Morgunblaðið - 26.09.2014, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 225. tölublað 102. árgangur
GAMALDAGS SJARMI,
SÍGILD HÖNNUN OG
NÝJASTA TÆKNI
HANDBOLTA-
SKÓLI FYRIR
UNGT FÓLK
48 SÍÐNA BLAÐAUKI UM HEIMILI OG HÖNNUN FRÁ ÍSLANDI TIL KIEL 10
„Þetta er ný aðferð og það er ennþá
verið að þróa hana og betrumbæta
en það er orðið algengt, sérstaklega í
Evrópulöndunum, að nota þessa
tækni,“ segir Arndís Sue Ching
Löve, lyfjafræðingur og doktors-
nemi, um faraldsfræði frárennslis-
vatns; aðferðafræði sem hún hyggst
nota til að meta neyslu ólöglegra
fíkniefna og lyfseðilsskyldra lyfja í
Reykjavík og nágrenni.
Aðferðinni hefur ekki verið beitt
áður hér á landi en Arndís segir að
hana megi nota til að meta fíkniefna-
neyslu í heilu samfélagi, með því að
taka sýni í frárennslisstöðvum og
bakreikna styrk efnanna í grömm á
dag á hverja þúsund íbúa. Verkefnið
vinnur hún m.a. í samstarfi við Land-
læknisembættið og Orkuveitu
Reykjavíkur sem mun sjá henni fyrir
sýnum.
Auk þess að meta neyslu fyrr-
nefndra efna er eitt aðalmarkmið
rannsóknarinnar að kynna til sög-
unnar nýja aðferð til viðbótar við til
að mynda spurningalista.
„Kosturinn við þessa aðferð er líka
sá að þú getur tekið sýni á einum sól-
arhring og fengið niðurstöðuna
strax. Og af því að þú ert fljótari að
fá niðurstöður geturðu fylgst betur
með breytingum á markaðnum,“
segir Arndís.
MNeyslan áætluð út frá … »22
Mælir fíkniefni í skólpinu
Doktorsnemi hyggst beita nýrri aðferð til að meta neyslu ólöglegra ávana- og
fíkniefna með því að mæla styrk efnanna í frárennslisvatni Fær sýni frá OR
Ný aðferð
» Einn af kostum aðferð-
arinnar er að hægt er að skima
eftir nýjum tegundum efna.
» Arndís er þátttakandi í
stærra verkefni 20 ríkja sem
ætlað er að auka gæði rann-
sókna af þessu tagi.
„Bárðarbunga situr mitt á heita reitn-
um undir Íslandi,“ sagði Haraldur
Sigurðsson eldfjallafræðingur. „Heiti
reiturinn byrjaði undir Síberíu fyrir
svona 250 milljónum ára. Fleka jarð-
skorpunnar hefur síðan rekið eins og
fleka á vatni en heiti reiturinn er
áfram á sama stað. Nú kraumar hann
undir okkur. Einu sinni var Síbería yf-
ir honum, svo Baffinseyja, síðan
Grænland og nú Ísland.“
Að sögn Magnúsar Tuma Guð-
mundssonar jarðeðlisfræðings er
unnið að því að skipuleggja vaktir við
gosstöðvarnar en 30-40 manna hópur
sérfræðinga, tæknimanna og stúd-
enta hefur komið að rannsóknum þar
frá því gosið hófst. Að jafnaði eru þar
5-6 manns. „Menn reyna að gera þetta
á sem hagkvæmastan hátt án þess að
fórna öryggisþáttum,“ segir Magnús.
Almannavarnir vinna að kostnaðar-
greiningu vegna aðgerða á gossvæð-
inu. Nú þegar er kostnaðurinn nærri
100 milljónum kr. Spár gera ráð fyrir
því að hann geti hlaupið á hundruðum
milljóna áður en yfir lýkur. Gosið virt-
ist í gær svipað og undanfarið. Síðdeg-
is í gær varð 5 stiga skjálfti í Bárð-
arbungu og annar heldur stærri
snemma í gærmorgun. »4
Undir
er heitur
reitur
Kostnaður þegar
nærri 100 milljónum
Með núverandi aðalskipulagi er
ljóst að hugmyndir um íbúðabyggð
munu ekki ná inn á Örfirisey á
gildistíma þess til ársins 2030, að
sögn Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra
Faxaflóahafna. Hafnarstjórnin sam-
þykkti á fundi nýlega að tímaleng-
ing lóðarleigusamnings
olíubirgðastöðvarinnar fylgdi gild-
istíma aðalskipulags Reykjavík-
urborgar til ársins 2030.
