Tónlistarskóla Garðabæjar en fram-
haldsnám við Indiana University í Bandaríkj-
unum. Ástríður Alda Sigurðardóttir lauk
námi frá Tónlistarskóla Reykjavíkur og stund-
aði framhaldnám við Indiana University.
SÖNGLÖG Á GLJÚFRASTEINI
STOFUTÓNLEIKAR
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Ástríður
Alda Sigurðardóttir píanóleikari koma fram.
Sýningin Votlönd verður opnuð í sýningarsal Norræna hússins ídag, laugardag, kl. 16.00. Að sýningunni stendur hópur ís-lenskra og finnskra listakvenna sem áður hefur sýnt bæði á
Íslandi og í Finnlandi. Þetta eru þær Guðný Hafsteinsdóttir, Ólöf
Erla Bjarnadóttir, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Sigurlína Osuala,
Hannamaija Heiska, Jaana Brick, Merja Ranki og Päivi Takala.
Samkvæmt upplýsingum frá sýningarhaldara var kveikjan að sam-
starfinu áhugi fyrir samtali um keramik á breiðum grundvelli og þró-
un fagsins í báðum löndum.
„Mýrin varðveitir minningar, hluti, lífsform, jarðlög, liti. Hún um-
vefur fuglana sem verpa og ala upp unga, frjósemi hennar veitir gró-
andanum næringu, skordýrin kunna sér ekki læti í votlendinu. Hún
er líka varhugaverð og getur gleypt það sem sekkur í hana en um
leið varðveitir hún það um alla eilífð. Mýrina nálgast listakonurnar á
margvíslegan hátt eins og verkin á sýningunni bera ótvírætt vitni
um,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sýningarsalur Norræna hússins er opinn þriðjudaga til sunnudaga
milli kl. 12 og 17. Sýningin stendur til 21. september. Þess má að
lokum geta að á morgun, sunnudag, milli kl. 13 og 17 verða sýnendur
á staðnum og spjalla við gesti.
VOTLÖND Í NORRÆNA HÚSINU
Mýrin varðveitir
minningar
Verk eftir Jöönu Brick og Merju Ranki sem unnið var árið 2014.
Ljósmynd/Ilkka Kallio
HÓPUR ÍSLENSKRA OG FINNSKRA LISTAKVENNA
OPNAR SÝNINGU SÍNA VOTLÖND Í DAG, EN ÞÆR
VINNA ALLAR MEÐ MÝRINA Á MARGVÍSLEGAN HÁTT.
Hexamíta nefnist þetta verk eftir Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur.
Menning
V
ið byrjuðum með verkefnið í
október árið 2012. Maður var
búinn að sjá svo margt tónlist-
arfólk sem maður sá fyrir sér að
gæti náð vel saman. Við vildum
mynda einhverskonar makrósenu yfir allar
þessar míkrósenur sem við erum með hérna
heima,“ segir Albert Finnbogason sem stend-
ur að spunaverkefninu Úslandi ásamt Tuma
Árnasyni en báðir eru þeir meðlimir í hljóm-
sveitinni Grísalappalísu, Albert á gítar og
Tumi á saxófón, auk þess sem þeir hafa unnið
saman undir formerkjum The Heavy Experi-
ence. Alls unnu þeir tólf plötur þar sem finna
mátti spunasamstarf ýmissa þekktra tónlist-
armanna.
Fólk fast í sinni senu
„Við vildum hrista aðeins upp í þessu. Fólk
hér heima er gjarnan mjög fast í sinni senu,
hvort sem það er djass, rokk eða eitthvað
annað. Við vildum skapa vettvang þar sem
við gátum í raun útbúið músík án þess að
semja hana sjálfir,“ segir Albert kíminn.
„Fyrirkomulagið átti í upphafi að vera svo
að fólkið mátti ekki hittast eða þekkjast áður
en það mætti í stúdíóið. Hinsvegar, verandi á
Íslandi, þá var það mjög erfitt. Við bökkuðum
því aðeins með það en héldum þó í hugmynd-
ina að einhverju leyti, til að mynda fengu tón-
listarmennirnir engan undirbúningstíma sam-
an. Hljóðfæraleikararnir fengu því eingöngu
að stilla sér upp og svo fönguðum við ferlið
þegar þeir kynntust. Við náðum því að taka
spunann upp áður en það komst einhver
strúktúr á hann. Þetta gerðum við tólf sinn-
um með sama sniði,“ segir hann.
„Það voru yfir sextíu manns sem tóku þátt
í verkefninu. Eins og áður segir voru þetta
tólf plötur. Ein þeirra var tekin upp á LungA
á Seyðisfirði, við vorum þar með opna smiðju
í tvo heila daga. Við tókum einnig upp tvenna
tónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur. Annars
voru þetta sirka fimm eða sex tónlistarmenn
á hverri plötu. Við fengum aðila úr öllum átt-
um til að ljá okkur tóna sína, Pétur Ben tók
meðal annars þátt. Síðan fórum við líka yfir í
myndlistardeildina, Héðinn Finnsson spilar til
að mynda inn á fyrstu plötuna okkar. Við
reyndum auk þess að blanda saman fólki úr
ólíkum áttum. Við fengum Frank Aarnink,
slagverksleikara úr Sinfó, til að taka dúetta-
plötu með Skúla Sverrissyni. Skúli er nátt-
úrlega mikill djassspunahundur,“ segir Albert
sposkur.
