Morgunblaðið - 26.09.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Árni Stefánsson hefur ver-ið handboltaþjálfari í umþrjátíu ár og á sportið hughans og hjarta. Hann velti
því oft fyrir sér hvort ekki væri eft-
irspurn eftir sumarnámi í handbolta-
skóla erlendis,
rétt eins og í fót-
boltaskólum sem
margir þekkja.
„Þannig að mér
datt í hug að nýta
mér sambönd í
gegnum góðan
vin minn, Alfreð
Gíslason, þjálfara
hjá Kiel og kýla
bara á þetta,“
segir Árni sem fór á stúfana og
stofnaði slíkan skóla. Þeir Alfreð eru
æskuvinir, skólabræður og hafa alla
tíð verið góðir vinir. Þegar Árni bar
hugmyndina upp við Alfreð fyrir
rúmum tveimur árum tók hann vel í
hana.
Með einu besta liði heims
Eins og þeir vita sem með hand-
bolta fylgjast er Kiel framarlega í
flokki og að sumra mati besta hand-
boltalið heims. Það er því ekki ama-
legt fyrir unga íslenska leikmenn að
fá að fylgjast með æfingum hjá liðinu
og læra af þessum flinku köppum en
einn liður í náminu er einmitt að
fylgjast náið með liðinu á æfingu og
spjalla við atvinnumennina en skól-
inn sjálfur er skammt frá.
„Við tryggðum okkur íþrótta-
miðstöð sem er í 30 mínútna fjarlægð
frá Kiel þar sem allt er til alls. Að-
Liðsheildin og sjálfs-
traustið mikilvægast
Tvö sumur í röð hafa handboltakappar og þjálfarar haldið út til Kiel í Þýskalandi
ásamt hópi ungs handboltafólks. Félagarnir Árni Stefánsson og Alfreð Gíslason
hafa í sameiningu unnið að uppbyggingu sérstaks handboltaskóla sem er sniðinn
að ungu íslensku leikmönnunum, bæði drengjum og stúlkum. Handboltaskólinn
hefur notið mikilla vinsælda og undirbýr unga fólkið fyrir framtíðina í boltanum.
Æfing Krakkarnir fá að fylgjast með æfingu hjá liði Alfreðs Gíslasonar í
Kiel og spjalla síðan við atvinnumennina sem margir segja það besta í heimi.
Tækni Í handboltaskóla Árna Stefánssonar læra ungir handboltakrakkar
ýmislegt um handboltann. Til dæmis um leikkerfi og tæknileg atriði.
Árni Stefánsson
Haust og vetur er sá árstími sem
margir nýta til að fara á hverskonar
námskeið, enda tilvalið að nota
dimmasta og kaldasta tímann til að
bæta við sig þekkingu, læra ný dans-
spor, tileinka sér nýtt tungumál, læra
að mála eða teikna, stíga sín fyrstu
skref í leiklist eða söng, ná tökum á
fjármálunum eða hvað annað sem
hugur hvers og eins stendur til. Á
vefsíðunni námskeid.is er hægt að
finna allskonar námskeið undir hin-
um ólíkustu flokkum, sum eru fyrir
börn, önnur fyrir fullorðna og jafnvel
sérstök námskeið fyrir eldri borgara.
Einnig er sérstakur þráður með upp-
lýsingum um ódýr eða ókeypis nám-
skeið. Á síðunni má einnig finna skrá
yfir sali til leigu sem og tækjaleigur.
Þetta er sannarlega vefsíða sem
hægt er að mæla með fyrir fólk sem
ætlar ekki að sitja kyrrt í sófanum í
allan vetur.
Vefsíðan www.namskeid.is
Morgunblaðið/Golli
Dans Fjölbreytt dansnámskeið má finna á vefsíðunni, um að gera að liðka lið.
Allskonar námskeið fyrir alla
Margir landsmenn kannast við sópr-
ansöngkonuna Þóru Einarsdóttur eft-
ir að hún sló rækilega í gegn í hlut-
verki Ragnheiðar biskupsdóttur í
samnefndri óperu Gunnars Þórðar-
sonar. Í hádeginu í dag kl. 12.15 og
aftur á sunnudag kl. 13.15 gefst fólki
kostur á að njóta söngs Þóru við und-
irleik Nínu Margrétar Grímsdóttur en
þær ætla að koma fram saman í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í
Breiðholti. Þær flytja einn ástsælasta
ljóðaflokk Schumanns, Frauenliebe
und Leben, en ljóðaflokkinn samdi
tónskáldið árið sem hann giftist
æskuástinni sinni Klöru.
Endilega …
… njótið söngs
Þóru í hádegi
Morgunblaðið/Kristinn
Þóra Einars Frábær söngkona.
Í tilefni Evrópska tungumáladagsins,
sem haldinn er hátíðlegur hinn 26.
september ár hvert, stendur Stofn-
un Vigdísar Finnbogadóttur í erlend-
um tungumálum fyrir hátíðardag-
skrá í samvinnu við mennta- og
menningarmálaráðuneytið og STÍL –
Samtök tungumálakennara á Ís-
landi.
Málþingið ber yfirskriftina
„Tungumálakunnátta er allra hagur“
og fer fram í stofu 101 í Lögbergi í
Háskóla Íslands í dag kl. 15-17:30.
Áhersla verður lögð á gildi forn-
málanna og almennrar tungumála-
kunnáttu í víðasta samhengi.
Að dagskrá lokinni verður boðið
upp á léttar veitingar. Allt áhugafólk
um tungumál og menningu er hvatt
til að mæta.
Evrópski tungumáladagurinn erí dag
Tungumálakunnátta er
sannarlega allra hagur
Leikið á frönsku Sólveig Simha frönskukennari og grunnskólanemar í frönsku.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Síðumúla 33
Sy ru sson Hönnunar hús
Syrusson-alltaf með lausnina
Vörur Leðurverkstæðisins finnur þú hjá okkur
Töskur frá kr. 36.900,-
Belti frá kr. 6.900,-
Axlabönd frá kr. 4.900,-
Roð armbönd frá kr. 1.500,-