„Með nýju aðalskipulagi er sú
stefnumörkun ljós að olíustöðin
verður þarna þann tíma sem skipu-
lagið gildir. Menn geta þá notað
þann tíma til að velta vöngum yfir
framtíðinni,“ segir Gísli en hug-
myndir hafa öðru hvoru komið upp
um flutning olíubirgðastöðvarinnar
annað og um íbúðabyggð á svæð-
inu.
Gísli segir að Örfirisey sé tiltölu-
lega hagkvæmur staður fyrir olíu-
birgðastöðina miðað við þær flutn-
ingsleiðir sem stærstur hluti
eldsneytisins fer um. „Ef menn
hafa hugmyndir um færslu hennar
í framtíðinni þá liggur vandinn í að
finna stað sem hentar, auk þeirrar
fjárfestingar sem því myndi
fylgja.“ omfr@mbl.is »9
Olíustöðin áfram í Örfirisey
Örfirisey Fyrstu olíubirgðatank-
arnir voru reistir árið 1951.
Málskostnaðar-
mál Más Guð-
mundssonar
seðlabankastjóra
gegn Seðlabanka
Íslands mun
kosta bankann á
fjórðu milljón
króna. Jón Helgi
Egilsson, starf-
andi formaður
bankaráðs, stað-
festi þetta í samtali við Morgunblað-
ið í gær. Þau tíðindi urðu í málinu sl.
þriðjudag að bankaráðið samþykkti
að greiða ekki málskostnað Más
vegna umrædds dómsmáls.
Fram kemur í nýbirtu bréfi Más
til bankaráðs að ef það hafni því að
staðfesta kostnaðinn við dómsmálið
sem rekstrarkostnað muni hann
greiða SÍ þann útlagða kostnað sem
ráðið telur rétt að hann geri.
„Það þýðir ekki að ég afsali mér
rétti til þess síðar meir að láta skoða
aðra þætti heildarmálsins, svo sem
málsmeðferð bankaráðs vorið 2010,“
skrifar Már sem gagnrýnir Jóhönnu
Sigurðardóttur, þáverandi forsætis-
ráðherra, fyrir að ganga á bak orða
sinna í málinu. Már hyggst ekki tjá
sig um málið. baldura@mbl.is »12
Már
Guðmundsson
Kostar SÍ
milljónir
Seðlabankinn ber
kostnað af máli Más
Grasflugbrautin á Kaldármelum
gegnir mikilvægu hlutverki fyrir
nemendur Flugskóla Íslands sem
æfa þar lendingar og flugtök.
ISAVIA gaf það út í sumar að af-
skrá ætti flugbrautina sem þýðir að
hún verður þá ekki lengur löggiltur
lendingarstaður og flugvélum verð-
ur því óheimilt að lenda á brautinni.
Yfirkennari hjá Flugskóla Ís-
lands segir að það skapi vandamál í
kennslunni ef verið er að loka flug-
brautum í næsta nágrenni við skól-
ann í síauknum mæli. »14
Skapar vandamál
fyrir flugkennsluna
Að taka myndir af sjálfum sér, svokallaðar „sel-
fie“, nýtur mikillar hylli um þessar mundir. Til að
ná sem bestri sjálfsmynd er gott að hafa fram-
lengingu á handleggnum eða svokallaða sjálfs-
myndastöng. Slíkur búnaður virðist þó ekki vera
búinn að ryðja sér til rúms hér á landi. Afgreiðslu-
maður í ljósmyndavöruversluninni Beco sagði að
þeir væru aðeins með stöng fyrir GoPro-vélar sem
væri hægt að nota fyrir annarskonar myndavélar
með sérstöku millistykki. Hann sagði stöngina að-
allega keypta af veiðimönnum sem vilja geta
stungið GoPro-vélinni ofan í vatn.
Hjá vefversluninni Aukahlutir.net er hægt að
kaupa sjálfsmyndastöng með bluetooth fyrir
síma. Verslunin hóf sölu á þeim í síðustu viku svo
ekki er komin reynsla á vinsældir búnaðarins á Ís-
landi. Afgreiðslumaðurinn hjá Aukahlutum.net
sagði að slíkar stangir sæjust mikið á vinsælum
ferðamannastöðum í útlöndum en þá er stöngin
notuð til að lyfta myndavélinni upp fyrir mann-
fjöldann til að ná betri myndum. ingveldur@mbl.is
Sjálfsmyndastöngin er mikill gleðigjafi
Morgunblaðið/Ómar