„Vissulega voru sumar samkomur erfiðari
en aðrar. Við gerðum nokkrar bókunarvillur
og plöntuðum saman tveimur eða þremur
stórum karakterum. Það var samt bara
áhugavert að sjá þá spennu sem þar mynd-
aðist. Sumar plötur urðu auk þess miklu leið-
inlegri en við héldum að þær myndu enda.
Við tókum efnið upp og oftar nær var þetta
bara langur spuni sem ég klippti í sundur í
nokkra parta,“ segir hann.
Verkefnið var tilnefnt til Menning-
arverðlauna DV árið 2013 en Albert segist þó
ekki viss um að áhuginn fyrir slíkri spuna-
músík sé mikill hér á landi.
„Þeir sem hafa áhuga á svona spunamúsík
eru mjög fáir á Íslandi. Það eru þó hægt og
bítandi fleiri og fleiri sem koma að mér og tjá
mér að þetta hafi nú alveg verið kúl verkefni.
Í kjölfarið á þessu kemur náttúrlega Mengi
með svipað prógramm. Það er líka allt í einu
komið miklu meira af spunatónleikum, hvort
sem það eru einstaklingstónleikar eða hóp-
tónleikar,“ segir Albert. Hann kveður hug-
myndina að hluta fengna að láni frá New
York.
„Það er klúbbur í New York sem ég fór á
sem heitir The Stone. Þar eru tónleikar á
hverju kvöldi sem spunameistarar stjórna. Þar
fer John Zorn, saxófónleikari, fremstur fylk-
ingar. Svo var Tilraunaeldhúsið í umsjá Kira
Kira að sjálfsögðu svipað batterí. Ég veit samt
ekki alveg hvernig æfingaferlið fór þar fram,
en ef þú blandar saman Tilraunaeldhúsinu og
The Stone þá færðu út hugmyndina okkar,“
segir Albert.
Ekki alltaf dans á rósum
Þrátt fyrir misgóð verk tekur Albert það ekki
í mál að klippa út verstu partana eða ritstýra
verkefninu um of.
„Svona verkefni þarf að hafa sína dauðu
punkta. Þó að við höfum klippt þetta niður í
hæfilega tímalengd þá má ekkert vera að rit-
stýra þessu of mikið. Þetta eru tilraunir,
stundum tókust þær ótrúlega vel og stundum
ekkert svo vel. Við ætlum ekkert að fegra
þetta, þetta var ekki alltaf dans á rósum,“
segir hann og bætir við að verkefnið hafi hlot-
ið styrk frá Tónlistarsjóði Rannís.
„Planið er að gefa þetta út á fýsísku formi.
Það var alltaf stefnan, þetta er bara svo dýr
andskoti. Vonandi kemur þetta þó út fyrir jól-
in,“ segir Albert að lokum en þess má geta að
Árni Matthíasson, blaðamaður Morgunblaðs-
ins, tók sig til og dæmdi allar plöturnar fyrir
skemmstu og birtust dómarnir á menning-
arsíðum blaðsins 21. ágúst síðastliðinn. Hægt
er að nálgast plöturnar á bandcamp síðu Ús-
lands, uslandrecords.bandcamp.com.
HYGGJAST GEFA ÚT TÓLF PLÖTUR
Spunabræður
í blíðu og stríðu
SPUNAVERKEFNIÐ ÚSLAND HEFUR STAÐIÐ YFIR FRÁ ÞVÍ ÁRIÐ 2012 OG HEFUR ÞAÐ GETIÐ AF SÉR
TÓLF PLÖTUR SEM BÍÐA ÚTGÁFU. RÚMLEGA SEXTÍU TÓNLISTARMENN TÓKU ÞÁTT Í FERLINU SEM
VERÐUR AÐ TELJAST MEÐ METNAÐARFYLLRI VIÐFANGSEFNUM ÍSLENSKRAR TÓNLISTARSÖGU.
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is
Árni Heimir Ingólfsson
heldur fyrirlestur í
Kaldalóni Hörpu mánu-
daginn 1. september kl.
20 á vegum Vinafélags
Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands. Þar hyggst hann
stikla á stóru um sögu
klassískrar tónlistar, sin-
fóníuformið og ólíkar
leiðir til að njóta sígildr-
ar tónlistar. Kynningin er
sérstaklega ætluð þeim
sem hafa lítil kynni haft af klassískri tónlist, en
hafa áhuga á að kynnast þeim töfrum sem
hún býr yfir. Árni Heimir lauk doktorsprófi í
tónlistarfræði frá Harvard-háskóla árið 2003
og starfar nú sem listrænn ráðgjafi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
101 KLASSÍSK TÓNLIST
Árni Heimir
Ingólfsson
TÖFRAHEIMUR