Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 51
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Fangi himinsins er þriðja bókin úr sagnaheimi Carlosar Ruiz Zafón um Kirkjugarð gleymdu bókanna en sú fyrsta var Skuggi vindsins sem margir hrifust af. Bókin gerist í Barcelona seint á sjötta áratugnum. Daní- el afgreiðir í fornbókabúð föð- ur síns og ókunnugur maður falast eftir fokdýru eintaki af hinni frægu skáldsögu Alex- andre Dumas Greifanum af Monte Cristo. Hann skrifar inn í bókina sérkennilega kveðju sem Daníel getur ekki annað en furðað sig á. Hver er þessi ókunni maður og hvað vill hann? Bækur Zafóns hafa verið gefnar út í 45 löndum og verið þýddar á yfir 30 tungumál. Dularfull kveðja Ný sænsk matreiðslubók, Stalins makar- oner, hefur vakið athygli út fyrir heimalandið, en í henni er að finna 31 mataruppskrift sem tengist ýmsum heimssögulegum atburðum. Þar á meðal eru uppskriftir að ananaseftirrétti sem var á borðum í brúðkaupsveislu John F. Kennedy og Jacqueline, laxarétti sem var síðasta máltíðin sem framreidd var á Ritz- veitingastaðnum á Titanic, þorskasúpu sem Raspútín taldi vera undrameðal og pastarétti sem Roosevelt, Stalín og Churchill borð- uðu á Jalta-ráðstefnunni. Höfundar bókarinnar eru Jon Rönström og Anders Ekman, sem lögðust í mikla rannsóknarvinnu til að finna uppskriftirnar og leituðu í gömul blöð og bækur. Færustu mat- reiðslumenn elduðu síðan eftir uppskriftunum til að tryggja að þær væru nothæfar. Minnst spennandi réttur bókarinnar mun vera pasta- rétturinn á Jalta-ráðstefnunni, sem reyndist vera ósköp venjulegt pasta í tómatsósu, ekki sérlega bragðmikið. Stalins makaroner. Nú er hægt að elda sér ýmsa rétti sem tengjast mannkynssögunni. SÖGULEGAR UPPSKRIFTIR Hin breska Ruth Rendell fagnar hálfrar aldar rithöf- undarafmæli í ár, en fyrsta bók hennar, From Doon with Death, kom út árið 1964. Rendell er einn virt- asti og vinsælasti glæpasagnahöfundur heims og bæk- ur hennar hafa orðið að kvikmyndum og sjónvarps- þáttaröðum. Margir þekkja til dæmis Vexford lögregluforingja, en um hann hefur hún skrifað fjöl- margar bækur. Rendell hefur unnið til margvíslegra verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín. Hún er orðin 84 ára gömul en virðist ekki hafa áhuga á að setjast í helgan stein því hún hefur nú sent frá sér nýja glæpasögu, The Girl Next Door. Nýja bókin hefst í seinni heimsstyrjöldinni og þar koma börn við sögu en sjö áratugum seinna hittast þau á ný, orðin afar og ömmur og langafar og lang- ömmur. Endurfundirnir eru ekki vegna gleðilegs til- efnis heldur vegna þess að lögreglan finnur í göngum kassa með afskornum höndum, einmitt á staðnum þar sem þetta gamla fólk hafði í æsku leikið sér ára- tugum fyrr. Þeir sem hafa lesið bækur Rendell vita að hún hefur einstakt lag á að kafa undir yfirborð hlutanna og lýsa hinum myrkari þáttum sálarlífsins. Persónur hennar hafa ansi margt að fela. RUTH RENDELL FAGNAR MEÐ NÝRRI BÓK Ruth Rendell er komin á níræðisaldur og á 50 ára höfundarafmæli sem hún fagnar með nýrri bók. Jón Þ. Þór sagnfræðingur rekur ævi hins stórbrotna og litríka stjórnmálaskörungs Winstons Churchills í nýúkominni bók. Höfundurinn segir ekki ein- ungis frá stjórnmálamanninum Churchill heldur einnig frá rit- höfundarferlinum en Churchill hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1953. Churchill á sér fjölda aðdá- enda hér á landi líkt og annars staðar og víst er að þeir hljóta að fagna þessari bók. Saga mikils stjórnmála- skörungs Churchill og fleira forvitnilegt NÝJAR BÆKUR ÆVISAGA CHURCHILLS EFTIR JÓN Þ. ÞÓR MUN EFLAUST VEKJA ÁHUGA MARGRA. NÝ SKÁLD- SAGA EFTIR HÖFUND SKUGGA VINDSINS ER KOMIN ÚT. TEBÓKIN MUN GLEÐJA TEDRYKKJU- FÓLK OG Í BÓK UM KYNLÍF ER ÝMSUM SPURN- INGUM SVARAÐ. ÞANNIG ÆTTU SEM FLESTIR AÐ FINNA EITTHVAÐ VIÐ SITT HÆFI. Kynlíf – já takk er ný bók eftir Ragnheiði Haralds- og Eiríks- dóttur. Í bókinni er að finna úrval spurninga sem Ragnheiður hefur fengið og svarað frá fólki á öllum aldri og snerta kynlíf og hinar ýmsu hliðar þess. Auk þess geymir bókin það besta úr fjölda nýrra viðtala sem hún hefur tek- ið við fólk á öllum aldri um óskir þess og langanir í kynlífinu. Spurningar og greinargóð svör Í Tebókinni er ferli teræktunarinnar rakið, gerð grein fyrir sögu tesins, fjallað um fjölbreytilegar tegundir og framandi bragð og listina að laga ljúffengt te. Höf- undar bókarinnar eru Árni Zophoníasson og Ingi- björg J. Friðbertsdóttir, sem þekkja te vel enda eru þau meðal eigenda Tefélagsins. Unnendur tesins á Ís- landi, sem eflaust eru margir, hljóta að gleðjast yfir því að fá bók sem segir þeim allt um te. Hið dásamlega te og saga þess * Ég hef oft óskað þess að ég hefði tíma tilað þróa með mér hógværð. En ég er ofupptekin af að hugsa um sjálfa mig. Edith Sitwell BÓKSALA 20.-26. ÁGÚST Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 AfdalabarnGuðrún frá Lundi 2 Ísl/dönsk- dönsk/ísl orðabókHalldóra Jónsdóttir 3 LjósaKristín Steinsdóttir 4 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson 5 Lífið að leysaAlice Munro 6 Ísl/ensk- ensk/ísl orðabókLaufey Leifsdóttir 7 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafon 8 I Was HereKristján Ingi Einarsson 9 MánasteinnSjón 10 Kynlíf já takkRagnheiður Eiríksdóttir Kiljur 1 AfdalabarnGuðrún frá Lundi 2 LjósaKristín Steinsdóttir 3 Lífið að leysaAlice Munro 4 Fangi himinsinsCarlos Ruiz Zafón 5 MánasteinnSjón 6 Sjálfstætt fólkHalldór Laxness 7 Amma biður að heilsaFredrik Backman 8 SkuggasundArnaldur Indriðason 9 SjóræninginnJón Gnarr 10 AfleggjarinnAuður Ava Ólafsdóttir MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Oft kemur grátur eftir skellihlátur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.