Morgunblaðið - 26.09.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Gengið hefur verið frá því að olíu-
birgðastöð verður áfram staðsett í
Örfirisey a.m.k. til ársins 2030.
Hafnarstjórn Faxaflóahafna sam-
þykkti á fundi nýlega að tímaleng-
ing lóðarleigusamnings olíubirgða-
stöðvarinnar fylgdi gildistíma
aðalskipulags Reykjavíkurborgar
til ársins 2030, sem gerir ráð fyrir
að stöðin verði í Örfirisey.
Fyrir hafnarstjórninni lá erindi
Olíudreifingar ehf. um endurnýjun
lóðaleigusamninga félagsins í Örfir-
isey og sameiginlegra lóðarleigu-
samninga ODR og Skeljungs hf.
Verður þarna þann tíma
sem skipulagið gildir
„Með nýju aðalskipulagi er sú
stefnumörkun ljós að olíustöðin
verður þarna þann tíma sem skipu-
lagið gildir. Menn geta þá notað
þann tíma til að velta vöngum yfir
framtíðinni,“ segir Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Gísli segir að Örfirisey sé til-
töluleg hagkvæm staðsetning fyrir
olíubirgðastöðina miðað við þær
flutningsleiðir sem stærstur hluti
eldsneytisins fer um. „Ef menn
hafa hugmyndir um færslu hennar
í framtíðinni þá liggur vandinn í að
finna stað sem hentar, auk þeirrar
fjárfestingar sem því myndi
fylgja,“ segir Gísli.
Heppilegasti staðurinn skv.
öryggisúttekt fyrir fáum árum
Gerð var mjög ítarleg öryggis-
úttekt á olíubirgðastöðinni á ár-
unum 2006-2007. Niðurstaða henn-
ar var sú að Örfirisey væri besti
staðurinn fyrir olíubirgðastöð, mið-
að við óbreytt skipulag á svæðinu.
„Það voru ýmsir valkostir varð-
andi aðra staðsetningu skoðaðir en
enginn þeirra kom betur út en Ör-
firisey,“ segir Gísli. Fram kom í út-
tektinni á þeim tíma að bæta þyrfti
ástandið í olíubirgðastöðinni þar
sem áhættugreining sérstakrar
ráðgjafarstofu sýndi umtalsverða
innri áhættu í alþjóðlegum sam-
anburði en Örfirisey væri eftir sem
áður besti kosturinn að öllu
óbreyttu.
Gísli segir mikilvægt að í skipu-
lagi svæðisins felist ákveðin stað-
festa um starfsemina á gildistíma
þess, hvað sem síðar verði.
Fyrir nokkrum árum voru uppi
hugmyndir meðal borgaryfirvalda
um að skipuleggja íbúðarbyggð í
Örfirisey og á mögulegum lands-
fyllingum. Þær hugmyndir runnu
út í sandinn. ,,Með þessu aðal-
skipulagi er ljóst að hugmyndir um
íbúðarbyggð munu ekki ná inn á
Örfirisey á þessu tímabili,“ segir
Gísli.
Fest í sessi í Örfirisey til 2030
Hafnarstjórn Faxaflóahafna samþykkir að framlengja lóðarleigusamning olíubirgðastöðvar í Örfir-
isey út gildistíma aðalskipulags Reykjavíkurborgar Hagkvæm staðsetning miðað við flutningsleiðir
Morgunblaðið/Ómar
Örfirisey Framtíð olíubirgðastöðvarinnar hefur oft komið til umræðu. Árið 2007 bar verkefnisstjórn saman áhættu
og kostnað við 14 aðra staðarvalskosti og taldi áframhaldandi rekstur stöðvarinnar í Örfirisey besta kostinn.
Verkefnisstjórn var árið 2006
falið að greina og meta
áhættu af starfseminni í Örfir-
isey og
af olíuflutningum frá henni
og bera saman við 14 aðra
staðarvalkosti. Mælti hópurinn
með áframhaldandi rekstri í
Örfirisey. Hugmyndir voru þá
uppi meðal meirihlutans í
borgarstjórn um íbúðarbyggð í
Örfirisey og á mögulegum
landfyllingum þegar nið-
urstaðan lá fyrir 2007. Haft
var eftir þáverandi formanni
borgarráðs og stjórnarfor-
manni Faxaflóahafna, Birni
Inga Hrafnssyni, að skýrslan
væri mikilvægt innlegg í um-
ræðuna um uppbyggingu og
framtíð í Örfirisey. Sjálfur
væri hann þeirrar skoðunar að
núverandi staðsetning gengi
ekki til lengri framtíðar.
Áform um
íbúðarbyggð
FRAMTÍÐARSTAÐSETNING
mbl.is
Á síðustu árum hefur almenningur safnað
birkifræjum fyrir Hekluskóga. Eftir rakt
haust er fræið enn á birkitrjánum og kjörið
að safna í lok september og fram í október.
Birkifræjum sem safnast verður sáð í haust í
lítt gróin svæði á starfssvæði Hekluskóga.
Svæði þar sem erfitt er að gróðursetja, t.d. í
hraunum, eru nýtt til sáninga. Árangur sán-
inganna tekur nokkur ár að koma í ljós en er
þó ágætur eins og meðfylgjandi mynd af
birkiplöntu sem sáð var árið 2008 sýnir.
Endurvinnslan hf. tekur við þeim birkifræjum sem safnað er í móttöku-
stöðvum Endurvinnslunnar hf. að Knarrarvogi 4, Dalvegi 28, Hraunbæ 123
og kemur þeim til Hekluskóga.
Í ár gróðursetja Hekluskógar 330 þúsund plöntur sem er heldur meira en
undanfarin ár auk þess að dreifa um 175 tonnum af kjötmjöli til uppgræðslu.
Birkifræjum safnað til Hekluskóga VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Fagleg þjónusta í 60 ár
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533
www.facebook.com/HYGEA
Ný sending
af töskum